Lesbók Morgunblaðsins - 25.01.1992, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 25.01.1992, Blaðsíða 9
og bíða þess að veðrinu slotaði og birti af degi. Ekki var hægt að grafa sig í fönn, eins og oft var gert, því harðfennið var svo mikið. Kletturinn var meters hár og álíka langur. Nú hlóðu þeir böggum sínum í skjólvegg og lögðust svo fyrir. Þá var klukkan tíu um kvöldið. Þarna lágu þeir til klukkan níu um morguninn og var það víst köld og ömurleg nótt. Þeir lágu þétt saman og allt að því hver á öðrum til þess að hafa meiri hita. Mikið var sungið um nóttina og talað saman til þess að sofna ekki því það hefði verið hættulegt. Kristjáni Ólafssyni leið þeirra verst um nóttina, enda lakast klæddur. Faðir minn tók af sér trefilinn og vafði honum um hálsinn á honum. Einnig tóku þeir sjóstakk úr poka frá einum og breiddu yfir hann og þótti fleirum gott að komast með höfuð- ið undir stakkbrúnina til að fá sér hlýju. Hundur föður míns lagðist um hálsinn á honum og hafði hann af því mikla hlýju. Þegar leið að morgni fór veðrinu að slota og lægði alveg að lokum. Klukkan níu um morguninn fóru þeir að reyna að hreyfa sig, en urðu að skríða fyrst á hnjánum. Smám saman liðkuðust þeir. Sturla og Gunnlaugur voru með smá nesti, þijár flat- kökur og tvo kjötbita. Var nú þessu skipt jafnt á milli þeirra og ekki var Tryggur skilinn eftir. Þeir borðuðu nú bitann og hresstust vel við það. Þegar þeir fóru að geta gengið var hugsað til ferðar. En nú vissi enginn hvar þeir voru staddir eða í hvaða átt skyldi halda. Þá gerðist það sem gladdi þá alla svo ólýsanlegt er. Sólin skein allt í einu milli skýjanna og var þá ákveðið að halda í sólarátt. Eftir að hafa gengið um það bil í tíu mínútur komu þeir fram á háa kletta og sáu niður í Reykjarfjörð sem er smá fjörður sem gengur suður úr Arnarfirði. Þá vissu þeir hvar þeir voru staddir. Þeir voru á svonefndu Miðdegisfelli sem er eyktamark frá bænum Reykjarfirði. Miðdegisfellið, hátt fell, með kletta á alla vegu nema þar sem þeir komu að því, þar eru svona brekkur upp með smá klettastöllum. Var það talin mikil mildi að þeir skyldu stoppa þar sem þeir tóku sér náttstað, því trúlegt er að þeir hefðu geng- ið fram af klettunum, ef þeir hefðu haldið áfram í svo mikilli blindhríð. Það mun vera svona eins og hálfs tíma gangur frá síðustu vörðu, sem þeir fóru frá þegar þeir fóru að villast. Nú birti stöðugt svo þeir voru ekki í neinum vafa hvar þeir voru og hvert skyldi halda. Nú hresstust þeir stöðugt og komið var besta veður. Sumir tóku bagga sína á bakið en aðrir drógu þá á sleðanum. Um sleðann sem þeir týndu og bagga Ólafs sinntu þeir ekkert um. Ekki er vitað hvað þeir voru lengi niður dalinn. En þeirra fyrsta verk, þegar þang- að kom, var að fá sér að drekka úr læk sem rann niður dalbotninn og voru víst allir fegnir eftir mikinn þorsta. Þeir voru lengi heim dalinn sem er langur og kjarri vaxinn. Enda hvíldu þeir sig oft, því þreyt- an sótti á þá. Loks komust þeir til bæja klukkan hálf þijú að degi 30. mars. Það var Tungumúli á Barðaströnd'Þar bjó þá ekkja, Guðlaug Féldsted. Maður hennar, Þórarinn Féldsted, hafði orðið úti þennan sama vetur á jólaföstu, nokkru fyrir neðan túnið í Tungumúla, seint um kvöld. Var þeim þar vel tekið og vel við þá gert. Nú átti faðir minn skemmst heim og bauð hann öllum félögunum heim til sín. Hann átti heima í Haga á innri jörðinni. Það var mikill fagnaðarfundur hjá föður mínum og konu hans, Steinunni Björgu Júlíusardóttur, sem beið með þijú börn sín komung eftir eiginmanni sínum. Þau voru gift fyrir fjórum árum. Tengdaforeldrar Þórðar, Jóna J. Jóns- dóttir og Júlíus Ólafsson, voru hjá þeim í Haga. Allt þetta fólk tók vel á móti ferða- löngunum og lofaði Guð fyrir að hafa heimt þá úr helju. Þeim var veittur hinn besti beini og hlúð að þeim svo sem hægt var. Eftir góða hvíld í Haga fór hver heim til sín. Þeir lofuðu hver annan fyrir trausta samfylgd. Snæbjörn lá nokkra daga eftir ferðina og var sagt að hann hefði aldrei náð sér að fullu. Allir eru þessir menn dánir nú. Þarna voru þrennir bræður og einn að auki. Sagt er að þeir hafi aliir verið hinir bestu vinir meðan ævin entist. Ég undirritaður var tveggja ára þegar þetta gerðist og hef sjálfsagt lítið skynjað hvað hér var að gerast. Skráð í nóvember 1991. ÓLAFUR KR. ÞÓRÐARSON, KENNARI ERLENDIR HOFUNDAR Hamingja rón- ans og narmur - Nokkur orð um Charles Bukowsky og William Kennedy Fyrir um það bil tveimur árum voru sýndar tvær frægar kvikmyndir í Reykjavík sem báðar fjalla um hlutskipti utangarðsmanna í Bandaríkjun- um, en hvor með sínum hætti. Þetta voru mynd- irnar „Barflies“ með Mickey Rourke og Fay Þeim Bukowski og Kennedy tekst að koma þeim boðskap prýðisvel til skila, að utangarðsmaðurinn og fyllibyttan sé þegar allt kemur til alls, ekki verri persóna en næsti smáborgari. C Eftir ÁGLJST B. SVERRISSON Charles Bukowski THE MOST BEAUTIFUL WOMAN IN TOWN & other stories Dunaway í aðalhlutverkum og „Ironweed“ með þeim Jack Nicholson og Meryl Streep. Grunnurinn að þessum myndum er ekki brandara- og byssugleði og yfírborðsleg hugvitsemi rútíneraðra handritshöfunda í Hollywood eins og svo margt það rusl sem heilaþvær unga bíógesti, heldur söguheimur tveggja mikilla en ólíkra skáldsagnahöfunda þar vestra sem lengst af ævi sinnar höfðu farið varhluta af þeim dýrðarljóma sem umlykur kvikmyndaheiminn. Þetta eru höf- undarnir Charles Bukowski og William Kennedy. Báðar kvikmyndimar koma verk- um þeirra meira en prýðilega til skila enda önnuðust báðir handritsgerð, hvor að sinni myndinni. Bukowski hóf skáldferil sinn með ljóðagerð en þekktastur er hann fyrir röð sjálfsævisögulegra skáldsagna um fyllibytt- una og rithöfundinn Henry Chinaski en Chinaski þessi er lítt dulbúin eftirmynd Bukowskis sjálfs. Meðal þessara bóka má nefna „Factot- um“, „Post Office“ og „Women“ og fást þær á frummálinu í hérlendum bókaverslunum en ekkert hefur verið íslenskað eftir Bukowski utan ein smásaga sem birtist í Vikunni 1985 í þýðingu Jóns Óskars Sól- ness. Kvikmyndin vinsæla „Barflugur“ er ekki efnislega byggð á neinni sögu Bukowskis heldur er eins og ein sagan í viðbót í flokknum um Chinaski og hefur til að bera sama andrúmsloft og frásagnaranda og bækumar. Orðstír Bukowskis sem rithöf- undar grundvallast ekki á frumlegri bygg- ingu verka hans eða nokkru því sem telja má til tíðinda í skáldhugsun eða formi þó að vissulega standist verk hans allar kröfur um tæknilega fágun. Aðall þessara bóka er stórkostleg hrein- skilni og opinberun þeirrar hrikalegu lífsreynslu sem höfundur tjáir á einfaldan og látlausan hátt með fáorðum en kjarngóð- um lýsingum og hnyttnum samtölum. Chin- aski er óforbetranlegur drykkjurútur sem auk þess að hella í síg ótrúlegu magni áfengra drykkja þvælist úr einni skítavinn- unni í aðra, kynnist hrikalegu samansafni af neðanmálsfólki og á vingott við ótöluleg- an fyölda vafasamra kvenna. Síðast en ekki síst hefur Chinaski rétt eins og Bukowski náttúrulega þörf og hæfileika til skáldskap- ar. Fyrir þá lesendur sem ekki eru viðkvæm- ir fyrir klámi og ljótu orðbragði eru þessar sögur (ásamt myndinni) hin besta skemmtun en auk þess mikil og merk heimild um fárán- leika mannlegrar tilveru og skuggahliðar þjóðfélagsins. William Kennedy og Charles Bukowski eru vissulega ólíkir höfundar en báðum tekst að koma þeim boðskap prýðisvel til skila að utangarðsmaðurinn og fyllibyttan sé Tfte Putiiscr Prizwitminx ttmvl í WILLIAM KENNEDY Charles Bukowski á kápu bókar sinnar. Kápan á Járngresi Williams Kennedy. þegar allt kemur til alls ekki verri persóna en næsti smáborgari í þessum harða heimi samkeppni og fallvaltleika. Engu að síður er grundvallarmunur á viðhorfum þeirra til rónalífsins og einmitt sá munur gerir saman- burð á verkum þeirra athyglisverðan. Grunntónninn í verkum Bukowskis er stjórnleysið og sú skoðun að hver maður lifi eins og honum sé eiginlegt og það sé ekki verra lífsstarf en hvað annað að ganga á birgðir áfengisverslana og öldurhúsa (eins og menn vita dregur slík iðja úr fjárlaga- halla íslenska ríkisins, en það er önnur saga). Þó viðurkennir aðalpersónan Chin- aski að hann drekkur til að flýja ljótleika tilverunnar eins og segir á einum stað í „Factotum": „Þegar maður drakk þá var heimurinn enn á sínum stað en hann hélt ekki lengur fyrir kverkarnar á manni.“ En einkunnarorð sömu bókar, tilvitnun í franska höfundinn André Gide lýsa þó enn betur viðhorfum Bukowskis til viðfangsefn- isins: „Rithöfundurinn þráir ekki að sjá ljón- ið bíta gras. Hann veit sem er að einn og sami Guð skóp úlfinn og lambið, leit á verk sitt „og sá að það var gott.““ William Kennedy hefur lifað öllu stilltara. lífi en Bukowski. Hann hefur búið alla sína ævi í borginni Albany í New York-fylki og kennir þar ritlist við Ríkisháskólann. Allar bækur hans gerast á þessum slóðum en „Járngresið“ er þeirrar þekktust og hefur hlotið hin eftirsóttu Pulitzer-verðlaun og fleiri viðurkenningar. Bókin hefur komið út í íslenskri þýðingu Guðbergs Bergssonar. í henni gætir annarra viðhorfa til drykkjusýk- innar en hjá Bukowski. Meiri áhersla er lögð á hörku umhverfisins (sagan gerist á kreppuárunum) og .rónarnir eru útigangs- menn sem eiga hvergi höfði að halla og hættan á því að frjósa í hel að næturþeli er stöðugt fyrir hendi. Fyllibyttur Bukowski s eru nánast hamingjusamar, þær eru drykkjufólk að eðlisfari en í „Jámgresi" Kennedys er enginn róni í eðli sínu. Róninn er þar jafngóð persóna og broddborgarinn einmitt vegna þess að upphaflega var hann ekki róni. Jafnvel sá sem ekki virðist eiga sér neina fortíð í borgarlegri tilvem hefur þó einhvern tíma verið lítið barn og „lítið barn er enginn róni“ eins og komist er að orði á einum stað í sögunni. Drykkjan er harmleikur, ógæfa þeirra sem verða undir í lífsbaráttunni. Aðalpersónan Francis Phel- an, er fyrrum hafnarboltaleikmaður sem gæfan sneri baki við á einu örlagaríku augnabliki: Eitt sinn kom hann heim létt- kenndur af 3-4 bjórum eftir að hafa fagnað glæstum sigri í vinahópi, tók nýfæddan son sinn í fangið en missti hann á gólfið með þeim afleiðingum að barnið dó samstundis. Yfirkominn af harmi og umfram allt sektar- kennd flúði Francis konu sína og tvö eftirlif- andi börn og hefur lifað í 20 ár í ræsinu þegar sagan hefst. Þar á hann vingott við Helen, háskólamenntaða konu með tónlist- arhæfileika, viðkvæma sál sem lent hefur á glapstigum vegna útskúfunar úr fjölskyldu sinni. Sagan (og afbragðsgóð myndin) lýsa á fagran hátt vináttu og samstöðu meðal útigangsfólksins sem og átakamiklu ástar- sambandi Francis og Helenar. Frásögnin er þunglamaleg framan af þegar hún endur- speglar kyrrstætt líf rónans þar sem enga stefnu er að fínna og engin markmið, enga framtíð. í seinni hluta sögunnar dregur hins vegar til tíðinda þegar Francis mannar sig upp til að heimsækja fyrrverandi fjölskyldu sína sem hann hefur ekki séð allan þennan tíma. Þegar sá ís er brotinn fer að rofa til í lífi hans þó að endurfundirnir séu ekki átakalausir. „Járngresið" er hrífandi og ægifagurt verk og margslungið í uppbyggingu vegna stöðugra skiptinga og samruna nútíðar og hins liðna en draugar fortíðarinnar ásækja stöðugt aðalpersónuna Francis Phelan og neyða hann loks til sjálfsuppgjörs og endur- funda við fjölskyldu sína því að enginn flýr sjálfan sig til lengdar. Stíll sögunnar er fjöl- breytilegur og spannar allt frá ruddalegu orðbragði rónanna til hástemmdra og hátíð- legra lýsinga á hugrenningum og tilfinning- um hinnar viðkvæmu listamannssálar sem Helen, lagskona Francis, er. Því er ekki að neita að saga Kennedys hrífur borgaralegan lesanda á borð við greinarhöfund meira en verk Bukowskis og virðist hafa mikilvægari boðskap að flytja og tjá dýpri tilfinningar en kaldhæðnisleg saga Chinaskis. Hér skal þó alls ekki dreg- ið úr trúverðugleika Bukowskis sem reynt hefur á eigin skrokk hvað það er að lifa í ræsinu. Báðir höfundarnir segja miklar sög- ur hvor með sínum hætti og báðir virðast hafa fram að færa mikilvæg en afstæð sann- indi um lífið. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 25. JANÚAR 1992 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.