Lesbók Morgunblaðsins - 25.01.1992, Side 5

Lesbók Morgunblaðsins - 25.01.1992, Side 5
f í/r J jn ou. fbttjp-*d.yr cj jC7Ljt ceí /o.o b. fhcJS/í ‘f&icL/, é.O x 3. S' C. %,ULfJU, $. 2 » Z.* cC • ¥.o x 2. s c. fhJ-rC, y.3X 2.8 f>. Jftt+rurrvt*/, V. ¥*■ •* cf. k/'jcs, íf.7 a 3. 2< Grunnteikning af bænum á Skáldstöð- um frá síðustu alda- mótum. Kjartan Júlíusson um það leyti sem hann gaf út bók sína „Reginfjöll að haustnóttum“. heilög jörð einverunnar, — helgidómur — sem í raun og sannleika engin orð fá lýst til fulln- ustu.“ (3) In. Áfram liggur leið okkar í úðaregninu, malbikinu sleppir og við tekur þjóðlegur ís- lenskur malarslóði. Á vinstri hönd niðar Eyja- fjarðaráin en til hægri kúra bæimir undir bröttum fjallshlíðum. Við rýnum á nafnskiltin við veginn, án árangurs lengi vel, en um síð- ir fáum við umbun þolinmæðinnar: Skáldstað- ir stendur á skiltinu og við lítum vongóðir til bæjar. Við augum blasa nýtískuleg og reisuleg bæjarhús. Hér andar allt af reisn og vel- gengni nútímahátta í íslenskum landbúnaði, hús og úthýsi af steini, bifreiðar á hlaði, hvers kyns vinnuvélar og tæki í úrvali. Ekki er laust við að pílagrímum daprist eilítið móður. Við ökum þó heim traðimar að bænum, svipumst um og rýnum til fjalls. Og viti menn; uppi í hlfðinni, nokkrum hundruðum metra ofan við hin steinsteypta nútíma, kúra nokkrir grænir hólar í úðanum. Það skyldi þó aldrei vera...? Heima á hlaði náðum við tali af ungum manni, segjum erindi okkar og spyrjum eftir hinum lágreista bæ skáldsins á Skáldstöðum efri. Pilturinn kannast strax við Kjartan heit- inn, kveðst vera ættingi hans og bendir okk- ur upp í hlíðina, þar sem fýrmefndar þústir kúra í grænkunni, dijúgan spöl frá steinsteyp- unni. Bók frænda síns kveðst hann aldrei hafa lesið. Leyfi til að skoða gamla bæinn er auðsótt en ekki er greitt leiði upp eftir. Hér er yfir tún og heimalönd að fara, sem öll eru ræki- lega girt, og eyfirskar kýr og gæðingar líta för okkar þremenninganna í dögginni hom- auga. Hvergi eru hlið á girðingum, né vottar fyrir heimreið, tröðum eða slóða. Þótt áratug- ur sé um liðinn, frá því gömlu hjónin gengu hér um garð, er máttur hins eyfirska gróanda þó ekki slíkur að hann megni að hylja svo gersamlega ummerki genginna spora. Hér hefur aldrei verið nein mörkuð heimreið, gest- ir og gangandi hafa orðið að þramma yfir tún og skurði, fyrmm sem nú. Eftir því sem nær dregur bæjarhúsunum verður máttug hönd hrörnunarinnar ljósari. Hingað hefur ekki verið fylkt liði síðan ekkj- an brá búinu. Aðkoman er myndræn og dapur- leg í senn: Eina stafþilið sem á bænum hefur verið, svignar undan slakkanum, grátt og gisið af veðrun, en önnur húsakynni kúra sig bak við garða og gróskumikinn tijálund, vart sýnileg. Fyrst mannvirkja verður hér fyrir okkur lítil tóft og er þekjan rofin að hluta. Inni fyrir getur að líta leifar af króm, raftarnir eru skekktir og svartir af sóti. Förunautar mínir, sem báðir eru vel heima í búsháttum hins horfna íslands, velta vöngum yfir um- merkjum um stund en ég, bam hinnar stein- steyptu velferðar, reyni að breiða yfir fákunn- áttu mína með því að munda myndavélina. Halldór heimsótti Kjartan. IV. Við snúum upp að bæjarhúsunum. Hér hefur sérkennileg húsagerðarlist ráðið ríkjum, en trautt er orðið að sjá smíðina í smáatrið- um. Synd er að segja að hin fyrri híbýli Skáld- staðabænda gnæfi við himin, né hefur heldur verið vítt til veggja. Skáldstaðir efri er torf- bær af því taginu er Hörður Ágústsson mynd- listarmaður hefur nefnt „foma gerð“. Mun það vera forveri burstabæjarlagsins og því eflaust ekki mörg húsakynni uppistandandi hérlendis með slíkri smíð. Ándstætt íverustöð- um nútímans eiga torfbæir sér ekkert afmark- að smíðaár heldur em þeir afsprengi margra völunda sem hönd hafa lagt á plóginn á ýmsum tímum. Skáldstaðir efri em þar eflaust engin undantekning, eins þótt í riti Jónasar Rafnars, Bæjarlýsingum og teikningum úr Eyjafirði fram, sé smíðaárið talið S kringum aldamótin síðustu. (4) Jónas birtir í sama riti teikningu Garðars Jóhannessonar af bænum, gerða árið 1904 en skjátlist mér ekki hafa vistarvemr Skáld- staðabænda eitthvað skipast frá þeim tíma. Samsetningin er fremur óskipuleg en eftir því sem við nálgumst hlaðið — eða það, sem eitt sinn hefur verið hlað — má sjá að stofn- húsið er um það bil fimm og hálfur metri á lengdina og tæpir þrír metrar á hæðina. En áður en við náum alla leið verður á vegi okkar óvæntur farartálmi: Illvíg gaddav- írsgirðing umlykur bæinn og þurfum við allr- ar útsjónarsemi við til að komast yfir hana. Baldur rifjar upp söguna af því þegar herra þessara híbýla bauð meistara Þorbergi til sumárdvalar, líkt og skáldbróður hans, Hall- dóri. Illu heilli lést Þorbergur áður en af heim- sókninni yrði en Margrét kona hans hljóp í skarðið og hélt norður. Þegar heim að Skáld- stöðum kom reyndist bæirinn allur víggirtur hinni torsóttu gaddavírsgirðingu sem reyndist gestinum úr höfuðstaðnum erfiður ljár í þúfu. Mun frú Margréti hafa þótt vistin að Skáld- stöðum lítt við sitt hæfi og varð dvöl hennar í faðmi eyfírskra dala skemmri en til stóð. En girðingin stöðvar ekki hinar þijár boðf- lennur ársins 1991. Og hér er takmarkinu náð. Við stöndum við dyr hins horfna bók- menntabónda, Kjartans Júlíussonar á Skáld- stöðum efri. V. Líklega væri réttara að segja dyragætt því hurðin er horfin af stöfum. Enginn stendur lengur úti á hlaði, til að bjóða gesti vel- komna, svo við gerum okkur heimakomna og stjáklum feimnislega inn í níðþröng göng. Til beggja handa birtast brátt gættir en hvorki verður sagt um hið fyrra hlutverk skála þess- ara né heldur verða þeir kannaðir því hér ægir saman hinum fjölbreytilegustu þingum á gólfum. Greinilegt er að margt búshluta hefur verið skilið eftir þegar bærinn var yfir- gefinn og hefur dótið síðan legið sem hráviði, raka og veðrum að leik. Hér getur m.a. að líta ýmis eldhúsþing og umbúðir af nauðsynj- um, fomar ferðakistur, sem fyrrum hafa numið við síður þörfustu þjónanna, hluta af olíulampa og gegnumryðgaða kaffikönnu, þeirrar gerðar sem flest okkar munu minnast úr eldhúsi ömmu og afa. Baldur ágirnist snældu af rokki, sem endað hefur ævidagana þama í göngunum og hugs- ar um stund til þess að kippa henni með sér. Að ígrunduðu máli hættir hann þó við það: „Ekki er að vita hvað maður tekur hér með sér,“ segir skáldið hugsandi. Við ferðafélagar hans samsinnum þessu með þögninni og snældan fær að hvíla í friði ásamt öllu öðru sem eftir er af jarðneskum eigum Skáldstaða- bænda. Við enda ganganna getur að líta nokkur þrep sem liggja upp að inngöngunni í aðalhýs- ið. Hér eru innviðir þó svo mjög komnir að fótum fram að ekki er þorandi að leita lengra inn í húsakynnin. Við snúum út á ný og göngum umhverfis bæjarhúsin. Nú er hrörn- unin enn ljósari en áður og greinilegt að tímans tönn vinnur verk sitt af fullkomnu vægðarleysi. Samt er eitthvað heillandi, jafn- vel fagurt, við að sjá hvernig náttúran réttir hlut sinn andspænis mannanna verkum á nýjan leik. Bæjarhús Kjartans bónda óg Finn- bjargar húsfreyju eru mjög tekin að skekkj- ast á grunni, grasið á þakinu úr sér vaxið og löngu runnið saman við háreist puntstrá í hlaðvarpanum svo vart verður lengur í mill- um greint hvar húsum sleppir og grundin byíjar. Allt í kringum bæinn breiðir risavaxin Ujólafjöld úr sér og er allur gróandi slíkur að naumast verður séð hvar drepa skuli niður fæti. Hér þarf ekki vitnanna við; að öðrum áratugi gengnum verður ekkert hér uppi- standandi af híbýlum. Hinn norðlenski vetur verður þá búinn að fella þessi lágreistu og hógværu mannvirki, sem hér kúra í grasinu, og Náttúran mun breiða náðarhjúp sinn yfir vistarverur Kjartans bónda og kynslóða þeirra sem Skáldstaði efri hafa byggt. Ekkert mun þá verða hér til marks um fyrri búsetu, utan tijálundurinn góði sem breiðir gróskumiklar greinar yfir þekjuna. Að beiðni minni staldra félagar mínir við og ræðast við ofan bæjar um stund, hartnær á sama bletti og forsíðu- mynd Reginfjalla að haustnóttum var tekin, einum 15 árum fyrr. Þar gat að líta þá Hall- dór Laxness og gestgjafa hans, Kjartan á Skáldstöðum, spjalla saman með baðstofuljór- ann í baksýn. Halldór hafði augsýnilega orð- ið; heimsmaðurinn með derhúfu á höfði og ullartrefil um hálsinn sem væri hann enskur „lord“. Gegnt honum stóð gamli maðurinn á Skáldstöðum og draup lítið eitt höfði, kannski í auðmýkt, kannski til að veija augu sín mótlægum geislum sumarsólarinnar. En að þessu sinni er hvorki Nóbelsskáldinu né geisl- um sólar fyrir að fara og með tvímenningun- um, sem hér spóka sig frammi fyrir linsu minni, er jafnræði. Ofan við bæinn stendur enn svolítill kofi úr torfi sem að líkindum hefur hýst hinar fáu kindur sem- Kjartan hafði á fóðrum. Þær hef- ur ekki skort umhyggjuna, ef marka má skrif Skáldstaðabóndans, og ósjálfrátt koma upp í hugann eftirmælin sem hann orti um gim- brina sína litlu sem endaði ævidaga sína með sviplegum hætti: „Ég er búinn að eiga margar skepnurnar um ævina en enga þeirra hefur mér þótt eins vænt um og Dimmu ... Það er búið að fella mörg tár hér á bæ síðan blessuð litla kindin fór burt úr þessum heimi. Vonandi fær mað- ur að sjá hana hinumegin og allar aðrar skepnur sem við Finnbjörg áttum og dánar eru og okkur þótti vænt um. Þeim gleymum við aldrei. Ég veit, að Dimmu litlu sakna ég allt til dauðans. Það er ekki alltaf gott að lifa í endur- minningunum. / öðmm heimi, elsku kind, íttu góða daga, þar við bláa bunulind blómin sérðu í haga.“ (5) VI. „Hann kemur hingað öðru hvoru, karlinn," segir sagnaþulurinn frá Dagverðará sem sér öðrum betur yfír víddarmörkin. Og slík stað- festa liggur í orðum hans að við Baldur hljót- um að samsinna honum. Víst er það ekki fjarri lagi að maður, sem fæðist og elur aldur sinn í slíkum náttúrubústað sem þessum, bindist honum nánari böndum en t.a.m. íbúi í ein- hverri Breiðholtsblokkinni sínum vistarverum. Og vel er það hugsanlegt að tengslin þau nái út yfir gröf og dauða. Enda þarf ekki ríku- legt ímyndunarafl til að sjá Kjartan Júlíus- son, síðskeggjaðan, hæruskotinn öldung, ganga hér fyrir horn með kláru í hendi og heimalninginn Dimmu á hælunum. Kláran liggur m.a.s. hér enn, innan við svignandi þilið á skemmu Skáldstaðabóndans, ásamt fleiri verkfærum hins gamla tíma sem bíða og þreyja líkt og bóndi hafí aldrei horfið yfir móðuna miklu heldur sé væntanlegur til bú- verkanna þá og þegar. En hætt er við að ekki megi ganga að tólum hér vísum lengi enn því hinn eyfírski vetur mun sliga skemm- una fyrr en varir, haldi svo fram sem horfir. Við félagarnir látum gott heita, fikrum okkur fram hjá ipjókurbrúsa Kjartans bónda, sem hann hefur borið ófáar ferðirnar um dagana „niður á bílastöð", leggjum tii atlögu við gaddavírinn á ný og sleppum órifnir — en með naumindum þó. Það er tímabært að snúa baki í hinn lágreista bústað og tölta niður til nútímans, yfir slakkana og túnin þar sem Kjartan heitinn eyddi ævinni og þekkti hvert ömefni í Skáldstaðalandi. Að baki okk- ar heldur gróðurinn áfram að vinna verk sitt, hægt og örugglega. Áður en varir munu spor Skáldstaðaskáldsins kyrfilega gróin og ekkert standa eftir af verkum hans í heimi hér — utan ein bók. Höfundur er nemi. Heimildaskrá: Jónas Rafnar: Bæjarlýsingar og teikningar úr Eyja- firði fram. Valdimar Gunnarsson bjó til prentunar. Útg.: Sögufélag Eyfirðinga. Akureyri 1975. Kjartan Júlíusson: Reginfjöll að haustnóttum og aörar frásögur. Halldór Laxness ritaði formála. Útg.: Iðunn. Reykjavík 1978. Tilvitnanir: (1) Halldór Laxness: Formáii að Reginfjöllum að haustnóttum, bls. 11-12. (2) Kjartan Júlíusson: Sama rit, bls. 104. (3) Kjartan Júlíusson: Sama rit, bls. 106. (4) Jónas Rafnar: Bæjarlýsingar og teikningar úr Eyjafirði fram, bls. 74. (5) Kjartan Júlíusson: Reginfjöll að haustnóttum, bls. 150-151. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 25.JANÚAR 1992 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.