Lesbók Morgunblaðsins - 29.02.1992, Page 7
'a i fínum boðum. Brosmild stillir hún upp litaglöðum sundfötum.
stoppar milli hæða. Slökknar á öllum neyð-
artökkum og ljósum. Og menn mega dúsa
þar aleinir í hálftíma i niðamyrkri!
Mía hringir. „Vonlaust að fara í svona
veðri," segir hún. Fjallvegir aðeins mold-
arstígar sem verða strax ófærir. Núna sitja
þrír Svíar þar fastir sem ætluðu með flug-
inu í kvöld eins og þið.“
IPANEMA, STRÖND RÍKA
Fólksins
Á Ipanema stunda allir líkamsrækt eins
og þeir eigi lífið að leysa. Hlaupandi menn
geisast framhjá, líta ýmist á úr eða púls-
mæli. Úti á sandinum hamast ungir og
gamlir á líkamsræktartækjum, í teygjuæf-
ingum. Jafnvel eldri frúrnar skokka í
hlaupagalla og strigaskóm með fínu kjöltu-
rakkana sína. Heilbrigt mannlíf. Og ungl-
ingar sötra safa úr risastórum melónum, á
meðan þeir bíða eftir strætó.
Frúin sem skokkar þama, er kannski með
stofuþernu, eldabusku og þjónustustúlku. í
Brasilíu er vinnuafiið svo ódýrt. Og hún býr
í látlausu húsi (íbúðasamstæðu við Ipa-
nema, þar sem íbúðaverð er dýrara en á
sjálfri Manhattan. En varðmaður stendur
við járngrindahlið framan við húsið hennar.
Ipanema er tískumiðstöð Ríó með fínustu
Favela-fátækrahverfið býr yfir
sérkennilegri Ijóðrænu.
mestu. Hólar og hæðir notaðar í uppfyll-
ingu. Jafnvel hæðir með sögulegri byggð
hafa fallið fyrir jarðýtutönnum. Sjávarsandi
verið dælt upp í fjörur. Landnámsmenn
myndu ekki þekkja Janúarfljótið sitt aftur!
Frá Sykurtoppi yfir á Corcovado (710
m) eða Kroppinbaksfjall, þaðan sem 30
metra Kristsstytta breiðir arma sína út yfir
Ríó. Skemmtilegast að taka lestina gegnum
regnskóginn upp á fjallið og virða fyrir sér
mannlíf í regnskógi í miðri milljónaborg.
Héðan horfum við niður á Sykurtoppinn,
beint á móti útbrejddum örmum Kristsstytt-
unnar. En ég flý fljótt af hólmi. Hvorki
hægt að njóta útsýnis, né að eiga rólega
stund framan við Kristsstyttuna, fyrir óþo-
landi myndavélaklikki allt í kringum mann!
Fjall Heilagrar Teresu
„Farið þið endilega upp í Santa Teresa,“
sagði Mía. Og við hoppum upp í opna sport-
vagninn sem ber okkur upp í „Santa" eins
og Ríóbúar segja. Og við göngum innan um
blómskrúð, á hellulögðum strætum sem
bugðast niður fjallshlíðina. Viktoríanskar
villur og nýtísku einbýlishús. Ringulreið í
arkitektúr. Ströndin og allt fjörið fyrir neð-
an.
í lok 19. aldar þótti fínt að sýna heimilis-
fang uppi í Santa. Nú sækja listamenn og
sérvitringar í húsin hér. Santa fór að byggj-
ast, þegar gulan heijaði og móskitó-flugan
lá í breiðum yfir mýrum við ströndina og
bar með sér sóttkveikjur. Brasilíubúar dóu
í hrönnum. Og Ríóbúar flúðu upp í fjöllin.
Ríó, Svo Full Af Seiðmagni
Ríó birtist í síbreytilegu ljósi. En alltaf
full af hrynjandi og seiðmagni sem erfitt
er að lýsa. Ríóbúinn sér lífið í allt öðru ljósi
en íbúi við Norðurpól. Brimgarðurinn er
,FugIamaður“ á svifi yfir Sao Conrado, einni nýjustu hótelaströndinni í Ríó.
búðirnar. Ef það fæst ekki þar, þá er það
ófáanlegt í Ríó. Allt er svo létt og kátt í
Ipanema. Og þarna er kráin „A Garota de
Ipanema“ sem kennd er við fallegu stúlkuna
héðan. Og ég fer ósjálfrátt að raula klass-
íska popplagið „The Girl from Ipanema“.
Ríóbúar byggðu fyrstu „Kringluna" sína,
Ríó-Sul, um 1980. Sao Conrado Fashion
Mall er einstaklega falleg lítil verslanamið-
stöð með veitingahúsum og listaverkabúð-
um. En þær eru báðar utan við Ipanema.
Sykurtoppur Og
Kroppinbaksfjall
í kláfum svífum við yfir regnskóg og
hvítar strendur upp á eitt frægasta fjall
veraldar, aðeins 396 metrar á hæð. Ávali
graníttindurinn minnti Portúgala á sykur-
klump. Enda voru þá sykurklumpar í stöfl-
um við Ríóhöfn. Eg varð yfir mig undr-
andi, þegar við gengum út á toppinn. Neðan
frá sýnist fjallið með ávala bungu efst. Og
ég hafði búist við steyptum útsýnispalli með
girðingu í kring. En þarna er ótrúlega stór
breiða með tijágróðri og blómum. Gott veit-
ingahús og minjagripabúð.
Héðan sér maður best hina sérkennilegu
náttúrufegurð Ríó. Gulbrúnir tindar upp úr
skógivöxnum hæðum og hólum. Borgarhlut-
um stungin niður á milli klettabelta og allir
eiga sína hvítu skeljasandsvík. Skógivaxnar
eyjar úti í flóa, eins og skaparinn hafi ekki
látið sér nægja að teygja og toga til lands-
lagið heldur tekið hnefafylli af eyjum og
stráð yfir flóann, til að hafa þetta nógu
skrautlegt.
En Ríó hefur breyst. Og margur náttúru-
verndarsinninn er lítt hrifínn. Þegar Portúg-
alar komu hingað, var lítið um sandstrend-
ur. Regnskógur teygði sig yfir allt. Fenja-
mýrar í fjörum. Hæðir og hólar miklu fleiri.
Nú hefur regnskógur verið höggvinn að
leikvöllur flestra ungra manna í Ríó. Sjó-
brettið þar líkt og boltinn hér. „Fuglamenn"
eru líka algengir, þeir sem hoppa í flugdrek-
um niður af graníttindum borgarinnar. Ár-
angur: stæltir líkamar, þrungnir af sól og
lífsfjöri. En aðeins hjá þeim sem hafa nóg
í sig og á. í Brasilíu og Ríó finnst líka dverg-
vaxið fólk vegna næringarskorts.
Ríókvöldin eru full af rómantík. Pörin
liggja í faðmlögum á almenningsbekkjum
eða eru samofin á ströndinni f bleiku sólar-
lagi. „Hér er allt leyfilegt í ástum,“ segir
brúneygði, glæsilegi Ríóbúinn, dæmigerður
fyrir unga „uppaliðið“ í Ríó. „Hér fínnast
klúbbar fyrir allar tegundir ástarlífs. Og svo
gaman að lifa, að maður nennir ekki að
gifta sig,“ segir hann og hlær. „Hættulegt?
Jú, það er allstaðar hættulegt, ef maður
gætir sín ekki.
Glæpir? Jú, þeir eru vissulega hér og
hræðilegri en víða annarstaðar. En ég held
samt, að glæpahneigð sé okkur ekki í blóð
borin. Alþjóðlegir glæpahringir hafa stungið
sér hér niður sem notfæra sér fátæktina.
Fá fátæka leiguliða í voðaverkin. Töluvert
um, að þeir fylgist með ríku fólki sem hing-
að kemur og ráðist inn á það. Yfirleitt ekki
heimamenn."
Niður næturlífsins berst til okkar frá
Copacabana, þar sem við sitjum úti við haf-
ið, á einu skemmtilegasta veitingahúsi Ríó,
„Sol e Mar Restaurant“ þar sem bragðlauk-
ar eiga auðvelt með að fá fullnægingu.
Hafgolan kyssir okkur frá Sykurtoppi, sem
rís upp úr myrkrinu með ljós á efstu brún.
Töfrar liggja í loftinu frá seiðmögnuðu and-
rúmslofti. Við brottför frá Ríó er reglan: —
að fara síðasta kvöldið upp á Sykurtopp.
Horfa á perlufestina kvikna, sem bílljós og
götuluktir mynda meðfram víkum og vogum
í einni fegurstu strandborg heims.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 29. FEBRÚAR 1992 7