Lesbók Morgunblaðsins - 29.08.1992, Page 12
RANNSOKN I R
I S L A N D I
Umsjón: Sigurður R. Richter
FJÖLDI STRANDFLÓÐA
ÁRTAL
Fjöldi strandflóða, sem vitað ér um við ísland síðan
1199 sýndur sem fjöldi flóða á öld. Rauði hluti súl-
anna sýnir þau flóð sem orðið hafa við Suðvesturland.
Strandflóð síðustu 100 ára. Myndin sýnir hvernig flóð- Myndin sýnir hvernig vindáttir ríktu samfara þeim
in dreifast á hina ýmsu mánuði ársins. strandflóðum síðustu 100 ára þar sem vindáttin er
þekkt. Um 51 % veðranna voru af SV, S og SA en 23%
voru af hinum áttunum. í 11% tilvikanna er vindáttin
óljós en í 14% tilvikanna var logn eða hægviðri.
Flóð við strendur íslands
Rannsóknir á strandflóðum eru liður í víðtækari
rannsóknum á hættum þeim sem lúra í ís-
lenskri náttúru. Strandflóðarannsóknir miða
i einkum að auknum skilningi á orsökum og
afleiðingum flóðanna þannig að hægt sé að
Strandflóð við ísland eru
algengari en svo að
eðlilegt sé að telja þau til
náttúruhamfara.
Háskóli íslands
EftirPÁL
IMSLAND
taka meira tillit til þeirra við undirbúning land-
nota á ströndum landsins og hönnun strand-
mannvirkja.
Strandflóð í Heimildum
í ýmsum gömlum heimildum er fjallað um
flóð við strendur landsins, getið skaða á eign-
um manna og skemmda á landi sem þeim
fylgdu. Þetta er svo algengt fyrirbæri hér við
land að flestir muna enn mörg flóð sem þeir
hafa ýmist upplifað í sinni heimabyggð eða
frétt af í fjölmiðlum. En hversu algeng eru
slík flóð og hvemig stendur á þeim? Þessum
spurningum hefur verið leitast við að svara
á Jarðfræðastofu Raunvísindastofnunar.
TíðniStrandflóða
Dreginn hefur verið saman úr eldri heimild-
um strandflóðaannáll fyrir landið. Annállinn
nær aftur til ársins 1199 en það ár eru sögur
af elsta flóði sem hér er vitað um. Annálar
eru stuttorðir um þennan atburð og segja
einungis „Flóð hið mikla“. Ekki er vitað hvar
það var, við hvemig skilyrði eða hver áhrif
þess urðu. Þessar heimildir geta samtals
a.m.k. 131 flóðs á síðustu 792 árum. Flóðin
verða umhverfis allt land en hafa mjög mis-
jafnlega mikil áhrif. Sum valda engu tjóni,
en önnur eru gífurlegt áfall sem heilu byggð-
arlögin eru mörg ár að jafna sig eftir. Af
meðfylgjandi mynd um fjölda flóðanna sést
að flóð eru fá framan af öldum en þeim fjölg-
ar er á líður. Þetta sýnir að skráning heimild-
anna hefur farið batnandi eftir því sem tíminn
leið. Þessi bætta skráning kemur einnig fram
í auknum upplýsingum um yngri fióðin miðað
við hin eldri. A þessari öld, og hluta hinnar
síðustu, má reikna með að getið sé nærri
allra flóða, sem komið hafa, en því fer fjarri
um eldri tíð. Því gefur yfirlit yfir flóðin frá
þessum síðari öldum gleggsta mynd af hegð-
un þessa náttúrufyrirbæris við landið. Á síð-
ustu 192 árum hefur 10 flóða gætt umhverf-
is allt eða nærri allt land. Áhrifanna af 56
flóðum hefur einkum gætt við Suðvesturland,
við vestánvert landið af 19, 'norðanvert 25
og austanvert 14. Af þessu er ljóst að fyrir-
bærið er langalgengast við Suðvesturland (frá
Dyrhólaey að Akranesi). Þar hefur gætt áhrifa
af yfir 65% þeirra flóða, sem orðið hafa við
landið á þessum tíma.
ÁRSTÍÐABUNDIÐ FYRIRBÆRI
Sæmileg vitneskja er um veðráttuna og
hvenær árs flóðin komu síðustu 100 árin og
sýnir hún að þetta er árstíðabundið fyrir-
bæri. Strandflóð eru langalgengust frá því
síðla hausts og frarp yfir miðjan vetur, eins
og sést af meðfylgjandi mynd.
Tengsl Við Veðurfar
Flest þessara flóða koma þegar djúpar
lægðir fara framhjá eða yfir landið þegar
stórstreymt er. Þá er gjarnan rok og því fylg-
ir flóðunum oft mikill öldugangur og brim.
Vindáttin samfara flóðunum síðustu 100 árin
er sýnd á meðfylgjandi mynd og þar kemur
%
glögglega fram að suðlægar áttir (SV, S og
SA) eru algengastar í þessum tilvikum og er
það í samræmi við brautir lægðanna. Flóð
geta þó komið með stormi af öllu áttum og
það sem óvæntara er, þau geta komið í hæg-
viðri og jafnvel í iogni. Slík veðurskilyrði voru-
ríkjandi við 14% af flóðum síðustu 100 ára.
í þessum tilvikum hljóta að vera til staðar
flóknari veðurfarsleg tengsl en venjulega, þar
sem flóð af þessum toga eru samspil á milli
hafrænna, veðurfarslegra og jarðfræðilegra
áhrifaþátta.
Orsakir Strandflóða
Orsakir flóða við strendur eru að minnsta
kosti þríþætt náttúrufarslegt samspil eins og
að ofan greinir. Ef náttúrufarslegt jafnvægi
er ríkjandi á strönd verða flóð þar ekki nema
með löngu árabili. Öldugangur sjávar hefur
tilhneigingu til þess að byggja garð úr sandi
og möl á ströndinni og markast hæð garðsins
af uppkastsgetu hæstu bylgjanna sem falla
að ströndinni. Inn fyrir slíkan garð gætir
áhrifa sjávarins ekki nema í undantekningar-
tilvikum. Hin tíðu flóð við Suðvesturland eru
glöggt merki þess að slíkt jafnvægisástand
er ekki ríkjandi þar. Land er að síga á þessum
slóðum og þess vegna lækka náttúrulegu
garðamir miðað við sjávarborðið og áhrifa
flóða gætir inn fyrir garðana oftar en ella.
Orsakir landsigsins eru hins vegar samspil
margþættra jarðskorpuhreyfinga og breyt-
inga í skorpunni sem tengjast landrekinu á
eldgosa- og sprungubeltum Reykjanesskag-
ans.
Afleiðingar
Strandflóðanna
Afleiðingar þessara flóða hafa verið marg-
víslegar í rás sögunnar en vegna breyttra lífs-
og starfshátta í landinu hkfa meginafleiðing-
ar þeirra breyst afar mikið að undanförnu.
Helstu afleiðingar þeirra'á fyrri öldum voru
landbrot og önnur landspjöll, skaðar á húsum
og jafnvel skepnum, en einkum skipabrot.
Sjógangurinn lamdi skip og báta, sem í hafn-
og bryggjuleysi þeirra tíma voru dregnir upp
á ströndina, kastaði þeim til, braut og lask-
aði. Á þessari öld breyttist þetta. Nú verða
meginskaðarnir á ýmiskonar hafnarmann-
virkjum, hafnargörðum, bryggjum, bryggju-
húsum og lögnum sem þar er komið fyrir.
Einnig verða tíðar skemmdir á skipum í höfn-
um. Hlutfailslega minni skemmdir verða á
íbúðarhúsnæði og skepnum. Landspjöll hálda
áfram en þau hafa ekki eins mikil áhrif á
daglegt líf manna og fyrr. Kostnaður er mjög
mikill af þessum flóðum. Heildartjón af ein-
stöku flóði getur numið hundruðum milljóna
og er aðeins að hluta til bætt af Viðlagatrygg-
ingu íslands.
Höfundur er jarðfræðingur og vinnur á Raunvís-
indastofnun Háskólans.
Brim við suðurströnd íslands. Morgunbiaðið/RAX
12