Lesbók Morgunblaðsins - 21.05.1994, Side 5

Lesbók Morgunblaðsins - 21.05.1994, Side 5
 Á Háubungu, á Mýrdalsjökli 1993; Lýdía Páldsóttir (t.v.) og Helga Sigríður Ara- dóttir í vélsleðaferð. Ljósm. Ari Ti-austi Guðmundsson. suðaustan við upptök Sólheimajökuls (í 700 til 800 m hæð). Þar geta menn sest á sólve- rönd, þegið öræfakaffi og rætt fyrirhugaða ferð með leiðsögumanni uns lagt er af stað. Vélsleðar eru afar auðveldir í meðförum, skipt- ing sjálfvirk og sleðinn stöðvast ef bensíngjöf er sleppt. Menn aka í eina slóð á eftir leiðsögu- manni og þeir sem ekki vilja stýra sjálfir sitja aftan á hjá öðrum. Algengastar eru eins til tveggja klukkustunda ferðir upp á einhverja af útsýnisbungum jökulhvelsins (1300-1500 metra háar). í nothæfu skyggni sést nær hálft landið, yfir Kötludældina og langt suður um haf. Á bakaleiðinni er oftast komið við þar sem Sólheimajökull brotnar frá meginjöklin- um, krosssprunginn og ófrýnilegur. I lengri ferðum er farið vítt og breitt um Mýrdalsjök- ul eða um Fimmvörðuháls á Eyjafjallajökul. Fyrir hvern sleða í ferð er greitt á bilinu frá 3.000-4.000 krónum upp í 8.000-9.000 krónur, eftir vegalengd og tíma. Jöklaferðir sem þessar ættu að vera sjálfsagður hluti skemmtiferða og Islandsskoðunar. Þær eru ógleymanlegar og fyllilega peninganna virði enda eru jöklarnir einstæð og heillandi ver- öld; ólík öðru sem býðst meðfram vegum landsins. KÖTLUASKJAN Nýlegar jarðeðlisfræðimælingar hafa svipt ísnum ofan af eldfjallinu Kötlu og afhjúpað megindrætti þess sem undir fjallinu er. Með íssjá Raunvísindastofnunar Háskólans hafa sérfræðingar birt okkur mynd af botninum undir jöklinum. Kemur þar fram að eldfjallið er afar stórt með mikilli öskju (110 ferkm), allt 700 metra djúpri. Jökulbungurnar marka hæstu hluta öskjubarmanna en þrír skriðjö- klar hafa rofið skörð í þá: Kötlujökull, Sól- heimajökull og Entujökuli. Meginhlaupleiðir eru einmitt undir þessum skriðjöklum. Víða er jökullinn nokkur hundruð metra þykkur og yfir gosstöðvunum frá 1918, í suðausturj- aðri öskjunnar, er ísþykktin um 400 m. Með svonefndum bylgjubrotsmælingum (þ.e. með því að nýta upplýsingar sem ferlar jarðskjálftabylgna um skorpuna búa yfir) tókst öðrum sérfræðingum, m.a. við Raunvís- indastofnun, að afla vitneskju um undirlög eldfjallsins. Svo virðist sem þar sé grunn- stætt kvikuhólf; geymir með verulegu magni af kviku. Hólfið er a.m.k. 4 km langt (NV-SA) en ekki er vitað um breiddina. Þykktin er 1-2 km. Ef gert er ráð fyrir 3 km breidd, er rúm- málið 12-24 rúmkílómetrar, segja jarðeðlis- fræðingarnir. Dæmigert Kötlugos skilar 0,1-0,3 rúmkílómetrum af gosefnum til yfir- borðsins svo nóg er af efni í næstu Kötlugos. Kvikuhólf eru þekkt undir nokknim íslenskum megineldstöðvum svo fundurinn kom ekki á óvart en hitt var óvænt að dýpi á hólfið sýn- ist vera mjög lítið (þ.e. þykkt jarðskorpunnar yfir því, að slepptum ísnum); aðeins 0,5-1,0 km í stað 3-5 km sem er algengast. Frekari mælingar þarf til að átta sig betur á stærð og legu hólfsins. Sprungurein liggur frá Kötlu til norðaust- urs. Þar og víðar í nágrenni jökulsins hafa orðið eldgos á sprungum, utan jökulsins, lík- lega stundum vegna kvikuhlaupa úr kvikuhólf- inu, líkt og í Kröflueldum. Mest þessara gosa varð í Eldgjá nálægt 930, en það er önnur saga. Heimildir: Einar H. Einarsson: Eldar Mýrdalssjökuls, óbirt hand- rit. Bryndís Brandsdóttir o.fl.: Kvikuhólfið undir Kötlu- öskjunni. „ Kötlustefna í mars 1993 (Qölrit), Raunvísindastofnun Háskólans (RH-3-93). Helgi Björnsson o.fl.: Mýrdalsjökull: Yfirborð, botn og rennslisleiðir jökulhlaupa. Kötlustefna í mars 1993 (Qölrit), Raunvísindastofnun Háskólans (RH-3-93). W.L.Watts: Norður yfir Vatnajökul. Reykjavík, 1962. Höfundur er jarðeðlisfræðingur og áhugamaður um jöklaferðir og eldgosasögu. Þjóðarblóm Eftir STURLU FRIÐRIKSSON Er til þjóðarblóm íslend- inga? Ég var fyrir all- jnörgum árum spurður að því, hvort hér á landi væri tfi einkennisplanta, sem væri viðurkennd af almenningi sem tákn fyrir plönturíki landsins og annað lífríki þess. Ég varð að játa, að svo væri ekki. Þeir sem spurðu voru að safna upplýsingum um ein- kennisplöntur ýmissa þjóða, sem hafa blóm í skjaldarmerki sínu eða nota plöntur og plöntuhluta sem þjóðartákn. Á svipaðan hátt eru sérstök dýr einnig valin sem þjóð- areinkenni og hefur fálkinn skipað þann sess hér á meðal okkar. Nefna má nokkur dæmi um tegundir plantna, sem einstaka þjóðir hafa tileinkað sér í þessu skyni og þær hampa sem merki fyrir sitt land. I sumum tilvikum eru þessar plöntur jafnvel lögleiddar sem þjóðartákn. Má þar í flokki einna frægastar telja frönsku liljuna, Fleur-de-lis, og kanadíska hlyninn Acer eða mösurinn, en blað hans, The Maple Leaf, nota Kanadamenn í rauðum lit í þjóð- fána sinn. Alpafífillinn, Edelweiss Leontopodium alpinum, þykir mönnum vera tákn Alpanna og hreinleika fjallaloftsins þar. Nota Austurríkismenn og einnig Svisslend- ingar alpafífilinn sem þjóðarplöntu. Þá hafa Skotar átt sér sinn þistil, Cirium, frá fornu fari í skjaldamerki og ein virðulegasta orða Skota er þistilorða þeirra, sem aðeins er veitt fáum útvöldum. írar eiga sér shamrock að þjóðartákni, sem er súrsmæra, Oxalis aoetosella, en sumir álíta það vera músa- smára, Trifolium dubium. Englendingar hafa valið sér að merki rauða Tudor rós, sem lengi hefur verið konunglegt tákn hjá þeim. Ná- grannar okkar á Norðurlöndum virðast sum- ir eiga sér þjóðarblóm, þótt lítið fari stundum fyrir dýrkun á þeim plöntum. Þannig halda Éinnar mikið upp á sína dalalilju, Convallar- ia majalis, talið er að beitilyng, Calluna vulg- aris, sé eftirlæti Norðmanna. Svíar hófu til virðingar lágvaxna skógarbotnaplöntu, sem við köllum lotklukku, Linnaea borealis, og gáfu henni fræðinafn eftir frægasta grasa- Hárbrúða Holtasóley (Dryas octopetala) Rjúpnalauf Gæti Holtasóley orðið þjóðarblóm Islendinga? fræðingi sínum. Annars eiga Svíar 25 mis- munandi héraðsblóm. Á svipaðan hátt hafa verið valdar einkennisplöntur fyrh- einstök fylki í Bandaríkjunum. í Asíu eru ýmsar tegundir af lótusblómum í hávegum hafðar og margar þjóðir Suður-Ameríku, Afríku og Kyrrahafseyja eiga sér þjóðarblóm og nota þau sem einkenni og sem merki á söluvarn- ing sinn. Hvað okkur Islendinga varðar virðumst við ekki eiga neina sérstaka einkennisplöntu og ekki hef ég í fljótu bragði komið auga á, að ein planta sé annarri fremri í þeim efnum eða hafi öðlast neinn sérstakan þjóðarframa. Og varla er nokkur ein tegund sérstæð fyrir ísland. Samt hafa fáeinar tegundir plantna verið kenndar við landið. Fræðiheitið Is- landica hefur t.d. naflagrasið, Koenigia Is- landica, hlotið, en sú planta er lítið ásjáleg og er varla mikið hægt af henni að státa í skjaldarmerki. Þá kenna eriendar þjóðir fjallagrös, Cetraria Islandica, við ísland, svo sem fræðiheitið og nöfnin Iceland moss og islandsk Mos bera með sér, en fæstum þykja grösin neitt ljómandi fógur, þótt þau hafi þótt góð til átu og verið hér áður tíl búdiýg- inda í mjölskortinum, en nú þætti þessi flétta vafalaust hafa lítið auglýsingagildi. Plöntur, sem eru algengar hér á landi og hafa skrautJeg blóm eru til dæmis fífill og sóley og þykir fólki vænt um að sjá þessar plöntur blómstra fyrst á vorin, en sá er þó hængur á, að þessar plöntur eru einnig al- gengar víða um heim og því varla neitt sér- stæðar fyrir okkur. Þá eru fjólur, blágrpsi og lambagras tegundir, sem lofaðar eru í ljóð- um okkar fyrir fegurð sína, en ekki sé ég neina þeirra samt fyrir mér sem þjóðarger- semi. Ein er sú planta íslensk, sem kennd er við landið af erlendum mönnum og má telj- ast fögur og frambærilegur plöntuþegn. Er það melasól, Papaver radicatum, ein af ætt draumsóleyja, sem kölluð er Iceland poppy á ensku. Þar væri ef til vill kominn góður fulltrúi fyrii- þjóðarblóm. Samt finnst mér það galli að tegundin er varla nógu algeng og vel þekkt af almenningi, þótt fógur sé og fínleg. Önnur planta, sem myndi sóma sér vel er eyrarrós, undurfogur og nokkuð sér- stæð fyrir Island, þar sem hún er ein fárra plantna vestrænnar ættar, en á ekld uppruna að rekja til Evrópulanda eins og flestar plönt- m- eiga í íslensku gróðurríki. Enn ein planta, sem tíl greina kæmi, er svo blóðberg, sem er einkum aðlaðandi vegna ilmsins. Samt sem áður þegar litið er, með þetta val fyrir augum, yfir þær tegundir há- plantna, sem hér vaxa, kemur mér ein teg- und sérstaklega í hug, fagurblóma, harðger og nægjusöm. Er það holtasóley, Dryas octopetala. Hún hefur auk þess nöfnin rjúpnalauf og hárbrúða, sem höfða til blaða og aldina hennar. Holtasóley hefur þótt ein- kenna gróðurfar heimskautasvæða og við hana er kennt skeið á jökultíma, en á því tímabili hefur borið mikið á vextí og við- gangi holtasóleyjar. Er eðlilegt að Island einkenni sig með plöntu, sem er annáluð fyrir að dafna í svölu og hreinu, norðlægu umhverfi. Útíit holtasóleyjar er það sér- stætt, að hún hentar vel í myndrænni kynn- ingu. Blómin ei-u stór með átta hvítum krónu- blöðum, sem umlykja ljósgular frævur og frævla og gæti blómið bæði verið tákn hreins umhverfis og minnt á andstæður íss og elds eða miðnætursól og jökla. Rjúpnalaufm eru með fagurskertum röndum eins og vogskorið land og hárbrúðan er undin upp í vöndul líkt og kveikur eða ullarvaf. Hugvitssamir teikn- arar hafa þar nægan efnivið til þess að gera úr þjóðleg merki, sem gætu einkennt íslensk- an varning. Væri ekki vel til fallið, að við kæmum okkur saman um að velja þjóðai-blóm ein- mitt nú á þessu fimmtugasta ári lýðveldis- ins? Einnig gætum við valið sérstakar fjórð- ungs- eða héraðsplöntur, tákn sem mundu efla samheldni innan sveita, auka byggðar- stolt og vera áhugavert augnayndi fyrir ferðamenn. Þessu máli er hreyft hér til um- hugsunar fyrir landsmenn. Holtasóley dafnar í svölu, hreinu og norrænu loftslagi. LjósmÆinar Gíslason. Höfundur er náttúrufræðingur. 4- LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 21.MAÍ1994 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.