Lesbók Morgunblaðsins - 09.07.1994, Page 10

Lesbók Morgunblaðsins - 09.07.1994, Page 10
 Frú Emma Gad, forsprakki sýningarinnar, mætti lítilli mótspyrju frá „blámönn- um“, „Skrælingjum“ og Færeyingum. íslendingar voru aftur á móti tregir í taumi. Af því tilefni var þessi skopmynd teiknuð: íslenzka hrossið fretar á frúna. um sýninguna og bar fram andmæli og áskor- anir um að hindra þátttöku íslands. Næstur tók til máls Valtýr Guðmundsson dr. í sagn- fræði, sem sagðist gleðjast yfir fjörinu í stúd- entum. Valtýr var sá eini úr Skrælingja- nefndinni sem mætti á fundinn og hann taldi óráðlegt að senda út andmæli. Miklar umræð- ur fóru fram og voru flestir félagsmenn alger- lega á móti sýningunni. Ámi Pálsson lagði orð í belg og fannst í lagi að Færeyingar yrðu með en alls ekki íslendingar. Ekki kom- ust menn að neinni lokaniðurstöðu á þessum fundi en frestuðu málinu til næsta fundar sem skyldi halda fjórum dögum seinna. Jafn- framt var stjóminni falið að reyna að fá Valtý til að segja sig úr nefndinni en það tókst ekki.3 Þá var samþykkt að kalla saman almennan fund íslendinga í Kaupmannahöfn til að mótmæla sýningunni. Samþykkt vom eftirfarandi andmæli til íslenskra og danskra blaða: Fundurinn skorar á íslendinga að afstýra hluttöku íslands í „Nýlendusýningu" þeirri sem halda á í Kaupmannahöfn á sumri komanda, þar eð oss sakir stöðu vorrar í ríkinu, menningar vorrar og þjóð- emis er ósamboðið að taka þátt í henni. Ennfremur lýsir fundurinn óánægju sinni yfir því, að nokkrir Islendingar hafa orð- ið til þess að heita liðsinni sínu til sýning- arinnar, og er að því ótilhlýðilegra sem þá em einmitt þeir menn, sem skyldir em stöðu sinnar vegna og eiga bestan kost á að halda uppi sæmd og sjálfstæði íslands. Málið lá niðri um skamman tíma en svo fór aftur að færast fjör í leikinn. Aukafundur var haldinn 8. febrúar 1905 og enn fjallað um sýninguna. Sigurður Guðmundsson, prestur og síðar meðritstjóri Spegilsins, tal- aði fyrstur og vildi halda mótmælum áfram og tók Jóhann skáld Sigurjónsson í sama streng. Sigurður hvatti menn til að skrifa vinum og kunningjum heima og reyna að koma greinum um málið í norsk og jafnvel sænsk blöð. Matthías Þórðarson, síðar þjóð- minjavörður, hafði átt tal við frú Emmu Gad og kynnti breytingar sem ráðgerðar vom viðvíkjandi sýningunni. í fyrsta lagi átti sýn- ingin að vera „fra bl.“ [blandninger], en ekki „for bl.“ og í öðm lagi hafði nafni hennar verið breytt og hljóðaði nú „Videnskabelig- Ethnografisk Udstilling íra blandninger!“. VALTÝR GERðUR Brottrækur Bogi Th. Melsteð sagnfræðingur vildi fara hægt í sakimar og hljóðlega en ekld með offorsa og látum eins og margir aðrir fundar- menn. Ámi Pálsson var harðorður í garð Valtýs og Finns og fannst þeir hafa komið illa fram með að brjóta yfirlýstan vilja stúd- enta og fannst réttast að útiloka þá frá öllum virðingarsætum, stjómmálum og félagsskap. Upp úr þessu spmttu umræður þess efnis að gera Valtý brottrækan úr félaginu. For- maður, Ámi Pálsson síðar sagnfræðiprófess- or við Háskóla íslands, neitaði því á gmnd- velli þess að það hefði ekki verið tilkynnt í fundarboði. 4 Á aukafundi tveimur dögum síðar sagðist Valtýr alla tíð hafa verið heldur mótfallinn sýningunni en af ónefndum ástæðum ekki séð sér fært að segja sig úr Skrælingjanefnd- inni. Valtýr var frægur fyrir tvískinnung inn- an félagsins svo ekki komu þessi umskipti skoðana hans stúdentum á óvart. Nokkmm fannst ófært að reka Valtý þó hann væri „dóni“ og væri annarrar skoðunar en þorri félagsmanna. En þeir sem til fundarins köll- uðu fengu sínu framgengt og tillagan um að reka Valtý var samþykkt með 21 atkv. gegn Í7. Áfram var rætt um brottvikningu dr. Val- týs á næsta fundi í mars. Vafamál var hvort rétt hefði verið staðið að brottvikningunni og lauk deilum um það mál á þann veg að fundurinn var lýstur ólögmætur og Valtýr því félagi áfram.5 Með þessum fundi lauk Skrælingjasýningarmálinu formlega innan félagsins. Sýningin fór fram í talsvert breyttri mynd frá því er upphaflega var ætlað. Hún var opnuð þann 31. maí árið 1905 og stóð allt sumarið en aðsókn var ekki eins góð og að- standendur hennar vonuðu, stúdentum til mikillar ánægju.6 Nafni hennar var breytt íslendingum í hag og var hún nefnd „Dansk Koloniudstilling, samt Udstilling for Island og Fær0eme“.7 Bæði dönsku og íslensku blöðin skrifuðu mikið um sýninguna og var báðum tíðrætt um mótmæli íslenskra stúd- enta. Stúdentafélagið Kári Eftirmál Skrælingjadeilnanna innan stúd- entafélagsins voru með þeim hætti að hópur félagsmanna sagði sig úr því og stofnaði nýtt félag sem var nefnt Stúdentafélagið Kári eftir Kára Sölmundarsyni sem slapp við Ulan leik frá Njálsbrennu. Þeim sem að stofnun þess félags stóð þótti „flokkur sá er réði lögum og lofum í Stúdentafélaginu vera orðinn svo uppivöðslumikUl og óbilgjam að lítt væri við unandi“. Það er merkilegt við „Kárunga" að það vora helstu forsprakkar stúdentafélagsins sem þarna tóku höndum saman og gengu úr félaginu. Má þar helsta nefna Bjama Jóns- son frá Unnarholti, prófessor Finn Jónsson og Boga Th. Melsteð. Sögusagnir segja að Finnur hafi verið aðalhvatamaður þess að stofnað skyldi tíl hins nýja félags þó að ekk- ert sé tU ritað sem staðfestir þá sögn. Þeir sem hér drógu sig út vora þeir sem ekki höfðu mótmælt Skrælingjasýningunni eins harðlega og stjórn félagsins og fylgismenn hennar. Kári starfaði á sama hátt og gamla stúd- entafélagið og vora jafnvel sömu fyrirlestrar haldnir innan veggja þess. Margir vora áfram, félagsmenn í gamla félajginu þó ekki hafi borið mikið á þeim þar. Arið 1914 var stúd- entafélagið Kári formlega lagt niður og gengu félagsmenn tU liðs við gamla félagið aftur. Stúdentafélagið er enn starfandi en heitir nú Félag íslenskra námsmanna í Kaup- mannahöfn og telur um 250 félagmenn. Hlut- verk þess hefur breyst talsvert á síðustu tveimur áratugum af ýmsum ástæðum. Mín- erva og Bakkus virðast hafa slitið samvistir innan félagsins, viskugyðjan hefur látið Bakkusi eftir hinar fáu en jafnframt fjöl- mennu samkomur gamla stúdentafélags en hefur hert takið á hirð sinni á öðrum vígstöðv- um. Heiraildir: Fundabók Félaga íslenskra stúdenta í Kaupmannahöfn 1899-1906 í vörslu handritadeildar Landsbókasafns ís- lands. 1 LÍ. Hrd.: Fundabók FÍSK 1899-1907. F. 2-6-1903 2 VUhjálmur Finsen: Hvað landinn sagði erlendis, 17-19 3 LÍ. Hrd: Fundabók FÍSK 1899-1907. F. 3-12-1904 4 LÍ. Hrd: Fundabók FÍSK 1899-1907. F. 8-2-1905. 6 LÍ. Hrd: Fundabók FÍSK 1899-1907. F. 8-3-1905 6 Vilhjálmur Finsen: Hvað landinn sagði erlendis, 33 7 Vilhjáimur Finsen: Hvað landinn sagði erlendis, 26 Höfundur er sagnfræðingur og starfar hjá Árbæjar- safni. GUNNAR EGILSON Út á djúpið Lítinn, veikan bátinn ber báran út á sundin, landmerkjunum framhjá fer flest eru þau horfin mér, Komin er stundin, komin er efsta stundin. Horfi ég til lands í hinsta sinn á heimatúnin, sé ég hilla á sjóhúsin sýnist mér ennþá dúkurinn blakta við húninn, blakta við miðjan húninn. Grilli ég enn á grárri strönd góðvinahópinn í svartri röð einsog sorgarrönd, sé ég þá standa og veifa hönd heyri ég ópin heyri ég kveðjuópin. Loks verður augum lúnum tregt landsýn að halda; allt verður þar svo annarlegt og öðruvísi en ég hef þekkt, því mun valda því mun feigðin valda. Nú skal þá stýrt frá strönd og byggð stefnuna út á sundið, gleyma nú allri hugarhryggð hún er engin farmannsdyggð seglunum undið, seglunum upp skal undið. Frammi á oddans ystu tá, ein stendur varðan, þaravaxin, þung og grá, þegar henni er farið hjá fá þeir hann harðan, fá þeir hann stundum harðan. Framundan er hinn mikli mar myrkur og grimmur, ekki er með lítið einsmannsfar árennilegt að sigla þar, þykir mér dimmur, þykir mér sjórinn dimmur. Skefur nú sjóinn, rýkur í röst — reynir á kjarkinn — þykir mér handtök þurfa föst þung eru þau straumaköst, sem skella á barkinn, skella á veikan barkinn. Stendur af hafí stroka löng, stormurinn vselir, heyrið þig drengir þann drunga- söng, dreg ég nú fánann í hálfa stöng og verið þið sælir verið þið allir sælir. I dag, 9. júlí, eru liðin 109 ár frá fæðingu Gunnars Egilson, verslunarfulltrúa og forstjóra Bruna- bótafélags Islands. Hann fékkst nokkuð við kveðskap og er sumt af því, sem hann orti, á hvers manns vörum, t.d. Dansi, dansi, dúkkan mín og Negrastrákamir. Kvæðið, sem hér birtist, hefur ekki áður komið fyrir almenningssjónir. Það er m.a. merkilegt vegna þeirrar feigðarspár, sem þar kemur fram, en Gunnar lést aðeins fáum mánuðum eftir að það var ort, aðeins 42 ára að aldri. Kvæðið orti hann i Barcelona, þar sem hann var verslunarfull- trúi síðustu árin, en hann andaðist í sjúkrahúsi í Hafnarfirði i ágúst 1927 eftir að hafa gengist undir uppskurð við magasári og sýndist vera á batavegi. KRISTJÁN JÓHANNSSON Nótt í Sigurðarskála Úti í melhólnum / myrkrínu una sér rykugir bílar yfír rísa óravegu og vötnin Kreppu og Jöklu um krappa hraunstíga farna. velta fram dimma sanda Þeir dotta með lokuð augu og vegi héðan slíta og drúpandi múla - ása og tannhjól til beggja handa. í olíubaðinu hvíla. En Kverkjallahliðið er opið Rótt er í húsinu. - til efstu stjarna. Vitundin svefnmistri vafín Virkishnjúk skynjar Ferð löngu farin Ég sá hana - Og hefur þar allra hinst trúnni týnt reika eina á aftureldingu í átt haldið ferð sinni að náttsvölum áfram hlíðum um Dimmudali Saknaðarfjalla. og alla leið niður að fljótinu. Höfundur er rithöfundur f Reykjavík. 10

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.