Lesbók Morgunblaðsins - 21.01.1995, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 21.01.1995, Blaðsíða 4
BÆR í hæðum Toscana - kirkjan gnæfiryfir lágreista, þétta byggð. ÞESSImynd af Davíð var tekin skömmu eftir Ítalíuferðina. Um Ítalíuför Davíðs Stefánssonar 1920-21. heyri klukknaklið kirkju í Assisi“ Veturinn sem Svartar fjaðrir komu út dvaldist Davíð í Reykjavík. Lofsamlegir dómar og vin- sældir sem bókin hlaut urðu „auðvitað mikil lyftistöng fyrir sjálfstraust hans“, segir vin- kona skáldsins, Hulda Á. Stefánsdóttir. „Ann- „Ef þú kemur til Capri á undan mér, þá heilsaðu frá mér svarthærðri smámeyju með föla vanga. Ef þú segir henni að ég hafi kysst hana og dansað með hana í fanginu af gleði, þá kannast hún við mig...“ Úr bréfi Davíðs til Sigurðar Nordal. Eftir GUNNAR STEFÁNSSON ars las hann þennan vetur, 1919-20, heim- speki við háskólann, en var jafnframt þing- skrifari. Ekki var hann hrifínn af því starfi, fannst það ill nauðsyn, en hann þarfnaðist farareyris, því að hann hugði til utanfarar með sumrinu. Hann var þá þegar farinn að safna í nýja ljóðabók, og var nú hugrakkari og bjartsýnni en áður.“ Heimspekiprófinu lauk Davíð um vorið og hélt síðan norður í Fagraskóg. Síðla sumars er hann kominn til Kaupmannahafn- ar. Þá var Hulda þar fyrir. Hún segir að honum hafi leiðst og liðið illa í Höfn þennan tíma, fram undir jól. „Var hann óheppinn með húsnæði og féll illa við húsráðendur. Hann unni mjög frelsi og sjálfstæði, en ætlaði sér ekki mikinn hlut á borgaralega vísu. Oft virtist hann haldinn óljósum beyg eða kvíða.“ Þannig sveiflast hugarástand skáldsins, sigurvíman frá útgáfu Svartra fjaðra entist ekki lengi; hann þarf nýja örvun. Davíð skrifar vini sínum, Birni O. Björnssyni, frá Höfn 20. september 1920: „Ég er að flestu leyti líkur því sem ég var, og það fínn ég að þó að ég þyki veikur og sé veikur, þá muni dönsk áhrif eiga erf- itt með að móta mig og gera mig annan og betri mann en ég hef verið ... En járn- karl get ég ekki orðið og vil ekki verða, ég vil heldur verða sleginn en slá . . . Ég skal segja þér, vinur minn, að ég býst við að una mér ekki lengi hér utanlands. Til þess liggja ýmsar ástæður, sem ekki þýðir upp að telja. En illt er að geta ekki ferðast — en það á ég bágt með. Ég gæti ekki ferð- ast einn þótt ég kynni öll tungumál og hefði alla vasa fulla af gulli.“ Næstu mánuði í Höfn hugsar Davíð enn um ferðalög, segir þó í bréfi til Björns 13. nóvember: „Það er auðvitað gott að ferðast og sjá og heyra — en fyrst er að sjá og heyra sjálfan sig.“ En 8. desember skrifar hann Bimi enn og hefur nú heldur en ekki fréttir að færa: „Elskan mín góða. Ég er að fara til Ítalíu. Það er satt. Eg hef pass- ann í vasanum með hinu heilaga krumspr- angi hinna háttvirtu Gesandte. — í lok næstu viku þýt ég á hinum mikla vagni suður yfir hin miklu fjöll og alla leið til hinna miklu borga, Flórens og Róm ... Ég hugsa gott til ferðarinnar, og veit að ég hef gott af henni þrátt fyrir það að ég sé íslenskur sveitakarl sem kann lítið meira en faðirvor. Ég legg eins mikið eða meira upp úr því sem ég sé eins og ég heyri. Ég ætla að sjúga rómversku listina inn í sálina með augunum ... Ég vona að ég geti sent þér línu frá Róm eða Flórens og vona að það verði gott hljóð í Kmmma þegar hann hefir sest á kirkjutum páfans." Sá sem dreif skáldið í þetta ferðalag var Ríkarður Jónsson myndhöggvari. Hann lagði af stað frá Reykjavík áleiðis til Ítalíu í október 1920 og lá leiðin um Kaupmanna- höfn. Þar lenti hann í slagtogi með Davíð Stefánssyni og Ingólfi Gíslasyni lækni. Hvatti Ríkarður skáldið til að koma með sér til Ítalíu. „Davíð var fyrst í stað ragur að Ieggja upp í þessa löngu ferð,“ segir Ríkarður. „Ég hvatti hann sem ég gat, sýndi honum meðal annars fram á, að svo mikið ódýrara væri að lifa á Ítalíu en í Kaup- mannahöfn, að ferðakostnaður mundi spar- ast. Við fortölur mínar lét hann tilleiðast.“ íslensk ljóðagerð á þannig Ríkarði mikið að þakka. Ingólfur læknir ákvað svo að slást í förina. Þessi ferð varð Davíð mjög frjó, kvæði úr henni setja verulegan svip á tvær næstu bækur hans. Og oftsinnis rifjaði hann á góðum stundum upp það sem hann sá og reyndi í ferðinni. Hún var ævintýri og mark- ar ákveðin þáttaskil á ferli skáldsins. „í Flórens HAFA FJÖLDA- MARGIR FERÐALANGAR GlST“ Um för Davíðs til Ítalíu er góð heimild þar sem er frásögn Ríkarðs Jónssonar í Skáldinu frá Fagraskógi, 1965, og seinna í minningum sínum, Með oddi og egg., 1972 Sú frásögn er að miklu leyti samhljóða hinni fyrri, en nokkru bætt við, þar á meðal köfl- um úr ferðadagbók Ríkarðs. Ekki er ástæða til að rekja hér frásagnir Ríkarðs nákvæm- lega, en hann lýsir ferðinni á lifandi og bráðskemmtilegan hátt. Áður hafði Ingólfur Gíslason skrifað um hana í minningabók sinni, Læknisævi, 1948. Fátt segir þar sér- staklega af Davíð, en báðir greina þeir Ing- ólfur og Ríkarður frá lestarferðinni löngu yfir Alpafjöll og spaugilegu stússi með ung- bam sem óvænt lenti í umsjá þeirra félaga; því lýsir Ríkarður af miklu fjöri. Eru frá- sagnirnar samhljóða svo langt sem þær ná. Lagt var upp frá Kaupmannahöfn um miðjan desember 1920 og skömmu fyrir jól komu ferðalangarnir til Flórens. Þessi ferð hlýtur að hafa orðið kveikjan að hinu langa kvæði Davíðs, Með lestinni, sem birtist í Kvæðum, 1922. Það hefst svo: Ys á stöðinni. Ys á stoðinni. Öskur, köll og hróp. Burðarkarlamir brjótast gegnum bijálaðra manna hóp. Fólkið þyrpist unnvörpum inn. Einn... tveir... þrír... tugir, hundruð, hraðlestin bíður, horfir og reyknum spýr. Ríkir og snauðir, ríkir og snauðir ryðjast með farangur sinn. Stjak, stjak og stímabrak. Með straumnum berst ég inn með vegabréfið i vasanum og vaðsekkinn í hönd. Farseðil. Farseðil. Farseðil í framandi og ókunn lönd. í þessu kvæði nýtur sín vel léttleiki hrynj- andinnar, hin skýra myndsýn og öri æða- sláttur í máli Davíðs. Kvæðið er mjög ferskt og gerðu glöggir bókmenntamenn sér fljótt grein fyrir því. Magnús Ásgeirsson kvað svo að orði í ritdómi um Ný kvæði, 1929, að

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.