Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.1995, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.1995, Blaðsíða 2
Marta og þjónustuhlutverkið KRISTUR í húsi Mörtu og Maríu. Málverk eft- ir Vermeer frá 1654. ALBERT 7.apríl 1994 - 7. apríl 1995 Ég átti þig sem aldrei brást á öllu hafðir gætur. Með hjartað þrungið heitri ást þig harma daga og nætur. Ylríkt skjól í örmum þér var auður daga minna. Ljósið bjart sem lýsti mér var ljómi augna þinna. Þú vaktir meðan sæl ég svaf ei sviku kenndir þínar. Allt sem ljúfast lífið gaf var lagt í hendur mínar. Nú slökknað hefur lífs míns ljós lokið draumi mínum. Ég vildi mega verða rós og visna á barmi þínum. Brynhildur. HRAFN GUNNLAUGSSON Einstæð moðir i blokk í dag á dóttir þín afmæli. Á dívaninum situr hún og rífur bréfið utan af bögglunum bláeygð og fumandi eins og hann bláeygur og fumandi búinn að rífa utan af þér umbúð- irnar. Hvít tertan og kertin minna á aulabrandara um nunnur og frænkurnar komnar með kjass og gotterí heimilislegar með helgisvip hugsa: hún er nýskilin best að segja ekki neitt. Bara þær væru berrassaðar! Svo drekka þær ekta súkkulaði og vitna í símtöl við vinkonurnar byggja upp hrungjarnt sjálfsálit með sögum af óförum annarra. Dóttir þín ræður sér vart fyrir fögnuði. Heldur að gullöld sé runnin upp og afmælið vari til eilífðar. Hún tætir sundur bréfið og rekur upp hlátur. Bergmál í tómri blokkinni og hann órafjarri með umbúðir þínar í höndunum. Hún brosir af öllu afli hlær þessum heilnæma hlátri og lætur eins og hún hafi vængi en sársaukinn í augunum hennar nístir þig þú þekkir látalætin og hræðsluna við afskiptaleysið örþrifaráðin hún hlær af öllu afli staðráðin í að skemmta sér. Höfundur er kvikmyndaleikstjóri. Eftir SIGURJÓN Á. EY JÓLFSSON I Fáar frásagnir guðspjall- anna valda konum eins mikilli óánægju og frásag- an af Mörtu og Maríu (Lk 10.38-42), því að óneitan- lega mætti ætla að Krist- ur geri hér lítið úr heimil- isverkum sem, eins og kunnugt er, hvíla að mestu leyti á herðum kvenna. Einnig virðist Jesús hefja hér hina „andlegu vinnu“ upp á kostnað hinnar lík- amlegu. í sögu kirkjunnar er að finna túlk- anir á þessari frásögu sem styðja beinlínis og ýta undir þessa óánægju, því margur hefur útlagt hana á þann veg að frelsarinn undirstriki hér yfirburði hinnar andlegu vinnu gagnvart þeirri líkamlegu. Þessi tví- skilningur og mismunandi mat á vinnu eftir eðli hennar varð þess valdandi að á miðöld- um var heimurinn aðgreindur í svið tveggja ríkja: ríki heimsins og ríki kirkjunnar. Það gefur að skilja að menn álitu hið veraldlega ríki algjörlega háð kirkjunni. Enda byggðist hjálpræðiskerfi katólsku kirkjunnar á milli- liðum, þar sem prestar og klausturfólk voru meðalgangarar milli Guðs og manna. Guðs- þjónustan var aðgreind frá daglegu lífí og talin felast í sérstökum skyldum utan vett- vangs hins dagalega lífs sem Marta var fulltrúi fyrir. Sumir kirkjufeðranna mótmæltu þessari túlkun og vildu fremur sjá í þeim systrum tvær stöður hins trúaða, þ.e.a.s. annars vegar þjónustuna við náungann sem Marta er fulltrúi fyrir og hins vegar íhugun trúar- innar sem María er fulltrúi fyrir. Þessi út- skýring á frásögu guðspjallsins er sannfær- andi, en hún skýrir ekki til fulls gagnrýni Jesú á hegðun Mörtu. Marteinn Lúther leysti þennan vanda og benti á að þær systur væru dæmi um stöðu hins trúaða gagnvart Guði og mönnum. Þjónustan við Guð fælist í því að nærast af orði hans og láta það vera grundyöll lífs okkar. Á þessum grundvelli þjónuðum við síðan náunganum. Hlutur Mörtu væri því rangur, ekki fyrir hvað hún gerir, heldur af því að hún velur aðeins verkið, en ekki trúna í þjónustunni. Þjónusta sem gleymir trúnni, þó ekki sé nema um stund, veldur áhyggjum og amstri. Þessi útlegging Lúth- ers nær inntaki frásögunnar, en því miður ;hefur hún ekki náð þeirri útbreiðslu sem skyldi og vék fyrir túlkun heittrúarstefnunn- ar. Fulltrúar hennar álitu sig geta sameinað kosti systranna og gert þær að fyrirmynd kvenna. Sú fyrirmynd var hin iðna og undir- gefna kona sem þjónaði og hlustaði á orð eiginmanns síns í þögn, aðdáun og undir- gefni. Það er ekki að undra að kvenréttindakon- ur ráðist gegn slíkum túlkunum og hefur þýski kvennaguðfræðingurinn Inge Wenck sagt, að frásagan vitni ekki um neitt annað en „karlrembu" Jesú. Afstaða hans sé hér greinileg. Konan eigi að sinna heimilisverk- um eins og Marta og dást að karlinum eins og María. Samkvæmt skilningi Inge Wenck er svar Jesú við gagnrýni Mörtu svar allra karla sem vilja engu breyta og viðhalda forréttindum sínum. Hún kemst að þeirri niðurstöðu að Guð hafi greinilega ekki gerst maður að öllu leyti í karlmanninum Jesú frá Nasaret.1 Frásagan veldur heilabrotum eins ogtúlk- unarsaga hennar vitnar glöggt um og óhætt er að fullyrða að aðalorsök þess sé að mönn- um finnst að Marta sé ekki virt sem skyldi. En ef við skoðum texta dagsins betur, þá er sá skilningur ekki réttur. Hugum eilít- ið betur að Mörtu. Hún á yngri systur er heitir María, sem virðist hógvær og ekki sérlega framsækin. Marta á einnig bróður, Lasarus að nafni, sem er sjúklingur. Ábyrgð heimilisins hvílir á herðum Mörtu. Hún ber því nafn með réttu, en nafnið Marta þýðir hin stjórnsama eða húsráðandi. Þessi stað- reynd hefur leitt til þeirrar röngu ályktunar að Marta hafi verið hneigð til hins verklega en María til íhugunar. Sú ályktun er röng, því að það er Marta sem flytur eina merk- ustu játningu til Jesú í Nýja testamentinu, sem hljóðar svo: „Já, herra. Ég trúi, að þú sért Kristur, Guðs sonur, sem koma skal í heiminn" (Jh 11.27). Játning Mörtu er jafn- vel merkari en játning Péturs postula: „Þú ert Kristur, sonur hins lifanda Guðs“ (Mt. 16.16), sem páfínn hefur eignað sér og tel- ur sig byggja allt sitt veldi á. II Marta er mikil trúkona er glímir við allan veruleika sinn í ljósi trúar sinnar á Krist. í harmi yfir dauða bróður síns grefur hún sig ekki inn í þögn sorgarinnar heldur deilir við Guð eins og Jakob og Job forðum. Hún fer til Jesú og segir: „Herra, ef þú hefðir verið hér væri bróðir minn ekki dáinn“ (Jh. 11.21). Hún ásakar Jesú fyrir að hafa brugðist, en samt bindur hún von sína við hann. Þetta reyna hinir trúuðu oft í lífi sínu, þegar þeim finnst Guð hafa yfirgefið þá í neyðinni. Þá erum við eins og Marta og gleymum á stund sorgarinnar, að Guð leiðir.allt okkar líf til góðs. í tilfelli Mörtu reisir Jesús Lasarus aftur upp til hins jarðneska lífs eftir að hafa veitt henni fullvissu um að hún á eilíft líf í honum. Hann sagði við Mörtu: „Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi. Og hver sem lifir og trúir á mig mun aldrei að eilífu deyja. Trúir þú þessu? Hún segir við hann: „Já, herra. Ég trúi, að þú er Kristur, Guðs sonur, sem koma skal í heiminn" (Jh. 11.27). Marta er hér trúarfyrirmynd okkar og sérstaklega er tekið fram að Jesús hafi elsk- að hana, („Jesús elskaði þau Mörtu og syst- ur hennar og Lasarus" (Jh. 11.5). III í frásögn okkar kemur fram að Jesús er fjölskylduvinur. Hann er hvorki í fyrsta né síðasta skipti í heimsókn hjá þeim systkin- um. Marta gengur beint til verks og vill þjóna Drottni sínum. Hún ber fram mat, en María systir hennar sest við fætur Drott- ins og hlýðir á orð hans. Hér er meira á ferðinni en venjulegar samræður. Jesús er að kenna henni eins og lærisveini. Hið ómögulega á sér stað, kona er gerð að læri- sveini, slíkt þekktist ekki í samtíma Jesú. En Jesús áleit konur jafnréttháar körlum, bæði til að læra og boða fagnaðarerindið. Þegar Páll postuli átti í deilum við gyðinga, tæpum tveimur áratugum síðar, benti hann þeim á að hann, Páll, hefði jafnan rétt og þekkingu á ritningunni og þeir og segir: „Við fætur Gamalíels hlaut ég fyllstu upp- fræðslu í lögmálinu" (P 22.3). En hér lærir María við fætur Drottins, af slíku gat Páll ekki stært sig, þó að hann sé mestur meðal postulanna. í guðspjallinu er undirstrikað að hin sanna næring mannsins er orð guðs. Það ber að boða en boðuninni fylgir einnig líkamleg næring sem sést á því að Jesú kennir Mar- íu við matarborðið. Boðun og matur fylgj- ast oft að í Nýja testamentinu. Loks er bent á að við eigum ekki að hefja eina þjónustu yfir aðra. En það henti Mörtu og sem trúuð kona þá er hún bæði fljót til verka og að orða kjarna vanda síns. „Herra, hirðir þú eigi um það, að systir mín lætur mig eina um að þjóna gestum?“ (Lk. 10.40). Þegar ég var að vinna að þessari grein kom litla dóttir mín oft og iðulega inn til mín og spurði hvort ég vildi ekki gera eitt- hvað með henni. Henni fannst eins og mörg- um, að raunveruleg vinna tengdist meira sýnilegum hreyfingum og áþreifanlegum verkum. Þann dag áleit hún, að ekki verður bókvit í askana látið. Mörgum yfirsést erf- iði þess er felst í að læra, hlusta og skrifa. Við þá vinnu er ekki hægt að flauta lagstúf né láta hugann reika. Sú þraut að halda á penna með þrem fingrum krefst allrar ein- beitingar sálar og líkama. En samt er hún eins og öll kennsla og fræðsla sem snýr að fólki oft ekki metin sem „raunveruleg vinna". Ef til vill hefur Marta hugsað svo er hún sá systur sína meðtaka Guðs orð í trú. Hún sá ekki vinnuna er fólst í því að nema né þá byltingu sem átti sér stað, að Guð í Kristi var að kenna konu. Marta ryðst inn í kennslustund hjá syni Guðs og vill draga nemanda hans út. I þokkabót heimtar hún að kennarinn ávíti nemandann fyrir að sækja tíma hjá honum. Við verðum að hafa í huga hið broslega í sögunni og þann he.milisanda er hún lýs- ir. Það mætti búast við að Jesú hefði ávítað Mörtu harkalega, en svo er ekki. Hann ger- ir ekki lítið úr starfi hennar, heldur kallar hann Mörtu aftur til sjálfrar sín. Jesús seg- ir: „Marta, Marta“, þessi tvítekning er dæ- migerð fýrir góðlátlega áminningu í ritning- unni. Það er eins og Jesús vilji áminna alla kristna einstaklinga og vara þá við, að gleyma ekki í þjónustunni hvers vegna við yfirleitt þjónum náunganum. Við megum ekki missa sjónar á Kristi í daglegri vinnu okkar. Ef við gerum það látum við verkin alfarið stjórna lífi okkar og þá valda þau okkur áhyggjum og skapa óróleika. Kristur undirstrikar stöðugt í boðun sinni: „Verið ekki áhyggjufullir um líf yðar ... leitið held- ur Guðs ríkis og þá mun allt þetta veitast yður að auki“ (Mt 6.25-34). Okkur mönnum hættir samt til að gleyma trúnni og viljum byggja fyrst og fremst á verkum okkar. Þá segir Kristur við okkur: „Marta, Marta, þú ert áhyggjufull og mæð- ist í mörgu, en eitt er nauðsynlegt. María valdi góða hlutskiptið. Það verður ekki frá henni tekið“ (Lk 10.41-42). Jesús er ekki með neinn aðskilnað á milli veraldlegra og andlegra verka. Hann gerir ekki lítið úr einu og hefur hitt upp. Nei! Hann ver Maríu og bendir um leið þeim systrum og okkur á nauðsyn þess að hlusta á orð hans svo við leggjum hvert dagsverk í hans hendur. Kristur kallar á okkur eins. og Mörtu. Hann áminnir okkur að gleyma ekki þeim sem gaf okkur lífið og kallar okkur til þjón- ustu. Við hlýðum kalli hans og játumst, með Mörtu, Drottni og segjum með henni: „Já herra, ég trúi, að þú ert Kristur Guðs sonur.“ Heimild: 1 Inge Wenck, „Gott ist im Mann zu kurz gekomm- én. Eine Frau iiber Jesus von Naz.areth" Giitersloh 1982. Andstætt Inge Wenck kemst kvennaguðfræð- ingurinn Elisabeth Moltmann-Wendel, í umfjöllun sinni á frásögunni, að svipaðri niðurstöðu og Lúther. Sjá bók hennar, „Ein eigener Mensch werden. Frauen um Jesu“, Giitersloh, 1982 bls. 23-56. Höfundur er héraðprestur ( Reykjavik.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.