Lesbók Morgunblaðsins - 03.06.1995, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 03.06.1995, Blaðsíða 4
KRITIK, 1946-47, málverk Kjarvals sem nú er á Kjarvalsstöðum og eitt af lykilverkum meistarans. Mummi var fyrirmynd þegar Kjarval málaði nakinn, hraust- legan mann í meira en fullri líkamsstærð, sem beygir sig niður í myndinni. Mummi frá F eðgum Ferðagarpur og fyrirmynd hjá Kjarval Maður er nefndur Guðmundur og er Sveinsson, fæddur 1907 í Vík í Mýrdal og er því á 89. árinu. Því hefði ég aldrei trúað þegar hann kom við á Lesbók með nokkrar gamlar myndir úr Langjökulsleiðangri frá árinu Starfsreynsla Mumma spannar íslenzka atvinnusögu í þúsund ár. Hann sat yfir kvía- ám, óð óbrúuð stórfljót, réri til fiskjar á opnum báti, ók fyrstur bíl í Landmannalaugar og lærði á tölvur. GÍSLI SIGURÐSSON tók saman 1935, og sagði mér ýmislegt frá þeirri ferð og fleiri svaðilförum. Maðurinn leit út fyrir að vera í mesta lagi 75 ára. Þeir sem þekkja hann, kalla hann Mumma. Síðar kom gam- all kunningi hans, Guðgeir Sumarliðason, með pistil um ræktunarstarf Mumma á æskuslóðum í Vestur Skaftafellssýslu og loks er þess að geta að mér barst í hendur 20 ára gamalt viðtal við Mumma úr ferða- riti Farfugla. Þessum heimildum hef ég steypt saman í það sem hér fer á eftir. Mummi hefur um sína daga verið vinnu- maður í sveit, sjómaður á síðasta áraskipinu sem réri frá Grindavík, bílstjóri á allskonar bílum og bílstjóri hjá Steindóri 1930-34. Síðan bæjarstarfsmaður hjá Rafveitunni og þegar Skýrsluvélar ríkisins voru stofnaðar 1952 var hann sendur til Danmerkur til að kynna sér notkun þeirra. Hann vann síðan við skýrsluvélarnar og náði því að vinna á tölvumar eftir að þær komu. Það má segja að iíf hans spanni allt sem þessi þjóð hefur gert í þúsund ár; frá því að sitja yfir kvía- ám, róa til fískjar og beijast yfír óbrúaðar ár til þess að aka bílum og vinna með tölvur. Foreldrar Mumma voru Sveinn Þorláksson skósmiður og símstöðvarstjóri í Vík 1 ára- tugi, og kona hans Eyrún Guðmundsdóttir.. Þeim varð auðið 15 bama og komust 11 til fullorðinsára. Eins og nærri má geta var þröngur kostur á svo barnmörgu heimili. Fjórir bræðranna fóm í fóstur annarsstaðar og Mummi var einn þeirra. Fimm ára gam- all fór hann í fóstur til hjónanna á Feðgum í Meðallandi, Guðrúnar Eyjólfsdóttur, sem var ömmusystir hans, og Sveins Þorsteins- sonar. Þau bjuggu á Feðgum frá 1910 til æviloka. Þetta sérkennilega bæjamafn mun vera dregið af tveimur klettum sem þar standa, sinn hvomm megin við bæinn. Þeir heita Feðgar og voru taldir vera bústaðir huldufólks. í þriðja klettinum var álitið að væri álfakirkja. „Það var mikil huldufólks- og draugatrú þama“, segir Mummi. „Fólkið á bænum var mjög vel upplýst eftir þeirrar tíðar mæli- kvarða, en það var feykilega myrkfælið, svo það þorði varla um þvert hús að ganga öðm- NÚ ÞEGAR Mummi er nær níræðu toga æskuslóðirnar í hann. Að ofan: Mummi við skógarlundinn í Eldhrauninu, sem hann tileinkar afa sínum. Að neðan: Mummi við steinkrossinn þar sem hann telur að Skarðskirkja hafi staðið. vísi en saman eða með ljós. Ég þóttist vera að bera mig mannalega og hlaut hrós lyrir hvað ég þótti lítið myrkfælinn." Á Feðgum ólst Mummi upp til tvítugsald- urs ásamt með börnum þeirra hjóna. Eins og venjan bauð - en núna illilega í ósam- ræmi við reglur EES um barnavinnu - fór Mummi kornungur að vinna við hvaðeina sem kraftarnir dugðu til. Stundum sat hann yfir kvíaám; þá var hægt að láta hugann reika og horfa á dýrð jöklanna. Aftur á móti þótti honum leiðinlegast að hjálpa til við fjárrekstra á haustin, þegar reka þurfti förgunarlömbin í misjöfnum veðrum yfir kvíslamar í Eldhrauninu. Þá var ekki komin brú á Tungufljótið. Fyrir utan Hólmsá voru

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.