Lesbók Morgunblaðsins - 03.06.1995, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 03.06.1995, Blaðsíða 11
Og blómin vaxa á þakinu Eftir EIRÍK JÓNSSON Fjórþáttungurinn um Ólaf Kárason Ljósvíking eftir Halldór Laxness kom út á árunum 1937-1940, en heildarútgáfa skáld- verksins kom fyrst út árið 1955 og þá undir nafninu Heimsljós. Nafnið er sótt í síðustu ljóðlínur kvæðisins Söknuður eftir Jónas Hallgrímsson: „Hnig- ið er heimsljós,/ himinstjörnur tindra./Eina þreyi eg þig“. Alkunna er að Halldór Laxness nýtti sjálfsævisögubrot og dagbækur Magnúsar Hj. Magnússonar (1873-1916) skálds auk ýmissa annarra aðfanga þegar hann samdi Heimsljós. Ævi Ólafs skálds Kárasonar á sér því allnána frummynd í lífi Magnúsar Hj. Magnússonar, þótt persónur þeirra séu um margt gerólíkar. Atburðir og persónur ritunartímans setja einnig mark sitt á skáldverkið og aðalpersónu þess. í öðru bindi Heimsljóss, Höll sumar- landsins, sem kom út árið 1938, segir meðal annars frá sumarást ungmennanna Ólafs Kárasonar og Vegmeyjar Hansdótt- ur í Sviðinsvík undir Óþveginsenni. En að sumri liðnu er komið hausthljóð í vindinn; ástarsambandið rofnar. Á skilnaðarstundu dregur Vegmey upp mynd hamingju- draums þeirra sem ekki mátti rætast, dulít- ils bæjar út með fírðingum með blómum á þaki: blómin eru sem stef í þeim draumi: Hérna út með firðinum, ef þú geingur sosum í klukkutíma, það stendur þar dulítill bær. Hann stendur alveg niðr- undir flæðarmálinu einn sér. Og það er duggunarlítið tún í kríng og duggunar- legadulítill kálgarður sem þarf að lú. Það vaxa blóm á þakinu. Og það er vör, og bátur í fjörunni, og það er færi, og kannski netstubbur. Og það vaxa blóm á þakinu [...] Og fjallið það stend- ur yfir ofan litla bæinn, en ekki alveg oní honum fyrir því, það er undirlendi á bak við sem tekur skriðinn af snjóflóð- inu, svo það er eingin hætta. Og þilið er rauðmálað og veit að sjónum, og það er hvítt í kríngum gluggann, og það þarf að fara að setja blæu fyrir gluggann; og það vaxa blóm á þakinu. Og það er lítið fjós á bak við bæinn, og kýrin geingur í brekkunni, og hún á lítinn kálf, og kýrin heitir bara Skjalda, en kálfurinn, hann heitir Ljómalind. Og það eru sjö lambær á fjalli [...] Og litli bærinn í vörinni, allir segja að hann sé svo prúður og dást að því hvað það sé þokkalegt í kríng. Og blómin vaxa á þakinu — (Halldór Laxness 1938, 205-206). Kveikjur að þessum texta Halldórs Lax- ness um „dulitla bæinn út með firðinum" sem Vegmey segir elskhuga sínum frá virðast vera tvær. Annarsvegar frásögn Magnúsar Hj. Magnússonar í dagbókunum um löngun hans og tilraunir til að eignast kotið Grænagarð sem stóð á húsmannslóð við sunnanverðan Skutulsíjörð, miðja vegu milli ísafjarðarkaupstaðar og býlisins Tungu við fjarðarbotninn. Grænigarður stóð á sjávarbakka en nokkru ofar var fjallið. Hann var því staðsettur líkt og „dulitli bærinn“ í Heimsljósi. Túnið í Græ- nagarði var „duggunarlítið tún“, töðufeng- ur af því árið 1901 var um tuttugu föng. Kjarni lýsingarinnar á „dulitla bænum“ virðist hinsvegar sóttur í stutta frásögn af lýsingu á svonefndum Brúnsbæ í Reykjavík sem stóð þar sem nú er Tjarnar- gata 4. Enskur grasafræðingur, Wiliam Jackson Hooker, sem kom hingað til lands árið 1809, bjó í Brúnsbæ og lýsti honum í riti sínu Journal of a Tour in Iceland in the summer 1809 sem kom út í Eng- landi árið 1811. Frásögn af þeirri lýsingu er að finna í bók dr. Helga P. Briem: Sjálf- stæði íslands 1809, sem Hið íslenska þjóð- vinafélag gaf út árið 1936. Þar segir með- al annars um Brúnsbæ: Segir Hooker að hann hafi verið svo vel um genginn, að manni hafi orðið star- sýnt á hann, og hafí hann boðið af sér góðan þokka, með torfþakið vaxið blóm- um. (Helgi P. Briem 1936, 146-147). Grænigarður stóð út með firðinum „al- veg niðrundir flæðarmálinu einn sér. Og það var duggunarlítið tún í kríng“. Brúns- bær var svo þokkafullur og „svo prúður“ að mönnum varð starsýnt á hann með „þakið vaxið blómum“. Ur þessum þráðum virðist hinn duldi saknaðaróður ofinn sem Vegmey Hansdóttir flytur ástmanni sínum þegar öll sund hafa lokast. Höfundur er kennari á eftirlaunum og hefur áður skrifað i Lesbók um ýmis föng Halldórs Laxness. ERLA JÓHANNSDÓTTIR KRISTINN BJÖRNSSON Lausnarorðið Kristur minn, ég kom að þinni kærleiks lind, sem fyrirgaf. Traust mér halt í trú hér inni, tak mig yfir vonsku haf. Elskuríki andans faðir augum líknar líttu mig. Sjúkir, mæddir, sælir, glaðir, syndum léttir, lofum þig. Ver þú áfram vægur, Drottinn, veg þinn feta ætlum við. Gef þú öllum vonar vottinn, vitni þín og trúarmið. Sjáðu hvernig sægur manna, sér þig vart sem vera ber. Ljáðu þeim um lífið sanna lausnarorð, er gafstu mér. Höfundur er sóknarprestur á Hvamms- tanga. Jr ^ * * 4% ^ • * * * * * v ’ /Ofefeur' \ . .. / A nimíw^to •folomír * ■ • 'íg Qtovc QtosÁ t jjeteur jót&ma. cg zpegUisb / Evv Vumv r vsríí vc torUuvs. / krp- Og jðjfVwH tyAitoí reuHur tk fe/vf v ivtjáuui, ðg ióXðM' éf brofcúv C þú^tu^i •fariwsvýcvuwHítíBí btut. Höfundurinn er 12 ára Reykjavíkurtelpa en var 11 ára þegar hún orti Ijóðiö og sjálf hefur hún skrifað það eins og það birtist hér. m][e][r][g][u][r] [m]|a]E[s]Q][n][s Tímanna tákn — kyíðbogi Eftir JÓN G. FRIÐJÓNSSON rnútímamáli er oft talað um að eitthvað sé tímanna tákn með vísun til þess sem er einkennandi eða búast mátti við. í kristilegum ritum eru teikn eða tákn af himni mikilvæg sem fyrirboði ókomins tíma. Elsta dæmi sem svipar til orðatiltækisins e-ð er tímanna tákn er frá fyrri hluta 16. aldar: að vita teikn þessara tíma kunni þér eigi (Oddur Gottskálksson). í íslensku eru til allmargar samstæður sem vísa til tákna eða teikna, t.d. tákn og stór- merki (fornt), undur og stórmerki (sl6), teikn og stórmerki (fl6), teikn og fádæmi (sl6), undur og stórmerki (sl6) og tákn og undur (fl9). Það er því ekkert nýtt að menn leiti eftir táknum þegar spáð er í tímann (samtíðina) eða framtíðina. Veðurglöggir menn hafa og löngum ráðið veðurhorfur af skýjafari og öðrum táknum himins, sem síðan var fært yfir á önnur svið, sbr. ýmsar blikur eru á lofti. En slíkir spádómar eru engan veginn einskorðaðir við veðurhorfur. Menn töldu sig geta ráðið ýmislegt af móður náttúru. I þessu sambandi nægir að nefna hinn forna málshátt sjaldan er gíll fyrir góðu nema úlfur [á] eftir renni. Frá lokum 16. aldar er kunnugt orðatiltæki bera kvíðboga fyrir einhveiju. Ekki er mér kunnugt um viðhlítandi skýringu á uppruna þess og ekki tel eg mig geta skýrt það með óyggjandi hætti en mig langar að varpa fram skýring- artilgátu. Elstu afbrigði orðatiltækisins er að finna i Guðbrandsbiblíu: þar fyrir skaltu ekki kvíðbug bera fyrir honum í merkingunni ‘hræðast hann’. I Bisk- upasögunum, Páls sögu, er að finna áhugavert dæmi, sem kann að varpa ljósi á það sem að baki liggur. Dæmið er eftirfarandi: en hér mátti sjá hversu margur kvíðbjóður /[kvíðbogi] hefir farið fyrir fráfalli Páls biskups. Innan hornklofa er tilgreint lesbrigði úr öðru handriti en aðalhandritinu. Hér virðist kviðbjóður eða kvíðbogi vísa til kvíðvænlegra tákna á himni, sbr. einnig að rosabaugur og regnbogi gátu verið túlkaðir sem váboðar. Því dettur mér í hug að kvíðbogi/-bugur hafi upprunalega vísað til neikvæðs teikns á himni. Sé þessi tilgáta rétt felur orðmyndin kvíðbogi í sér tilraun til að skýra torskilið orð og elsta myndin kvíðbugur virðist geta stutt þá tilgátu. Rétt er að geta þess að í seðlasafni Orðabókar Háskólans er að finna afbrigðið bera kvíðboða fyrir einhveiju. Dæmið er frá síðari hluta 19. aldar og virðist fela í sér skýringartil- raun. Næsta skref er þá að tengja kvíðboga sögninni að bera sem oft er notuð til að vísa til tilfinninga eða hugarástands, sbr. bera ugg í bijósti og bera kvíða fyrir einhverju, auk þess sem stuðlar styrkja (bera—kvíðboga) búning orðatiltækisins. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 3. JÚNl 1995 1 1

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.