Lesbók Morgunblaðsins - 10.08.1996, Qupperneq 16
KAMMERTÓNLEIKAR Á KIRKJUBÆJARKLAUSTRI í SJÖTTA SINN
ARLEGIR kammertónleikar á
Kirkjubæjarklaustri verða
í sumar um næstu helgi,
16.-18. ágúst. Á föstudeg-
inum hefjast tónleikamir
kl. 21.00 en laugardag og
sunnudag kl. 17.00. í sam-
tali við Morgunblaðið sagði
Edda Erlendsdóttir, sem haft hefur veg og
vanda af skipulagningu tónleikanna ásamt
Menningarmálanefnd Skaftárhrepps, að þetta
væri t sjötta sinn sem kammertónleikahelgi
væri haldin á Kirkjubæjarklaustri. „Upphaf-
lega var ástæðan fyrir því að halda sllka tón-
leika á Kirkjubæjarklaustri sú að ég á ættir
mínar að rekja þangað. En auk þess hefur
staðurinn upp á mjög góða aðstöðu að bjóða.
Þetta hefur ætíð heppnast mjög vel, stðasta
sumar var fullt á öllum tónleikunum.
Tanór og horn i fyrsta sinn
í þetta sinn verður meiri fjölbreytni í hljóð-
færaskipan en hefur verið. Nú verður til dæmis
í fyrsta skipti boðið upp á tenórsöng en það er
Gunnar Guðbjömsson sem fyllir það hlutverk.
Hom hefur heldur aldrei verið á meðal hljóð-
færa á þessum tónleikum en Joseph Ognibene
mun nú bæta úr því. Þessar nýjungar munu
lita dagskrána nokkuð að þessu sinni. Einnig
verða flutt verk sem ekki hafa verið flutt áður
hér á landi, svo sem Still fails the raJn op. 55
eftir Britten, fyrir tenór, hom og píanó."
Mismunandi efnisskrá er alla dagana, á
föstudeginum verður fluttur Kvintett fyrir
horn og strengi í Es-dúr K.407 eftir W.A.
Mozart, strengjakvartett nr. 1 „Aus meinem
leben“ eftir B. Smetana, Sónata fyrir horn
og píanó í F-dúr eftir P. Hindemith, sönglög
eftir Árna Björnsson, og Still falls the rain
op. 55 eftir B. Britten, fyrir tenór, horn og
píanó. Á laugardag verður flutt Divertimentó
í Es-dúr eftir Haydn, fyrir horn, fiðlu og selló,
Liederkreis op. 39 eftir Schumann, fyrir tenór
og píanó og Tríó fyrir fiðlu, horn og píanó í
Es-dúr op. 40 eftir Brahms. Á sunnudegi verð-
ur strengjakvartett í D-dúr op. 64 nr. 5 „Læ-
virkinn" eftir Haydn, sönglög eftir Eyþór Stef-
ánsson og Jón Leifs, Auf dem Storm D. 943,
fyrir tenór, horn og píanó, eftir F. Schubert
og loks píanókvintett í A-dúr eftir Dvorák.
Átta flyt|endur
Flytjendur eru 8, það eru Edda Erlendsdótt-
ir, píanó, Gunnar Guðbjörnsson, tenór, Joseph
Ognibene, horn og Norma Fisher, píanó, en
auk þess Bernardel strengjakvartettinn sem
var stofnaður 1993 og hefur verið á starfslaun-
um hjá Reykjavikurborg sl. ár. Hann skipa:
Zbigniew Dubik, fiðla, Gréta Guðnadóttir,
Morgunblaöið/Árni Sæberg
GUNNAR Guðbjörnsson, Guðrún Th. Sigurðardóttir, Edda Erlendsdóttir, Gréta Guðnadóttir og Joseph Ognibene eru á meðal þeirra
átta tónlistarmanna sem fram koma á tónleikum á Kirkjubæjarklaustri
MEIRI FJÖLBREYTNI í
HLJÓÐFÆRASKIPAN
fiðla, Guðmundur Kristmundsson, víóla, og
Guðrún Th. Sigurðardóttir, selló.
Þarna er um þekkta hljóðfæraleikara að
. ræða sem hafa komið fram hérlendis og erlend-
is við góðan orðstír. Söngvarann Gunnar Guð-
björnsson, tenór, þarf vart að kynna íslending-
um. Hann hefur sungið við ýmis óperuhús í
Evrópu og einnig m.a. í Royal Albert Hall,
Queens Hall og Wigmore Hall en var sl. vetur
fastráðinn einsöngvari við óperuna í Lyon.
Joseph Ognibene hefur verið fyrsti hornleik-
ari Sinfóníuhljómsveitar íslands frá 1981 og
er einn af stofnendum Blásarakvintetts
Reykjavíkur.
Norma Fisher varð mjög ung að árum
þekktur píanóleikari og hefur ferðast víða um
heim og haldið tónleika auk þess að leiðbeina
og kenna. Hún er listrænn stjórnandi London
Masterclasses.
Eins og nýlega kom fram í fréttum er Edda
Erlendsdóttir nú fastráðinn kennari við Tón-
listarskólann í Versölum, en hún er einmitt
frumkvöðull að þessum árlegu kammertónleik-
um á Kirkjubæjarklaustri.
Að sögn Eddu er efnisskrá tónleikanna
byggð þannig upp að fólk getur komið til
Kirkjubæjarklausturs og dvalið þar alla helg-
ina. „Dagskráin er það fjölbreytt að fólk ætti
að geta fundið eitthvað við sitt hæfi alla dag-
ana. Vonumst við því til þess að fólk nýti sér
þann möguleika, eins og undanfarin ár, að
gista á Kirkjubæjarklaustri og eiga með okkur
góða helgi.“
Skipulagning fyrir menningarárið 2000 er komin vel á veg í Björgvinjarborg
Peningunum varið í fólk, ekki byggingar
Björgvin í Noregi veróur ein af níu menningar-
borgum Evrópu órió 2000 eins og Reykjavík
og er undirbúningur þar kominn allvel á veg.
ÞRÖSTUR HELGASON hitti menningarfulltrúa
k jorgarinnar, 1 3jorn Holmvik, að móli og ræddi
við hann um sk ipulagningu hátíðarinnar, kostn-
aðinn við hana og megináherslur.
Björgvinjarborg mun veija svipaðri íjár-
hæð til hátíðarhaldanna árið 2000 og Reykja-
vík, eða um 900 milljónum íslenskra króna
og er þá einungis átt við útgjöld til hátíðar-
haldanna sjálfra það ár en ekki til undirbún-
ings og ýmissa fjárfestinga fram til alda-
móta. Inni í þessari tölu er heldur ekki það
fjármagn sem hinar ýmsu menningarstofnan-
ir borgarinnar hafa til umráða þetta ár, svo
sem Sinfóníuhljómsveitin og Þjóðleikhúsið.
Bjorn Holmvik, menningarfulltrúi Björg-
vinjarborgar, segist sæmilega ánægður með
þessa upphæð. „En miðað við það sem Kaup-
mannahöfn, sem er menningarborg Evrópu
í ár, er að leggja í þetta verkefni eru þetta
vissulega afskaplega litlir peningar. Kaup-
mannahöfn hefur úr 7500 milljónum ís-
lenskra króna að moða. Ég held þó að það
velti algjörlega á okkur skipuleggjendunum
hvemig þessir peningar nýtast, þetta er fyrst
og fremst spurning um að veija þeim skyn-
samlega. Þannig verður engu af þessum pen-
ingum varið í að reisa nýjar byggingar í
borginni, frekar verður reynt að byggja á
því sem fyrir er. Við teljum skynsamlegast
að veija þeim penningum sem við höfum í
fólk og I þau verkefni sem það vill vinna að
í list sinni. Við höfum líka lagt áherslu á að
hafa stjórnunarlega yfirbyggingu eins litla
og mögulegt er.“
Af þessum 900 milljónum munu 360 koma
frá norska menningarmálaráðuneytinu, 270
frá borginni sjálfri og aðrar 270 frá ná-
grannasveitarfélögum, Evrópusambandinu
og styrktaraðilum.
Tengcl milli unga fólkslns
Aðspurður segir Holmvik að Björgvin hafi
sett sér fimm meginmarkmið fyrir árið 2000.
„Hún mun bjóða upp á menningarviðburði í
Ljósmynd/Þröstur Holgason
„Björgvin er tónlistarborg", segir Bjern
HoLmvik, menningarfulitrúi borgarinnar.
Hann stendur hér viö styttu Edvards Grieg
sem fæddist f borginni og bjó þar um tfma
en ekki er ólíklegt aö nokkur áhersla verði
lögð á tónlist hans þegar Björgvin verður
menningarborg Evrópu árið 2000.
háum gæðaflokki, styrkja menningarlíf borg-
arinnar til langs tíma, renna styrkari stoðum
undir sögulegan grunn borgarinnar, nota
árið 2000 til að skapa ný tækifæri í við-
skipta- og atvinnulífi borgarinnar og síðast
en ekki síst munum við tryggja að Björgvin
verði hér eftir sem hingað til einn af bestu
stöðum til að búa á í heiminum.
Annars á Björgvin það sameiginlegt með
Reykjavík að vera lítil borg á norðurhjara
og því hlýtur það að verða eitt af meginhlut-
verkunum að koma okkur á kortið í listheim-
inum. Björgvin og Reykjavík eiga líka sam-
eiginlegar menningarlegar og sögulegar ræt-
ur. Sennilega verður því um einhvers konar
samstarf að ræða á milli þeirra og þá líka
Helsinki.
En þótt mikil áhersla verði lögð á sögulega
arfleifð verður ekki síður lagt mikið upp úr
því að kynna samtímalist. Sérstök áhersla
verður lögð á unga fólkið; þar getur skólinn
gegnt stóru hlutverki með aukinni áherslu á
tungumála- og bókmenntakennslu. Einnig
með því að koma á tengslum við skóla í hin-
um borgunum sem verða menningarborgir
Evrópu þetta ár. Þar má notast við alnetið.
Þetta er spurning um að koma á tengslum
milli unga fólksinS sem svo má byggja á í
framtíðinni."
Björgvin er tónlistarborg
Holmvik segir að engin þessara hugmynda
sé orðin fulhnótuð. „Við höfum heldur ekki
ákveðið hvort við munum leggja meiri áherslu
á einhverja eina listgrein; Björgvin er auðvit-
að tónlistarborg, við eigum langa og merki-
lega tónlistarhefð sem við getum byggt á og
það eru uppi hugmyndir um að við ættum
að leggja mesta áherslu á hana og styrkja
ímynd borgarinnar sem tónlistarmiðstöðvar.
Það er hins vegar spurning hvort við ættum
ekki frekar að leggja áherslu á eitthvað ann-
að einmitt vegna þess að tónlistin í borginni
er svo sterk. Það á allt eftir að koma í ljós
þegar nær dregur árinu 2000.“
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 10. ÁGÚST 1996