Lesbók Morgunblaðsins - 14.12.1996, Qupperneq 5
EINN af fjölmörgum kvaðröntum á Hveðn.
Þessi var úr látúni, tiltölulega Iftill og létt-
ur og mátti því nota hann á ferðalögum.
Menn vita aldrei með vissu hvaða niðurstöður
eða kenningar það eru sem koma til með að
skipta mestu máli þegar til lengri tíma er
litið. Hitt ber þó að ítreka að heimsmynd
Brahes var fráhvarf frá gömlu jarðmiðju-
kenningunni og hún átti talsverðu fylgi að
fagna meðal stjörnufræðinga langt fram eft-
ir sautjándu öldinni. Hún hefur því án efa
átt verulegan þátt í að ryðja brautina fyrir
sólmiðjukenninguna í hinum lærða heimi.
Guóbrandur biskup
og hnattstaóa Hóla
Guðbrandur Þorláksson Hólabiskup var
tvímælalaust sá íslendingur á sextándu öld
sem best var að sér í stjörnufræði og öðrum
stærðfræðilegum lærdómslistum. Til dæmis
segir Arngrímur lærði frá því í minningarriti
sínu um Guðbrand að biskup hafí verið
hneigður til slíkra fræða og að hann hafi
sjálfur séð hjá honum bækur eftir þekkta
stærðfræðinga og stjörnufræðinga eins og
Georg Peurbach, Erasmus Reinhold, Peter
stjömuathugunarstöðvar Úraníuborg og
Stjömuborg. Þar hannaði hann og lét smíða
mikinn fjölda mælitækja sem voru mun ná-
kvæmari en áður hafði þekkst, og fram-
kvæmdi með þeim mælingar á öllum hugsan-
legum stjamfræðilegum fyrirbæmm. Á þess-
um tíma var sjónaukinn ekki enn kominn til
sögunnar svo að allar stjörnuathuganir fóm
fram með berum augum. Niðurstöðumar og
lýsingar á mælitækjum gaf Brahe út á bókum
sem prentaðar vom í prentsmiðju er hann lét
koma upp á eynni, og pappírinn í bækurnar
var búinn til á staðnum. Sér til aðstoðar við
stjarnmælingar hafði hann að jafnaði nokkra
fasta starfsmenn sem og ýmsa lærlinga er
síðar urðu margir hveijir þekktir stjörnufræð-
ingar, biskupar, prestar og kennarar. Oddur
Einarsson var til dæmis í læri hjá Brahe í
skamman tíma og í veðurdagbók stjömu-
meistarans er getið um komu Odds til Hveðn-
ar 2. mars 1585 en ekki er vitað hversu lengi
hann dvaldist á eynni í það skiptið. í dagbók-
inni er einnig getið um aðra heimsókn Odds
dagana 12. til 16. apríl 1589 en hann var þá
í Danmörku til að taka biskupsvígslu sem
fram fór 25. mars, þótt ekki fengi hann kon-
ungsbréf fyrr en 7. apríl. Þessar dagsetning-
ar er rétt að hafa í huga hér á eftir þegar
rætt verður um íslenska kvaðrantinn á Hveðn.
Svo mikið orð fór af Brahe og því sem
fram fór á Hveðn að oft var mjög gestkvæmt
á eynni. í hópi gesta voru bæði fátækir náms-
menn og auðugir aðalsmenn, jafnt leikir sem
lærðir. Vitað er með vissu að tveir aðrir Is-
lendingar en Oddur heimsóttu Brahe á eyna,
en því miður er ekkert um þá vitað persónu-
lega annað en það að þeir eru kallaðir stúd-
entar í veðurdagbókinni og komu til stuttrar
dvalar er hófst 10. apríl 1592. Brahe átti
alla tíð mikil bréfaskipti við menn, bæði um
stjamfræðileg sem og um veraldleg efni og
hafa mörg bréfanna komið út á prenti. ís-
land eða Islendingar koma ekki við sögu
í þeim bréfum sem varðveist hafa, nema
hvað minnst er á Odd í einu þeirra
(bréfi Konráðs nokkurs frá Bergen
til Brahes 23. október 1594). Það
þýðir meðal annars að bréf þau
sem talið er að hafi farið
milli Guðbrands og
Brahes eru löngu
týnd. Hins veg-
ing stendur enn og gengur undir nafninu
Sívalitum.
Þrátt fyrir talsverða hrakninga eftir brott-
förina frá Hveðn tókst Brahe að gefa út
nokkur mikilvæg rit um rannsóknir sínar á
eynni, en á endanum hafnaði hann í Prag
með fjölskyldu sína og allt sitt hafurtask.
Þar gekk hann í þjónustu Rúdólfs annars sem
keisaralegur stærðfræðingur, en aðstaða og
allur aðbúnaður var til muna verri en hann
átti að venjast á Hveðn. í Prag tók hann þó
þátt í einu frægasta vísindasamstarfi allra
tíma. Hér er átt við hið stormasama sam-
starf hans við Jóhannes Kepler þar sem Brahe
var fyrst og fremst í hlutverki mælimeistar-
ans en Kepler í hlutverki kenningasmiðsins.
Sú samvinna tók snöggan enda 24. október
1601, en þann dag dó Brahe úr veikindum
er sennilega stöfuðu af sprunginni þvag-
blöðru og kvikasilfurseitrun. Stjömumeistar-
inn mikli var allur, 54 ára að aldri. Frá sjónar-
hóli nútímans eru hinar nákvæmu mælingar
Brahes á göngu himintungla á hvelfingunni
tvímælalaust merkasta framlag hans til vís-
indanna. Kepler notaði þær í reikningunum
er leiddu til lögmálanna þriggja sem við hann
em kennd og gefa nær fullkomna lýsingu á
hreyfingu reikistjarnanna um sólina. Það kom
svo síðar í hlut Newtons að útskýra niðurstöð-
ur Keplers með lögmálum sínum um kraft-
verkun og þyngdarafl.
Brahe skipar einnig stóran sess í vísinda-
sögunni sem sá maður er fyrstur sýndi fram
á það með beinum athugunum að sjálfur
Aristóteles hafði rangt fyrir sér í veigamiklum
atriðum. Áður hefur verið getið um athugan-
ir hans á nýju stjörnunni árið 1572 og rann-
sóknir hans á halastjörnum sýndu ótvírætt
að þessi fyrirbæri voru mun lengra í burtu
frá jörðinni en tunglið og gátu því alls
ekki verið skammvinn ljósfyrirbæri í loft-
hjúpnum eins og Aristóteles hafði áður
haldið fram og menn trúað í blindni
öldum saman. Brahe leyfði sér einnig
að benda á það að töflur um hreyfingu
himintungla, sem reiknaðar voru á
grundvelli j arðmiðj ukenningarinn-
ar, voru oft mjög ónákvæmar.
Það er því nokkuð Ijóst að
líta má á Brahe sem upp-
reisnarmann gegn
viðhorf-
STJÖRNUBORG.
HINN frægi himinhnöttur Brahes sem
eyðilagðist í brunanum mikla í Kaup-
mannahöfn árið 1728.
ICHNOGKAPHIA STELLÆBVRGI.
ÚRANÍUBORG ásamt skrúðgarði Brahes.
ORTHOGKAPHIA STELLÆBVRGI
EXTRA AKCEM VRANJ/E SITI.
ar má færa
nokkur rök fyrir því
að þeir hafi raun-
verulega skrifast á
eða haft einhver önnur
samskipti og verður
fjallað nánar um það
síðar.
Brahe starfaði af full-
um krafti á Hveðn allt til
ársins 1597 en þá hrökklaðist
hann úr tendi eftir nokkurra ára deilur við
Kristján fjórða sem tekið hafði við völdum
1588. Hinn nýi konungur hafði talsverðan
áhuga á stjörnufræði en þeir Brahe áttu
ekki skap saman. Meðal annars er talið að
frægð stjörnumeistarans hafí farið mjög fyr-
ir bijóstið á konungi enda kastaði hún frekar
ljóma á Friðrik föður hans en hann sjálfan.
Áð auki var Brahe bæði skapmikill og hroka-
fullur og átti erfitt með að vera konungi hlýð-
inn og undirgefinn. Eitt leiddi af öðru og svo
fór að Brahe yfirgaf Hveðn fyrir fullt og
allt. Hann tók með sér flest það sem ekki
var naglfast, þar á meðal öll smærri mæli-
tæki, en sendi síðar eftir eftir þeim stærri.
Að nokkrum árum liðnum lét konungur hins
vegar rífa Úraníuborg og Stjörnuborg og
seldi mestan hluta efnisins, en afganginn
notaði hann í bústað fyrir frillu sína Karenu
Andersdóttur. Hann gerðist þó ekki algjör-
lega fráhverfur stjörnufræði og löngu síðar
reisti hann sjálfur nýja og glæsilega stjörnu-
athugunarstöð í Kaupmannahöfn. Sú bygg-
er
um og sem
slíkur ruddi
hann brautina fyrir
aðra, meðal annars
menn eins og Kepler
og Galíleo.
Sjálfur taldi Brahe
hins vegar að kórónan
á ævistarfi sínu væri
heimsmynd sú er við hann
kennd. Brahe var mikill
aðdáandi Kóperníkusar en þrátt fyrir ítarleg-
ar tilraunir tókst honum aldrei að sjá hina
minnstu hliðrun á stöðu fastastjarnanna. Slík
hliðrun er óhjákvæmileg ef það er jörðin sem
snýst um sólina en ekki öfugt. Það sem Brahe
vissi náttúrulega ekki var að fastastjörnurnar
eru svo langt í burtu og hliðrun þeirra þar
af leiðandi svo lítil að hún er ekki mælanleg
nema með aðstoð góðra sjónauka. Slík tæki
voru ekki til á dögum Brahes og hann dró
því ranglega þá ályktun af mælingum sínum
að jörðin væri í miðju alheimsins. Eftir mikl-
ar vangaveltur setti hann að lokum fram
heimsmynd þar sem jörðin er í miðju fasta-
stjörnuhvelsins og um hana snúast bæði tungl
og sól. Þetta var þó ekki gamla góða jarð-
miðjukenningin endurborin því að hjá Brahe
eru allar reikistjörnurnar á hringlaga braut-
um um sólina en ekki jörðina. Heimsmynd
þessa, sem er náttúrulega röng, taldi Brahe
vera merkasta framlag sitt til þekkingarinn-
ar. Hér er um að ræða mjög gott dæmi um
það sem oft gerist í vísindarannsóknum:
Apian og Oronce Finé, og að í bókunum
hafi mátt sjá ýmsar skriflegar athugasemdir
og viðbætur biskups. Þá getur Arngrímur
þess einnig að Guðbrandur hafi búið til himin-
hnött þar sem tekið var tillit til hnattstöðu
íslands. Hnöttinn gaf hann Jóhanni Bockholt
höfuðsmanni á Bessastöðum meðan vinskap-
ur var enn þeirra í milli. Einnig mun Guð-
brandur hafa byijað á smíði jarðlíkans sem
honum auðnaðist þó ekki að ljúka vegna
annríkis og krankleika á seinni árum.
í Brevis commentarivs frá 1593 hafði Arn-
grímur áður sagt frá ákvörðun Guðbrands á
breidd Hóla. Mælingin gaf niðurstöðuna 65
44’ sem er mjög nærri réttu lagi. Guðbrand-
ur notaði niðurstöðu sína meðal annars í út-
reikningum á göngu sólar norðanlands er
hann birti árið 1597 í rímbókinni Calendarium
en sú bók mun vera fyrsta almanakið með
stjarnfræðilegum útreikningum sem miðaðir
eru við íslenskar aðstæður.
í Crymogæa frá 1609 getur Arngrímur
um tilraun Guðbrands til að mæla lengd Hóla
í tengslum við tunglmyrkva. Sú mæling var
ekki eins nákvæm og hin fyrri, enda voru
lengdarmælingar lengi vel mun erfíðari en
breiddarmælingar. Ástæðan er sú að til að
finna breiddina þarf fyrst og fremst góðan
hornamæli, til dæmis kvaðrant eða sextant.
Til að ákvarða lengdina þarf hins vegar mjög
nákvæmar klukkur eða nákvæmar skrár yfir
myrkva eða önnur fyrirbæri er tengjast
göngu reikistjama og tungla þeirra. Á dögum
Guðbrands voru hvorki til nægjanlega ná-
kvæmar klukkur né skrár og það var ekki
fyrr en löngu síðar sem lengdarmælingar
urðu jafnáreiðanlegar og breiddarmælingar.
Á hinu fræga íslandskorti Guðbrands, sem
stungið var í eir árið 1585, eru Hólar sýndir
með breiddina 66 55° sem er rúmlega einni
gráðu of norðarlega. Það er því ljóst að hin
nákvæma mæling biskups á breidd staðarins
var gerð eftir áð hann lét kortið af hendi til
Anders Sörensens Vedels, hins kunna sagna-
ritara Dana, sem kom því áfram til útgefand-
ans Abrahams Ortelíusar. Sennilegast er að
mælingin hafi verið framkvæmd eftir 1584.
Nánari tímasetning er ekki möguleg nema
hvað ljóst er að hún er framkvæmd fyrir
útkomu Brevis commentarivs árið 1593.
Svo nákvæm var mæling Guðbrands að á
þeim tíma var aðeins til að jafna breiddar-
mælingum samtímamannsins Tychos Brahes.
N.E. Nörlund telur í kaflanum um Guðbrand
í hinni merku kortasögu sinni, Islands Kort-
lægning, að þetta eitt bendi eindregið til
þess að biskup hafi verið í einhveijum tengsl-
um við meistarann og jafnvel skrifast á við
hann. Engir aðrir en Brahe og lærisveinar
hans hafi haft nægjanlega góð tæki og að-
ferðir til að framkvæma svo nákvæmar
mælingar.
Þetta er í fullu samræmi við það sem
ýmsir aðrir sagnaritarar hafa haldið fram en
eins og áður sagði hafa þó engin hinna meintu
bréfa varðveist og Arngrímur lærði getur
hvergi um slík samskipti í ritum sínum sem
út af fyrir sig er athyglisvert. Hins vegar
styður það tilgátuna að Brahe var vel kunn-
ugt um breiddarmælingu Guðbrands og getur
hennar í skrá sinni yfir hnattstöðu helstu
staða á norðurhveli. Því miður er ekki hægt
að dagsetja skrána þar eð hún var ekki prent-
uð fyrr en árið 1640 í annarri útgáfu bókar-
innar Astronomia Danica eftir Christian Sör-
ensen Longomontanus, helsta lærisvein og
aðstoðarmann Brahes. Því er ekki ljóst hvort
Brahe hefur fengið upplýsingarnar beint frá
Guðbrandi sjálfum eða hvort Oddur Einarsson
hefur fært honum fréttirnar eða sent með
einhveijum hætti. I þessu sambandi er einnig
rétt að minna á að Anders Sörensen Vedel,
sá er Guðbrandur sendi kort sitt árið 1584,
var einn af bestu vinum Brahes þótt ekki
legði hann sérstaklega stund á stjörnufræði.
Og þá er komið að því að segja frá ís-
lenska kvaðrantinum á Hveðn. í mælidagbók-
um Brahes fyrir dagana 24. og 26. apríl
1589 er getið um ákvörðun á hádegishæð
sólar með nýjum kvaðranti sem kenndur er
við ísland. Einnig er frá því sagt að hann
hafi verið notaður til að mæla hágönguhæð
stjörnunnar Spíku 23. apríl. Þessa tækis er
hvergi annars staðar getið í mælidagbókun-
um eða öðrum verkum Brahes og bendir það
til þess að það hafi aðeins verið notað þessa
tilteknu daga eins og um skoðun eða reynslu-
notkun hafi verið að ræða. Af skráðum
mæliniðurstöðum má ráða að nákvæmni
kvaðrantsins hefur numið einni bogmínútu.
Nú vaknar eðlilega sú spurning hvaða
mælitæki þetta hafi verið og hvers vegna það
var kennt við ísland. í því sambandi er rétt
að minna á að Oddur Einarsson var einmitt
staddur i heimsókn á Hveðn um svipað leyti
og kvaðranturinn var notaður til mælinga.
Er ekki hugsanlegt og jafnvel sennilegt að
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTTR 14. DESEMSER 1996 S