Lesbók Morgunblaðsins - 14.12.1996, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 14.12.1996, Blaðsíða 16
ÞAÐ ER engum blöðum um það að fletta að Svanavatnið er ástsælasti ballett allra tíma. Myndin af fallegu prinsess- unni sem hefur verið hneppt í álög og líður um sviðið í svanslíki í „tutu og táskóm", hvít í silfruðu mánaskini er mynd hinnar eilífu fegurðar. Þegar Svanavatnið var sviðsett í fyrsta skipti árið 1877 í Bolshoj-leikhúsinu í Moskvu voru viðtökurnar vægast sagt slæm- ar og sýningin féll. Fólk undraðist að Tjækovskí, það virta tónskáld, skyldi semja tónlist við þetta listform, en balletttónlist var álitin óæðri tónlist. Danshöfundurinn, Julius Reisinger, var afgreiddur sem and- laus. Það var ekki fyrr en átján árum seinna, árið 1895, að Svanavatnið var aftur svið- sett, þá í Pétursborg, og varð með þeirri uppfærslu að klassísku meistarastykki. SVANAVATNIÐ var skrifað til að þókn- ast smekk áhorfenda sem voru og hétu í lok 19. aldar. Sagan er sótt í ýmis germ- önsk ævintýri og fjallar um efni sem ballettá- hugafólki var hugleikið, leit mannsins að hinni eilífu fegurð í spilltum heimi. Svanavatnið hefur lifað í heila öld og enn er verið að sviðsetja það um allan heim, sem betur fer. í Piccadilly-leikhúsinu í Lundúnum sýnir ballettflokkurinn „Adventures In Motion Pictures", eða AMP, all nýstárlega upp- færslu af þessum ástsæla ballett. Danshöf- undurinn, Matthew Boume, hefur skrifað algerlega nýtt ballettverk fyrir tónlist Tjækovskís; nýja sögu. Samt heldur hann sig við upphaflega þemað; leit mannsins að hinni eilífu fegurð í spilltum heimi, en Matt- hew Bourne skrifar fyrir þann heim sem hann lifír í, lok 20. aldarinnar. í þeim heimi er allt harðara, hraðara, kaldara, skeytingarlausara, yfirborðslegra en við sjáum í verki Reisingers. Saga Matthews byijar þó á svipuðum nótum og saga Reisingers. Það er höll og í henni er prins að alast upp. Hann hefur þjóna á hveijum flngri; er meðhöndlaður eins og hann sé fjölfatlaður; þarf ekki að klóra sér sjálfur. Og í höllinni er „móðir...“. Konan sú er drottning, ekkert nema drottning. Við hennar kalda skjól elst drengurinn upp; fægður og slípaður þegar hann þarf að vera til sýnis með móður sinni, en hún hefur ekkert að gefa. Prinsinn kynnist stúlku, sem er full af lífs- gleði og glettni og laðast að henni, en frú drottningunni er gróflega misboðið. Klæða- burður stúlkunnar er afkáralegur, hún kann ekki að hegða sér við hirðina og er í alla staði afskaplega óviðeigandi. Stúlkan er rauðhærð. Ekki laust við að hér fari bjöllur að hringja í hausnum á manni. Prinsinn leitar eftir votti af hlýju hjá frú drottningunni; krefur hann um tilfinninga- lega alúð, snertingu; bara eitthvað sem sýni að henni þyki vænt um hann sem mann- eskju. En hún er ófær um það, og allir sem í kringum hana eru. Prinsinn fyllist örvænt- ingu og leitar út, í skjóli nætur; fer út að skemmta sér. Meira að segja lífsglaða stúlk- an snýr við honum baki. Hann er ekki eins og almúginn, sem hæðir hann og spottar, hrækir á hann. Samastaður hans er hvorki innan hallar né utan. Það er enginn staður. Hann er ekki frjáls, jafnvel þótt hann sé ríkisarfinn sjálfur og hann ákveður að binda enda á líf sitt... Það er þá sem Svanurinn birtist: ægifag- ur, sterkur, karlmannlegur, fijáls, umfram allt fijáls. Danshöfundurinn, Matthew Bourne, hef- ur valið þá leið að skrifa svanahlutverkin fyrir karlmenn og það verður að segjast •éins og er að það er árans djörf leið. Ekki vegna þess að í því felist einhver samkyn- hneigð ögrun, heldur einfaldlega vegna þess að svanadansarnir úr upprunalegu útgáf- „Adventures In Motion Pictures“ er heitið á ballett- flokki sem hefur starfaó í Lundúnum frá árinu 1987 og hefur frá upphafi þótt boða nýjan tón í listdans- inum. Um þessar mundir sýnir flokkurinn Svanavatn- ió í mjög svo nýstárlegri útgáfu í Piccadilly-leikhús- inu í Lundúnurrfy sýningu sem hlautQlivier-verólaun- in 1996 fyrir bestu nýju dansuppfærsluna. SUSANNA SVAVARSDOTTIR sá sýninguna, sem hún segir aðeins hægt aó lýsa meó oróinu „snilld.“ unni eru einhver þekktustu ballettatriði sem til eru. Enda verð ég að viðurkenna að ég beið spennt eftir því hvernig hann myndi leysa dans „litlu svananna", sem í látleysi sínu er alltaf eftir- minnilegur. Lausnin var heillandi og full af glettni og alls ólík því sem maður á að venj- ast í Svanavatn- inu. Prinsinn heillast af Svaninum og I:<S| þeirri veröld sem hann stendur fyrir og 1 hann eyðir allri nótt- inni með þessum fagra flokki. Hann hefur fund- ið sinn stað í veröldinni og fyllist lífslgeði og ham ingju. MATTHEW Bourne fylgir byggingu upphaflegu sögunnar og í næsta atriði er haldinn dansleikur í höllinni, að sjálfsögðu til að kynna Prinsinn fyrir konum sem gætu orðið honum samboðnar sem eig- inkonur. Þar er hann blekktur, rétt eins og prinsinn í upphaflegu útgáf- unni. Hann telur sig þekkja aftur Svaninn sinn í svartklæddum dreng í leðurbuxum og verður sér til skammar. Hann er hæddur og úthrópaður. Og alls staðar er gula press- an mætt með sínar myndavél- ar. í lokaatriðinu er Prinsinn bugaður á sál og líkama; hann er deyjandi og sér sýnir; vökusýnir, draum- sýnir, það skiptir ekki máli. Hann sér þann heim sem hann þráir, heim frelsis, þess frelsis sem ekki er til í mannheimum. Og hann deyr þessum draumi sínum. Eins og í upphaflega ball- ettinum er hlutverk Svansins stærsta og viðamesta hlutverkið í sýningunni. Þegar AMP sýndi Svana- vatnið fyrst dansaði Adam Cooper það \ hlutverk og hlaut fyrir það Time Out- dansverðlaunin 1995. Núna hefur William Kemp tekið við hlutverkinu, ungur maður sem lauk ballettnámi í fyrra. Frábær dans- ari, sem hefur ótrúlegt vald yfir líkamanum; sterkur, kraftmikill, lipur, karlmannlegur... Nákvæmlega eins og sýningin er öll. Það er nákvæmlega ekkert væmið, pempíulegt eða hommalegt við hana, ekki einu sinni þótt Prinsinn og Svanurinn eigi mjög svo mikilfengleg dansatriði. Dansarnir í sýningunni eru svo ótrúlega fallegir og kraftmiklir og sýningin svo mikil snilld að maður þarf nánast að klípa sig við og við til að ganga úr skugga um hvort þetta sér raunverulegt. Eftir sýninguna er maður orðlaus yfir því að svo einkennilega vildi til í tilverunni að maður missti ekki af henni. Og getur sagt það sem eftir er: Ég sá þessa sýningu. En hvert er Matthew Bourne að fara? Hvað er hann að segja og hvert sækir hann sitt yrkisefni? HANN segist ekki neita því að konung- legu persónumar í verkinu eigi nokkuð skylt við þær persónur sem um þessar mund- ir leiki aðalhlutverkin í sögu Windsor-fjöl- skyldunnar. Hann segist þó hafa gert rann- sókn á konungbornum einstaklingum síðustu 150 árin og komist að því að þar væri margt um krónprinsa sem hefðu þjáðst af svo mikilli persónuleikatruflun að þeir hefðu verið vanhæfir til að gegna því starfi sem þeir væru fæddir til að gegna; nefnir meðal annarra Lúðvík af Bavaríu og Edward VII. Bourne segist einnig hafa skoðað muninn á opinberu lífi kóngafólksins og einkalífi. í Svanavatninu sé hvort tveggja jafn ömur- legt fyrir Prinsinn. Það hafi verið gert til að mynda tilfinningalegt tómarúm í miðri sögunni til að flétta Svanavatnsins gengi upp. 7 PRINSINN er tilfinningamiðja verksins og ólíkt fyrri útgáfum af Svanavatninu er saga hans sögð í 1. þætti, til að skýra örvæntingu hans og einsemd. Það er nauð- synlegt til að skiljanlegt verði hvers vegna Svanurinn verður honum svo mikils virði í 2. þætti. Matthew Bourne hefur verið spurður að því hvort þetta sé „homma“ Svanavatnið og svarar því til að hann neiti því ekki að þannig megi lesa sýninguna. Hins vegar sé hann að segja sögu sem sé mun einfaldari og hafi almennari skírskotun. Svanavatnið sé saga um mann sem lifi í al- geru ástleysi. Honum er hafnað af vinkonu sem er engan veginn samboðin hon- um, móðir hans, frú drottn- ingin, geti ekki sýnt syni sín- um hlýju og takmarkandi konunglegur lífsstíll hans geri honum ókleift að mynda sam- band við annað fólk, án þess að eiga von á skandal. Fyrir Prinsinum er Svanurinn tákn fyrir allt sem hann sjálfur vill vera; sterkur, fagur og frjáls. Hann er eins konar æðri vitund og endurspeglar hugarástand Prinsins. Bourne játar þó fúslega að dansar þeirra séu ákaflega erótískir og bend- ir á að það sé hluti af aðdráttarafli hins óþekkta. Hann minnir á að hvað sem megi um erótikina í sýningunni segja, þá sé Svanurinn fugl. Samband Prinsins og Svansins nær hámarki þegar Svanurinn lyftir honum upp og vefur um hann vængjum sínum; faðm- ar hann að sér eins og lítið barn. Bourne bendir á að þetta sé mikilvægasta atriðið allri sýningunni, vegna þess að það sé svo einfalt og svo almennt, þörfin fyrir snertingu og hlýju, hana þekki allir. AÐ SEM einkennir þessa sýningu öðru fremur er að hún er skiljanleg. Það er verið að tjá miklar tilfinningar og er það gert á viðeigandi hátt. Þráin eftir ást, fegurð, frelsi er augljós í öllum hreyfingum Prinsins. Frelsið í líki Svans- ins er heillandi en felur í sér ógnvekj- andi fyrirboða, því það má spyija hvort eitthvert raunverulegt frelsi sé til nema í dauðanum. Svanirnir eru kynþokkafull- ir og ögrandi, svo langt frá þeirri hefðu- bundu karlmannsímynd sem einkennir klassískan ballett. Þeir eru ekki þarna til að hjálpa neinum að dansa. Þeir hafa sjálfir rödd og tjá hana með hreyfingum sínum. Svanavatnið er sýning sem enginn, sem á leið til Lundúna, ætti að láta framhjá sér fara. Ekki ættu tungumálaörðugleikar að hindra fólk í að sækja sýninguna, því ballett hefur alþjóðlegt tungumál; likamlega tjáningu. Það gæti hins vegar reynst erfitt að fá miða vegna þess að fólk fer aftur og aftur að sjá hana. Þegar ég sá Svanavatnið fór ég með konu sem var að sjá það í ann- að skipti og ætlaði oftar. Hún sagði mér frá því að þegar hún hefði farið í fyrsta skipti hefði hún setið við hliðina á manni sem var að sjá það í fimmta skipti. Og þeir eru til, Islendingarnir, sem hafa séð þessa sýningu þrisvar. Ég veit um tvo. Það er því eins gott að panta miða áður en lagt er af stað. Bara, ekki missa af sýningunni. Hún er lífsreynsla. LEIT MANNSINS AÐ HINNI EILÍFU FEGURÐ 16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 14. DESEMBER 1996

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.