Lesbók Morgunblaðsins - 14.12.1996, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 14.12.1996, Blaðsíða 8
ÞETTA er alfarið þeirra uppátæki, ég kem ekki nálægt þessu - mæti bara við opn- unina,“ segir Eiríkur Smith listmálari en Listasafn íslands tekur nú til sýningar úr- val olíumálverka og vatnslitamynda hans frá afstrakt-expressjóníska tímabilinu, 1963-68. Verður sýningin, sem ber yfirskriftina Milli tveggja heima, opnuð almenningi {dag og stendurtil 2. febrúar 1997. í kynningu frá Listasafni íslands segir að sérstaða Eiríks felist ekki síst í því að hann hafi komið við sögu helstu hræringa sem mót- að hafi íslenska málaralist á árunum 1950- 1965. „Rætur hans liggja kirfílega í íslensku landslagsmálverki og hlutlægum expressjón- isma, en við upphaf sjötta áratugarins varð hann virkur þátttakandi í hreyfingu strangflat- arlistamanna, en þeir voru fyrstir íslenskra listamanna til að innleiða algjörlega óhlutlæga myndlist á íslandi." „Seint á sjötta áratugnum," segir ennfrem- ur í kynningunni, „hóf Eiríkur að endurskoða viðhorf sín til strangflatarlistar, tók þá að gera óhlutlægar myndir í opnum, ljóðrænum stfl. Þær leiddu síðan af sértímabil umbrota- mikilla afstrakt-expressjónískra málverka, sem þó tóku nokkurt mið af hrynjandi ís- lenskrar náttúru, en þau eru af mörgum talin meðal öndvegisverka íslenskrar afstraktlistar. í kjölfarið fylgdu síðan hálf-óhlutlæg verk undir áhrifum frá popplist og draumkennd verk af fólki og náttúru. í seinni tíð hefur Eiríkur aftur sett sig í samband við hrynjandi náttúrunnar og gerir við hana frjáls og óhlut- læg tilbrigði; er þar með búinn að loka hringn- um.“ Segir listamaðurinn þessa lýsingu gefa all- góða mynd af ferli sínum. „Ég hef alltaf verið svolítið göróttur enda hef ég ekki nennt að mála sömu línuna í gegnum heilu áratugina. Ef mig langar til að breyta um stíl, geri ég það - þannig er ég gerður." Á árunum sem sýningin nærtil, 1963-68, kveðst Eiríkur hafa verið á kafi í afstrakt- expressjónísku málverki en fljótlega upp úr því kúvent yfir í fígúratíft og jafnvel realískt, sem hafi verið glettilega gaman. Nú sé hann á hinn bóginn farinn að nálgast afstraksjónina aftur, þótt hann haldi sig, sem svo oft áður, við landslags-mótífin. Eiríkur kveðst kunna Listasafni íslands bestu þakkir fýrir að efna til sýningarinnar, auk þess sem fólk sem láni verk úr einkaeign til hennar eigi heiður skilinn, en einungis örfá verk, einkum vatnslitamyndir, eru! eigu lista- mannsins sjálfs. I tilefni af sýningunni gefur Listasafn ís- lands út skrá með fjölda litmynda, upplýsingum um feril listamannsins frá upphafi og ritgerð eftir Aðalstein Ingólfsson listfræðing um þróun hinnar afstrakt-expressjónísku myndsýnar í verkum Eiríks í ljósi franskrar og bandarískrar myndlistarhefðar. Sýningin verður opin alla virka daga frá kl. 11 til 17, lokað mánudaga. Yfir hátíðirnar verður hún opin alla daga nema aðfangadag, jóladag, annan í jólum, gamlársdag og nýárs- dag. MILLITVEGGJA HEIMA 8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 14. DESEMBER 1996

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.