Lesbók Morgunblaðsins - 22.02.1997, Page 9

Lesbók Morgunblaðsins - 22.02.1997, Page 9
(1) NÚ ER full tylftin, Valgerður mín. Kolteikning við Fjallkirkjuna eftir Gunnar Gunnarsson. ( 2) ÞAÐ FER að gutla í strokknum, og þetta hljóð flytur öryggi um allan bæinn, en ég tek mér lítinn hrísvönd og sópa álútur gólfin. Kolteikning við Fjallkirkjuna. (Mynd 3) ÚR MYNDROÐ við Egils sögu. Fjallkirkjumyndir Gunnars þóttufalla vel að sögunni og kváðust gamlir Fljóts- dælingar þekkjapar ýmsar persónur. mannaskálanum árið 1950. Á þeirri sýningu voru m.a. hinar þekktu teikningar hans við Pjallkirkjuna. Lítið mun hafa verið fjallað um þessa sýningu, enda féllu myndir Gunn- ars lítt í kramið hjá þeim einstrengingslegu rýnendum sem þá höfðu náð tökum á flestum fjölmiðlum. Gunnar sagði undirrituðum að sér hefði komið á óvart að ýmsir hefðu talað um rammíslenskan svip á myndum hans, en hann var að sjálfsögðu danskmenntaður málari og átti sterkar rætur í danskri myndlistarhefð. Til þess var tekið hvað persónur hans í Fjall- kirkjumyndunum féllu vel að sögunni og sögðust gamlir Fljótsdælingar þekkja ýmsar persónur sögunnar af myndunum. Þetta er reyndar skiljanlegt þegar þess er gætt, að Gunnar flutti með foreldrum sínum til lands- ins árið 1939, 25 ára gamall, fullþroskaður listamaður. Fyrstu árin bjó fjölskyldan á Skriðuklaustri í Fljótsdal og þar kynntist Gunnar mörgum sveitungum sínum. Það skýrir að sjálfsögðu svipmót persónanna í Fjallkirkjumyndum hans. Gunnar kvæntist eftirlifandi konu sinni Signýju Sveinsdóttur frá Þykkvabæ í Álfta- veri. Þau eignuðust þtjú börn, Franzicku, Gunnar og Katrínu Selju. Árið 1950 byggðu þau Signý og Gunnar hús í Mosfellssveit sem þau nefndu Ás. Þar er nú sveitakráin Áslákur og keramikverk- stæði með meiru. Mósaik úr islenskum steinum í fyrrnefndu viðtali kvaðst Gunnar hafa málað að meðaltali 12 myndir á ári auk teikn- inganna. Sér hefði haldist illa á myndunum. Sumar hefðu verið málaðar eftir pöntun en aðrar selst vítt um landið. Gunnar gerði nokk- uð af mósaíkmyndum úr íslenskum steinum sem hann tíndi í vegarköntum sveitarinnar og í Esjuhlíðum. Honum taldist til að litbrigð- in í þessum steinum væru á milli 40 og 50 talsins og spönnuðu því víðan skala. Gunnar kvað tilgang sinn með steinasöfnuninni í upphafi hafa verið þann að gera stærri mósaíkverk, en vinnan við að höggva niður steinana hefði reynst svo mikil og tímafrek að hann hefði eingöngu gert smærri myndir. Gunnar sagði að samvinnu iðnaðarmanna og listamanna vantaði í þessu samhengi sem og mörgum öðrum og benti á góða samvinnu þessara aðila í Mexíkó sem skilað hefði frá- bærum árangri sem frægt væri. í margnefndu viðtali var Gunnar spurður hvað hefði verið þess valdandi að erlend for- lög hefðu sóst eftir honum til myndskreyt- inga. Hann kvaðst ekki í vafa um að teikning- arnar í Fjallkirkjunni hefðu orðið til að vekja þann áhuga. Síðan hefði hvað leitt af öðru. Því miður hafa íslendingar ekki fengið að njóta þessara myndskreytinga nema að mjög litlu leyti og er það miður. Það er hinsvegar löngu tímabært að íslenskir listfræðingar geri verkum hans skil, bókaskreytingunum sem öðrum. Reykjavíkurborg eignaðist hús Gunnars rithöfundar Gunnarssonar við Dyngjuveg. Húsið hefur verið notað sem gestavinnu- stofa fyrir erlenda listamenn og er í umsjá forstöðumanns Kjarvalsstaða. Einhver hefði nú haldið að ástæða hefði verið til að varðveita húsið eins og skáldið skildi við það, en þar á veggjum voru myndir eftir Gunnar yngra þegar faðir hans var ofar moldu og nokkur ár eftir það. Það hefði verið við hæfi að halda minningu þeirra feðga á lofti með slíkri varðveislu enda var með ólík- indum hve verk þeirra féllu vel saman. Sam- band þeirra feðga var mjög náið og ekki er líklegt að rithöfundurinn hefði kosið annan en son sinn til að myndskreyta sögur sínar, svo vel sem honum tókst til. Eins og alþjóð er kunnugt kom til álita á sínum tíma að veita Gunnari Gunnarssyni Nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Annar risi í ÚTSÝNI yfir Hamborg. Olfumálverk á léreft. bókmenntaheimi okkar íslendinga hlaut verð- launin verðskuldað. í tilefni 50 ára afmælis sögu Gunnars um Borgarættina kom hún út í viðhafnarútgáfu í Danmörku og var að sjálfsögðu mynd- skreytt af syni skáldsins. Danir hrifust mjög af myndskreytingunum og sagði einn þeirra sem um útgáfuna skrifuðu eitthvað á þessa leið: „Nú fær eggið verðlaunin sem hænan átti að fá“ og átti þar að sjálfsögðu við Nóbelsverðlaunin. Ekki væri úr vegi að opinberir aðilar eignuð- ust Fjallkirkjumyndir Gunnars yngra. Það væri við hæfi að þær prýddu einhveija opin- bera stofnun þar sem almenningi gæfist kost- ur að njóta þeirra og kemur Þjóðarbókhlaðan í hugann eða önnur opinber og aðgengileg stofnun. íslensk myndlist Árið 1943 gaf framkvæmdamaðurinn og listunnandinn Kristján Friðriksson, sem kenndur var við Últíma út bók sem hann nefndi íslensk myndlist - 20 listmálarar. Þar er Gunnars getið í hópi annarra góðra lista- manna og þar segir: Að lokum ber að nefna Gunnar Gunnars- son, ungan íslenskan málara, sem er nú bú- settur í heimalandi sínu, en hafði áður alið mestan aldur sinn í Danmörku og hefur þvi lítt komið við sögu hér heima til þessa. Er hann talinn vera vel menntaður og stefnufastur listamaður og má því vænta þess, að hann muni leggja góðan skerf til íslenskra lista. Með þessari grein er leitast við að vekja athygli á góðum listamanni sem lengi hefur legið óbættur hjá garði. Það er full ástæða fyrir listfræðinga eða listsagnfræðinga að kanna feril hans, ekki síst myndskreytingar í fjölmargar bækur hérlendis og erlendis. Vonandi má vænta þess, þó seinna verði, að út komi óhlutdræg saga íslenskrar mynd- listar og þá má ekki gleyma að geta Gunnars Gunnarssonar listmálara. Höfundurinn er myndlistarmaður og kennari. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 22. FEBRÚAR 1997 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.