Lesbók Morgunblaðsins - 22.02.1997, Page 10
ARKITEKTÚR
LEITIN AÐ FEGURSTL
Fimmtán áhugamenn um arkitektúr, þar af sjö
arkitektar, hafa valió 10 fegurstu hús á Islandi
og þá fyrst og fremst meó tilliti til arkitektúrs,
svo og þess hvernig húsió fer í umhverfi sínu
130 ár hef ég öðru hverju haldið úti
pistlum um byggingarlist í Lesbók-
inni, og Qallað bæði um erlendan og
innlendan arkitektúr. Oft hef ég reynt
að gera mér grein fyrir því, hvaða
hús landsins væri best teiknuð, eða
með öðrum orðum, í hvaða byggingu
íslenzkur arkitektúr risti hæst. I
framhaldi af því hófst leit að þeim næstbeztu,
allt niður í 10. sæti. Þegar sá listi var orðinn
til, fannst mér að það væri í rauninni afar
lítils virði fyrir lesendur Lesbókar að sjá hvað
skoðun einn maður hefði á þessu. Niðurstað-
an varð því sú að bæta við eigin lista áliti
14 valinkunnra áhugamanna, bæði um bygg-
ingarlist og íslenzka menningu. Bróðurpart-
urinn af þeim eru auk þess arkitektar, sem
flestir hafa skrifað meira og minna um bygg-
ingarlist, sumir hér í Lesbók.
Allir tóku vel í að reyna þetta; sumum
fannst í fyrstu, að þarna væri verið að biðja
um eitthvað sem væri ómögulegt. Einn sagði:
„Ég verð að hugsa mér að þú standir fyrir
framan mig með hlaðna skammbyssu og að
ég eigi ekki annarra kosta völ en nefna 10
hús“. Hann kláraði verkefnið samt fijótt og
vel. Aðrir sögðu að það hefði beinlínis verið
kvalafullt að þurfa að sleppa húsum sem vel
komu til greina. En ekki fannst öllum verk-
efnið erfitt, heldur „rosalega skemmtilegt"
eins og komizt var að orði.
Það var satt að segja dálítið vandamál,
hvernig átti að orða spurninguna, svo út-
skýrt var fyrir hveijum og einum, að hér
væri verið að fiska eftir skoðunum á því,
hvar beztan arkitektúr væri að finna á ís-
landi. Það mátti greiða atkvæði öllum húsum,
gömlum og nýjum, án þess að taka sögulegt
mikilvægi með í reikninginn. Og að þessum
útskýringum loknum var einfaldlega spurt:
yHver finnst þér vera 10 fallegustu hús á
Islandi? Hér var beðið um huglægt mat; hjart-
að, tilfínningar og smekkur látin ráða, enda
er varla hægt að nota annan mælikvarða..
Það kom ekki á óvart hvaða hús fengu
bezta útkomu. Hinsvegar kom á óvart hvað
þessi 150 atkvæði dreifðust á ótrúlega mörg
hús. Vísast endurspeglast í því að þessi hóp-
ur hefur yfirgripsmikla þekkingu á byggging-
um að fornu og nýju um allt land, en út úr
þessu má einnig lesa þjóðlegan metnað og
þjóðernisrómantík. Val á einstökum húsum
kann að vekja undrun lesenda, ef til vill
hneykslun, því fátt eru menn eins ósammála
um og það, hvort hús séu falleg eða ljót. En
þótt spurningin væri um fegurð, er þó ljóst
að hugmyndir um notagildi eru teknar með
í reikninginn; einnig það hvernig viðkomandi
hús fara í umhverfi sínu, enda er góður arki-
tektúr reistur á þessu öllu saman.
Þátttakendwr kynntir
Um þá sem tóku að sér að svara spurning-
unni er það að segja, að Hörður Ágústsson
listmálari er þekktasti fræðimaður okkar um
byggingarlist fyrri alda og hefur með rann-
sóknum sínum þar unnið lofsvert starf. Hjör-
leifur Stefánsson arkitekt hefur skrifað um
arkitetúr í Lesbók og víðar, auk þess sem
hann hefur unnið að varðveizlu og endur-
byggingu gamalla húsa og er í ritstjórn Minja-
vemdar. Gestur Ólafsson arkitekt hefur
unnið við skipulagsmál og hefur verið drif-
fjöður tímaritsins Arkitektúr og skipulag.
Pétur J. Ármannsson arkitekt er forstöðu-
maður Byggingarlistardeildar á Kjarvalsstöð-
um og hefur skrifað mikið um sögu íslenzkr-
ar byggingarlistar, þar á meðal í Lesbók.
Júlíana Gottskálksdóttir er listsögufræð-
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 22. FEBRÚAR 1997