Lesbók Morgunblaðsins - 19.04.1997, Side 20
STEINGRÍMUR Eyfjörð: Litlu hlutirnir.
VIGNIR Jóhannsson: Ættleidda steilið.
Morgunbloóið/Golli
ÓLÖF Nordal: Hrafnastell — si'ðasta kvöldmáltfðin.
LISTIN LOGÐ A BORÐ
HELGI Þorgils Friðjónsson: Án titils.
ELÍNRÓS Eyjólfsdóttir: Ástrósir.
VERNIG koma listmálarar, myndhöggvarar og nýlista-
menn Iisthugmyndum sínum til skila á borðbúnaði? Svar
við því fæst á samsýningu tólf íslenskra myndlistar-
manna sem opnuð verður í Hafnarborg í dag. Á sýning-
unni, sem ber yfirskriftina Sparistellið, verður listin í
orðsins fyllstu merkingu Iögð á borð.
Að sögn Jóns Proppés sýningarstjóra kviknaði hug-
myndin að sýningunni á kaffihúsi - „eins og fleiri góðar
hugmyndir“ - þar sem hann sat yfir kaffibolla ásamt myndlistarmönnunum
Steingrími Eyfjörð og Jóni Óskari Hafsteinssyni sem munu lengi hafi látið
sig dreyma um að mála á postulín - kannski meira í gamni en alvöru. „Það er
á hinn bóginn alltaf gaman að setja annað slagið upp sýningar, þar sem
listamennirnir taka sig ekki of alvarlega," segir Jón.
Þátttakendur í sýningunni eru Guðjón Bjamason, Helgi Þorgils Friðjóns-
son, Hulda Hákon, Jón Óskar Hafsteinsson, Kristján Guðmundsson, Ólöf
Nordal, Ragnheiður Ragnarsdóttir, Ráðhildur Ingadóttir, Steingrímur Ey-
§örð, Tumi Magnússon og Vignir Jóhannsson, sem spreyta sig nú í fyrsta
sinn á postulíni, og Elínrós Eyjólfsdóttir, sem sker sig úr hópnum, þar sem
hún hefur lagt stund á postulínsmálun í tvo áratugi.
„Þessi sýning er í senn óður til postulínsins og tilraun til að færa listræn-
ar hugmyndir milli sviða,“ segir Jón Proppé. „Þeir sem til listamannanna
þekkja eiga auðvelt með að sjá handbragð hvers og eins og hugsun í borð-
búnaði hans en mun þykja nýstárlegt að sjá þessar hugmyndir útfærðar á
diska, bolla og skálar sem eru frekar ólistrænir hlutir - og þó!“
Að sögn Jóns er Elínrós eins konar guðmóðir sýningarinnar en hún hef-
ur, reynslu sinnar vegna, betri tök á viðfangsefninu en hinir listamennirnir.
Segir Jón að fyrir vikið hafi legið beint við að hún tæki félaga sína í læri.
Elínrós gerir reyndar ekki mikið úr kennslunni enda samanstandi hópur-
inn af vönum listamönnum. Þó hafi hún getað „varað þá við ýmsum tækni-
legum atriðum". Segir hún að hópurinn sé feikilega áhugasamur - og ftjór.
„Hugmyndir þeirra eru mjög ferskar en postulínsmálun hefur til þessa að
mestu leyti gengið út á að kópera myndir. Innlegg þessa hugmyndaríka
fólks er því skemmtilegt og vonandi á það eftir að halda áfram á þessari
braut. Postulínið hefur að vísu aldrei verið jafn hátt skrifað og málverkið,
fyrst og fremst vegna þess að það er nytjahlutur, en nú til dags er listin
hins vegar í ríkari mæli komin inn á borð til okkar.“
Yrkisefni Elínrósar á sýningunni er rósin - „drottning blómanna", svo
sem hún kemst að orði, en verkið mun vera óður til ástarinnar, bæði í form-
um og lit. Hefur listakonan lagt umtalsverða vinnu í verkið enda segir hún
postulínsmálarann þurfa að búa yfir mikilli þjálfun til að mála rósina - til að
ná þrívíddinni, ilminum.
Vignir Jóhannsson „ættleiðir" hluta af erfðagóssi Dana á íslandi, máva-
stellið, „innsta helgidóm hins íslenska millistéttarheimilis“, að því er Jón
Proppé heldur fram. „Það má ef til vill líta á þetta sem ádeilu á áframhald-
andi einokun Dana á íslandi eftir að sjálfstæðisbaráttunni lauk en Danir
töldu okkur á sínum tíma trú um að mávastellið væri hveiju heimili nauðsyn-
legt,“ segir Vignir. „Annars er þetta meira til gamans gert.“
Steingrímur Eyfjörð „skoðar" hugmyndaheim heilagrar Teresu frá Lisieux
á sýningunni en hún á hundrað ára dánarafmæli á þessu ári. Kveðst listamað-
urinn hafa vilja fjalla um eitthvað tengt trú í verki sínu og heilög Teresa
hafi verið tilvalin, meðal annars þar sem hún hafi lagt áherslu á einfaldleik-
ann, það bamslega, í ritum sínum - nokkuð sem sé honum að skapi.
HULDA Hákon: Án titils.
GUÐJÓN Bjarnason: Ántitils.
20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 19. APRÍL1997