Lesbók Morgunblaðsins - 29.11.1997, Blaðsíða 20

Lesbók Morgunblaðsins - 29.11.1997, Blaðsíða 20
SVEINBJÖRNS SVEINBJÖRNSSONAR TÓNSKÁLDS MINNST Á TÓNLEIKUM í LISTASAFNI KÓPAVOGS „SKAMMARLEGA LÍTIÐ FLUTTUR HÉR Á LANDI" TÓNLEIKAR í tónleikaröðinni Við slaghörpuna verða haldnir í Listasafni Kópavogs mánudag- inn 1. desember kl. 20.30. Verða þeir helgaðir minningu Svein- björns Sveinbjömssonar en í ár er hálf önnur öld liðin frá fæð- ingu tónskáldsins og sjötíu ár frá andláti þess. Eftir Svein- björn liggur fjöldi tónverka, þar á meðal þjóðsöngur íslands. A tónleikunum munu Signý Sæmundsdóttir og Bergþór Pálsson syngja lög eftir Svein- björn við undirleik Jónasar Ingi- mundarsonai' og Jón Þórarins- son tónskáld minnast hans með nokkrum orðum en hann skráði ævisögu Sveinbjörns sem út kom árið 1969. Að sögn Jóns mun erindi hans að mestu fjalla um ein- söngslög Sveinbjöms enda sé um þess háttar tónleika að ræða. „Það verður vakin athygli á því að Sveinbjöm var að minnsta kosti þrjátíu árum á undan öðr- um Islendingum í sönglaga- smíði. Stundaði hann þá iðju í Skotlandi á ámnum frá um 1870 til aldamóta án þess að það vekti teljandi athygli hér á landi enda mest allt lög við enska texta. Urðu þau mörg hver mjög vin- sæl og voru gefin út hvað eftir annað, bæði í Edinborg og Lundúnum." Jón segir athyglisvert að þeg- ar fyrsta sönglagið leit dagsins Jón Þórarinsson ljós á íslandi hafði Sveinbjörn gefið út á þriðja tug slíkra laga í Bretlandi, sem voru aukinheldur mun betur unnin en það fyrsta sem birtist á prenti hér. Jón segir að Sveinbjörn hafi haft lítið samband við Island á þessu árabili. Hann hafi að vísu samið þjóðsönginn árið 1874 að áeggjan Matthíasar Jochums- sonar, sem var gestur hans haustið áður, og orti meira að segja íyrsta erindi þjóðsöngsins í húsi Sveinbjöms í Edinborg. ,jVð öðm leyti var samband hans við Island afskaplega lítið.“ Um aldamót varð breyting þar á, eða í kjölfar heimsóknar Valtýs Guðmundssonar, sem valtýskan var kennd við, til Sveinbjörns í Edinborg árið 1899. „Þegar Valtýr kom heim birti hann grein um Sveinbjörn í riti sínu, Eimreiðinni, og skrá yfir verldn sem hann hafði gefið út, þar á meðal 24 sönglög. Við það jókst áhugi Islendinga á Sveinbirni og í tengslum við konungskomuna 1907 fékk Hannes Hafstein ráðherra hann til að semja kantötu til þess að fagna kónginum. Af því tilefni kom Sveinbjörn hingað heim í heimsókn og í framhaldi af því þýddi Þorsteinn Gíslason, rit- stjóri og textahöfundur kantöt- unnar, nokkra af þessum ensku sönglagatextum Sveinbjörns. Skömmu síðar vora svo haldnir Morgunblaðið/Golli JÓNAS Ingimundarson, Bergþór Pálsson og Signý Sæmundsdóttir munu flytja sönglög Sveinbjörns í Listasafni Kópavogs. tónleikar Sveinbirni til heiðurs í Reykjavík þar sem þessi lög vora sungin. Þannig komust þau fyrst á framfæri hér heima.“ Að áliti Jóns hafa sönglög Sveinbjörns ver- ið skammarlega lítið flutt hér á landi í gegn- um tíðina, því enn sem fyrr standi þau fyrir sínu. Telur hann ensku textana eiga þar aug- ljósan hlut að máli. „Engu að síður leit Svein- björn alla tíð á sig sem íslenskt tónskáld og lögin hans eru alveg eins íslensk og margt það sem gert var hér heima á þessum tíma. Hann samdi lög sín í evrópskum-alþjóðlegum stíl, sem er auðvitað ekki séríslenskur, en það var ekki hjá öðrum heldur." Önnur skýring sem Jón nefnir er að lög Sveinbjörns séu ekki aðgengileg á prenti. „Á sínum tíma gaf Menningarsjóður út nokkur laga hans á prenti en þau hafa einhverra hluta vegna ekki náð verulegri útbreiðslu enda kannski ekki þau lög sem best eru fallin til kynningar. Það vantar einfaldlega úrval af einsöngslögum Sveinbjörns Sveinbjörnssonar á prenti." Margra grasa kennir á efnisskrá tónleik- anna í Kópavogi. Þar verða til að mynda flutt sum fyrstu lögin sem Sveinbjörn birti á prenti og líka einhver af þeim síðustu, svo sem Sprettur, sem sainið er á árunum 1922-23, þegar tónskáldið var búsett hér heima. Ný aðföng á Kjarvals- stöðum SYNING á nýjum aðföngum Listasafns Reykjavíkur verður opnuð á Kjarvalsstöð- um í dag. Verður sýningin í vestursal og miðrými. Að sögn Eiríks Þorlákssonar, forstöðu- manns Listasafns Reykjavíkur, verða aðal- Iega á sýningunni verk sem komið hafa í eigu safnsins á þessu ári en það mun vera stefna þess að gefa borgarbúum reglulega tækifæri til að líta þau verk sem safnið eignast og fylgjast þannig með listaverka- eign borgarinnar og hræringum í íslenskri myndlist. Stór hópur listamanna, inn- lendra og erlendra, á verk á sýningunni, svo sem Louisa Matthíasdóttir, Hörður Ágústsson, Hrafnkell Sigurðsson, Svava Björnsdóttir, Guðmunda Andrésdóttir og Kristinn E. Hrafnsson. „í tengslum við sýninguna ætlum við að brydda upp á þeirri nýjung í starfi safns- ins að bjóða upp á stutta kynningu eða leiðsögn listamanna, sem eiga verk á sýn- ingunni, alla virka daga kl. 12.30 frá 1. til 12. desember. Leiðsögnin varir í tíu mín- útur en íjallað verður um eitt verk í senn,“ segir Eiríkur. „í stað þess að lesa lærðar ritgerðir eða hlýða á fræðilegar útlistanir hjá þriðja aðila um hvað listamennimir em að fást við í sínum verkum gefst fólki sem sagt tækifæri til að hlusta á lista- mennina sjálfa.“ Sigurður Árni Sigurðsson ríður á vaðið á mánudag en sfðan koma þau eitt af öðm, Erla Þórarinsdóttir, Bjami H. Þórarins- son, Jóhann Torfason og Jónína Guðna- dóttir í næstu viku og síðan Jóhann, Jónfna, Erla, Bjarni og Kristinn E. Hrafns- son í vikunni 8.-12. desember. Öll munu þau, að Sigurði Árna undanskildum, taka þátt í almennri leiðsögn um sýningar safnsins sunnudaginn 14. desember kl. 16. Sýningin á verkum úr Kjarvalssafni mun standa áfram í desember í austursal Kjarvalsstaða. Eru verkin, sem em frá ýmsum tímum, valin með tilliti til við- fangsefna. A sýningarvegg byggingarlistardeildar í austurforsal verða í desember sýndar húsateikningar sem deildin hefur fengið til varðveislu á þessu ári, annars vegar íbúðarhúsateikningar frá fyrstu áratugum aldarinnar og hins vegar hluti af loka- verkefni Hannesar Kr. Davíðssonar frá arkitektadeild listaakademíunnar í Kaup- mannahöfn. Sýningunum lýkur 21. desember. STARFSMENN Kjarvalsstaða hengja upp verk á sýningunni Ný aðföng. Morgunblaðið/Þorkell 20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 29. NÓVEMBER 1997

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.