Lesbók Morgunblaðsins - 29.11.1997, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 29.11.1997, Blaðsíða 2
/ Sigríður Aóalsteinsdóttir og Bjarni Thor Kristinsson í Islensku óperunni FARIÐ UM VÍÐAN VÖLL STYRKTARFÉLAG íslensku óperunnar gengst fyrir tónleikum í íslensku óperunni á morgun, sunnudag, kl. 17. Fram koma Bjarni Thor Kristinsson bassi, einn af aðal- söngvurum Volksoper í Vínarborg, og Sig- ríður Aðalsteinsdóttir, messósópran, sem er í þann mund að ljúka námi frá óperudeild Tónlistarháskólans í sömu borg. Ungveijinn Tamas Koncz og Snorri Sigfús Birgisson leika með á píanó. Tónleikarnir hefjast á frumflutningi nokk- urra þjóðlaga í útsetningum Snorra Sigfús- ar. Eru þau samin að beiðni Gunnars B. Valdimarssonar, eiginmanns Sigríðar, sem færði henni þau í afmælisgjöf fyrr á þessu ári. „Ég hlakka virkilega til að frumflytja þessi lög, ekki síst þar sem þau voru samin sérstaklega fyrir mig,“ segir Sigríður en Snorri mun sjálfur annast undirleik á píanó. Að öðru leyti er meiningin að „fara um víðan völl“ á tónleikunum, svo sem söngkon- an tekur til orða. Þegar þjóðlögunum slepp- ir taka við íslensk sönglög en þá koma þeir Bjarni Thor og Koncz píanóleikari til liðs við hana. „Þetta er eins þjóðlegt og getur orðið,“ segir Sigríður og Bjarni bætir við að nauðsynlegt sé að flytja íslenska tónlist á tónleikum sem þessum. Aukinheldur er á efnisskrá tónleikanna þýsk ljóðatónlist, meðal annars eftir Schu- bert, og aríur og dúettar úr óperum og óper- ettum eftir Strauss, Offenbach, Mozart, Rossini, Saint-Saens og Wagner. Þetta eru fyrstu tónleikamir sem Bjarni og Sigríður halda í sameiningu en síðastlið- ið sumar tóku þau þátt í flutningi á Töfra- flautu Mozarts á hátíð sem haldin var í minningu tónskáldsins í Vínarborg. Þá voru þau svo að segja samferða í gegnum Söng- skólann í Reykjavík og Tónlistarháskólann í Vínarborg, auk þess að syngja saman í Morgunblaðið/Golli SIGRÍÐUR Aðalsteinsdóttir, Tamas Koncz og Bjarni Thor Kristinsson leggja línurnar fyrir tónleikana. Kór íslensku óperunnar. Þau eru því sannar- lega ekki að hittast í fyrsta skipti. Söngvaramir segja að efnisskráin hafi ekki orðið til af sjálfri sér enda sé lítið til af samsöngslögum fyrir raddir þeirra, bassa og messóssópran. „Við urðum meira að segja að svindla svolítið,“ segir Bjarni. „Ég syng baríton í dúett úr Rakaranum í Sevilla!" Aðrir eins glæpir hafa nú verið framdir, hugsar blaðamaður með sér. Bjarni og Sigríður láta vel af Vínarborg fyrir söngvara og tónlistarfólk, þó það nú væri „þetta er einu sinni tónlistarhöfuðborg Evrópu". „Við höfum fengið ákaflega gott uppeldi í Tónlistarháskólanum sem er í mjög háum gæðaflokki,“ segir Bjarni og bætir við að fimm íslendingar leggi um þessar mundir stund á söng- og óperunám við skól- ann. „Það er mjög gott en hafa ber í huga að hlutfallslega margir íslendingar hafa söng að atvinnu." Tamas Koncz er kennari við óperudeild skólans, auk þess sem hann starfar sem píanóleikari og hljómsveitarstjóri. Stjórnaði Koncz meðal annars Sinfóníuhljómsveit Is- lands á tónleikum í Reykjavík árið 1988. Morgunblaóió/Árni Sæberg DAÐI Guðbjörnsson listmálari undirbýr sýningu sína í Hallgrímskirkju. Hamrahlíðarkórinn á rökkurstund HAMRAHLÍÐARKÓRINN undir stjóm Þor- gerðar Ingólfsdóttur flytur tónlist frá 16. og 17. öld í Listasafni íslands í dag, laugar- daginn 29. nóvember, kl. 18. í einu ljóðanna segir: „í rökkurskímunni slær þú enn hjarta," og öll íjalla ljóðin um ástina, gleði hennar og unað, en líka sársauka, söknuð og kvöl. Fluttir verða madrigalar og dansar frá endurreisnartímanum, m.a. eftir Monte- verdi, Morley, Bennet, Thomkins og Orlando di Lasso, og eru þau öll flutt á frummálinu, ýmist ensku, ítölsku, þýsku og latínu. Einn kórfélaganna, Ólafur Éinar Rúnarsson barí- ton, flytur lög eftir Dowland og Rosseter við undirleik Snorra Arnar Snorrasonar lútu- leikara. „Þetta er allt veraldlegur skáldskap- ur og tónskáld endurreisnartímans leituðu gjarnan í það sem manninum er hvað hug- stæðast, ástina með trega sínum og sorg annars vegar og kæti og gleði hins vegar," segir Þorgerður. Sum verkanna hafa verið sungin af félögum í kórnum áður, sum vel þekkt, en önnur verk hafa aldrei verið flutt hér á landi áður. Nú eru prófannir að hefj- ast hjá félögum í kórnum en Þorgerður seg- ir að Hamrahlíðarkórinn hafi jafnan ærinn starfa í kringum jól og áramót. Hamrahlíðar- kórarnir fari m.a. fyrir Friðargöngu á Þor- láksmessu, syngi á líknarstofnunum og við jólamessu í Hallgrímskirkju á aðfangadags- kvöld. Daði sýnir í Hallgríms- kirkju SÝNING á verkum Daða Guðbjörnssonar listmálara verður opnuð í Hallgríms- kirkju á morgun, fyrsta sunnudag í að- ventu, kl. 12.30. Markar sýningin nýtt starfsár Listvinafélags Hallgrímskirkju, hið sextánda í röðinni. Sú hefð hefur skapast að bjóða lista- mönnum að sýna í anddyri Hallgríms- kirkju á stærstu hátíðum, það er jólum, páskum og hvítasunnu, og hefur Daði málað nokkrar myndir sérstaklega fyrir tilefnið, þar á meðal málverk af Maríu guðsmóður. Nefnist það „Madonna Is- landica". Um það verk segir Daði: „Sýningin á aðventu í Hallgrímskirkju gefur manni óvænt og kærkomið tækifæri til að flétta eigin myndheim saman við arfleifð kyn- slóðanna. En hvernig verður trúarleg mynd efahyggjumannsins, sem oftast er bundinn munúðarfullum myndheim, sem útlistun á vestrænu ofgnægtarsamfélagi? Það eina sem auðmjúkur þjónn listarinn- ar getur gert er að reyna að sjá ljósið sem lýst hefur forfeðrunum, og færa það samtímanum." Meðal annarra dagskrárliða starfsárs Listvinafélagsins á næstunni má nefna tónleika Kristjáns Jóhannssonar og Mót- ettukórs Hallgrímskirkju, 13. desember, Iestur Arnars Jónssonar á Lúkasarguð- spjalli, 21. desember, og hátíðartónleika við áramót á gamlársdag. 18. janúar mun Elsa E. Guðjónsson flytja fyrirlestur um hannyrðir á Hólastað á 17. öld og viku síðar kemur Schola cantorum fram á tónleikum. 8. febrúar verður opnuð sýn- ing á verkum Sveins Björnssonar listmál- ara og 15. febrúar verður efnt til dag- skrár í tengslum við sýninguna, þar sem Matthías Johannessen mun lesa ljóð og Erlendur Sveinsson sýna kvikmynd. Hallgrímskirkja er opin almenningi alla daga vikunnar frá kl. 10-18. MENNING/ LISTIR í NÆSTU VIKU MYNDLIST Listasafn Islands í öllum sölum safnsins er sýning á verkum Gunnlaugs Schevings og sýnd sjónvarps- mynd daglega um Scheving. Leiðsögn um safnið í dag kl. 15. Listasafn ASÍ, Freyjugötu 41 - Ásmundarsalur Ásmundarsalur: Hafdís Ólafsdóttir sýnir tré- ristur. Gryfja: Hulda B. Ágústsdóttir sýnir skartgripi. Arinstofa: Jóhannes S. Kjarval. Yerk úr eigu safnsins. Sýningar til 7. des. Ásmundarsafn - Sigtúni Yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveins- sonar. Kjarvalsstaðir - Flókagötu Jóhannes Kjarval í austursal. Sýning á að- föngum safnsins árið 1997 í vestursal og miðrými. Á sýningarvegg í austursal eru sýndar húsateikningar. Safn Ásgríms Jónssonar - Bergstaða- stræti 74 Kyrralífs- og blómamyndir ásamt myndum úr Reykjavík og nágrenni. Til febrúarloka. Listasafn Siguijóns Ólafssonar Sýning vetrarins, Svífandi form. Verk Sigur- jóns ðlafsson. Landsbókasafn íslands: Sýning á handrit- um, bókum og munum úr Prestaskólanum. Til 29. nóv. Stöðlakot, Bókhlöðustíg 6 Gunnar Örn sýnir til 30. nóv. Dada, Art Gallery, Kirkjutorgi 4 Sölusýning á nútímalist. Einnig antikmunir frá Vestur-Afríku. Til 24. des. Norræna húsið - við Hringbraut í ljósaskiptunum - Orðið í norðri til 1. des. Skartgripasýning til 31. des. Tryggvi Ólafs- son til 30. nóv. Hafnarborg Brian Pilkington sýnir ti) 23. des. Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði v/Suðurgötu Handritasýning til 19. des. Nýlistasafnið - Vatnsstíg 3b Guðjón Ketilsson. Svartisalur: Gunnar Árna- son. Bjarti salur og Súm salur: Kristín Blön- dal. Setustofa: Gestur er Rúna Gfsladóttir. Allar sýn. til 14. des. Gallerí Fold Haraldur (Harry) Bilson. Kristberg Ó. Pét- ursson. Til 7. desember. Gallerí Horn Baldur Helgason og Birgitta Jónsd. Til 3. des. Galleríkeðjan Sýnirými Sýnibox: Birgir Andrésson. Gallerí Barmur: Jóhann L. Torfason. Gallerí Hlust: Arnfmnur Róbert Einarsson. Gallerí 202m: Gabríela sýnirtil 14. desember. Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8 Toon Michiels sýnir til 14. des. Gallerí Listakot Bryndís Björgvinsdóttir. til 30. nóv. Listasafn Kópavogs - Gerðarsafn Guðný Magnúsdóttir og sýning á nýjum að- föngum til 21. des. Listhús 39 Strandgötu 39, Hafnarfirði Samsýning 14 listamanna. Gerðuberg Valdimar Bjarnfreðsson. Til 18. janúar. Sjóminjasafn íslands við Vesturgötu í Hf. Almenn sýning og sýning á olíumyndum Laugardagur 29. nóvember Digraneskirkja: Útgáfutónleikar Gunnars Guðbjömssonar og Jónasar Ingimundarson- ar, kl. 17. Listasafn íslands: Hamrahlíðarkórinn. Ólaf- ur Rúnarsson, baritón og Snorri Örn Snorra- son lútuleikari, kl. 18. Fella- og Hólakirkja: Karlakórinn Fóstbræð- ur, kl. 17. Sunnudagur 30. nóvember Hallgrímskirkja: Kvennakór Rvk, kl. 17. íslenska óperan: Styrktarfélag íslensku óp- erunnar, kl. 17. Mánudagur 1. desember Hallgrímskirkja: Kvennakór Rvk, k). 20.30. Þriðjudagur 2. desember Digraneskirkja: Blásarakvintett Reykjavík- ur, kl. 20.30.____________________________ LEIKLIST Þjóðleikhúsið Grandavegur 7, lau. 29., sun. 30. nóv., fim. 4., fös. 5. des. Krabbasvalirnar, Iau. 29. nóv. Fös. 5. des. Borgarleikhúsið Galdrakarlinn í Oz, lau. 29., sun. 30. nóv. Hár og hitt, lau. 29. nóv. Fös. 5. des. Njála, sun. 30. nóv. Fös. 5. des. Ástarsaga, lau. 29. nóv. Hið ljúfa líf, lau. 29. nóv. Loftkastalinn Áfram Latibær, lau. 29., sun. 30. nóv. Listaverkið, fös. 5. des. Á sama tíma að ári, lau. 29. nóv. Kaffileikhúsið Revían í den, sun. 30. nóv. Fös. 5. des. Leikfélag Akureyrar Hart í bak, lau. 29. nóv. Möguleikhúsið, v. Hlemm Jólin hennar ömmu, sun 30. nóv. Leikbrúðuland, Fríkirkjuvegi 11 Jólasveinar einn og átta, sun. 30. nóv. kl. 15. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 29. NÓVEMBER 1997

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.