Lesbók Morgunblaðsins - 28.11.1998, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 28.11.1998, Blaðsíða 9
/ NÝLEGT hverfi í Peking. Svo vestrænt eða alþjóðlegt er svipmót borgarinnar á köflum að fyr- ir utan einstaka hús með hefðbundnum pagóðuþökum mætti eins ímynda sér að þetta væri mynd frá Chicago. GLAÐIR og reifir með íslensku Ijóðabókina. Frá vinstri: Dong Jiping, Sigurður A. Magnússon og útgefandinn, Li Baójun. RAGNAR Baldursson, starfsmaður í sendiráði íslands í Peking. urmetið 1.125 glæpamál sem hlotið höfðu ófull- nægjandi meðferð. Þessar leiðréttingar má rekja til umkvartana sem fram komu á níunda alþýðuþinginu og stjórnmálaráðgjafarþinginu í mars, en þá tóku nýir menn við stjórnartaum- um. Voru bæði stjórnmálamenn, embættis- menn og almennir borgarar hvatth- til að bera fram kvartanir og gagnrýni á dómstóla og sak- sóknara. Sömuleiðis hafa verið opnaðar sér- stakar símalínur þarsem almennir borgarar geta komið á framfæri kvörtunum um ólöglegt athæfi yfirboðara og embættismanna. Gömul kunningjakpna mín, Mary Robinson fyrrverandi forseti Irlands, sem nú gegnir embætti umboðsmanns mannréttinda hjá Sa- meinuðu þjóðunum, kom til Peking um miðjan september og hitti að máli Jiang Zemin for- seta, sem fullvissaði hana um, að umbætur í mannréttindamálum vaeru ofarlega á blaði þegar búið væri að tryggja öllum þegnum sam- félagsins fæði og klæði. Kínverjar hafa þegar undirritað 17 mann- réttindasáttmála. I október í fyrra undirrituðu þeir Alþjóðasáttmálann um efnahagsleg, fé- lagsleg og menningarleg réttindi, og ráðgert er að þeir undirriti Alþjóðasáttmálann um borg- araleg og pólitísk réttindi í þessum mánuði. Mai-y Robinson lét í ljós ánægju yfir þeim um- bótum á réttarkerfinu sem gerðar hafa verið á undanförnum árum og kvað heimsóknina til Peking hafa verið gagnlega og uppörvandi. Hitt á eftir að koma á daginn hvort eitthvert lát verður á dauðadómum. Kínverjar eiga nú heimsmet í líflátsdómum með um 4.000 árleg- um aftökum. Hefur Amnesty International harðlega fordæmt það frumstæða og ómannúð- lega háttalag. Hugmyndir Kínverja um hefðbundið réttar- far eru allt aðrar en hjá okkur, sagði Ragnai-. Þessvegna hefur þeim reynst svo erfitt að koma á vestrænu réttarkerfi. Það hefur ekki mikið með kommúnisma að gera, heldur tengist hefð- inni sem verið hefur í landinu öldum saman. Kínverjar leggja mikið uppúr því að leysa mál sín sjálfir, ef upp kemur ágreiningur. Þegar menn fóru með mál til dómara var báðum aðil- um refsað, afþví þeir gátu ekki leyst málið sín á milli. Þetta viðhorf var algengt í gamla Kína og á dögum Maós, en nú hillir semsagt undir nýja skipan mála og nútímalegra réttarfar. „KASTAÐ UR HJÓNA BANDI SAKLAUSRI..." Um skilnað prestshjónanna á Grenjaðarstað 1855 EFTIR STEINGERÐI STEINARSDÓTTUR AÐ telst tæpast til tíðinda í dag þótt fólk skilji en annað var uppi á teningnum fyrir rúmri öld, eða nánar tiltekið árið 1835, en það ár er fært í kirkjubók Grenjaðarstaðar við nafn Guðnýjar Jónsdóttur undir athuga- semdum við brottflutta úr sókninni: „kastað úr hjónabandi saklausri af manni hennar“. Þetta er undarleg færsla í kirkjubók og tæpast hlutlaus. Þótt kirkjubækur þegi oft um atburði sem sagnfræðingum þykja mikilsverðir segir þessi færsla okkur að skilnaðurinn er að frumkvæði eiginmannsins og konunni hann á móti skapi. Að baki liggur greini- lega einhver merkileg saga. Guðný var dóttir séra Jóns Jónssonar frá Stærra-Arskógi. Æskuheimili hennar var talið einstakt menningarheimili og þau systkinin gefin fyrir fagrar menntir. Guðný var sögð falleg, fíngerð og einstak- lega vel gefin. Hún hafði yndi af tónlist og söng og var skáldmælt. Auk þess var hún örlát og blíðlynd og kom sér að jafnaði ákaflega vel hvar sem var vegna þeirra eðliskosta. Sveinn Níelsson var talin gáfaður og glæsilegur. Hann leitaði til Jóns föður Guðnýjar vegna heilsubrests, en hann þótti slyngur læknir, og réð sig í vist að Stærra-Arskógi til að leita sér lækninga. Brátt tók að bera á því að hann og Guðný væru farin að draga sig saman og eftir að Sveinn var vígður djákni til tengdafóður síns og var síðasti maður sem _ hlaut djáknavígslu í lútherskum sið á Islandi þar til á tuttugustu öld. Þegar Sveini var veittur Grenjaðarstaður giftust þau. A Grenjaðarstað dvöldu ungu hjónin aðeins ár en þá fluttu þau að Klömbrum og var Guðný að jafnaði kennd við þann bæ. Með ungu hjónunum þótti jafnræði og sennilega hafa flestir talið að björt fram- tíð biði þeirra. Séra Sveinn var atorku- maður og búmaður góður. Hann var góð- ur smiður og hafði lært silfursmíði hjá Þorgrími gullsmið á Bessastöðum, fóður Gríms Thomsen. Sveinn var góður kenn- ari og oft beðinn að búa nemendur undir skóla. Þau hjónin komust því vel af efna- lega þrátt fyrir að það orð lægi á að séra Sveini að honum þætti rausn húsmóður- innar og hjálpfýsi fullmikil á stundum. Ekki vai’ sambúðin þó með öllu áfalla- laus því á fyrstu hjúskaparárunum misstu þau hjónin tvö börn sem þau treg- uðu mjög, eins og saknaðarljóð sem þau ortu bera vitni um. Stundum færir sorgin fólk nær hvort öðru en í sumum tilfellum sundrar hún. Ómögulegt er að segja hvort sú hafi orðið raunin með þau Guð- nýju og Svein en síðar eignuðust þau tvö börn saman sem lifðu og náðu fullorðins- aldri. Sjaldan lýgur almannarómur segir máltækið og það var haft á orði um séra Svein að hann liti sjálfan sig ósmáum augum og þyldi það illa þætti honum minna úr sér gert en efni stæðu til. Guð- nýju var á annan veg farið. Hún gerði gjarnan gi-ín að sjálfri sér og þótti alþýð- leg og blátt áfram. Þrátt fyrir ólíka skap- gerð varð þess þó aldrei vart að þeim kæmi illa saman eða að erfiðleikar og brestir væru í hjónabandinu. Sennilega hafa menn uppgötvað þennan mismun eftir á og tínt til allar þær ástæður sem þeim gat hugkvæmst til að skýra skilnað sem þótti óskiljanlegur. Guðný var svo vinsæl af almenningi og öllum sem kynntust henni að menn töldu gjarnan að stórlæti séi’a Sveins hafi mestu ráðið um skilnaðinn og að hann hafi átt bágt með að þola hve mjög kona hans bar af honum að mannkostum og gáfum. Þegar Guðný dó svo ári eftir skilnaðinn var það einróma álit allra að sorg hennar vegna hans hafi dregið hana til dauða. Þannig er skráð í kirkjubók Grenjaðarstaðar í dánarskránni að hún hafi látist „... af sjúkdómi orsökuðum af skilnaðargremjunni". Dómar almennings lögðust þungt á mann hennar. Bjarni amtmaður Thorarensen kallar hann þræl í bréfi til vina sinna og Tómas Sæmunds- son segir í grein í 3. árgangi Fjölnis: „Einnar konu er skylt að minnast meðal þeirra, er önduðust þetta ár, því þó lítt hafi hennar gætt verið - eins og vandi er um konur - voru samt kjör hennar og gáfur íhugunarverðari en almennt er á Islandi...“ Síðar segir hann: „Hún þótti álitlega gift, er djákninn á Grenjaðarstað, gáfumaður og atgervis, hafði fengið henn- ar, og aungvan hafði grunað, að hann mundi sjá sig það um hönd, eftir níu ára samvistir, að hann vildi breyta þessu, eins og hann gerði. Fór hann þá vestur í Húnavatnssýslu að brauði sem búið var að veita honum; tók vígslu; og er nú gift- ur aftur! en hún fór með mági sínum og systur norður á Raufarhöfn og má vera, að þetta hafi hana til bana dregið." Þetta sýnir betur en flest annað hverj- um augum séra Sveinn var almennt litinn en vitað er að Guðný tók skilnaðinn ákaf- lega nærri sér. Hún orti um sársauka sinn ákaflega fallegt kvæði sem hún sendi í bréfi til Kristrúnar systur sinnar á Grenjaðarstað. Kvæðið var birt í Fjölni og varð landfleygt á örskömmum tíma. Upphafserindi kvæðisins er svohljóðandi: Endurminningin er svo glögg um allt það, sem í Klömbrum skeði, fyrir það augna fellur dögg og felur stundum alla gleði. Þú getur nærri, gæskan mín, Guðný hugsar um óhöpp sín. Síðar í sama kvæði segir hún: Pað er ekki svo þægilegt, þegai' vinanna bregzt ágæti, hjartanu svíður, heldur frekt, hamingjan sýnist rýma sætin inndælar vonir fjúka frá, fellur skemmtunin öll í dá. Hún stynur yfir hve hugprýðin sé smá og hversu erfitt sér reynist að horfa fram á daginn á hverjum morgni. Hún segist þó hjara á daginn og hljóta hvíld í svefn- inum á kvöldin. Guðný orti einnig annað kvæði um skilnaðinn sem heitir Sit ég og syrgi. Hluti af upphafserindi þess hljóðar svo: Sit ég og syrgi mér horfmn sártþreyðavininn, er lifir í laufgræna dalnum þótt látin sé ástin. Séra Sveinn giftist í annað sinn Guð- rúnu Jónsdóttur sama ár og Guðný dó eins og kemur fram í grein Tómasar. Það hjónaband var farsælt og áttu þau nokk- ur börn. Seint verður hægt að komast að niðurstöðu um hvað olli í raun og veru skilnaði þeh’ra Guðnýjar og Sveins og víst er að konan, sem sagði að það væri svo margt milli hjóna sem enginn sæi, vissi jafnlangt nefi sínu. En hitt er vitað að Sveinn talaði ævinlega vel og hlýlega um fyrri konu sína. Höfundur er blaðamaður í lausamennsku. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 28. NÓVEMBER 1998 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.