Lesbók Morgunblaðsins - 28.11.1998, Page 9
/
NÝLEGT hverfi í Peking. Svo vestrænt eða alþjóðlegt er svipmót borgarinnar á köflum að fyr-
ir utan einstaka hús með hefðbundnum pagóðuþökum mætti eins ímynda sér að þetta væri
mynd frá Chicago.
GLAÐIR og reifir með íslensku Ijóðabókina. Frá vinstri: Dong Jiping, Sigurður A. Magnússon
og útgefandinn, Li Baójun.
RAGNAR Baldursson, starfsmaður í sendiráði íslands í Peking.
urmetið 1.125 glæpamál sem hlotið höfðu ófull-
nægjandi meðferð. Þessar leiðréttingar má
rekja til umkvartana sem fram komu á níunda
alþýðuþinginu og stjórnmálaráðgjafarþinginu í
mars, en þá tóku nýir menn við stjórnartaum-
um. Voru bæði stjórnmálamenn, embættis-
menn og almennir borgarar hvatth- til að bera
fram kvartanir og gagnrýni á dómstóla og sak-
sóknara. Sömuleiðis hafa verið opnaðar sér-
stakar símalínur þarsem almennir borgarar
geta komið á framfæri kvörtunum um ólöglegt
athæfi yfirboðara og embættismanna.
Gömul kunningjakpna mín, Mary Robinson
fyrrverandi forseti Irlands, sem nú gegnir
embætti umboðsmanns mannréttinda hjá Sa-
meinuðu þjóðunum, kom til Peking um miðjan
september og hitti að máli Jiang Zemin for-
seta, sem fullvissaði hana um, að umbætur í
mannréttindamálum vaeru ofarlega á blaði
þegar búið væri að tryggja öllum þegnum sam-
félagsins fæði og klæði.
Kínverjar hafa þegar undirritað 17 mann-
réttindasáttmála. I október í fyrra undirrituðu
þeir Alþjóðasáttmálann um efnahagsleg, fé-
lagsleg og menningarleg réttindi, og ráðgert er
að þeir undirriti Alþjóðasáttmálann um borg-
araleg og pólitísk réttindi í þessum mánuði.
Mai-y Robinson lét í ljós ánægju yfir þeim um-
bótum á réttarkerfinu sem gerðar hafa verið á
undanförnum árum og kvað heimsóknina til
Peking hafa verið gagnlega og uppörvandi.
Hitt á eftir að koma á daginn hvort eitthvert
lát verður á dauðadómum. Kínverjar eiga nú
heimsmet í líflátsdómum með um 4.000 árleg-
um aftökum. Hefur Amnesty International
harðlega fordæmt það frumstæða og ómannúð-
lega háttalag.
Hugmyndir Kínverja um hefðbundið réttar-
far eru allt aðrar en hjá okkur, sagði Ragnai-.
Þessvegna hefur þeim reynst svo erfitt að koma
á vestrænu réttarkerfi. Það hefur ekki mikið
með kommúnisma að gera, heldur tengist hefð-
inni sem verið hefur í landinu öldum saman.
Kínverjar leggja mikið uppúr því að leysa mál
sín sjálfir, ef upp kemur ágreiningur. Þegar
menn fóru með mál til dómara var báðum aðil-
um refsað, afþví þeir gátu ekki leyst málið sín á
milli. Þetta viðhorf var algengt í gamla Kína og
á dögum Maós, en nú hillir semsagt undir nýja
skipan mála og nútímalegra réttarfar.
„KASTAÐ UR
HJÓNA BANDI
SAKLAUSRI..."
Um skilnað prestshjónanna á Grenjaðarstað 1855
EFTIR
STEINGERÐI STEINARSDÓTTUR
AÐ telst tæpast til tíðinda í dag
þótt fólk skilji en annað var uppi á
teningnum fyrir rúmri öld, eða
nánar tiltekið árið 1835, en það ár
er fært í kirkjubók Grenjaðarstaðar við
nafn Guðnýjar Jónsdóttur undir athuga-
semdum við brottflutta úr sókninni:
„kastað úr hjónabandi saklausri af manni
hennar“. Þetta er undarleg færsla í
kirkjubók og tæpast hlutlaus. Þótt
kirkjubækur þegi oft um atburði sem
sagnfræðingum þykja mikilsverðir segir
þessi færsla okkur að skilnaðurinn er að
frumkvæði eiginmannsins og konunni
hann á móti skapi. Að baki liggur greini-
lega einhver merkileg saga.
Guðný var dóttir séra Jóns Jónssonar
frá Stærra-Arskógi. Æskuheimili hennar
var talið einstakt menningarheimili og
þau systkinin gefin fyrir fagrar menntir.
Guðný var sögð falleg, fíngerð og einstak-
lega vel gefin. Hún hafði yndi af tónlist og
söng og var skáldmælt. Auk þess var hún
örlát og blíðlynd og kom sér að jafnaði
ákaflega vel hvar sem var vegna þeirra
eðliskosta.
Sveinn Níelsson var talin gáfaður og
glæsilegur. Hann leitaði til Jóns föður
Guðnýjar vegna heilsubrests, en hann
þótti slyngur læknir, og réð sig í vist að
Stærra-Arskógi til að leita sér lækninga.
Brátt tók að bera á því að hann og Guðný
væru farin að draga sig saman og eftir að
Sveinn var vígður djákni til tengdafóður
síns og var síðasti maður sem _ hlaut
djáknavígslu í lútherskum sið á Islandi
þar til á tuttugustu öld. Þegar Sveini var
veittur Grenjaðarstaður giftust þau. A
Grenjaðarstað dvöldu ungu hjónin aðeins
ár en þá fluttu þau að Klömbrum og var
Guðný að jafnaði kennd við þann bæ.
Með ungu hjónunum þótti jafnræði og
sennilega hafa flestir talið að björt fram-
tíð biði þeirra. Séra Sveinn var atorku-
maður og búmaður góður. Hann var góð-
ur smiður og hafði lært silfursmíði hjá
Þorgrími gullsmið á Bessastöðum, fóður
Gríms Thomsen. Sveinn var góður kenn-
ari og oft beðinn að búa nemendur undir
skóla. Þau hjónin komust því vel af efna-
lega þrátt fyrir að það orð lægi á að séra
Sveini að honum þætti rausn húsmóður-
innar og hjálpfýsi fullmikil á stundum.
Ekki vai’ sambúðin þó með öllu áfalla-
laus því á fyrstu hjúskaparárunum
misstu þau hjónin tvö börn sem þau treg-
uðu mjög, eins og saknaðarljóð sem þau
ortu bera vitni um. Stundum færir sorgin
fólk nær hvort öðru en í sumum tilfellum
sundrar hún. Ómögulegt er að segja
hvort sú hafi orðið raunin með þau Guð-
nýju og Svein en síðar eignuðust þau tvö
börn saman sem lifðu og náðu fullorðins-
aldri.
Sjaldan lýgur almannarómur segir
máltækið og það var haft á orði um séra
Svein að hann liti sjálfan sig ósmáum
augum og þyldi það illa þætti honum
minna úr sér gert en efni stæðu til. Guð-
nýju var á annan veg farið. Hún gerði
gjarnan gi-ín að sjálfri sér og þótti alþýð-
leg og blátt áfram. Þrátt fyrir ólíka skap-
gerð varð þess þó aldrei vart að þeim
kæmi illa saman eða að erfiðleikar og
brestir væru í hjónabandinu. Sennilega
hafa menn uppgötvað þennan mismun
eftir á og tínt til allar þær ástæður sem
þeim gat hugkvæmst til að skýra skilnað
sem þótti óskiljanlegur.
Guðný var svo vinsæl af almenningi og
öllum sem kynntust henni að menn töldu
gjarnan að stórlæti séi’a Sveins hafi
mestu ráðið um skilnaðinn og að hann
hafi átt bágt með að þola hve mjög kona
hans bar af honum að mannkostum og
gáfum. Þegar Guðný dó svo ári eftir
skilnaðinn var það einróma álit allra að
sorg hennar vegna hans hafi dregið hana
til dauða. Þannig er skráð í kirkjubók
Grenjaðarstaðar í dánarskránni að hún
hafi látist „... af sjúkdómi orsökuðum af
skilnaðargremjunni". Dómar almennings
lögðust þungt á mann hennar. Bjarni
amtmaður Thorarensen kallar hann þræl
í bréfi til vina sinna og Tómas Sæmunds-
son segir í grein í 3. árgangi Fjölnis:
„Einnar konu er skylt að minnast meðal
þeirra, er önduðust þetta ár, því þó lítt
hafi hennar gætt verið - eins og vandi er
um konur - voru samt kjör hennar og
gáfur íhugunarverðari en almennt er á
Islandi...“ Síðar segir hann: „Hún þótti
álitlega gift, er djákninn á Grenjaðarstað,
gáfumaður og atgervis, hafði fengið henn-
ar, og aungvan hafði grunað, að hann
mundi sjá sig það um hönd, eftir níu ára
samvistir, að hann vildi breyta þessu, eins
og hann gerði. Fór hann þá vestur í
Húnavatnssýslu að brauði sem búið var
að veita honum; tók vígslu; og er nú gift-
ur aftur! en hún fór með mági sínum og
systur norður á Raufarhöfn og má vera,
að þetta hafi hana til bana dregið."
Þetta sýnir betur en flest annað hverj-
um augum séra Sveinn var almennt litinn
en vitað er að Guðný tók skilnaðinn ákaf-
lega nærri sér. Hún orti um sársauka
sinn ákaflega fallegt kvæði sem hún sendi
í bréfi til Kristrúnar systur sinnar á
Grenjaðarstað. Kvæðið var birt í Fjölni
og varð landfleygt á örskömmum tíma.
Upphafserindi kvæðisins er svohljóðandi:
Endurminningin er svo glögg
um allt það, sem í Klömbrum skeði,
fyrir það augna fellur dögg
og felur stundum alla gleði.
Þú getur nærri, gæskan mín,
Guðný hugsar um óhöpp sín.
Síðar í sama kvæði segir hún:
Pað er ekki svo þægilegt,
þegai' vinanna bregzt ágæti,
hjartanu svíður, heldur frekt,
hamingjan sýnist rýma sætin
inndælar vonir fjúka frá,
fellur skemmtunin öll í dá.
Hún stynur yfir hve hugprýðin sé smá
og hversu erfitt sér reynist að horfa fram
á daginn á hverjum morgni. Hún segist
þó hjara á daginn og hljóta hvíld í svefn-
inum á kvöldin. Guðný orti einnig annað
kvæði um skilnaðinn sem heitir Sit ég og
syrgi. Hluti af upphafserindi þess hljóðar
svo:
Sit ég og syrgi mér horfmn
sártþreyðavininn,
er lifir í laufgræna dalnum
þótt látin sé ástin.
Séra Sveinn giftist í annað sinn Guð-
rúnu Jónsdóttur sama ár og Guðný dó
eins og kemur fram í grein Tómasar. Það
hjónaband var farsælt og áttu þau nokk-
ur börn. Seint verður hægt að komast að
niðurstöðu um hvað olli í raun og veru
skilnaði þeh’ra Guðnýjar og Sveins og víst
er að konan, sem sagði að það væri svo
margt milli hjóna sem enginn sæi, vissi
jafnlangt nefi sínu. En hitt er vitað að
Sveinn talaði ævinlega vel og hlýlega um
fyrri konu sína.
Höfundur er blaðamaður í lausamennsku.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 28. NÓVEMBER 1998 9