Lesbók Morgunblaðsins - 28.11.1998, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 28.11.1998, Blaðsíða 16
KARLSHASKOLI I HÁLFA SJÖUNDU ÖLD EFTIR HELGA HARALDSSON ÁTTURNAR í SÖGU TÉKKA Það var menningarfröm- uðurinn Karl keisari IV sem stofnaði fyrsta há- skóla í Evrópu norðan Alpafjalla og austan Rín- arfljóts árið 1348. Við stofnun Karlsháskóla eins og hann hefur verið nefndur, voru fjórar deildir: Frjálsar menntir, lögfræði, læknisfræði og guðfræði. Þar eru nú 16 deildir en Dessi Frægi skóli hefur e cki alltaf siglt sléttan sjó. Atta er örlagatala í sögu tékk- nesku þjóðarinnar. 1618 gerðu tékkneskir aðalsmenn sem að- hylltust mótmælendatrú upp- reisn í Prag. Hún hófst með því Tékkamir köstuðu lands- stjórum hins kaþólska, þýska keisaravalds út um glugga í kastalanum í Prag. Þetta varð upphaf þrjátíu ára stríðsins, sem batt enda á alla sjálfstjóm Tékka eftir ósigur þeirra í orastunni við Hvítafjall (Bíla hora) 1620. Mótmælendatrú sem átti sterk ítök meðal landa Jans Húss varð að þoka fyr- ir kaþólsku; þýska varð allsráðandi á opin- beram vettvangi. Hinir kaþólsku kennimenn gerðu sitt til að þjarma að tékkneskri tungu, sem á blómaskeiði sínu hafði verið milliríkja- mál í Mið-Evrópu. Arið 1848 kom fyrsta Allsherjarþing Slafa saman í Prag. Þá var byltingarástand víða í Evrópu eins og kunnugt er, og fór Prag ekki varhluta af. Harkaleg viðbrögð stjórnvalda urðu til þess að Slafaþingið leystist upp og varð lítið um árangur. Sextíu árum síðar, 1918, öðlaðist Tékkóslóvakía sjálfstæði, sem Hitler batt enda á 1938. Enn liðu tíu ár. 1948 tóku kommúnistar völdin í Tékkóslóvakíu. Kalda stríðið komst í algleyming. Að tveim áratugum liðnum, 1968, kom Pragvorið með fyrirheitum sínum og von- brigðum. Flauelsbyltingin 1989 kom einu ári of seint til að skipa sér í flokk „örlagaáttnanna“. Á því herrans ári 1998 var svo 6. Allsherj- arþing Slafa haldið í Prag - 150 áram eftir hið fyrsta. En jafnframt héldu Tékkar upp á 650 ára afmæli fyrstu merku áttunnar: Stofnunar Karlsháskóla 7. apríl 1348. Karl keisari f jórði Á ofanverðum miðöldum hafði Bæheimur um langan aldur víðtæka sjálfstjórn sem eitt af kjörfurstadæmum þýska keisaraveldisins „Hins heilaga rómverska ríkis“ („sem hvorki var heilagt né rómverskt“). Á stundum ríktu Bæheimskóngar einnig yfir Póllandi og Ung- verjalandi. KASTALINN. Örin bendir á hús merkt B. Þar lentu þeir Slavata og Martinic ofan í mykjuhaug og þrjátíu ára stríðið gat hafist. PRAG þykir með fegurstu borgum Evrópu. Útsýni til Kastalans frá Karlsháskóla. MENNINGARBORG í miðri Evrópu: Prag á 19. öld. Sonur Jóhanns af Lúxembúrg, Karl IV, settist í hásæti keisaradæmisins árið 1346. Hann flutti aðsetur keisaranna til Prag (móðir hans var af tékkneskum ættum) og með honum hófst mikið blómaskeið í sögu Bæheims. Þótt Karl væri keisari hins þýsk- rómverska ríkis, leit hann íyrst og fremst á sig sem tékkneskan konung, og 1356 fékk hann páfalega staðfestingu („gullna búllu“) á því að Bæheimskóngur skyldi vera æðstur kjörfurstanna, sjálfstæði Bæheims var árétt- að og biskupsstóllinn í Prag var gerður að erkibiskupssetri. Auk þess jók Karl Bæheim að löndum, og stendur mikill ljómi af nafni hans í tékkneskri sögu, enda nefndur Pater patriae, faðir föðurlandsins. Tilurð og viðgangur Karlshóskóla Það var engin tilviljun að þessi menning- arfrömuður skyldi stofna fyrsta háskóla í Evrópu „norðan Alpafjalla og austan Rínar- fljóts" í Prag, sem á 16. öld hlaut viðurnefnið Hin gullna (Praga aurea) og ber enn með réttu. Einnig þetta gerðist með blessun páfans, Clemens VI. Höfuðbyggingar Karls- háskóla bera enn þann dag í dag heiti þess- ara höfðingja: Klementinum (bókasafns- byggingin) og Karolinum (aðalbyggingin). Við stofnunina 1348 vora fjórar deildir í háskólanum: „Frjálsar menntir" (þ.e. heim- speki, málmenntir og skyldar greinar), lög- fræði, læknisfræði og guðfræði, og skömmu síðar (1366) lét Karl reisa Karolinum, aðset- ur fyrir hina 12 meistara. Að Karli látnum tók sonur hans Václav IV við ríki hans. Václav þótti minni bógur en faðir hans - hann var t.d. settur af sem kon- ungur Þýskalands árið 1400 - en menningar- áhuga föður síns hafði hann erft sem og at- læti við Tékka. 1409 gaf hann út Kútnafjalls- úrskurðinn svokallaða, en samkvæmt honum fengu Tékkar óskorað yfirráð yfir háskólan- um, og siðbótarmaðurinn Jan Hus (Jóhann Húss) varð rektor. Þetta líkaði ýmsum miður og höfðu sig á brott. Meðal annars voru það fræðimenn frá Prag sem stofnuðu háskólann í Leipzig. Jan Hus var ekki aðeins þekktur sem um- bótasinni í trúmálum. Hann var einnig frá- bær málfræðingur, og sú réttritun sem hann samdi fyrir tékknesku er enn í góðu gildi bæði í tékknesku og fleiri slafneskum mál- um. Alþjóðleg hljóðritunarkerfi hafa sótt margt í smiðju hans. Á kirkjuþinginu í Konstanz 1415 var Hus brenndur fyrir villutrú þrátt fyrir griðabrcf keisarans, en tveim árum síðar tók Karlshá- skóli opinbera afstöðu með hússítum. Páfi refsaði með banni við skólahaldi. Það var að vísu eins og að skvetta vatni á gæs (hus þýð- ir reyndar gæs), en ófriðarástand það sem nú var að skapast (hússítastríðin) varð eðli- legu skólahaldi fjötur um fót, og frá 1419 og fram yfir aldamótin 1600 var aðeins frjáls- menntadeildin starfandi. Þegar kaþólikkinn Sigismundur tók við ríki eftir Václav bróður sinn 1419, ákvað hann að útiýma villutrú úr ríki sínu (hann hafði verið í forsæti í Konstanz), og sendi hvern herinn á fætur öðram til höfuðs hús- sítum,-sem þeir tóku hraustlega á móti og snera reyndar oftar en ekki vörn í sókn. Þeir áttu því láni að fagna að eiga frábæra herstjórnendur, svo sem Jan Zizka. Af mik- illi hugkvæmni notaði bændaher hússíta þau föng sem hendi voru næst í stríðsrekstri sín- um; kerrar þeirra urðu að vígvögnum og jafnframt að auðfluttum en torsóttum her- búðum; kornþústir voru skreyttar göddum sem nutu lítillar hylli meðal andstæðinga í or- ustum, o.s.frv. Eftir tuttugu ára látlausan ófrið tókst málamiðlun með Tékkum og Sigis- mundi. Hússítar gerðu tékknesku að eina op- inbera máli landsins og stóð svo til 1627. Und- ir stjórn aðalsmannsins Jirí frá Podébrad 1458- 1472 var hagsæld í Bæheimi og vegur ríkisins mikill. Kaþólskir létu þó ekki af ásókn sinni, og magnaðist hún eftir að landið komst undir Habsborgara 1526. Árið 1559 komu stormsveitir þeirra, jesúítar, til Prag og stofnuðu akademíu í Klementinum til kennslu í heimspeki og guðfræði. 1616 var stofnunin gerð að háskóla. Brátt syrti í álinn fyrir alvöra. Hinar myrku aldir Eins og fyrr er getið, risu tékkneskir að- alsmenn upp 1618 gegn kaþólsku og keisara- valdi, en í orastunni við Hvítafjall 1620 biðu þeir ósigur fyrir Ferdinand keisara. Árið eft- ir vora 27 af forystumönnum tékkneska að- 16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 28. NÓVEMBER 1998

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.