Lesbók Morgunblaðsins - 28.11.1998, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 28.11.1998, Blaðsíða 11
eftir Indriða Einarsson 1907. íða ásamt föruneyti upp Hverfisgötu, en af þessu til- liðar. ÁSGRÍMUR Jónsson: Hekla, 1909. Landið var hvað sem öðru leið fagurt og frítt, en flest óbreytt í aldaraðir og torfbæirnir í Eystrihrepp kúrðu enn í þýfðum túnum, vallgrónir og líkt og hluti af landinu. danska ráðuneytið fór frá að íslenski ráðherr- ann sat áfram. Allt þetta mál var því stormur í vatnsglasi. Seinni hluti ályktunarinnar er áskorun á Alþingi um að hafna ritsímasamn- ingnum en taka í staðinri tilboðum loftskeyta- félaganna um loftskeytasamband. Það er erfitt að tengja þessi tvö mál saman og því verður að líta svo á að stjórnarskrármálið hafi fyrst og fremst ýtt mönnum til þessara að- gerða, enda þjóðernishyggjan á þessum árum að gagntaka íslenskt samfélag. Gengið var til stjórnarráðsins og bættust þá í hópinn fjöldi Reykvíkinga þannig að þátt- takendur skiptu hundruðum. Hannes Haf- stein tók þessi mótmæli að sjálfsögðu ekki til greina og varð ekki meira úr þessu máli. Blaðamannaóvarpið og konungskoman 1907 Þó heimastjórn væri fengin var almennt að- eins litið á það fyrirkomulag sem áfanga í sjálfstæðisbaráttunni. Árið 1906 voru kröfur orðnar háværar um að enn yrði gengið til endurskpðunar á stöðu' íslands gagnvart Dan- mörku. í hinu svonefnda blaðamannaávarpi, sem sex ritstjórar, sem sumir höfðu verið svarnir andstæðingar í stjórnmálum, sendu frá sér segir: „Island skal vera frjálst sam- bandsland við Danmörku, og skal með sam- bandslögum, er Island tekur óháðan þátt í, kveðið á um það, hver málefni íslands hljóta eptir ástæðum landsins að vera sameiginleg mál þess og ríkisins. I öllum öðrum málum skulu íslendingar vera einráðir með konungi um löggjöf sína og stjóm og verða þau mál ekki borin upp íyrir konung í ríkisráði Dana“. Þegar Friðrik VIII kom í heimsókn til lands- ins árið 1907 tilkynnti hann um skipan nefnd- ar til að endurskoða stöðu íslands í veldi Danakonungs. í nefndinni sátu 13 danskir þingmenn og 7 Islendingar. Sambandslaga- nefndin skilaði af sér tillögum í maí 1908. Þar segir að ísland skuli vera frjálst og sjálfstætt land en utanríkismál og hermál fari Danir með í umboði Islendinga um ótiltekinn tíma. Þessar tillögur vöktu strax hörð viðbrögð á íslandi og voru það fyrst og fremst ákvæðin um að Danmörk og ísland séu tveir hlutar úr einu alríki og utanríkismál og hermál falin dönsku valdi, sem ollu hinni hörðu andstöðu. Einnig var mörgum þyrnir í augum að gagn- kvæmur þegnréttur skyldi ríkja og að danski fáninn yrði áfram verslunarflagg Islands. Kosið um Uppkaslið Kosningarnar í september 1908 snérust fyi'st og fremst um tillögur sambandslaga- nefndarinnar, sem nú gengu undir nafninu Uppkastið. Frambjóðendur stóðu og féllu með afstöðu sinni til þess. Öll önnur mál féllu í skuggann. Stuðningsmenn Uppkastsins guldu mikið afhroð og náðu 24 frumvarpsandstæð- ingar kosningu en 10 fylgjendur. Uppkastið riðlaði gjörsamlega þein-i flokkaskiptingu sem áður hafði verið. Þetta mál var reyndar ekki það eina sem hristi upp í íslenskum stjórnmálum þetta ár því kvennalisti, sem boðið hafði fram lista með fjónim konum í "Kjötpottur landsins’, HARKAN í pólitíkinni hefur sjaldan verið meiri en á fyrsta tugi aldarinnar, einkum í ráðherra tíð Björns Jónssonar. Pólitiskir andstæðingar hans gáfu út á sérstöku bréfspjaldi þessa skopmynd af Birni við „Kjötpott landsins" þaðan sem hann deilir út bitunum. BYLTING á skrifstofunni: Ritvélin tekin i notkun í heildverziun í Reykjavík 1909. I h LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 28. NÓVEMBER 1998 1 1

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.