Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1999, Side 2
UNNIÐ MEÐ MYRKR-
INU ARIÐ 2000
LJÓSAHÁTÍÐ er eitt þeirra verkefna sem Reykjavík 2000 stendur
fyrir á næsta ári. Hátíðin er samvinnuverkefni norrænu menningar-
borganna þriggja, Helskinki, Bergen og Reykjavíkur, og sér Hanna
Styrmisdóttir um skipulagningu.
Að sögn Hönnu á hugmyndin rætur sínar að rekja til Helsinki en
þar hefur ljósahátíðin Valon voimat verið haldin í nóvember og des-
ember undanfarin ár. Hanna segir tilgang hátíðarinnar, sem er útihá-
tíð, vera að vinna með myrkrinu og að hvetja fólk til að líta þennan
árstíma jákvæðum augum frekar en neikvæðum líkt og oft vilji verða.
Hátíðin er útfærð af hverri menningarborg á sinn hátt. Tengsl eru
þó á milli ljósahátíðanna þar sem íslenskir listamenn munu sýna verk
sín og koma fram í hinum borgunum og öfugt. Gert er ráð fyrir að há-
tíðin hefjist í Reykjavík í byrjun nóvember á næsta ári. Hún verður
haldin í Bergen síðar í sama mánuð og í Helsinki í desember. Ljósahá-
tíðin í Reylgavík mun standa í fjóra daga.
Mikil breidd einkennir hátíðina að sögn Hönnu. Fylgt verður for-
dæmi Valon voimat með því að sinna öllum listsviðum, án þess að gera
einu hærra undir höfði en öðru. Hanna segir stærð hátíðarinnar hér
heim enn óráðna og kveður hún það ráðast af viðbrögðum listamanna
þegar auglýst verður eftir hugmyndum að viðburðum og verkefnum
fyrir hátíðina. Leitast verður við að fá hugmyndir breiðs hóps lista-
manna, s.s. myndlistar- og tónlistarmanna, danshöfunda, gjöminga-
hópa, arkitekta og hönnuða. Að sögn Hönnu vonast aðstandendur há-
tíðarinnar til að geta valið úr breiðum hópi hugmynda svo að hátíðin
nái jafnt yfir öll listsvið. „Þannig að þetta geti höfðað til allra,“ bætir
hún við.
Ekki hefur enn verið gengið endanlega frá staðsetningu hátíðarinn-
ar en Hanna segir uppi hugmyndir um að ljósahátíðin nái yfir svæðið
frá Norræna húsinu og niður að höfn. Hún segir hugsanlega tengingu
miðbæjarins við Elliðaárdalinn einnig rædda í þessu samhengi en ör-
Eitt af atriðum Ijósahátíðar í Helsinki; Ijósaleikur við Harakkaeyju.
uggt sé þó að Norræna húsið verði miðpunktur hátíðarinnar sem ná
munií gegnum miðbæinn.
Á íslandi standa fjórar stofnanir að hátíðinni; Orkuveita Reykjavík-
ur, Leikfélag Reykjavíkur, Listaháskóli íslands og Norræna húsið.
Stofnanirnar munu sjá um að skipuleggja og framkvæma hátíðina í
samvinnu við menningarborgirnar þrjár.
Ljósahátíðin er styrkt af norræna menningarsjóðnum.
NORRÆNT HÚS í NEW YORK
STEFÁN L. Stefánsson, sendifulltrúi íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, tekur fyrstu
skóflustunguna að Norræna húsinu í New York ásamt Edward P. Gallagher, formanni
Bandarísk-skandinavíska menningarsjóðsins.
FRAMKVÆMDIR standa nú yfir við bygg-
ingu Norræns húss í New York og er áætlað
að húsið verði opnað á næsta ári. Húsið er
byggt fyrir tilstilli Bandarísk-skandinavíska
menningarsjóðsins (American-Scandinavian
Foundation), m.a. fyrir fjárstyrki frá ríkis-
stjómum Norðurlandanna.
I fréttatilkynningu sjóðsins segir að hlut-
verk Norræna hússins sé að auka þekkingu
og skilning Bandaríkjamanna á norrænni
menningu og þjóðfélagi. Boðið verður upp á
fjölbreytta menningar- og fræðsludagskrá til
kynningar á Norðurlöndunum og verður á
næsta ári t.d. boðið upp á norræna kvik-
myndahátíð, auk þess sem haldin verður
sýning til minningar um Vínlandsfund Leifs
Eiríkssonar. Einnig verður haldinn fjöldi
námskeiða í tengslum við Columbia háskól-
ann. Norræna húsinu er ætlað að kynna nor-
ræna menningu í víðum skilningi, m.a. nor-
ræna tækni og viðskipti, ekki síður en bók-
menntir, tónlist og myndlist landanna.
Auk fjárstyrkja norrænu ríkisstjómanna
hafa mörg norræn fyrirtæki lagt hönd á plóg-
inn og í þeim hópi eru 23 íslensk fyrirtæki, s.s.
Flugleiðir, Coldwater Seafood Corporation og
Iceland Seafood Corporation, dótturfyrirtæki
Islenskra sjávarafurða.
Norræna húsið er hannað af arkitektinum
James Stewart Polshek en öll húsgögn em
norræn hönnun. Bandarísk-skandinavíski
menningarsjóðurinn var stofnaður 1910 til að
auka tengsl milli Bandaríkjanna og Norður-
landanna.
Carnegie Art Award 1999
26 NORRÆNIR MYND-
LISTARMENN VALDIR
NIUNDA ,
KAMMERHATIÐ
KIRKJUBÆJAR-
KLAUSTURS
ÁRLEGIR kammertónleikar á Kirkju-
bæjarklaustri verða haldnir dagana 13.,
14. og 15. ágúst, í níunda sinn. Þessi tón-
listarhátíð er orðin fastur liður í tónlistar-
lífi íslendinga. Efnisskráin, sem er
blanda hljóðfæraleiks og söngs er flutt af
alþjóðlegu tónlistarfólki.
í ár koma fram Sólrún Bragadóttir
sópran, Gerrit Schuil píanóleikari, Guðni
Franzson klarinettuleikari, Sigrún Eð-
valdsdóttir fiðluleikari, Sigurlaug Eð-
valdsdóttir fiðluleikari, Helga Þórarins-
dóttir víóluleikari og Luc Tooten selló-
leikari.
Að tónleikunum standa menningarmála-
nefnd Skaftárhrepps og Edda Erlends-
dóttir píanóleikari sem hefur verið list-
rænn stjórnandi tónleikanna frá upphafi.
ÞRÍR íslendingar em í hópi 26 myndlistar-
manna, sem hefur verið boðið að taka þátt í
norrænu listsýningunni Carnegie Art Award í
Kunstnernes Hus í Ósló 15. október.
Listamennimir em: Kjell Anderson, Sví-
þjóð, Claus Carstensen, Danmörku, Jesper
Christiansen, Danmörku, Lena Cronqvist, Sví-
þjóð, Anne Katrine Dolven, Noregi, Cecilia
Edelfalk, Svíþjóð, Guðrún Einarsdóttir, ís-
landi, Michael Elmgreen & Ingar Dragset,
Danmörku og Svíbjóð, Hilmar Fredriksen,
Noregi, Helgi Þorgils Friðjónsson, íslandi,
Anne-Karin Furanes, Noregi, Georg Guðni, ís-
landi, Rolf Hanson, Svíþjóð, Heli Hiltunen,
Finnlandi, Steinar Jakobsen, Noregi, Clay
Ketter, Svíþjóð, Jukka Korkeila, Finnlandi,
Matti Kujasalo, Finnlandi, Matts Leiderstam,
Svíþjóð, Arvid Pettersen, Noregi, Tarja Rit-
kánen-Walter, Finnlandi, Tal R., Danmörku,
Silja Rantanen, Finnlandi, Anna Retulainen,
Finnlandi, Janne Ráisánen, Finnlandi, og
Anssi Törrönen, Finnlandi.
27 sérfróðir aðilar á Norðurlöndunum fimm
tilnefndu 96 myndlistarmenn til sýningarinnar
í ár. Það var sérstök dómnefnd undir stjórn
Lars Nittve, forstöðumanns Tate Gallery of
Modern Art, sem síðan valdi úr hópi hinna til-
nefndu og hún mun einnig veita einhverjum
þessara listamanna Camegie-verðlaunin. í
dómnefndinni sitja auk Nittve; Tuula Arkio frá
Nútímalistasafninu í Helsinki, Olle Granath frá
Þjóðlistasafninu í Stokkhólmi, Bera Nordal frá
Malmö Konsthall og Asmund Thorkildsen frá
Kunstnernes Hus í Osló.
Sonja Noregsdrottning opnar sýninguna og
afhendir Carnegie-verðlaunin. Sýningunni í
Ósló lýkur 4. nóvember og mun hún þá fara til
annarra höfúðborga á Norðurlöndum.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn
Yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveins-
sonar.
Gallerí Fold, Kringlunni
Guðrún Öyahals. Til 14. júlí.
Gallerí Nema Hvað
Jóhannes A Hinriksson og Lilja Gunnars-
dóttir til 11. júli.
Gallerí Stöðlakot
Rannveig Jónsdóttir. Til 11. júlí.
Gallerí Sævars Karls
Gylfi Gíslason. Til 7. júlí.
Gerðarsafn, Listasafn Kópavogs
Ut úr kortinu: íslensk/frönsk sýning. Til 8.
ágúst.
Hallgrímskirkja
Georg Guðni Hauksson. Til 1. sept.
Hafnarborg
Sverrissalur: Ljósmyndasýning Johns R.
Johnsen. Til 28. júní.
Listahátíðin Á Seyði, Seyðisfirði
Guðrún Sjöfn, Stefán frá Möðrudal, Bernd
Koperling, Bjöm Roth, Daði Guðbjömsson,
Tolli, Eggert Einarsson, Ómar Stefánsson,
María Gaskell, Þorkell Helgason, Rut
Finnsdóttir, Vilmundur Þorgrímsson og
Olga Kolbrún Vilmundardóttir og finnskur
arkitektúr.
Ingólfsstræti 8
Hreinn Friðfinnsson. Til 18. júlí.
Kjarvalsstaðir
Vestursalur: Karel Appel. Austursalur:
Verk úr eigu safnsins. Til 29. ágúst.
Listasafn ASl'
Ásmundarsalur: Hlíf Ásgrímsdóttir, mál-
verk. Gryfja: Svanborg Matthíasdóttir, mál-
verk. Til 25. júh'.
Listasafn Árnesinga
Ættarmunstrið: Steinunn H. Sigurðardóttir
og Inga Jónsdóttir. Til 27. júní.
Listasafn Einars Jónssonar
Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 14-17.
Höggmyndagarðurinn opinn alla daga.
Listasafn Islands
Yfirlitssýning á völdum sýnishomum af ís-
lenskri myndlist. Sumarsýning.
Safn Ásgríms Jónssonar
Sýning á verkum listamannsins. Til 29.
ágúst.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Sumarsýningin Spor í sandinn.
Listasetrið Kirkjuhvoli, Akranesi
Sýning á verkum Sigurjóns Ólafssonar. Til
ll.júlí.
Mokkakaffi
Friðrik Öm, ljósmyndasýning. Til 9. júlí.
Nýlistasafnið
15 listamenn frá París: Polylogue 153. Til
27. júlí. Zeger Reyers í Bjarta og Svarta sal
til 25. júlí. Tíu norrænir myndlistarmenn til
25. júlí.
Norræna húsið
Ljósmyndir af listafólki og menningarfröm-
uðum frá menningarborgum Evrópu árið
2000. Anddyri: Norræni Ijósmyndaháskól-
inn. Til 15. ág.
Safnasafnið, Svalbarðsströnd
Hannes Lámsson. Til 30. júlí. Ragnar
Bjarnason, Hálfdán Bjömsson, Gunnar
Ámason, Svava Skúladóttir, Þór Vigfússon,
Óskar Beck. Handverk í Húnaþingi, 8
sýnendur. Til 29. ágúst.
Sjóminjasafn íslands,
Vesturgötu 8, Hafnarf.
Sýning á hafrænum málverkum.
SPRON, Álfabakka
Sigurðui' Örlygsson. Til 9. júlí.
Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði v.
Suðurgötu
Handritasýning opin kl. 13-17 daglega til 31.
ágúst.
Þjóðarbókhlaðan
Undir bláum sólarsali - Eggert Ólafsson. Til
31. ágúst.
TÓNLIST
Laugardagur
Árbæjarsafn: Barokktónleikar: Guðrún
Óskarsdóttir, Ólöf Sesselja Óskarsdóttir og
Ragnheiður Haraldsdóttir. Kl. 14.
Sunnudagur
Salurinn, Kópavogi: Harmonikuleikaramir
Yuri og Vadim Fjodorov. Kl. 16.
Hallgrímskirkja: Orgeltónleikar. Mark A.
Anderson. Kl. 20.30.
Fimmtudagur
Hallgrímskirkja: Orgeltónleikar á hádegi,
Douglas A. Brotchie, kl. 12.
LEIKLIST
Borgarleikhúsið
Litla hryllingsbúðin, lau. 3., sun. 4., fim. 8.,
fös. 9. júh.
íslenska Óperan
Hellisbúinn, fös. 9., lau. 10. júlí.
Loftkastalinn
Söngleikurinn Rent, lau. 3. júlí.
Hirðfifl hennar hátignar, 15. og 16. júlí.
Iðnó
Hádegisleikhúsið: 1000-eyja sósan, mið. 7.,
fim. 8. fös. 9. júlí.
Þjónn í súpunni, fös. 9., laug. 10., sun. 11. júlí.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 3. JÚLÍ1999