Lesbók Morgunblaðsins - 04.09.1999, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 04.09.1999, Blaðsíða 2
TÍBRÁ, ÁSKRIFTARTÓNLEIKAR í SALNUM í KÓPAVOGI „FJÖLBREYTT DAGSKRÁ VIÐ BESTU SKILYRÐI" TÍBRÁ, tónleikaröð í Salnum í Kópavogi, verður hleypt af stokkunum í næstu viku. Kenn- ir margra grasa fram að ára- mótum en þetta er fyrsta heila starfsár raðarinnar og í fyrsta sinn sem tónleikarnir eru seld- ir í áskrift. „Þetta lítur ljómandi vel út - það eru spennandi tímar framundan í Tíbránni," segir Vigdís Esradóttir, forstöðumað- ur Salarins. „Islenskir tónlist- arunnendur hafa loksins eignast húsnæði þar sem þeir geta notið tónlistar við bestu skilyrði og við munum vitaskuld leggja okkur fram um að bjóða upp á fjölbreytta og spennandi dag- skrá sem hæfir húsinu. Það er gaman að segja frá því að á dögunum var hér staddur þýskur upptökustjóri á vegum BlS-útgáfunnar að taka upp flutning CAPUT á verkum eftir Hauk Tómasson og hann fullyrti að Salurinn væri besta hús af þessari stærð sem hann hefði tek- ið upp í. Það þótti okkur virkilega ánægjulegt að heyra.“ Þrettán tónleikar verða í Tíbrá fram að ára- mótum en röðinni er skipt í þrennt. Hinir fyrstu, 7. september, verða helgaðir minningu Sigfúsar Halldórssonar, tónskálds og heiðursborgara Kópavogs, en hann fæddist á þessum degi árið 1920. Söngvaramir Sigrún Hjálmtýsdóttir og Bergþór Pálsson munu ásamt Jónasi Ingimundarsyni píanóleikara flytja allmörg lög Sigíúsar auk dúetta úr söngleikjum og fleira. Tónleikamir heyra til tónleikaröð 3. Aðrir tónleikar Tíbrár verða 12. september en þá mun franski píanóleikarinn Désiré N’Kaoua leika stóra efnisskrá helgaða Chopin í tilefni af 150 ára ártíð tónskáldsins. (Röð 1.) Einar Kristján Einarsson gítarleikari kem- ur fram í Tíbrá 21. september. Mun hann leika verk eftir J.S. Bach, Hafliða Hallgríms- son, Giuliani, Barkeley, Koshkin, Turina og Albeniz. (Röð 2.) Á hæla Einari koma kammertónleikar, 28. september, þar sem þess verður minnst að hundrað ár eru liðin frá fæðingu Francis Pou- lenc. Flytjendur verða Nína Margrét Gríms- dóttir píanóleikari og Blásarakvintett Reykja- víkur. (Röð 2.) Ungur kanadískur píanóleikari, Alain Lef- evre, mætir næstur í Salinn, 3. október, og leikur verk eftir Bach, Liszt og Wagner. (Röð 1.) Annar ungur hljóðfæraleikari, Kópavogs- búinn Ingibjörg Guðlaugsdóttir, kemur fram á tónleikum 9. október. Ingibjörg leikur á básúnu en með henni leikur Judith Þorbergs- son á píanó. Á efnisskrá verða meðal annars verk eftir Mahler, Scrocki, Gaubert og Pergo- lesi. (Röð 2.) 17. október verður Chopin-vaka en Chopin andaðist þennan dag fyrir 150 áram. Það er Póllandsvinafélagið á Islandi sem stendur að dagskránni í samvinnu við Tíbrá en fram koma pólskir listamenn búsettir hér á landi, þeirra á meðal söngkonan Alina Dubik, selló- leikarinn Karolina Styczen og Jacek Tosik- Warszawiak, sem leikur á píanó. (Röð 3.) Fiðla og píanó er yfírskrift tónleika sem verða 25. október en þar koma fram Guðný Guðmundsdóttir og Gerrit Schuil. Á efnisskrá verða sónötur eftir Mozart og Karl 0. Run- ólfsson en sú síðamefnda heyrist afar sjaldan. Einnig flytja þau verk eftir Part, Suk, Saint- Saens og fleiri. (Röð 1.) Trio Parlando leikur í Tíbrá 9. nóvember en það skipa Rún- ar Oskarsson klarínettuleikari, Héléna Navasse flautuleikari og Sandra de Bruin píanóleik- ari. Mun tríóið meðal annars frumflytja verkið Bergmál eft- ir Oliver Kentish en önnur verk á efnisskrá era eftir Andrew Ford, Elínu Gunn- laugsdóttur, Astor Piazzola, Kjartan Olafsson, Robert Muczynski og Paolo Perezzani. (Röð 2.) Einleikstónleikar Jónasar Jónas Ingimundarson heldur sína fyrstu einleikstónleika í Salnum 13. nóvember. Á efnisskrá verða fyrsta og síðasta sónata Beethovens og vals- arnir fjórtán eftir Chopin en Jónas heiðrar minningu hans sérstaklega á þessum tónleik- um. (Röð 3.) 23. nóvember stígur á svið ungur píanóleik- ari frá Lettlandi, Liene Circene að nafni. Af henni fer gott orð og hefur hún unnið til iyrstu verðlauna í mörgum keppnum og hald- ið fjölda einleikstónleika víða um heim. Ekki liggur fyrir hvað hún ætlar að leika. (Röð 1.) Á fullveldisdaginn, 1. desember, verður efnt til söngtónleika, þar sem tónlist Emils Thoroddsens verður skipað í öndvegi. Öll sönglög tónskáldsins verða flutt af Þorgeiri Andréssyni tenórsöngvara, Lofti Erlingssyni barítonsöngvara og Jónasi Ingimundarsyni píanóleikara. Ekki er ólíklegt að þessi dagur verði framvegis helgaður íslenskum söng í Tí- brá. (Röð 3.) Lokatónleikar ársins í Tíbrá verða Jóla- barokk sem löng hefð er fyrir í Kópavogi. Flautuleikaramir Camilla Söderberg, Guðrún Birgisdóttir og Martial Nardeau, Elín Guð- mundsdóttir semballeikari, Peter Tompkins óbóleikari, Snorri Örn Snorrason teorbaleik- ari og Svava Bernharðsdóttir fiðluleikari hafa að þessu sinni undirbúið efnisskrá með verk- um eftir De Lalande, Philidor, Couperin, Vinci og Marin Marais. (Raðir 1, 2 og 3.) Finnsk menn- ingarmið- stöð í Afríku Söngvarar í Bragarbót og dansarar úr Sporinu. BRAGARBÓT TIL KÍNA FINNAR verða fyrstir Norðurlandaþjóða til þess að eignast menningarmiðstöð í Afríku. Menningarmiðstöðin verður staðsett í Ben- in, sem nú er lítið grannríki Nígeríu á gömlu Þrælaströndinni en var forðum daga voldugt konungsríki. Kennslumála- og utanríkisráðuneyti Finnlands munu styðja þetta einkaframtak, þar sem gert verður upp íbúðarhús frá ný- lendutímanum. Þar verða hýstir 4-5 finnsk- ir lista- og vísindamenn sem vilja rannsaka menningu ýmissa þjóða. Frumkvöðullinn er finnski rithöfundurinn Juha Vakkuri, en miðstöðin fær heitið Villa Karo til minning- ar um Karo Vakkuri sem dó úr krabba- meini 15 ára gamall. Miðstöðin á að verða fullbúin til notkunar vorið 2000. Tilgangurinn með þessari menningarmið- stöð er að víkka sjóndeildarhring finnskra lista- og vísindamanna. Sjálfur hefur Juha Vakkurin nú rannsakað afríska menningu og stjómmál í þrjátíu ár. íkonaegg FYRIRLESTUR og sýning á handmáluðum íkonaeggjum frá Rússlandi verður í safnaðar- heimili Kristkirkju, Landakoti, á morgun, sunnudag kl. 10.30. Fyrirlesari verður Sverrir Friðriksson. íkonaeggin era til sölu á vegum orgelsjóðs Kristskirkju. ÞJÓÐLAGAHÓPURINN Bragarbót mun kynna þjóðmenningu íslands á menningar- tengdri ferðamannahátíð í Peking sem hefst í dag, laugardag. Ferðaskrifstofunni Land- námu ehf. var boðið að taka þátt í sýningunni og fékk Bragarbót til liðs við sig. Sýningin er liður í því að efla menningartengsl milli Kína og annarra landa og sýna fram á þá breytingu sem er að verða í Kína á sviði viðskipta og opnari samskipta við önnur lönd. Bragarbót er skipuð Ólínu Þorvarðardótt- ur, Kristínu Á. Ólafsdóttur, Sigurði Rúnari Jónssyni og Kristjáni Kristjánssyni (K.K). Hópurinn mun koma fram í þjóðbúningum og flytja þjóðlög frá ýmsum tímum. Spilað verð- ur á fiðlu, langspil, gítar og munngígju. Þjóð- dansaflokkurinn Sporið úr Borgarilrði, Haf- dís Rut Pétursdóttir, Grétar Einarsson, Pétur Jónsson og Svava Kristjánsdóttir, munu dansa mismunandi Vikivaka og rælasyrpu. Sýningin er tvíþætt, annars vegar er um listræna kynningu á þjóðmenningu landanna að ræða, hins vegar kynningu á ferðaþjónustu viðkomandi landa í stórri sýningarhöll. Þar verða um 80 sýningarbásar með þátttakend- um frá hinum ýmsu þjóðlöndum, en auk Finn- lands er ísland eina þjóðin frá Norðurlöndum. Hátíðinni lýkur 9. september. MENNING/ LISTIR NÆSTU VIKU MYNDLIST Ásmundarsafn Yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveinssonar. Gallerí@hlemmur(S)is. Þverholti 5 Þóra Þórisdóttir og Valgerður Guðlaugs- dóttir. Til 27. sept. Gallerí Stöðlakot Kristjana F. Arndal. Til 12. sept. Gerðarsafn, Listasafn Kópavogs Afmælissýning Textílfélagsins. Til 19. sept. Hafnarborg Eiríkur Smith. Til 27. sept. i8, Ingólfsstræti 8 Kjell Strandqvist. Til 5. sept. Islensk grafík, Hafnarhúsinu Bragi Ásgeirsson. Til 12. sept. Kjarvalsstaðir Hafsteinn Austmann. Borgarhluti verður til. Patrick Huse. Til 24. okt. Listasafn ASI Ásmundarsalur: Inga Ragnarsdóttir. Gryfja: Helgi Hjaltalín Eyjólfsson. Arin- stofa: Sýnishorn verka úr eigu safnsins. Til. 12. sept. Listasafn Akureyrar Hlynur Hallsson og Makoto Aida. Til 7. okt. Listasafn Einars Jónssonar Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 14-17. Höggmyndagarðurinn opinn alla daga. Listasafn Islands Yfirlitssýning á völdum sýnishomum af íslenskri myndlist. Ljósmyndasafn Rvíkur, Borgartúni 1 Tore H. Royneland. Til 26. sept. Mokkakaffi Ljósmyndasýning Rúnars Gunnarsson- ar. T0 1. okt. Rauði veggurinn, Laugavegi 13 Listahópurinn Artemisia. Til 5. sept. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Sumarsýningin Spor í sandinn. Listhús Ófeigs Samsýning þriggja listhúsa; Meistari Jakob, Listhús Öfeigs og Inga Elín gall- erí: 17 listamenn. Til 4. sept. Norræna húsið Anddyri: Einar Vigfússon, Utskornir fuglar. Til 21. sept. Nýlistasafnið Samsýning sjö listamanna frá Austurríki og sex frá Islandi. Til 19. sept. Safnhúsið, Borgarfirði Helga Magnúsdóttir. Til 19. sept. Sjóminjasafn Islands, Vesturgötu 8, Hafnarf. Fiskurinn í list Sveins Björnssonar. T0 15. okt. Slunkaríki, ísafirði Færeysk myndlist: grafíkmyndir Astri Luihn. Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði v. Suðurgötu Handritasýning opin þriðjudaga - föstu- daga kl. 14-16. Til 15. maí. Þjóðarbókhlaðan Anddyi-i: Undir bláum sólarsali - Eggert Ólafsson. Til 31. ágúst. List Inúita, T0 4. nóv. TÓNLIST Sunnudagur Hásalir, Hafnarfirði: Kór Flensborgar- skólans. Kl. 20.30. Fimmtudagur Islenska Óperan: Jóhann Friðgeir Valdi- marsson tenór og Ólafur Vignir Alberts- son píanóleikari. Kl. 20.30. LEIKLIST Borgarleikhúsið Litla hryllingsbúðin, lau. 4., fös. 10. sept. íslenska Óperan Hellisbúinn, lau. 4., fös. 10. sept. Iðnó Hádegisleikhúsið: 1000-eyja sósa, mið. 8., fim. 9., fös. 10. sept. Þjónn í súpunni, fim. 9. sept. Loftkastalinn Rent, fös. 10. sept. Kaffileikhúsið Ævintýrið um ástina, sun. 5. sept. Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist bréflega eða í tölvu- pósti fyrir kl. 16 á miðvikudögum merkt- ar: Morgunblaðið, Menning/listir, Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir: 5691222. Netfang: menning@mbl.is. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 4. SEPTEMBER 1999

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.