Lesbók Morgunblaðsins - 04.09.1999, Blaðsíða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 04.09.1999, Blaðsíða 14
■4 KVIKMYNDAGERÐ í ÞÝSKALANDI - ANNAR HLUTI VARGÖLD KVIKMYNDAGERÐ í ÞRIÐJA RÍKINU EFTIR JÓNAS KNÚTSSON Undir stjórn nasista voru gerðar 1.100 kvikmyndir í Þýzkalandi. Á saman tíma gengu þeir af Dýskri kvik- myndagerð dauðri. Bannað var að gera cvikmyndir sem „gengju í berhögg við tíðarandann" . Afskiptin hófust 1933 þegar Göbbels sagði: „Listin er frjóls. Þó verða menn að hlíta vissum reglum." Göbbels gerði sér betur grein fyrir áróðursgildi kvikmynda Lyginni líkast. Barún Munchhausen ríður fallbyssukúlu á slig. Robert Herlth teiknaði leikmynd fyrir myndina Amphitryon árið 1935 og stældi Albert Speer í háðungarskyni. Ég hef lengi séð allt í umrótum. Eitthvað skýtur upp kolli, • lætur til skarar skríða, deyðir og meiðir. Ur ljóðinu Að Haustlokum eftir Rainer Maria Rilke. (Lausleg þýðing J.K.) Valdatíð nasista var tími þversagna í þýskri kvikmyndasögu. I raun voru þessi tólf ár mik- ið gróskuskeið í kvikmyndagerð þar í landi. Fleiri og merkari myndir voru framleiddar á þessu tímabili en næstu tvo áratugi eftir seinni heimsstyrjöld. Alls voru gerðar ellefu hundruð myndir í fullri lengd undir stjóm nasista. A hinn bóginn gengu þjóðemisjafnað- armenn af þýskri kvikmyndagerð dauðri og flæmdu hvem hæfileikamanninn á fætur öðr- um úr landi. Upplýsinga- og áróðursmálaráðuneyti Þýskalands (Reichsministerium fiir Volksauf- klámng und Propaganda - RMVP) var stofn- að 13. mars árið 1933. Ráðherra var Joseph Göbbeis, þrítugur að aldri. Ný kvikmyndalög- gjöf hafði tekið gildi 16. febrúar árið 1932. Nasistar vildu, eins og mai-gir góðir menn fyrr og síðar, stjóma því sem kæmi fyrir augu almennings. Var kveðið á um í lagabálki þess- um að kvikmyndagerðarmenn skyldu leggja handrit að öllum myndum sem framleiddar væm í Þýskalandi fyrir kvikmyndadeild ráðu- neytisins. Nefndust slíkar ráðstafanir „fyrir- byggjandi ritskoðun“. Svonefndur „Reichs- fdmdramaturg“ hafði umboð til að stöðva tök- ur á myndum og gat krafist að fá í hendur öll gögn sem að hverri kvikmynd snera. Yfirlýst- 'ur tilgangur slíkrar ritskoðunar var að koma í veg fyrir að verk „gengju í berhögg við tíð- arandann." Ráðuneytið hóf næst afskipti af gagnrýnendum. Illa gekk að hemja þá í fyrstu. Ráðherrann ungi var ekki af baki dott- inn og brá á það ráð að banna almenna list- gagnrýni í nóvember árið 1936. Nasistum reyndist auðvelt _að sölsa undir sig kvik- myndaiðnaðinn. Oðaverðbólga hafði leikið framleiðendur grátt og fjárhagslega stóðu þeir höllum fæti. Adolf Hitler skar upp herör gegn Weimar- menningunni, kallaði hana fjórtán ára rasla- haug - ein Trúmmerfeld -. Merkustu verk frá þessu blómaskeiði í eigin menningarsögu nefndu nasistar afrakstur menningarbolsi- visma. Segja má að afskipti nasista af þýskri kvikmyndagerð hefjist formlega 28. mars árið 1933. Josef Göbbels ávarpar fulltrúa kvik- myndaiðnaðarins í Kaiserhof-hótelinu í Berlín: „Listin er frjáls. Þó verða menn að hlíta vissum reglum." Göbbels bannar tveim- ur dögum seinna mynd eftir Fritz Lang „Vitnisburður dr. Mabuse" og segir hana ógn- un við þjóðarheil. Sama sumar flýr Lang land og endar í Hollywood. Hafði Göbbels beðið leikstjórann að ganga til liðs við sig. Alls er talið að 1.500 kvikmyndagerðarmenn og leik- arar hafi flúið land. Vissulega þekktust sumir gylliboð frá Bandaríkjunum en flestir áttu fót- um fjör að launa. Þessi atgervisfótti setti svip á þýskar kvikmyndir í tvo áratugi eftir stríðs- lok og þýski kvikmyndaheimurinn hefur aldrei borið sitt barr eftir þessa blóðtöku. Helmingur þeirra mynda sem framleiddar vora undir stjóm Göbbels vora gaman- og söngvamyndir. Þetta skildu yfirvöld í ráð- stjómarríkjunum og aðrar kommúnista- stjómir aldrei og létu einvörðungu gera aug- ljósar og gagnsæjar áróðursmyndir. Göbbels reyndist hafa lög að mæla og almúginn í kommúnistaríkjum fékk sig brátt fullsaddan á eintómum áróðri. Sjálfur lét Jósef Stalín sýna bandarískar kúrekamyndir í einkasal sínum í Kreml en sauðsvartur almúginn þurfti að horfa á hverja heimildarmyndina um samyrkjubú og alþýðuhetjur á fætur annarri. Adolf Hitler var sama marki brenndur og vildi einvörðungu láta framleiða áróðurs- myndir. Göbbels aðhylltist á hinn bóginn svo- kallaðan óbeinan áróður. Þótt Göbbels og Hitler létu banna Ameríkumyndir kemur fram í dagbókum ráðherrans að hann sá for- ingjanum fyrir smyglvarningi, Mikka Mús myndum. Erfitt er að ímynda sér þá félaga skríkjandi og fraktandi af fögnuði yfir tiltækjum músarinn- ar glaðbeittu. Kvikmyndavinurinn Göbbels áttaði sig á sannfæringarkrafti kvikmyndanna þegar hann sá áróðursmyndir eftir rússneska snillinginn Sergei Eisenstein. Ráðherrann sagði eitthvað á það leið að kvikmyndir væra nútímatæki sem gæti haft áhrif á skoðanir fjöldans. Engin ríkisstjórn gæti látið slíkt form af- skiptalaust. Ráðherrann lét til að mynda þau boð út ganga að myndir á borð við Gyðinginn Suss (Jud Súss) og Gyðinginn gangandi (Der Ewige Jude) skyldi ekki auglýsa sem níð um gyðinga. Göbbels hafði lærst það af Ameríku- myndum að kvikmyndir gátu dásamað land og þjóð án þess að þær virtust beinlínis gerðar í áróðursskyni. Göbbels leit á heimildar- myndir, nánar tiltekið fréttamyndir, sem öflug- asta áróðursvopnið en þær voru sýndar á undan öllum myndum í Þýska- landi eins og þá var lenska um allar jarðii'. Adolf Hitler vildi á hinn bóginn aðgreina list og skemmtun annars vegar og stjórnmál hins vegai’, m.ö.o. áróður í þriðja ríkinu skyldi vera hreinn og beinn, undanbragðalaus. því ég leit í lundi lilju fagra í myrgin bleiku höfði halla til helfarar snúna,... Úr Vestanvindinum e. Bjama Thorarensen Synir Abrahams Engin ummerki um andúð á gyðingum er að finna í leiknum myndum fyrir árið 1938. Fyrsta bíómyndin sem beinlínis var gerð til höfuðs gyðingum bar nafnið Rotschild-fjöl- skyldan (Die Rotschilds). Hingað til höfðu myndir um gyðinga verið óvandaðar heimild- armyndir. Megininntak myndarinnar var að breskt efnahagslíf væri í höndum gyðinga. Frökkum og Bretum voru ekki vandaður kveðjurnar. Wellington lávarður var látinn vera siðspilltur glaumgosi. Flýr Wellington af hólmi og svíkur prússneska bandamenn sína. Þessi mynd fékk takmarkaða aðsókn þótt stjórnvöld kynntu hana óspart fyrir almenn- ingi. Hitler, Göbbels og Alfred Rosenberg, erkióvinur Göbbels, settust á rökstóla hinn 11. desember 1939. Foringinn gekk hart að Göbbels að gerðar yrðu fleiri kvikmyndir um nasistaflokkinn í stað þess að reyna að inn- ræta áhorfendum almenna föðurlandsást. Göbbels réðst í að gera tvö verk, Jud Súss og Der Ewige Jude. Ónnur myndin er dæmi um óbeinan áróður í búningi afþreyingar, hin um beinan áróður í ávarpstón. Áróðursmálaráðu- neytið þýska hugðist láta kvikmynda leikritið Kaupmanninn frá Feneyjum eftir Shakespe- are. Gyðingaofsóknir höfðu tíðkast í Evrópu síðan á dögum krossferða og andúð á gyðing- um var engin nýmæli í evrópskum bókmennt- ioseph Göbbels og Mikki mús Göbbels gerði sér betur grein fyrir áróðurs- gildi kvikmynda en flestir samtímamenn hans. Ráðherrann hélt því fram að einungis brot úr heildarframleiðslu Þjóðverja á þessu sviði ætti að vera hreint áróðursefni. Lunginn úr þýsk- um myndum skyldi skemmta þjóðinni í stað þess að leggja henni lífsreglumar. Skyldu Hitler og Göbbels hafa séð þessa mynd? Mikki Mús heldur tónleika. Göbbels gaf for- ingingjanum tólf Mikka Mús myndir í jólagjöf árið 1937 og reit í dagbók sína: „Hann gleðst yfir þessum fjársjóð- um. Þeir verða honum vonandi til mikillar ánægju og hugarhægðar.1 en flestir samtímamenn hans. 1 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 4. SEPTEMBER 1999

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.