Lesbók Morgunblaðsins - 04.09.1999, Page 9
ferðir um Reykjavík og nágrenni. Þar verða
skoðaðir áhugaverðir staðir og mannvirki
undir faglegri leiðsögn ýmissa sérfræðinga.
Einnig er heilsdagsferð þar sem m.a. verður
farið um þjóðgarðinn á Þingvöllum og til
Nesjavalla. Þann 8. september verður farið
upp á hálendið og skipulag þess kynnt.
Forseti Islands, herra Olafur Ragnar
Grímsson, er verndari ráðstefnunnar.
íslensk
núlímabyggingarlist
Ein þeirra skoðunarferða sem í boði verða
á Norræna byggingardeginum, hefur yfír-
skriftina „Islensk nútímabyggingarlist“ og
hefur Arkitektafélag Islands skipulagt þá
ferð. Skoðaðar verða nokkrar byggingar sem
hafa verið hannaðar og byggðar á síðastliðn-
um 10 árum og er einungis um að ræða lítið
brot af íslenskri nútímabyggingarlist. Áhersla
hefur verið lögð á að velja byggingar sem
gegna mismunandi hlutverki og eru í mis-
munandi umhverfi. Einnig hefur valið miðast
við að byggingarnar væru dreifðar um höfuð-
borgarsvæðið. Þannig fæst yfírsýn yfir
Reykjavík og nágrenni. Hægt er að sjá hvem-
ig borgin hefur vaxið frá miðbænum í Kvos-
inni austur fyrir Elliðaár og hvernig ná-
grannabæjarfélögin eru orðin hluti svokall-
aðrar Stór-Reykjavíkur.
Farið verður frá Háskólabíói og haldið í
miðbæ Reykjavíkur um Kvosina, elsta hluta
borgarinnar. Fyrsta byggingin sem skoðuð
verður er hús Hæstaréttar Islands sem hann-
að er af Studio Granda. Þaðan verður haldið
inn í Laugardal sem áður tengdist miðbænum
sem þvottastaður, en er nú dæmi um upp-
byggingu íþrótta-og útivistaraðstöðu fyrir
bæjarbúa.
Því næst er haldið um nokkur eldri út-
hverfi, frá því um og eftir 1960, að höfuðstöðv-
um Rauða Kross Islands en húsið er hannað
af Glámu/Kím arkitektum ehf. A leiðinni má
sjá nýjan miðbæ borgarinnar. Þar er m.a.
Borgarleikhúsið, hannað af arkitektunum
Olafi Sigurðssyni, Guðmundi Kr. Guðmunds-
syni og Þorsteini Gunnarssyni, og nokkrar
skrifstofubyggingar svo sem bygging Sjóvár-
Almennra hönnuð af Ingimundi Sveinssyni
arkitekt og hús Morgunblaðsins hannað af
arkitektunum Gunnai-i Hanssyni og Helgu
Gunnarsdóttur. I næsta nágrenni við Rauða
kross húsið má jafnframt sjá Utvarpshúsið
sem er hannað af arkitektunum Vilhjálmi og
Helga Hjálmarssonum.
Að því loknu verður haldið sem leið liggur
um Miklubraut, aðalstofnbraut bæjarins og
aðkomuleið út að ytri mörkum borgarinnar. A
leiðinni má sjá nýleg dæmi um umferðar-
mannvirki svo sem Höfðabakkabrúna, en
Studio Grandi sá um útlitsmótun brúarinnar.
Þá er haldið sem leið liggur inn í Árbæjar-
hverfi, austasta hverfi borgarinnar.
Hverfið er kennt við bæinn Árbæ sem nú
hýsir Minjasafn Reykjavíkur, Árbæjarsafn.
Árbær vai- á öldum áður var gjarnan síðasti
áningarstaður áður en komið var til Reykja-
víkur I Árbæjarhverfi verður Árbæjarsund-
laug skoðuð en hún er hönnuð af Úti og inni
arkitektastofu sf.
Frá Árbæjarhverfi teygir borgin sig til
norðurs og suðurs með ströndinni. Það verður
haldið sem leið liggur um Breiðholt, stærsta
úthverfi Reykjavíkur, í gegnum nágranna-
bæjarfélögin Kópavog og Garðabæ, til Hafn-
arfjarðar sem er syðst bæjarfélaganna í nán-
asta nágrenni við Reykjavík. Hafnarfjörður
hefur þá sérstöðu umfram önnur nágranna-
bæjarfélög að eiga sér gamlan byggðarkjarna
og byggðasögu sem er jafngömul þéttbýlis-
sögu Reykjavíkur. Þar verður safnaðarheimili
og tónlistarskóli í miðbæ Hafnarfjarðar skoð-
að. Byggingin er hönnuð á teiknistofunni
Tröð ehf.
Þegar heimsókninni í Hafnarfjörð lýkur
verður haldið til miðborgar Reykjavíkur á ný.
Farið verður um miðbæ Garðabæjar sem
margar nýjar byggingar setja svip á. Einnig
verður ekið um vestari hluta Kópavogs þar
sem meðal annars má sjá nýtt tónlistarhús
Kópavogs hannað af arkitektunum Jakobi
Líndal og Kristjáni Ásgeirssyni.og Listasafn
Kópavogs, Gerðarsafn, hannað af Benjamín
Magnússyni arkitekt.
Ferðinni mun Ijúka í Norræna húsinu í
Reykjavík. Þar mun forstöðumaður hússins
Riita Heinámaa segja frá starfsemi hússins.
Norræna húsið er teiknað af finnska arki-
tektinum Alvar Aalto, einum helsta meistara
norrænnar nútímabyggingalistar á þessari
öld. Bygging hans er jafnframt eina nútíma
byggingin hérlendis sem hönnuð er af er-
lendum arkitekt og því eina dæmið um er-
lenda nútímabyggingarlist í landinu. Bygg-
ingin er staðsett í útjaðri miðborgarinnar á
opnu svæði sem tilheyrir svæði Háskóla ís-
lands.
ÓLÖF GUÐNÝ VALDIMARSDÓTTIR og
BALDUR Ó. SVAVARSSON arkitektar.
„BÁRÐUR MINN Á JÖKLI"
EFTIR
VALDIMAR HREIÐARSSON
Á ARNARSTAPA á Snæfellsnesi stendur
stór hlaðin stytta af svipmiklum og mikilúð-
legum manni. Hann horfir til Snæfellsjök-
uls, þessi maður, og það er engu líkara en
hann sé hluti af náttúru staðarins, að hann
endurspegli hana og túlki í mynd, sem virð-
ist af hálfu manns og hálfu trölls. Ragnar
heitinn Kjartansson myndlistarmaður er
höfundur verksins sem var afhjúpað 17. júní
1985. Er það reist til minningar um hjónin
Jón Sigurðsson og Guðrúnu Sigtryggsdótt-
ur, sem bjuggu lengst af á Bjargi á Arnar-
stapa.
Hver var hann, þessi mikli maður, sem á
sér svo mikilfenglega mynd og minnismerki
vestur á Arnarstapa á Snjófellsnesi? Því er ef
til vill fyrst til að svara, að ef trúa má Bárðar-
sögu var Bárður Snæfellsás ekki mennskur
maður í venjulegri merkingu þess orðs. Ber
þar allt að sama brunni, ætterni Bárðar, lífs-
hlaup hans og ævilok. Og þá aðeins ef unnt er
að tala um ævilok í eiginlegum skilningi, því
saga Bárðar getur hvergi dauða hans, sem
var þó allajafna vani, þá sagt er frá landnáms-
mönnum.
I upphafi Bárðarsögu segir frá foreldrum
Bárðar. Faðir hans var Dumbur, konungur í
Hellulandi. Dumbshaf er kennt við Dumb
konung, en nú á dögum er það betur þekkt
sem Norður-íshaf. Svo er sagt um Dumb kon-
ung, að hann væri kominn „af risakyni í föður-
ætt sína, en það fólk var vænna og stærra en
annað fólk“, en að móðir hans hafi verið af
tröllaættum.
Bar Dumbur, faðir Bárðar, merki ættemis
síns, því að hann var bæði „sterkur og vænn
og góður viðskiptis og kunni því að eiga allt
sambland við mennska menn“. En honum brá
í móðurkyn sitt, tröllaættina, þannig, að hann
var bæði „sterkur og stórvirkur og umskipta-
samur og illskiptinn, ef honum eigi líkaði
nokkuð“, eins og segir í Bárðarsögu. Reyndist
Dumbur vel sínu fólki og var því bjargvættur.
Má af lýsingunni á Dumbi ráða, að þeir hafi
verið líkt skapi farnir þeir feðgar, Bárður og
Dumbur.
Móðir Bárðar var Mjöll Snæsdóttir, segir
svo um hana, að hún hafi verið „kvenna fríð-
ust, og nær allra kvenna stærst, þeirra sem
mennskar voru, og mun þar hafa komið fram
ætterni hennar. Segir sagan, að Mjöll móðir
Bárðar hafi verið „svo fögur, eða björt á
skinnlit, að sá snjór tók þar nafn af henni, er
hvítastur er og í logni fellur og mjöll er kall-
aður.
Þá er Bárður fæddist þeim hjónum, var
hann bæði mikill og vænn að sjá, og „furðu
líkur móður sinni“. Mun honum þá hafa
brugðið til móðurættar um útlit, en skapferli
til föðurættar.
Bárði var barni að aldri komið í fóstur hjá
bergbúanum Dofra í Dofrafjöllum, og lærði
Bárður af Dofra alls kyns íþrottir og ættvísi
og vígfimi, og segir sagan, að eigi var traust,
að hann næmi eigi galdra og forneskju, svo að
bæði varð hann forspár og margvís.
Með Dofra í hellinum var dóttir hans,
Flaumgerður, og er ekki að orðlengja það, að
vel fór á með þeim Bárði. Giftust þau síðan og
eignuðust þrjár dætur, þær Helgu, Þórdísi og
Guðrúnu. Stuttu síðar deyr Flaumgerður, og
giftist Bárður þá Herþrúði, dóttur Hrólfs
hersis hins auðga og eignaðist með henni sex
dætur. Nokkru eftir giftingu þeirra Herþrúð-
ar og Bárðar, fer að draga til tíðinda í Nor-
egi. Fyrst er til að taka, að þursar gengu í
bandalag í þeim tilgangi að ráða Dumb kon-
ung af dögum. Tókst þeim það við illan leik.
Fór Bárður þá norður eftir ásamt bróður sín-
um og hefndu þeir föður síns. Ekki treystust
þeir til að taka sér bústað þar nyrðra, og
héldu heim aftur. Þá var Haraldur konungur
lúfa að eflast til ríkis í Noregi, og vildi Bárður
heldur yfirgefa frændur og fósturjörð en lifa
undir því ánauðaroki sem hann frétti að al-
múginn í landinu yrði að sætta sig við. Varð
því úr að Bárður hélt ásamt með fylgdarliði
til íslands, sem þá var óðum að byggjast. Þeir
lentu í hrakningum í hafi, og komu að landinu
úr suðaustri. Það fyrsta, sem þeir sáu til
þessa lands, er átti eftir að verða þeirra
heimkynni æ síðan, var einmitt Jökullinn
sjálfur.
Fylgdarfólk Bárðar nam land víða hér úti á
nesinu, þar á meðal Þorkell Rauðfeldur, er
nam land á Arnarstapa.
En sjálfur nam Bárður land að Laugar-
brekku. En ekki átti fyrir Bárði að liggja að
búa lengi að Laugarbrekku, og segir í Bárð-
arsögu, að hann hafi búið þar „nokkura
stund“.
Því að fáum árum eftir komu þeirra land-
námsmannanna til landsins gerðust þeir at-
burðir, er urðu örlagaríkir í lífi þeúra bræðra,
Þorkels og Bárðar. Dætur Bárðar og synir
Þorkels höfðu þann vana að vera að leikum á
svellum á Barnaá. Þá bar svo við dag einn, er
þau voru að leikum þarna, að Rauðfeldur,
sonur Þorkels, hrindir Helgu, dóttur Bárðar,
út á ísjaka, er lá við land. Stóð þá mikill vind-
ur af landi, og bar jakann hratt út til hafíss-
ins, er lá utar á sjónum. Þá sömu nótt rak haf-
ísinn til Grænlands, og að 330 dögum liðnum
komst Helga á land af ísnum í Grænlandi.
Þetta var á þeim tíma, sem Eiríkur rauði bjó í
Brattahlíð. Dvaldi Helga í góðu yfirlæti í
Grænlandi, þó svo að þessi vísa, sem hún kvað
þar, beri með sér, að heldur hefði hún kosið
að dvelja í föðurgarði:
Sæl væri ég,
ef sjá mætti
Búrfell og Bala,
Báða Lóndranga,
Aðalþegnshóla
og Ondverðanes,
Heiðarkollu
og Hreggnasa,
Dritvík og möl
fyrir dyrum fóstra.
Að sjálfsögðu var Bárði ókunnugt um afdrif
Helgu, og þegar hann fréttir atburðinn, held-
ur hann þegar að Arnarstapa og setur syni
Þorkels, þá Rauðfeld og Sölva, sinn undir
hvora hönd, og gekk með þá til fjalls. Rauð-
feldi kastaði hann í gjá eina, sem síðan hefur
verið kölluð Rauðfeldsgjá, en með Sölva fór
hann upp á hamar mikinn, og kastaði honum
þar fram af. Síðan hefur hamar þessi verið
nefndur Sölvahamar.
Þegar Þorkell fréttir þetta fer hann þegar
til fundar við bróður sinn, og takast þeir á, allt
þar til Þorkell brotnar á fæti. Við þessa at-
burði alla verða skil í ævi Bárðar, Segir í
Bárðarsögu, að hann hafi gerst „bæði þögull
og illur viðskiptis, svo að menn hofðu engar
nytjai- hans síðar“.
Er engu líkara en að fomeskjan sem hann
þáði í arf eftir forfeður sína, tröllin í Noregi,
hafi náð undirtökum í sál hans við þessa at-
burði og skyggt á hina mannlegu þætti í eðli
hans Segir Bárður sjálfur við Sigmund félaga
sinn á þessa leið: „Eg sé það, að sakir ættar
minnar og harma stórra ber eg ekki náttúru
við alþýðu manna, og því mun eg leita mér
nokkurra annarra ráða.“
Eftir þetta hverfur Bárður. Þó svo að ekk-
ert sé fullyrt í Bárðarsögu, segir þar þó, að
„mönnum þyki sem hann hafi í jöklana horfið
og hafa byggt þar stóran helli, því að það var
meira í ætt hans að vera í stórum hellum en
húsum“. Síðan segir svo í sögu Bárðar: „Var
hann tröllum og líkari að afli og vexti en
mennskum mönnum, og var því lengt nafn
hans og kallaður Bárður Snjófellsás, því að
þeir trúðu á hann nálega þar um nesið og
höfðu hann fyrir heitguð sinn. Varð hann og
mörgum hin mesta bjargvættur.“
Gjarna var sagt um hina fyrstu landnáms-
menn, að þeir hafi „dáið í fjöllin". Ekkert slíkt
er sagt um Bárð í sögu hans. Hann einfald-
lega hverfur í jökulinn, og dauða hans er
hvergi getið í sögu hans allri. Því að sögu
Bárðar lýkur ekki þá er hann gengur í jökul-
inn, heldur þvert á móti. Það er ekki fyrr en
hann er genginn í jökulinn, að hann gerist sá
kynngimagnaði vættur, sem raun ber vitni.
Þrátt fyrir það, að fomeskjan hafi náð tökum
á honum og hrekkt til fjalla, var Bárður ávallt
hinn góði vættur, sem bjargaði mönnum úr
nauðum, og var heitið á til heilla, hvort sem
mikið eða lítið lá við.
Svo kvað Hetta tröllkona á skjá á Ingjalds-
hvoli eitt sinn seint um kvöld:
Út reri einn á báti
Ingjaldur á skinnfeldi.
Týndi átján önglum
Ingjaldur á skinnfeldi
og fertugu færi
Ingjaldur á skinnfeldi.
Aftur kom aldrei síðan
Ingjaldur á skinnfeldi.
Var Hetta tröllkona nokkuð hróðug að von-
um, því hún taldi sig hafa vélt svo um fyrir
Ingjaldi, að hún gæti flutt fregnina af dauða
Ingjalds heim að Hvoli. En Bárður, hinn góði
vættur, kom Ingjaldi til bjargar á síðustu
stundu. Þau voru fleiri stórvirkin, sem Bárður
vann eftir að hann var horfinn í jökulinn, og
frá er sagt í sögu hans. En Bárð er ekki að-
eins að finna i Bárðarsögu, því að hann hefur
átt sér sess í íslenskri þjóðtrú í gegnum ald-
irnar. Ekki liggur lífið við þá unnin er tó-
vinna. En íslenskri alþýðu þótti gott að heita á
Bárð Snæfellsás, og hafa yfir þennan formála
í hálfum hljóðum á meðan þæft er svo að þóf-
aranum gangi betur þófið:
Bárðurminná Jökli,
leggstu á þófið mitt.
Eg skal gefa þér lóna
ogíleppanaískóna,
vettling á klóna,
þegar ég kann að prjóna,
naglabrot í bátinn þinn,
hálfskeið undir hestinn þinn,
mórautt lamb og gimburskel,
og meira ef þú þæíir vel.
Þannig hefur Bárður Snæfellsás verið vinur
íslenskrar alþýðu, hvort sem var í litlu eða
stóru. Það er ekki að ástæðulausu að höfund-
ur Bárðarsogu nefnir ekki dauða Bárðar. Því
að í huga íslenskrar alþýðu dó Bárður aldrei.
Hann lifir enn í rúmgóðum hellum íslenskrai-
þjóðarsálar, hann lifir í landi draumsins og
ævintýrisins. Sál hans er enn að finna í kynn-
gimagnaðri nátturunni undir Jökli.
Heimildir: Aðallega Bárðar saga Snæfells-
áss.
Höfundurinn er prestur á Suðureyri.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 4. SEPTEMBER 1999 9