Lesbók Morgunblaðsins - 17.06.2000, Qupperneq 2
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Árbsejarsafn: Saga Reykjavíkur.
Árnastofnun, Árnagarði: Hátíðarsýn-
ing handrita. Safnið er opin alla daga í
sumar kl. 13-17. Til 1. okt.
Ásmundarsafn: Verk í eigu safnsins.
Sýning á verkum Ásmundar Sveinsson-
ar. Til 1. nóv.
Byggðasafn Árnesinga: Kirkjugripir
og kirkjustaðir í Arnesþingi. Til 4. júlí.
Kirknamyndir Jóns Helgasonar bisk-
ups.Til 9. júlí.
Byggðasafn Hafnarfjarðar:
Vaxmyndasýning. Til 30. sep.
Gallerí List, Skipholti 50: Erlingur Jón
Valgarðsson (elli). Til 18. júní.
Gallerí OneoOne: Fos. Til 27. júní.
Gallerí Reykjavík: Óli G. Jóhannsson.
Til 2. júlí.
Gallerí Stöðlakot: Soffía Sæmunds-
dóttir. Til 2. júlí.
Gallerí Sævars Karls: Húbert Nói. Til
29.júní.
Garður, Ártún 3, Selfossi: Kaj Nyborg.
Til 24. júní.
Gerðarsafn: Safn Péturs Arasonar og
Rögnu Róbertsd. Til 8. ág.
Hallgrímskirkja: Karólína Lárusdóttir.
Til 1. sep.
i8, Ingólfsstræti 8: Tony Cragg. Til 2/7
Kjarvalsstaðir: Austursalur: Jóhannes
S. Kjarval. Myndir úr Kjarvalssafni.
Garðhúsabærinn. Til 23. júní.
Listasafn Akureyrar: Ur og í. Til 25/6
Listasafn ASÍ: Magdalena Margrét
Kjartansdóttir og M.E. Prigge. Til 2.
júlí.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið lau.
og sunnud. kl. 14-17. Höggmyndagarð-
urinn opinn alla daga.
Listasafn íslands: Lífið við sjóinn. Til
25. júní. Nýr heimur - Stafrænar sýnir.
Til 18. júní.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Valin
verk eftir Sigurjón Ólafsson.
Listasalurinn Man, Skólavörðustíg: El-
ín G. Jóhannsdóttir.Til 28. júní.
Listasetrið Kirkjuhvoli Akranesi: Sal-
óme Guðmundsdóttir og Steinunn Guð-
mundsdóttir. Til 2. júlí.
Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg: Bjarni
H. Þórarinsson og Guðmundur Oddur
Magnússon. Til 21. júní.
Ljósaklif, Hafnarfírði: Halldór Ás-
geirsson. Til 3. júlí.
Mokkakaffi: Kristín Pálmadóttir. Til
10. júlí.
Norska húsið, Stykkishólmi: Erna
Guðmarsdóttir og ljósmyndir Magnús-
ar Karls Antonssonar. Til 4. júlí.
Norræna húsið: Flakk. Til 18. ág.
Nýlistasafnið: Blá. Til 2. júlí.
Safnasafnið, Svalbarðsströnd: Svava
Björnsdóttir og Myndlistarskólinn á
Akureyri. Til 30. júní. Sex listamenn.
Til 29. ág.
Sjóminjasafn fs., Vesturg. 8, Hafnarf.:
Jón Gunnars_son. Til 1. sep.
Slunkaríki, Isafirði: Harpa Árnadóttir.
Til 25. júní.
Snegla listhús, Klapparstíg: Arnfríður
Lára Guðnadóttir. Til 4. julí.
Þjóðarbókhlaða: Verk Ástu Sigurðar-
dóttur. Til 31. ág.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Sunnudagur
Kirkjuhvoll, Garðabær: Sönghópurinn
Hljómeyki. Kl. 20:30.
Salurinn: Jón Ragnar Örnólfsson og
Naomi Iwase. Kl. 20.30.
Mánudagur
Salurinn: Sönghátíð til heiðurs Halldóri
Hansen bamalækni. Kl. 20.
Miðvikudagur
Seltjarnameskirkja: Sönghópurinn
Hljómeyki. KI. 20:30.
Föstudagur
Hveragerðiskirkja:
Tríó Reykjavíkur, Auður Hafsteinsd.,
Unnur Sveinbjamard., Georg Kleutsch
og Jónas Ingimundarson. Kl. 20.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Glanni glæpur, sun. 18.
jún.
Loftkastalinn: Stjömur á morgun-
himni, sun. 18., fím. 22. júní.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað
er eftir að birtar verði í þessum dálki
verða að hafa borist bréflega eða í
tölvupósti fyrir kl. 16 á miðvikudögum
merktar: Morgunblaðið, menning/listir,
Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir:
5691222. Netfang: menning@mbl.is.
Sönghópurinn Hljómeyki.
HUÓMEYKIÁ KÓRAHÁTÍÐ
SÖNGHÓPURINN Hljómeyki heldur tón-
leika í Kirkjuhvoli, Garðabæ, á morgun,
sunnudag, kl. 20.30 og í Seltjamarneskirkju
miðvikudaginn 21. júní kl. 20.30. Stjórnandi
sönghópsins er Bernharður Wilkinson.
Tilefni tónleikanna er fyrirhuguð ferð
kórsins á kórahátíð Norðurlanda og Eystra-
saltslanda sem haldin er í Skien í Noregi
síðar í þessum mánuði. Hátíðin er nú haldin
í þriðja sinn. Áður hafa hátíðirnar verið í
haldnar í Lettlandi 1995 og í Svíþjóð 1997.
Búist er við allt að 4.000 þátttakendum á
hátíðina, eða u.þ.b. 130 kómm, þar af helm-
ingnum frá Eystrasaltslöndunum og er
hverju Iandi boðið að senda einn kór sem
fulltrúa síns Iands. Kórunum er ætlað að
kynna tónlist síns lands sérstaklega, bæði í
tali og tónum. Samhliða hátíðinni er haldin
kórakeppni.
Efnisskrá tónleikanna í Kirkjuhvoli og í
Seltjarnarneskirkju verður sú sama og kór-
inn mun flytja í Skien og er blanda af ís-
lenskri tónlist og erlendri. Meðal höfunda
eru m.a. Snorri Sigfús Birgisson, Jón Nor-
dal, Hildigunnur Rúnarsdóttir, Bára Gríms-
dóttir, Hafliði Hallgrímsson, Jón Leifs,
Britten, Tavener, Debussy, Charles V. Stan-
ford, Parry og Ravel.
Hátíðin stendur yfir frá 27. júní til 2. júlí
og er Norska kórasambandið (NKF) stuð-
ningsaðili hátíðarinnar en listrænn stjórn-
andi hennar er Káre Hanken, stjórnandi og
aðalritari NKF.
KIRKNA-
MYNDIRJÓNS
HELGASON-
AR BISKUPS
í BORÐSTOFU Hússins á Eyrarbakka hefur
verið opnuð sýning á teikningum og vatnslita-
myndum eftir Jón Helgason biskup (f. 1866, d.
1942). Á sýningunni eru teikningar af 23
kirkjum í Ámesþingi.
Á Þjóðminjasafni íslands eru varðveittar
teiknibækur Jóns Helgasonar biskups með
myndum sem hann teiknaði á vísitasíuferðum
sínum um landið á tímabilinu 1916 til 1938 er
hann gegndi embætti biskups Islands. Á hverj-
um þeim stað sem Jón heimsótti hafði hann
þann sið að mála eða vatnslita kirkjuna sem
hann var að vísitera. Einnig teiknaði hann oft
prestsetrið og umhverfi þess. Allt eru þetta
blýantsmyndir, í sumar er teiknað með bleki,
mannssonur þar upp alinn og
hefur búið þar alla tíð. Sjór-
inn og lífsbaráttan á hafinu við ísland hafa
mótað listmannsferil 'nans, þar sem myndir
frá sjávarsíðunni, brim og sæbarðar strend-
ur, sjómenn, bátar og togarar á hafi úti hafa
verið hans helsta myndefni og einkenni,
samhliða sterkri tilfinningu fyrir náttúru
landsins. Hann er einn örfárra íslenskra
sjávarmyndamálara sem hafa helgað sig sér-
staklega þessu myndríka viðfangsefni í list-
sköpun sinni, segir í fréttatilkynningu.
Hjallakirkja, blýantsteikning eftir
Jón Helgason biskup.
flestar era ólitaðar en einnig eru nokkrar
vatnslitaðar. Aðeins voru fjórar kirkjur sem
hann kvaðst ekki hafa komist til að vísitera, og
á einum stað fyrirfannst engin kirkja.
Myndirnar á sýningunni eru flestar frá 3.
áratugnum en elstu myndirnar eru mun eldri
eða frá 1890, áður en Jón varð biskup.
Byggðasafn Ái-nesinga heldur sýninguna í
samstarfi við Ámesprófastsdæmi og Þjóð-
minjasafn Islands. Sýningin er opin á af-
greiðslutíma Byggðasafns Árnesinga, Húsinu
á Eyrarbakka og lýkur 9. júlí nk. Safnið er opið
kl. 9-12 og 13-18 alla daga í sumai'.
Jón Gunnarsson listmálari.
Jón Gunnarsson stundaði nám í Handíða-
og myndlistarskólanum 1947-49 undir hand-
leiðslu þeirra Kurt Zier skólastjóra og
Kjartans Guðjónssonar myndlistarmanns.
Hann hélt sína fyrstu einkasýningu í Iðn-
skólanum í Hafnarfirði haustið 1961. Síðasta
þrjá og hálfan áratug hefur Jón Gunnarsson
haldið nær tuttugu einkasýningar og tekið
þátt í íjölda samsýninga bæði hér heima og
erlendis.
SIGURBJORN EINARSSON
A VIGSLUDEGI
GRAFARVOGS-
KIRKJU
18. JÚNÍ 2000
I dag leikur geisli um Grafarvog,
um götur ognes og sund.
Hann sendur er hæstum himni frá
á heilagri náðarstund.
Sá geisli mun lýsa á gluggann
þinn,
þegar Guð er að vitja þín
og benda á helga húsið sitt,
þann himin, sem við þér skín.
Oggeislinn skal berast í barminn
þinn,
þar blundarsú lífsins þrá,
sem Drottinn þinn, orðið elsku
hans,
og aðeins hann svala má.
Sjá, geislinn bendir á barnið þitt,
sem biður um skjól oghlíf
en fyrst ogsíðast um frelsara sinn,
hans forsjá, styrk og líf.
Og hamingja jafnt sem harmur
þinn
skal helgast við geislann þann
frá lausnara heims, sem leið og dó
oglífsins sigur vann.
Svo vermi sá geislinn Grafarvog,
aðgrói hvert blessað sáð
ogmannlífíð Kristi verði vígt,
hans vilja, ást ognáð.
Höfundurinn er biskup.
SVIPMYNDIR FRA SJAVARSÍÐUNNI
Á SJÓMANNADAGINN
opnaði Sjóminjasafn íslands
sýningu á verkum Jóns
Gunnarssonar listmálara á
Vesturgötu 8 í Hafnarfirði,
þar sem viðfangsefnið er sjó-
mennska og lífið við sjávar-
síðuna. Sýningin verður opin
á opnunartíma safnsins í
sumar, alla daga frá kl. 13 til
17.
Sjómennskan er nærtækt
viðfangsefni fyrir Jón Gunn-
arsson. Hann fæddist í Hafn-
arfirði 30. október 1925, sjó-
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 17. JÚNÍ 2000