Lesbók Morgunblaðsins - 17.06.2000, Síða 20
ISLENSKUR VERULEIKI
í STÖÐLAKOTI
í Stöðlakoti verða opnað-
ar tvær myndlistarsýning-
ar í dag. Það eru mynd-
listarmennirnir Bubbi og
Soffíg Sæmundsdóttir
sem eiga heiðurinn af
sýningunum. Sýning
Bubba nefnist Krossgötur,
en hann sýnir höggmynd-
ir í garðinum. A sýningu
± Soffíu, í eilífu Ijósi, eru
málverk unnin á tréplötur.
INGA MARÍA LEIFS-
DÓTTIR hitti listamennina
að máli,; >purði þá út í
verk ; þeirra og komst að
-hugmyndi jm þeirra um
\ ^jóðfélagsmál in,
heimspekina og lífið.
SÓLBJÖRTUM júnídegi
hittir blaðamaður lista-
mennina tvo sem eru í óða
önn að undirbúa sýningar
sínar í gamla húsinu Stöðla-
koti við Bókhlöðustíg i
Reykjavík. í Stöðlakoti er
l nú gallerí sem hefur verið
'starfandi í næstum 12 ár. Upphaflega var því
ætlað að vera sýningarstaður fyrir listiðnað, þó
að hinar hefðbundnu listgreinar haii meira og
minna ráðið þar ríkjum. En skilin milli listar og
listiðnaðar eru oft óljós og sýningamar- sem
verða opnaðar um helgina færa galleríið nær
upphaflegum tilgangi sínum, þar sem báðir
listamenn vinna með tré á mismunandi vegu.
Sýningarnar tvær hafa ákveðinn samhljóm
þrátt fyrir að verk þeirra séu gjöróiík, þar sem
unnið er með sama efni. Báðar hafa líka þjóð-
lega skírskotun, hvor á sinn hátt. Pað er því
ákaflega viðeigandi að opnunardagur sýning-
anna sé á sjálfan þjóðhátíðardaginn.
Krossgötur Bubba
Náttúra íslands hefur að jafnaði verið yrkis-
efni myndhöggvarans Bubba, sem svo margra
/Sienskra myndlistarmanna. Virkjunarmál á há-
lendinu er meginþema sýningarinnar. „Þegar
ég var beðinn um að halda þessa sýningu
snemma í ár, fór ég að velta fyrir mér hvaða
þema ég gæti unnið út frá. Á þeim tíma var um-
ræðan um hálendið mikil, um virkjanir, álver,
náttúru og svo framvegis. Þá ákvað ég að vinna
útfrá því þema og nota náttúruefni, sem sagt tré
og ál, bæði álfleyga og brætt ál. Einnig vildi ég
móta verkin eftir svæðinu hér í Stöðlakoti, en ég
reyni oftast að taka mið af því umhverfi sem
verkin eiga að vera hluti af,“ segir Bubbi. Hann
á eitt af listaverkunum við strandlengjuna og
nefnist það 360°. „Það verk tekur til dæmis mið
af umhverfinu í ríkum mæli. Þar sem það stend-
tlr við strandlengjuna er eini staðurinn á stígn-
um sem hægt er horfa í gegn um verkið á rétt-
um stað og sjá sjóndeildarhringinn tengjast
verkinu."
En hvemig er nafnið Krossgötur komið til?
Morgunblaðið/Þorkell
Titilmynd sýningar Soffíu, í eilífu Ijósi.
Bubbi við verk sitt Krossgötur 4.
Myndlistarmaðurinn Soffía Sæmundsdóttir.
„Mér finnst við vera stödd á krossgötum hvað
hálendið varðar, við vitum ekki hvað er fram-
undan eða hvað verður gert, þannig að nafnið
hefur beina skírskotun í það. En svo nota ég
mikið landfræðileg kennileiti í verkum mínum,
til dæmis ferhyrninga, og þar sem ferhyrningar
mætast, þar eru krossar," svarar Bubbi. „Verk-
in á sýningunni bera heitin Krossgötur 1, 2,3,4
og 5. Eiginlega má segja að þau séu samfleytt
ferli sem hefst með Krossgötum 1, þar sem ég
vinn með femingana og krossana, og fleygamir
standa í þeim. Þannig heldur þetta áfram þar
sem til dæmis ál og tré mætast með beinum
hætti, bræddu áli er hellt beint í viðardrumbinn
og efnin snertast án þess að maðurinn hafi í
raun stjóm á því. Krossgötur 5 eru svo úr
hreinu áli. Það verk var gert þannig að ég vann í
viðinn og mótaði hann og tók svo afsteypu úr áli
afhonum.“
Bubbi hefur unnið mikið í tré og talsvert með
málmsteypu. Þetta er þó í fyrsta sinn sem hann
vinnur með ál og tré saman. „En það er engin
tilviljun að ég vinn í þessi efni núna. Með þvi er
ég að reyna að vekja fólk til umhugsunar um
þessi mál.“
Soffía í eilífu Ijósi
Soffia Sæmundsdóttir er myndlistarmaður
og hefur ekki setið auðum höndum í ár. I vor tók
hún við viðurkenningu úr hendi Karls Breta-
prins þar sem hún var ein af tólf sem valin var úr
hópi 250 myndlistarmanna frá öllum heims-
hornum í málverkasamkeppni Winsor &
Newton í Bretlandi.
Myndirnar sem Soffía sýnir í Stöðlakoti eru
olíumyndir unnar á tré og bera yfirskriftina I ei-
lífu ljósi. „í þessari sýningu er ég að fást við birt-
una og eilífðina. Síðasta sýningin mín hét Dal-
búamir og þá voru þeir inni í djúpum dal, en nú
eru þeir komnir út úr dalnum. í þessum mynd-
um má ennþá sjá ána sem rann í dalnum og þeir
hafa eiginlega fylgt henni út í víðáttuna," segir
Soffía. Með „þeim“ á hún við litlar fígúrur sem
einkenna myndir hennar. En hvaða fígúrur eru
þetta? „Þetta eru ferðalangar í víðasta skilningi
þess orðs, með vængi og eru í einskonar þjóð-
búningum. Mjög þjóðlegar verur.“
Soffía málar olíumálverk sín á tré í stað hins
hefðbundna striga. „Mér fmnst gaman að vinna
með tré, en það hæfir líka efninu. Ég er líka að
reyna að ná fram ákveðinni gamalli stemmningu
og tíma í myndimar og mér finnst tréð hjálpa
mikið við að skapa þannig stemmningu, viðurinn
hjálpar myndunum. Ég útskrifaðist úr grafík-
deild á sínum tíma, þannig að fyrst skar ég í tréð
og þrykkti með því, en síðustu ár hef ég farið
meira út í að mála á það.“
En um hvað snúast myndir Soffíu Sæmunds-
dóttur? „Þessar myndir eru um hringrás tím-
ans,“ svarar Soffía. „Yfirskriftin gæti verið að
öll verk sem góður Guð skapar ganga réttsælis
og enda þar sem þau byrjuðu. Þess vegna er
ferðalangurinn alltaf að fylgja þessari á, tíman-
um og hringrásinni. Alveg eins og við og alveg
eins og lífið allt. Svo er bara spurning hvað tek-
ur við, er þetta ekki bara allt eilif hringrás?"
Ólíkt verkum Bubba í garðinum em verk
Soffíu kyrrlát og friðsæl verk. I sýningar-
skránni stendur: Skapar maður tíma eða skapar
tími mann? „Það sem ég er að fást við núna er
þessi spuming um tíma og þessa hringrás. Ég
reyni bæði að kalla fram ákveðinn tíma og ef til
vill stöðva hann líka.“
Sýningu Soffíu lýkur 2. júlí en sýning Bubba
stendur til 17. ágúst.
20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 17. JÚNÍ 2000