Lesbók Morgunblaðsins - 19.08.2000, Blaðsíða 2
DJASS-
HELGI í
SKÁLHOLTI
DJASSHELG lofgjörð, ljóð og fyrirlestrar
verða í Skálholti um næstu helgi, 26. og 27.
ágúst, og hefst dagskráin í Skálholtskirkju kl.
13.30 laugardaginn 26. ágúst með fyrirlestri
Sigvalda Tveit sem hann nefnir Djass og
guðsþjónusta. Kl. 14.15 verða tónleikar með
Gunnari Gunnarssyni orgelleikara og Sigurði
Flosasyni saxófónleikara. Kl. 17 verður ljóða-
lestur og tónlist í kirkjunni og kl. 18 verður
Vesper, tíðagjörð.
Dagskrá sunnudagsins hefst kl. 9 með tíða-
gjörð, tónlist og íhugun í kirkjunni. Kl. 10
verður ljóðalestur og tónlist. Kl. 13 flytur
prófessor Don Saliers fyrirlestur með tón-
dæmum sem hann nefnir „Aesthetic and
poetic dimensions of liturgical j)articipation“.
Kl. 14 verða tónleikar með Ama Scheving
víbrafónleikara og Agli B. Hreinssyni orgel-
leikara. Kl. 17 verður djassmessa. Kl. 20
verður málstofa með prófessor Don Saliers í
ráðstefnusal skólans á vegum Rannsóknar-
stofnunar í litúrgiskum fræðum og verður
henni fram haldið mánudaginn 28. ágúst kl.
10.
Hátíðarhökull í eigu Húsavíkurkirkju
eftir Sigrúnu Jónsdóttur.
ÍUÓSI
DÝRÐAR
f HALLGRÍMSKIRKJU verður opnuð
sýning á verkum Sigrúnar Jónsdóttur
kirkjulistakonu í dag, laugardag, kl. 18.
Sýningin hefur yfirskriftina í ljósi
dýrðar og gefur að líta þverskurð af
verkum hennar, en list Sigrúnar
spannar yfir 50 ára tímabil. Hún hefur
m.a. skapað hökla, veggteppi og altar-
isklæði og unnið í gler og batík.
Sýningin hefst á orgelleik Harðar
Askelssonar, en síðan mun Pétur Pét-
ursson prófessor fjalla um list Sigrún-
ar. Að því loknu verður sýningin form-
lega opnuð á orgelloftinu.
Sigrún Jónsdóttir kirkjulistakona er
fædd í Vík í Mýrdal 19. ágúst 1921.
Hún lauk sérnámi í kirkjulegri textíl-
list í Gautaborg þar sem hún stundaði
listnám á árunum 1947-1955. Hún hef-
ur haldið fjölda einkasýninga hér á
landi og erlendis og fengið viðurkenn-
ingar fyrir hökla og trúarleg batíkverk.
Yfir tvö hundruð trúarleg listaverk
unnin af Sigrúnu prýða kirkjur og hí-
býli víðs vegar um heim.
Að sýningunni standa menningar-
klúbburinn Embla Reykjavík í sam-
vinnu við Listvinafélag Hallgrímsk-
irkju.
Margar sögur fara af teiknum í náttúru
landsins og mörg þeirra hefur borið upp á
stórar stundir í sögu þess. Þessa mynd tók
Björk Magnúsdóttir á nýafstaðinni kristni-
hátíð á Þingvöllum og kallar hana „Kristur
á kristnihátíð". Vilji lesendur Lesbókar tjá
sig um myndina og það sem þeir lesa út úr
henni er þeim frjálst að senda það efni á
netfangið; ritstj@mbl.is
MENNINGARNOTT
í FIMMTA SINN
Menningarnótt í miðborg Reykjavíkur er
haldin í dag, laugardag, og munu söfn, gallerí,
kirkjur, verslanir, veitingastaðir, bankar og
önnur fyrirtæki í miðborginni hafa opið fram
eftir kvöldi og bjóða upp á fjölbreytta dag-
skrá. Þetta er í fimmta sinn sem menningar-
nótt er haldin í Reykjavík.
Dagskráin hefst kl. 12 á hádegi á því að
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri set-
ur menningamóttina og Reykjavíkurmaraþon
í Lækjargötu. Yfir daginn verða svo margvís-
legar uppákomur, upplestrar, gamanmál,
dans, lifandi tónlist og myndlistarsýningar
auk þess sem Reykjavík menningarborg
Evrópu árið 2000 mun leggja til ýmis
skemmtiatriði víðs vegar um miðborgina.
Húsavík er að þessu sinni gestabær Reykja-
víkurborgar og kl. 15.15 mun borgarstjóri
opna menningardagskrá bæjarins í Ráðhús-
inu. Kl. 16 munu „2000 bömin“ koma saman í
túni Menntaskólans í Reykjavík og syngja
Þúsaldarljóð. í Hallgrímskirkju verður blönd-
uð tónlistardagskrá sem hefst kl. 20, í Dómk-
irkjunni er tónlist og leiklist frá kl. 22 og hið
nýopnaða Borgarbókasafn í Grófarhúsinu
býður upp á fjölbreytta upplestra og tónlist-
ardagskrá frá kl. 15-22. í bönkum miðborgar-
innar verður dagskrá fyrir alla aldurshópa,
allt frá trúðum til djazztríóa. Harmonikkuball
hefst kl. 21.30 á útitaflinu við Lækjargötu. Við
Hafnarbakkann munu Stórsveit Reykjavíkur
og Ragnhildur Gísladóttir undir stjóm
Sæbjöms Jónssonar halda tónleika sem hefj-
ast kl. 22.45 og kl. 23.30 mun Orkuveita
Reykjavíkur bjóða upp á flugeldasýningu við
Reykjavíkurhöfn. Á miðnætti verða tónleikar
Möggu Stinu og hr.inga.r í Hlaðvarpanum og
á sama tíma dansa vatnameyjar í Reykjavík-
urtjöm.
Með Morgunblaðinu í gær, föstudag, fylgdi
fjögurra síðna sérblað með dagskrá Menning-
arnætur í Reykjavík.
TEKKNESKUR ORGELLEIK-
ARI í HALLGRlMSKIRKJU
TÉKKNESKI orgelleikarinn Jaroslav Túma
leikur á hádegistónleikunum í Hallgrímskirkju
í dag, kl. 12, og hann er fulltrúi menningar-
borgarinnar Prag á tónleikum Sumarkvölds
við orgelið annað kvöld, sunnudagskvöld, kl.
20. Tónleikamir em á dagskrá Reykjavíkur
menningarborgar Evrópu árið 2000 og em hin-
ir áttundu og næstsíðustu í tónleikaröðinni.
Á efnisskrá hádegistónleikanna em þrjú
verk. Fyrst leikur Jaroslav Túma hina þekktu
Passacaglíu í d-moll eftir J.S. Baeh og hin
verkin em tékknesk; Konsertfantasía úr Vys-
ehrad (Heimalandið mitt eftir Smetana) sem
Josef Klicka skrifaði og Postludium úr Glacoli-
tísku messunni eftir Leoc Janácek.
Sunnudagstónleikarnir hefjast á Prelúdíu
og fúgu í C-dúr eftir J.S. Bach en eftir hana er
efnisskráin tileinkuð tékkneskri orgeltónlist
og hafa flest verkin ekki heyrst hér á íslandi
áður.
Fyrsta verkið er Fantasía í d-moll eftir Jan
Krtitel Kuchar.
Næsta verkið, svítan Hanakische Tánze, er
til í handriti í safni í Briinn. Það var líklega rit-
að á 18. öld, upphaflega fyrir klavíkord, en ekki
er vitað hver gerði það. Á eftir þessu leikur
hann síðan spuna yfir gefið tónstef.
Bedrich Janácek lærði orgelleik í tónlistar-
háskólanum í heimaborg sinni, Prag hjá B.A.
Wiedermann. Hann varð kennari við sama
skóla að loknu prófi árið 1946 en fluttist til Sví-
þjóðar árið 1948 og býr þar enn. Hann stund-
Tékkneski orgelleikarinn Jároslav Túma.
aði orgelleik í Lundi og ferðaðist mikið til tón-
leikahalds, bæði um Evrópu og Ameríku.
Hann byrjaði að semja orgelverk 37 ára gam-
all. Meðal verka hans em fjölmargir sálmfor-
leikir. Eftir hann heyra tónleikagestir tvo
þeirra við sænsku sálmana Se, vi gá upp till
Jerusalem og Min sjál, du máste nu glömma.
Síðasta verk tónleikanna og jafnframt hið
nýjasta er Hommage a Dietrich Buxtehude
eftir Petr Eben. Aðgangseyrir er 1.000 kr.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Árbæjarsafn: Saga Reykjavíkur.
Árnastofnun, Amagarði: Handrita-
sýning. Sýningin verður opin til 31.
ájgúst frá kl. 13-17 alla daga.
Asmundarsafn: Verk í eigu safnsins.
Sýning á verkum Ásmundar Sveins-
sonar. Til 1. nóv.
Byggðasafn Hafnarfjarðar:
Vaxmyndasýning. Til 30. sept.
Gallerí Reykjavík: Þiðrik Hansson.
Til 28. ág.
Gerðarsafn: Verk Sigfúsar Halldórs-
sonar. Sex þýskir grafíklistamenn. Til
17. sept.
Hafnarborg: Smáverk úr íslenskri
hör. Akvarell ísland. Til 28. ág.
Hallgrímskirkja: Karólína Lámsdótt-
ir. Til 1. sept. Sigrún Jónsdóttir. Til 4.
sept.
18, Ingólfsstræti 8: Anne Katrine Dol-
ven. Til 10. nóv.
Kjarvalsstaðir: Austursalur: Jóhannes
S. Kjarval. Myndir úr Kjarvalssafni.
Islensk og alþjóðleg myndlist. Til 8.
okt.
Listasafn Akureyrar: Dyggðirnar sjö.
Til 27. ág.
Listasafn ASÍ: Kristín Geirsdóttir og
Ása Ólafsdóttir. Til 30. ág.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið alla
daga, nema mánudga, kl. 14-17.
Höggmyndagarðurinn opinn alla daga.
Listasafn Háskóla íslands: Málverk
frá Mars. Til 28. ág.
Listasafn Islands: Sumarsýning úr
eigu safnsins. Til 27. ág.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús-
inu: Gestur Þorgrímsson og Rax
Rinnekangas. Til 27. ág.
Listasafn Sigurjóns ÓIafssonar: Valin
verk eftir Sigurjón Ólafsson.
Listaskálinn í Hveragerði: Jóhanna
Bogadóttir. Til 10. sept.
Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg: 40
málmlistamenn. Til 30. ág.
Mokkakaffi: Helga Óskarsdóttir. Til
11. sep.
Norræna húsið: Edward Fuglo. Til 17.
sept.
Nýiistasafnið: Grasrót 2000. Til 3.
sept.
Pakkhúsið Höfn í Hornafirði: Inga
Sigga Ragnarsdóttir, Felicitas Ger-
stner og Jockel Heenes, Inga Jóns-
dóttir. Til 3. sept.
Safnasafnið, Svalbarðsströnd: Ragnar
Bjarnason, Haraldur Sigurðsson,
Valdimar Bjarnfreðsson, Svava Skúla-
dóttir, Egill Ólafur Guðmundsson og
Guðjón R. Sigurðss. Til 29. ág.
Sjóminjasafn íslands, Vesturgötu 8,
Hafnarf.: Jón Gunnarsson. Til 1. sept.
Skaftfell, Seyðisfirði: Olaf Christop-
her Jensen. Til 17. septv
Þjóðarbókhlaða: Verk Ástu Sigurðar-
dóttur. Til 31. ág.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Laugardagur
Hafnarborg: Sinfóníuhljómsveit
æskufólks frá Þýskalandi. Kl. 20.
Hallgrímskirkja: Tékkneski orgelleik-
arinn Jaroslav Túma. Kl. 12.
Sunnudagur
Tékkneski orgelleikarinn Jaroslav
Túma. Kl. 20.
Reykholtskirkja, Borgarfirði: Sinfón-
íuhljómsveit æskufólks frá Þýska-
landi. Kl. 21.
Mánudagur
Langholtskirkja: Sinfóníuhljómsveit
æskufólks. Kl. 20.
Fimmtudagur
Norræna húsið: Bergensemble. Kl. 22.
Langholtskirkja: Söngtónleikar. Jón-
as Guðmundsson, Kristín R. Sigurðar-
dóttir, Nanna María Cortes. Ólafur
Vignir Albertsson píanó. Kl. 20.
Iðnó: Steven Hubbac slagverksleikari.
Kl. 22.
LEIKLIST
Loftkastalinn: Thriller, fös. 25. ág.
Iðnó: Jón Gnarr, fös. 25. ág.
Tjarnarbíö: Með fullri reisn, fös. 25.
ág.
Upplýsingar um listviðburði sem ósk-
að er eftir að birtar verði í þessum
dálki verða að hafa borist bréflega eða
í tölvupósti fyrir kl. 16 á miðvikudög-
um merktar: Morgunblaðið, menning/
listir, Kringlunni 1, 103 Rvík. Mynds-
endir: 5691222. Netfang: menning-
@mbl.is.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 19. ÁGÚST 2000