Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.2000, Qupperneq 3

Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.2000, Qupperneq 3
LESISÓK >H>l!(,l \ISI \I)SI\S ~ MENNING IISIII! 45, TÖLUBLAÐ - 75. ÁRGANGUR EFNI William Heinesen höfuðskáld Færeyinga og eitt af mestu skáldum Norðurlanda á öldinni hefði orðið 100 ára á þessu ári. Til að minnast þess er birt viðtal sem Hólmfríður Gunnarsdóttir átti við hann 1962, en auk þess er brugðið upp nokkrum verkum myndlistarmannsins Heinesens. Heima í Færeyjum var hann jafnvel enn þekktari sem slíkur. Nýsköpun við Potsdamer Platz er heiti á 2. grein Gísla Sigurðssonar frá Berlín. Hann lítur á það miðborgarsvæði sem nýlega hefur verið byggt og vakið hefur mikla athygli vegna þess að ýmsir kunnustu arkitektar heimsins voru til kallaðir. Liberace var skemmtikraftur af guðs náð fyrr á öld- inni í Ameríku, sonur fátækra innflytjenda og amerfski draumurinn holdi klæddur. Hann þróaði sambland af klassískri tónlist og dægurtónlist af stakri snilld í 50 ár, seg- ir Dagný Kristjánsdóttir bókmennta- fræðingur í fyrri grein sinni um hann. A.R.E.A. 2000 er heiti sýningar á verkum listamanna frá Suður-Afríku, sem verður opnuð á Kjar- valsstöðum í dag. Þar eru annars vegar verk 20 listamanna og hins vegar verk, sem 29 manns lögðu hönd að. FORSÍÐUMYNDIN Á forsíðu Lesbókar er mólverk austurrískq listamannsins Gustav Klimt af Adele Bloch-Bauer, en í Lesbók f jallar Bragi Ásgeirsson um listamanninn. r KARLISFELD HANDAN JÖKLA BROT Dreymir mig löngum dalinn handan jökla, daggstimda morgna, hvítra fossa róm, fífil í varpa, fjólu í grænum slakka, freknótta telpu á bryddum sauðskinnsskóm. Vallgresisangan, ilm frá reynistóði, elfarnið þungan, hrossagauksins þyt, grávúðishólma, gæsarungann smáa, grundina sléttu, silungsvatna glit Sporðfiman lax og sprækan lækjarsilung, sprettharða bleikju á veiðimannsins stöng, ásana brúnu, engjaflákann vota, andvarann svala, maijátlunnar söng. Bláhvelfdan himin, blóm í ijallageira, blikfagra sól og dreifðan töðuflekk, suðandi æmar, eyrarrós í haga, angandi reyrinn, lambajarm á stekk. Bergvatnsins gljáa, birkilaufíð græna, biikandi rönd af lygnum, fjörrum sæ, rislágar burstir rétt við fljótsinsbakka, reykinn, sem liðast upp frá tyrfðum bæ. Karl ísfeld (Nielsson) fæddist ó Sandi í Aðaldal, syshjrsonur Guðmundar skólds Friðjónssonar. Ólst upp í Þingeyjarsýslu og Eyjafirði, var blaðamaður í Reykjavík, ritstjóri Sunnudagsblaðs Alþýðublaðsins. Ljóðabók hans, Svart- ar morgunfrór, kom út 1946 og sama ór fékk hann fyrstur blaðamanna móðurmólsverðlaun kennd við Björn Jónsson í ísafold. Þekktastur hefur hann þó orðið fyrir þýðingar sínar ó Kalevala-kvæðabólkinum. Karl ísfeld lést 1900. MANNFJÖLDI OG MANNVAL RABB ENN gera því stund- um skóna að smá- þjóð geti ektó eign- ast afburða listamann oftar en á nokkur hundruð ára fresti. Þegar litið er til sögunnar er nær- tækt að benda á, að fjórar aldir hafí liðið frá höfundi Njálu til Hallgríms Pétursson- ar; frá honum hafí liðið hátt í tvær aldir til Jónasar Hallgrímssonar og að nærri öld hafi verið milli Jónasar og Halldórs Lax- ness. Af þessu má ráða að tíminn milli af- burðaskálda styttist með vaxandi mann- fjölda. Tölfræðin segir ugglaust að svo sé, en náttúran er vís með að hafa tölfræði að engu. Eins víst er að hópur afburðamanna á mörgum sviðum lista gæti fæðst og lifað á sama tíma og síðan gæti hugsanlega komið langt, magurt skeið. Fylkingar skálda og myndlistarmanna voru með ólíkindum sterkar þegar lýðveld- ið var stofnað 1944. Þjóðin taldi þá liðlega 127 þúsund sálir og samkvæmt tölfræðinni ætti það varla að duga til þess að eiga einn afburða listamann. Lítum fyrst á skáldin. Engin smá fylking þar í blóma lífsins; flest þeirra búin að kveða sér rækilega hljóðs og áttu mikið óort og óskrifað. Þórbergur var 55 ára þetta merkisár og nýlega búinn að gefa út Eddu sína. Jafn- gamall honum var Gunnar Gunnarsson, al- kominn heim til íslands og nýbúinn að senda frá sér Fjallkirkjuna. Davíð vantaði eitt ár uppá fimmtugt, „þjóðskáld“ í huga landsmanna og höfundur sex ljóðabóka, en fjórar voru ókomnar. Guðmundur G. Haga- lín var 46 ára og hafði næst á undan sent frá sér Sögu Eldeyjar Hjalta. Næstur í aldri er Jóhannes úr Kötlum, 45 ára, og staddur í miðju höfundarverki sínu. Jafn- aldri hans var Jón Helgason prófessor í Höfn og liðin fimm ár frá útkomu þeirrar einu ljóðabókar sem hann sendi frá sér. Borgarskáldið Tómas Guðmundsson var 43 ára og hafði þá fyrir fjórum árum sent frá sér Stjörnur vorsins. Jafnaldri hans, Krist- mann Guðmundsson var mikilvirkur höf- undur og hafði þá nýlega lokið við Gyðjuna og uxann. Verðandi Nóbelsskáld, Halldór Kiljan Laxness var 42 ára lýðveldisárið og hálfn- aður með eitt af stói-verkum sínum, Is- landsklukkuna; hann skrifaði Hið ljósa man þetta ár. Frændi hans, Guðmundur Böðvarsson á Kirkjubóli, var fertugur og sendi frá sér ljóðabókina Undir óttunnar himni á merkisárinu. Þá komu einnig út Kvæði Snorra Hjartarsonar, sem var að- eins 38 ára. Enn yngri var Steinn Steinarr, 36 ára, og kominn á beinu brautina; Tíminn og vatnið varð næsta bók hans. Meðal þeirra ungu á skáldabekk var Ólafur Jó- hann Sigurðsson, 26 ára, og átti megnið af sínu höfundarverki óunnið. Myndlistarmenn gátu líka stillt upp sterkri fylkingu við lýðveldistökuna. Al- dursforsetinn, Einar Jónsson myndhöggv- ari, gat þá litið yfir megnið af lífsverki sínu, en átti áratug eftir og vann að trúarlegum viðfangsefnum. Næstur honum að aldri var Ásgrímur Jónsson, þá 68 ára, og engin elli- mörk á karli; hann vann þá að sínum lit- sterku Húsafellsmyndum. Jón Stefánsson var innilokaður í Danmörku vegna hern- ámsins og málaði einmitt þessi árin súmar af sínum þekktu landslagsmyndum frá Is- landi. Jóhannes Kjarval vantaði ár uppá sex- tugt; hafði aldrei verið betri og átti jafnvel eftir magnaðasta tímabilið á ferli sínum. Kristín Jónsdóttir var 56 ára og á þessu árabili málaði hún eftirminnilegar upp- stillingar. Júlíana Sveinsdóttir var árinu yngri; hún bjó og starfaði í Danniörku, en viðfangsefnin voru oft íslenzk. Asmundur Sveinsson var 51 árs; vann eins og berserk- ur og eftir lýðveldisárið liggur meistara- verk hans, Helreiðin. Gunnlaugur Scheving stóð á fertugu, þá búsettur í Grindavík og hafði verið að mála Grindavíkurmyndimar. Þorvaldur Skúlason var 38 ára og hafði átt afar sterkt tímabil, og vann þetta ár að frá- bærum teikningum í Brennunjálssögu sem Ragnar í Smára gaf út árið eftir. Ari yngri var Jóhann Briem, sem hafði stundað listn- ám í Þýzkalandi og var í traustum tengsl- um við land og menningu. Jón Engilberts var 36 ára og hafði komið heim frá Dan- mörku 1940 og frá þessu tímabili er eitt al- bezta verk hans, Heimþrá. Jafnaldri hans, Sigurjón Ólafsson, var aftur á móti öll stríðsárin úti í Danmörku; talinn þar í hópi framsæknustu listamanna. Svavar Guðna- son var líka í Danmörku, þá 35 ára og var að vinna í „fúgustílnum" sem Halldór Kilj- an Laxness, vinur hans, nefndi svo. Barb- ara Arnason var 33 ára og hafði þá aðeins búið á Islandi í sjö ár en þegar búin að vekja athygli. Nína Ti-yggvadóttir var 31 árs lýðveldisárið, og þá búin að mála frá- bær portret af Halldóri Kiljan og Steini, en tæpast hægt að segja að hún hafí þá verið orðin þekkt og það á einnig við Louísu Matthíasdóttur, sem var aðeins 27 ára. Varla mun ofsagt að Páll ísólfsson, sem hafði eitt ár um fimmtugt, hafi verið megin- burðarsúlan í íslenzku tónlistarlífi um þetta leyti sem organisti, kórstjóri og tónskáld. Annar risi í tónlistinni, sem landsmenn þekktu þá minna til, var Jón Leifs, þá 45 ára og hafði dvalið langdvölum úti í Þýzka- landi. Langur tími leið unz verk hans voru metin að verðleikum. í byggingarlistinni var líka mikið á döf- inni lýðveldisárið. Einar Sveinsson arki- tekt, 44 ára, hafði þá teiknað Melaskólann. Ágúst Pálsson, 51 árs, vann við að teikna Neskirkju, en við teikniborð Sigurðar Guð- mundssonar, sem var að verða sextugur, tók Þjóðminjasafnið á sig mynd. Guðjón Samúelsson hafði að vanda mörg járn í eld- inum. Hann var 57 ára lýðveldisárið; Há- skólinn risinn og Þjóðleikhúsið komið upp, en var því miður í herleiðingu og nýttist leitóistinni ekki fyrr en 1950. Að sjálfsögu er þetta enginn tæmandi listi; margir mæt- ir listamenn ótaldir. „Af þessu máttu sál mín sjá“, hefði Hall- grímur Pétursson sagt, að mannfjöldinn í landinu, sem hefur meira en tvöfaldazt síð- an 1944, dugar ekki einn og sér til þess að afurðir listarinnar batni að sama skapi. GÍSLI SIGURÐSSON LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 18. NÓVEMBER 2000 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.