Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.2000, Page 8

Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.2000, Page 8
Smárakvartettinn í Nýja bíói 20. des. 1944. Fremri röðf.v.: Jón Þórarinsson söngstjóri ogÁskeli Jónsson undirleikari. Aftari röð f.v.: Jóhann Konráðsson, Jón Bergdal, Gústaf B. Jónasson og Magnús Sigurjónsson. + Smárakvartettinn í Gamla bfói í Reykjavík 1955. Við píanóið er Jakob Tryggvason, söngstjóri og undirleikari. Standandi f.v.: Jóhann Konráðsson, Jósteinn Konráðsson, Gústaf B. Jónasson og Magnús Sigurjónsson. SMÁRAKVARTETTINN á Ak- ureyri hefur nú enn á ný vaknað til lífsins, að þessu sinni á geisladiski sem kemur út um þessar mundir og geymir 26 lög er fjórmenn- ingarnir sungu inn á band á árunum 1954-66. Nánast fár- ánleg bjartsýni og fádæma heppni liggur að baki þessari útgáfu sem sést best á því að 17 laganna hafa aldrei fyrr komið á markað og eru þó tekin upp fyrir nokkrum ára- tugum. Mennirnir á bak við goðsögnina Eins og nafnið, Smárakvartettinn, gefur til kynna voru þeir fjórir söngfélagarnir sem í nóvember 1936 stofnuðu kvartettinn; Sverrir Magnússon, Jón Guðjónsson, Magn- ús Sigurjónsson og Gústav Jónasson. Stjómandi var Jón Þórarinsson. Til að gera langa sögu stutta þá hætti kvartettinn um stundarsakir 1940 en var endurvakinn árið eftir með nýjum tenórum, Jóhanni Konráðssyni og Jóni Bergdal. Þrettán árum síðar féll Jón frá langt um aldur fram og slóst þá Jósteinn Konráðsson, bróðir Jóhanns, í hópinn en bassarnir tveir, Magnús og Gústav, létu engan bilbug á sér finna og sungu með Smárakvartettinum í þrjá áratugi eða svo lengi sem hann lifði. Og það eru þessir fjórir, Jóhann, Jósteinn, Magnús og Gústav, sem eiga raddirnar á nýja geisladiskinum en stjómandi er hinn kunni orgelleikari Akureyrarkirkju, Jakob j Tryggvason, en hann spilaði undir söng þeirra félaga frá 1953 til ársins 1966 að þeir létu gott heita og Jarðsungu" Smárakvart- ettinn með ævintýralegu tónleikahaldi á Vestfjörðum. „Ég er laglaus" Maðurinn á bak við endurreisn Smára- kvartettsins heitir Egill Örn Arnarson, lag- laus tölvukennari (að eigin sögn) við Valsár- skóla á Svalbarðsströnd við Eyjafjörð. En hvernig skyldi áhugi hans hafa vaknað á Smárakvartettinum? „Tengdafaðir minn er Bolli Gústavsson vígslubiskup en faðir hans var Gústav, ann- ar bassanna tveggja sem sungu með kvart- ettinum alla tíð. I fyrrasumar var ég stadd- ur á Hólum hjá tengdaföður mínum sem dró þá upp gamla plötu, 33 snúninga, sem Fálk- inn gaf út 1973. Á annarri hliðinni var söng- ur MA-félaga en á hinni níu lög með Smára- kvartettinum og er skemmst frá því að segja að ég heillaðist upp úr skónum af söng afa konu minnar og félaga hans þriggja. Áhugi minn var svo sannarlega vakinn. Ég ákvað að gleðja tengdaföður minn og leita uppi fleiri Iög með kvartettinum sem kunnugir töldu reyndar vonlaust verk. Svo hófst leitin og uppskeran varð framar öllum vonum, 26 perlur. Ótrúleg heppni hefur hvílt yfir þessari leit og hjálp manna eins og Magnúsar Hjálmar- ssonar hjá útvarpinu verið ómetanleg. Sem dæmi get ég sagt frá því að einhverju sinni ræddi Magnús málin yfir kaffibolla við fé- laga sinn hjá útvarpinu og var að segja hon- E R SVO MARGT" MINNINGARUTGAFA SMARA- KVARTETTSINS Á AKUREYRI SM ARAK V ARTETTINN Söngskrá Smárakvartettsins frá tónleikum f des. 1944. í kvartettinum voru þá Jóhann Kon- ráðsson, Jón Bergsson, Gústaf B. Jónsson og Magnús Sigurjónsson. Smárakvartettinn 1937. Fremri röð f.v.: Sverrir Magnússon, Jón Þórarinsson söngstjóri og Magnús Sigurjónsson. Efri röð f.v.: Jón G. Guðjónsson og Gústaf B. Jónasson. Söngur I fíúi n Akurtyri 1044 /I ösiiMhirmenti: JÖN ÞÖRAIUNSSON og ÁSKEI.I. JÓNSSON JÓUANN KONIIÁftSSON JnS BKRGTiAL fifSTAV U. JÓNASSON M \CMÖS .Sfr.l;RJÓNS«ON fm ^TERSy°MARGr' SMÁmwmrkMí Minníngar- útgáfa Smára- kvartettsins, „Það er svo margt", geisla- diskur, askja og 28 blaðsíðna bók, kom út 16. nóv. um að líklega myndu ekki finnast fleiri upp- tökur með söng Smárakvartettsins. Þær hefðu þó verið til, en vísast búið að farga þeim eða þær lægju rykfallnar í hulduhorni. Stuttu síðar á kaffifélaginn leið niður í geymslu útvarpshússins þar sem hann í myrkrinu dettur um kassa á gólfinu. Bölv- andi fálmar hann eftir rofanum, ljósið kviknar og þá blasir við honum á kassalok- inu nafnið: Smárakvartettinn á Akureyri. Og viti menn, þarna voru þá komnar litlar 78 snúninga plötur frá 1945, úr örþunnu járni og gúmmíhúðaðar, og geymdu níu lög frá þeim tíma er Jón Bergdal var enn í fullu fjöri. Þrátt fyrir að plöturnar hefðu ekki staðist tímans tönn, enda lítið til þeirra vandað í upphafi og ekki gert ráð fyrir að þær þyldu nema kannski fjórar spilanir eða svo, var engu síður skemmtilegt og upp- lífgandi að finna þær. Þannig hefur þetta gengið og víða verið komið við. Þegar spurðist út hvað ég hefði fyrir stafni hefur síminn varla þagnað hjá mér og menn ýmist verið að segja mér frá Smárakvartettinum eða panta hjá mér lögin sem er nú ástæða þess að tengdafaðir minn fær ekki einn að njóta uppskeru leitarinnar. Sannleikurinn er sá að margur popparinn mætti vel við una ef hann, 34 árum eftir starfslok sín, gæti fagnað þeim vinsældum sem Smárakvartettinn virðist njóta enn þann dag í dag.“ Arfleifðin Það er ekki einföld geisladiskaútgáfa sem Egill Örn hefur ráðist í, síður en svo. Disk- urinn er geymdur í öskju sem líkist í engu þeirri sem kennd er við Pandoru, þvert á móti. Upp úr þessari öskju kemur aðeins gleði; söngur félaganna í Smárakvartettin- um, textar allra 26 laganna og ritsmíð Bolla Gústavssonar um kvartettinn en allt þetta efni er í 28 blaðsíðna bók er fylgir með. Einnig hefur verið stofnaður sjóður í tengslum við útgáfuna, Minningarsjóður Smárakvartettsins á Akureyri, og er honum ætlað að styrkja efnilega söngnemendur Tónlistarskólans á Akureyri. Þá er búið að opna heimasíðu fyrir kvartettinn á verald- arvefnum (www.nett.is/smarinn) og unnið er að heimildarkvikmynd um hann sem fyrir- hugað er að sýna í sjónvarpi í næsta mán- uði. „Þetta allt hefði að sjálfsögðu ekki gengið nema fyrir hjálp góðra manna,“ segir Egill Örn. „Fjölmargir hafa hlaupið undir bagga og styrkt okkur. Það sem mér finnst þó hvað skemmtilegast við þetta allt er að minning fjórmenninganna skuli enn vera svo sterk í hugum manna sem raun ber vitni og að þeir skuli út yfir gröf og dauða verða til þess að efnilegir söngvarar fái tækifæri til að menntast, jafnvel á erlendri grund. Það hefði þeim sjálfum þótt frábært, um það er ég handviss.“ Höfundurinn er sagnfræðingur. 8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 18. NÓVEMBER 2000 r

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.