Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.2000, Síða 10
fssKítlg;'i;íB*i
1 .. - V"
• 1 ' »
\
\
IIBBM
itSfiiiiasifpi
Við Potsdamer Platz: Debis-byggingin, sem arkitektinn Renzo Piano hannaði, og áfast við hana hægra megin: skrifstofuhús eftir annan frægan arkitekt, Arata Isozaki.
NÝSKÖPUN VIÐ
POTSDAMER PLATZ
BERLÍN BLÓMSTRAR
AÐ NÝJU - II
EFTIR GÍSLA SIGURÐSSON
Potsdamer Platz er eins og sýningargluggi f/rir
stjörnuarkitekta. Hæðinni er haldið í skefjum, engg
skýjakljúfg, takk, sögðu borgarfeður, en heildarsvip-
urinn er í kaldara lagi. Það er hér sem ýmis stórfyrir-
tæki heimsins hafa hreiðrað um sig.
EINHVER mesta uppbygging í
nokkurri miðborg í heiminum
hefur á undanförnum árum átt
sér stað við Potsdamer Platz í
Berlín. Það er sunnan við
Tiergarten og kemur spánskt
fyrir sjónir að annar eins mið-
borgarkjami skuli ekki vera
byggður nær og í betri tengslum við gamla
miðhlutann austan við Brandenborgarhlið.
Að vísu er þarna sögulega merkilegur staður;
Potsdamer Platz var fyrr meir iðandi af lífi,
jafnvel fjölfarnasta torg borgarinnar. Allt var
það jafnað við jörðu með sprengjuregni í
stríðinu og síðar setti Berlínamiúrinn sinn
nöturlega svip á svæðið, svo og eyðisvæðið
umhverfis hann.
A sínum tíma var uin það rætt að skipu-
lagsyfirvöld í Berlín settu arkitektum um of
stólinn fyrir dyrnar og segðu: Nei takk, enga
skýjakljúfa hér. Berlín átti að byggja upp á
gamla og góða evrópska vísu, þétt og ekki
ýkja hátt. Ýmsir háværir gagnrýnendur
sögðu að forskriftin væri 19. aldar stíll. Og
Daimler City næst á myndinni til hægri, en Sony Center til vinstri. Trjágróður setur svip sinn
á þetta umhverfi eíns og nánast alls staðar í Berlín.
1 O LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 18. NÓVEMBER 2000
4