Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.2000, Page 11
Torg með tjaldhimni í Sony Center, glæsileg hönnun eftir þýzka arkitektinn Helmut Jahn.
Tilkomumikill staður í heitu veðri, en verður nöturlegur i kulda.
Menningarhöllin, Haus der Kuituren der Welt, þóttl afar sérkennilegt hús þegar hún var byggð »
1957 og fékk ýmis viðurnefni, þar á meðal „Vanfæra ostran" Gallar í burðarvirkjum leiddu til
þess að þakið féll niður 1980 og fórust þar nokkrir menn. Arkitekt: H. Stubbins.
Sérkennilegt hús í „teknó“-stíl er Sýninga- og ráðstefnuhöllin ICC (International Congress Cent-
er), byggð á árunum 1973-79 í Vestur-Berlín.
Hljómleikahöll Berlinarfílharmoníunnar, sem þýzki arkitektinn Hans Scharoun hannaði. Eitt fegursta hús Berlínar, rúmlega 40 ára gamalt.
hvernig er svo útkoman? Um það eru ugg-
laust skiptar skoðanir, en óhætt er að segja
að hún er í hæsta máta nútímaleg; einskonar
sýningargluggi fyrir arkitektúr á aldamótun-
um 2000 og dæmi um hvernig til tekst þegar
engu er til sparað.
Hvar er hugmyndaflugið?
„Was fehlt, sind zeit und Phantasie", sagði
þýzka listatímaritið art- das kunstmagazin.
Of skammur tími, of lítil fantasía, eða hug-
myndaflug. Undir það er hægt að taka, að
mun meira hugmyndaflug og frumleiki er til
að mynda í byggingum Pranks 0. Gehrys,
sem að vísu hefur lítillega tekið þátt í upp-
byggingu Berlínar, en ekki við Potsdamer
Platz. Þessar byggingar bera þess nokkuð
merki, að allstrangar skorður hafi verið sett-
ar og að mottóið hafi verið; Engan fíflagang
hér; Berlín á að vera virðuleg höfuðborg í
evrópskum anda.
Tilsýndar vekur Debis-byggingin mesta at-
hygli; hún hefur af einhverjum ástæðum
fengið að rísa hærra en hinar; er 100 m há, en
ekki frumlegri en gengur og gerist, enda þótt
höfundurinn sé Renzo Piano, annar af höf-
undum Pompidou-listamiðstöðvarinnar í Par-
ís. Þetta hús er óður til reglustikunnar og
hinna hvössu lína, ekkert til að mýkja ásýnd-
ina annað en tjarnir umhverfis, sem milda
hana agnarögn.
Það sem vel hefur tekizt sumstaðar við
Potsdamer Platz er samspil lita og forma;
gulbrúnar óg brúnar steinflísar utan á háum,
bogadregnum veggjum kallast á við kaldari
efni í húsum sem enda í svo hvassbrýndum
hornum að maður gæti líklega rakað sig á
þeim
Undir tjaidhimni Sony
í Daimler City eru aðalstöðvar Mercedes
Benz og hafa frægðarmenn eins og Arata Is-
ozaki, Hans Kollhoff og Richard Rogers kom-
ið að hönnuninni. Þarna slær örugglega hið
þýzka hjarta þó að betra þyki að hafa nafnið á
ensku. Ennþá fyrirferðarmeiri er þó húsa-
samstæða Sony. Á bak við hana er líka eitt af
stóru nöfnunum: Helmut Jahn, sem rekur
arkitektafirmað Murphy & Jahn í Chicago. í
miðju hennar er stórt hringtorg, yfirbyggt
með risastórum tjaldhimni. En það er vita-
skuld ekki tjald, heldur eitthvert sterkara
efni. Af hringtorginu er farið eftir rúllustig-
um upp á efri hæðir, þar sem hægt er að
kynnast sýndarveruleika galdrameistaranna
hjá Sony. Þar eru veitingahús innandyra og
úti á torginu og iðandi mannlíf þegar veðrið
er gott.
Eg kom þar fyrst í nærri 20 stiga hita og
blíðviðri og þá teyguðu menn bjórinn ákaf-
lega við hvert borð á torginu. Þar inni eru tré
sem lífga upp á fremur harðsoðna hönnun og
þann kalda svip sem verður af of miklu stáli
og áli og gleri.
Allt er það viðunandi í góðum hita, jafnvel
tilkomumikið. En ég var þar á ferðinni
nokkrum dögum síðar og þá hafði snarkóln-
að. Enginn sat lengur við borðin á torginu,
því opið er út á milli húsanna og trekkurinn
lék lausum hala. í þessari Höll sumarlandsins
var þá heldur trist og kaldur grámi stáls og
áls ennþá hvassari.
Meistaraverk Scharouns
Snertuspöl frá nýja húsaklasanum við
Potsdamer Platz er liðlega 40 ára gamalt hús
sem mörgum finnst að sé fegursta hús Berl-
ínarborgar og býr yfir meiri þokka og list-
rænum tilþrifum en það sem nýrra er. Þetta
er hús Berlínarfílharmóníunnar; konserthús í
svo háum gæðaflokki að það rímar við hljóm-
sveitina, og við hlið þess er Kammermúsík-
húsið í sama stíl. Hvort tveggja er eftir þýzka
arkitektinn Hans Scharoun og má segja að
þessi verk hans beri af flestum stórhýsum
sem risu í borgum heimsins um og fyrir 1960.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 18. NÓVEMBER 2000 1 1