Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.2000, Side 12

Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.2000, Side 12
Málmskúlptúr á miðri breiðgötunni Kurfúrstendamm. Þarna er einn af þremur miðborgarkjörn- um Berlínar, afleiðing þess að borginni var skipt í tvo hluta. Til hægri rís Europa Center, en fyrir miðju rís Minningarkirkjan sundurskotin, nú minningarmark um stríðið. at«S'9«*s **#»«*« »#»»«»» e»*n*i *#»«*»* »»*•«««i »»»««»« »»««**# 3 SSSíÖtí »«»»««» **««««» »««»«•* »« r«»»* «»««»11« •««»«»« ««.**«*« » itftBBI ««<««»« ««»*»•» »«»«»** •«•»«»« »•»«•*« «»«»•»• *««»»-«• Oð«S«»S »»f, ,««■ »*«««■* •««■•«• ■■•«»•• «■■■«■• «&••■£* 8«««R»K **«t»*r« • ■■S8IÍ* «««»'»»» »*■«»»» •••»»»*• *Í*SB88 •»»»•«■ K « R * *s »«*•»«»« »ft*«C»'8 »»»•*•» «■•*•«» *■■«••• ■ »«ti:u»a iitnsi ■■■•»•■ •*»■»«■ «»•■««« 6«»■»*« 889*888 ■■■•««• •••ÉfsWf *t*m ,« «•■•••« ■•*•••« «••••*• *■■**»» *>*«**»; Hfiííí ÍIÍ ***!?»# ;; n: ;::s:55 <»«««•( tliies* *«*•»•« *«?*«■« iimti *>««««« *««»»«« *ueif» *«*»*«« SÍÍJSSS fliíi ÍÍS5;;S «»*•*•* ■ s e # » B f ífwaisft Í»(í#ö « f ,áf tt »st ««SIIR»«g «««»»*» »•«»•■« >SMS»« * » « » $ ,*■ n ■ «!«»« tgfea »»»!*»' savva aasaa Inni í kapellunni við Minningarkirkjuna. Á alla kanta eru veggir með smáskornum rúðum með bláu gleri. Friðsæll staður í stórborginni. Áfast við tónleikahús Berlínarfílharmoníunnar er annað tðnlistarhús i sama stíl, ætlað fyrir flutning á kammermúsík. Það er elnnig hannað af Hans Scharoun. Berlínarfílharmónían státar af því að hafa látið sér duga fímm stjórnendur síðan 1887: von Biilow, Nikisch, Furtwángler, Karajan og Abbado, sem haldið hefur á tónsprotanum í þessum virðulega sal síðan 1989. Fyrir stríð fór mikið orð af Furtwángler, en enginn hef- ur gert garðinn eins frægan og Herbert von Karajan, sem var ímynd fullkomnunar og þjóðsagnapersóna sem átti hallir og flaug með einkaþotu. Kúdamm - sýningargluggi vestursins Þriðji miðborgarhlutinn í Berlín er við glæsigötuna Kurfiirstendamm, en Berlínar- búar stytta nafnið og kalla götuna Kúdamm. Gatan fékk það hlutverk í kalda stríðinu að vera eins konar sýningargluggi þar sem allur heimsins lúxus var fáanlegur og þeirri stöðu heldur hún enn. Þar eru nafntoguð veitinga- hús og þar snúast nýjustu útgáfurnar af Daimler-Chrysier, Benz og BMW á upp- hækkuðum pöllum innan við risastóra glugga, en fínustu verzlanir borgarinnar skarta með nöfn eins og Yves Saint Laurent, Bruno Magli, Aigner og Laura Ashley. Um og fyrir aldamótin 1900 fóru þeir ríku og fínu að draga sig út úr borginni og byggðu sér þá glæsivillur við Kúdamm. A hinum gullna þriðja áratugi, sem stundum er nefnd- ur svo, var Kúdamm kölluð „Nýja Vestrið", þar spruttu þá upp kaffihús, leikhús, nætur- klúbbar og annað sem hefur aðdráttarafl. Sá áratugur var þó ekki yfirmáta gullinn fyrir alþýðu manna, sem varð að láta sér nægja súpudisk frá Armenkuche, fátækraeldhúsi ríkisins, þegar verðbólgan náði þeirri ofur- stærð að menn óku peningaseðlum í hjólbör- um. Það var þó fyrst eftir að Rússar lokuðu samgöngum til Berlínar á landi á árunum 1948-49 og hinni frægu loftbrú var komið á, að Kúdamm varð eins konar hlið eða að- komuleið til hinnar tvískiptu borgar. Litlu síðar, um 1960, reis þar hús í ætt við skýja- kljúf: Europa Center, algerlega barn síns tíma, sálarlaus frystikistustíll. En þetta var ævintýrið sjálft á sínum tíma, því þar voru þær allsnægtir til sýnis og sölu sem ekki fengust austanmegin. Á tali við Krist Það sem eftirminnilegast er við Kúdamm er þó hvorki stórverzlunin Kaufhaus des Vestens né Evrópumiðstöðin, heldur sund- urskotin kirkja: Gedáchtniskirche - Minning- arkirkjan. Hún var byggð til minningar um einhvern keisara sem enginn man lengur hvað hét, en nú stendur hún sem magnað minnismerki um eyðileggingu í styrjöldum. Ekki er nóg með að sprengt hafí verið ofan af turninum heldur er öll þessi rammlega steinkirkja eins og gatasigti eftir sprengjur og skothríð. A sínum tíma var efnt til samkeppni um endurbyggingu kirkjunnar og var sú snjalla lausn valin að láta kirkjuna standa eins og hún var. Aftan við hana er hins vegar fimmstrendur klukkuturn, snöggtum lægri þó en gamla kirkjan, en framan við hana er áttstrend kapella. Gamansamir Berlínarbúar kalla þetta „varalitinn og púðurdósina". Klukkuturninn og kapellan eru alsett smá- um glerrúðum serc bera daufan, bláan lit inn, en í kapellunni er fátt annað en sæti og gam- alt Kristslíkneski. Allmargt fólk sat þar inni; sumir við íhugun eða bara að hvfla sig, aðrir við bænagjörð framan við kertastand. Eftir- minnilegur staður í miðri mannmergðinni og hraðanum á Kúdamm. Framhald í næstu Lesbók. RÓSAINGÓLFSDÓTTIR ÍSLENSKU ÁRSTÍÐIRNAR Þarsem mætast stálin stinn stendur þú styi'kur vetur minn. Vef migyfirhöfn athafna þinna svo von mín væðist krafti, til vors. Oggleðin íklædd sumrinu sveiflíkt og ævintýri minninganna til móts við þig von mín, sem allt skilur. Þegar ég snart hurðarhúninn á húsiþínu, land mitt og opnaði útí vorið, var sem vitund mín fylltist óendanleikan um, þegar allt verður til Ó, þú fagra haust sem vefur sveiga úrlitbrigðum fjölbreytileikans. Megi duiúð þín gefa mér kraft til að fagna því ókomna, er bíður mín. Höfundur er söngkona og lagasmiður, skemmtikraftur, fyrirlesari og auglýsingahönnuður. EVA SÓLAN VETUR Beinaberar kjúkur nístandi kuldans rífa í mig Sá næturfrosti í sál minni. Skýin hrannast upp. Nóttin umlykur mig, slekkur ljósið í hjarta mínu. Köld norðurljósin leika lausum hala og ég finn hvernig örvar stjarnanna stingast í mig. Þokan þéttist, leggst yfir augu mín og líf mitt. HVAÐ MEÐ ÞIG? Þegar veröldin er orðin að eyðimörk myrkurs og skelfingar munu reiði og örvænting ráfa um götumar í leit að fómarlömbum. Verður þú eitt þeirra. Því felurðu þig bak við tjöldin meðan sakleysið þjáist og syrgir. Horfðu ekki aðgerðalaus á endalaust, einn daginn verður það um seinan. Stríð, sprengjur, hatur, fordómar ógna lífi annarra, - en þínu. Þú ert ekki undanskilin. Dauðinn bankar á dyr okkar allra. Þegar hatur og dauði em allt um kring hvers virði verður lífið. Þú líka ert fómarlamb. Ur fölsku öryggi, stígðu fram. Höfundurinn er sjónvarpsþula. ÞÓRA BJÖRK BENEDIKTSD MÓÐURÁST Und húmblæju hljóðrar nætur vill hugurinn hvarfla víða. Um það sem ég áður átti og allt var í lífinu blíða. Þú bernska með blauta sokka og brennheita móðurást. Þær stundir koma aldrei aftur Ekki’ er um slíkt að fást. Sú minning um móðurhendur með mjúkar strokur um kinn er dýrmætust allra ásta um alla eilífð ég finn. REGN Regnið á gluggann guðar um grafþögla, myrkvaða nótt. Eg andvaka í húminu hugsa, hugur samt vakir rótt. Vitund mín blundar á verði nú veit ég hvað sækir að mér. Mín hjartfólgna, hugljúfa minning á höndum sér aftur mig ber. Ég sveif á vonanna vængjum ó, vinur, augu þín blá, sem heimsins fegursta hyldýpi ég heilluð fyrir mér sá. Ég vaki enn á verði og veit hvað amar að mér. Ó, leyndarmálið mitt ljúfa lof mér að gleyma þér. Höfundurinn er skóld í Reykjavík. Ljóðin eru úr nýrri Ijóðabók Þóru, Daggardropum, sem jafnframt er önnur Ijóðabók hennar. 1 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 18. NÓVEMBER 2000

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.