Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.2000, Page 13
Bærinn og kirkjan á Stóra-Núpi 1896. Seinna á árinu hrundi þessi bær að miklu leyti í Suðurlandsskjáiftanum. Myndína tók Sigfús Eymundsson.
KRISTINN GÍSLI
MAGNÚSSON
í STRÆTÓ
Hún kom inn
í strætó
áberandi
sexí
Hárhennar varsem
glóandi
hraun
um allar trissur líkamans
Vagnstjórinn varlíka
rauðhærður
ígamla daga
alitaf kallaður:
sætó í strætó
En vel greitt hárið
fauk ogfannst ekki
hjá sætó
sem keyrði strætó
VEÐMÁLIÐ
í FORNÖLD Á
JÖRÐU VAR
FRÆKORNISÁÐ
A
SKÁLHOLTSKIRKJU stendur nú yfir
sýning á teikningum eftir Katrínu Briem
þar sem hún byggir á ljóðlist langafa síns,
sálmaskáldsins Valdimars Briem á Stóra-
Núpi í Gnúpverjahreppi. Sýningin var opnuð
30. sept. sl. og stendur út nóvember og ef til vill
lengur. Tilefnið er að í byrjun september kom
út bók í ritröð guðfræðistofnunar Háskóla ís-
lands og fjallar hún að stórum hluta um Valdi-
mar Briem, prest og vígslubiskup, frá ýmsum
hliðum, þar á meðal trúarskáldið, kennimann-
inn, sveitarhöfðingjann og göfugmennið. Leið-
araritgerð bókarinnar eftir Rósu B. Blöndals
er einnig helguð séra Valdimar. Þar fyrir utan
er í bókinni ritgerð um Valdimar Briem eftir
Sigurbjörn Einarsson biskup og um Davíðs-
sálma séra Valdimars eftir Gunnlaug A. Jónas-
son.
Nokkrar af teikningum Katrínar Briem
prýða bókina. Katrín býr á Stóra-Núpi. Hún er
dóttir Jóhanns Briem listmálara og hefur verið
skólastjóri Myndlistarskólans í Reykjavík.
Hún hefur ekki látið mikið fyrir sér fara á vett-
vangi myndlistarsýninga, en af teikningum
hennar er ljóst að þar heldur þroskaður lista-
maður á teiknipennanum. GS.
Séra Valdimar Briem vígslubiskup við bisk-
upsvtgslu Jóns Helgasonar 1917, skrýddur
biskupskápu Jóns Arasonar.
Teikning eftir Katrínu Briem á sýningunni í Skálholtskirkju: „Grýtta kom ég
loks á strönd“.
Ein af teikningum Katrínar Briem á sýningunni í Skálholti:
„Hér niðrí á láði er lágt og Ijósi fjærri".
Herbergið mitt
er besti vinur minn
vegna stærðar sinnar
í hornafræði
og niðurgreiddrar
húsaleigu
góðu konunnar
sem leigir út frá sér
skellihlæjandi
Mínir peningar
forða henni frá hungri
og taprekstri í góðærinu
Hún er fyrir aftan mig
hvæsandi
á ljóðin
við hverja útborgun
Nú síðast
andvarpaði hún í hálsakot-
ið:
Ég er engin spákona
en legg að veði húsaleiguna
að þetta krafs þitt
fer fljúgandi ki'umpað
í ruslafötu útgefanda
Hún kunni að veðja
á hlaupabraut skáldsins
Höfundurinn er skóld í Reykjavík
og fyrrverandi prentari.
GUÐNÝ SVAVA
STRANDBERG
TREGI
Um djúpbláa nótt
undir bláhvelfdum himni
hvarfiar einmana hugsun
á vængjum innsæis
gegnum eilífð
Höfundur er myndlistarmaður í Reykjavík.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 18. NÓVEMBER 2000 1 3