Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.2000, Side 14

Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.2000, Side 14
Liberace í kunnuglegu hlutverki skemmtikraftsins, hér með sérsmíðað píanó. Liberace í sjónvarpsþætti með kvikmyndaleikaranum Red Skelton. LIBERACE SKEMMTIKRAFTUR AF GUÐS NÁÐ Lee Liberace. EFTIR DAGNÝJU KRISTJÁNSDÓTTUR Píanóleikarinn Liberace var sonur fátækra innflytj- enda en gæddur ríkulegum tónlistargáfum og þróaði sambland af klassískri tónlist og dægurtónlist fyrir fjöldann af stakri snilld í meira en 50 ár. Hann var slíkur skemmtikraftur að hann var stundum nefndur „Mr. Showmanship", enda skorti heldur ekkert á ytri búnað, glys og búninga. ✓ AHVERJUM tónleikum var píanóleikarinn Lee Lib- erace vanur að segja sama brandarann um þá eitruðu gagnrýni sem hann fékk yfxrleitt í blöðunum. Hann sagði: „Mér er alveg sama en George grét alla leiðina í bankann." Herra skemmtanaiðnaður George var stóri bróðir hans, snjall fíðlu- leikari og hljómsveitarstjóri í sýningu Liber- aee. Með umsögninni hér að framan sló Lib- erace margar flugur í einu höggi. Hann sagði áheyrendum að gagnrýni menningarvitanna snerti hann ekki neitt af þvi að hans fremstu skyldur væru við fólkið í salnum, það borgaði honum og George launin og hann gæfi því allt sem í hans valdi stæði í staðinn. Liberaee var ekki að látast þegar hann sagði við áheyrendur að hann elskaði þá og tæki ekki mark á öðrum en þeim. Hann meinti hvert orð. Hann var sonur fátækra innflytjenda og reyndist tónlistargáfum gæddur, píanósnillingur sem braust áfram í lífinu. Hann vildi verða einleikari á píanó og gat orðið það en hann vildi líka þóknast fólki, skemmta þvi og gleðja, og þess vegna þróaði hann upp sambland af klassískri tónlist og dægurtónlist fyrir fjöldann og það gerði hann af snilld. í meira en fimmtíu ár gaf hann allt sem hann gat á hverjum einustu tónleikum og sparaði ekkert til svo að hver einasti tónleika- gestur fengi það sem hann hafði borgað fyrir, afþreyingu og jafnvel eitthvað meira. Libera- ce gerði ófrávíkjanlegar kröfur um fag- mennsku, bæði til sjálfs sín og samstarfs- manna sinna, og varð hæst launaði skemmtikraftur Bandaríkjanna og þar með heimsins fyrr og síðar. Lee Liberace var kallaður Herra skemmt- anaiðnaður - Mr. Showmanship - og var hylltur og dáður. Hann dó sextíu og átta ára gamall, af hjartaáfalli, á heimili sínu í Palm Springs árið 1987 en í Las Vegas stendur Lib- erace-safnið sem við Kristján og Árni skoðuð- um í maí á þessu herrans ári. Þar eru fræg- ustu bílarnir hans og búningarnir og píanóin og kertastjakarnir og þar er að vísu lítið um upplýsingar um goðið en þó er hægt að kaupa alls konar minjagripi og myndbönd og nokkr- ar bækur eins og Líberace í eldhúsinu og Sag- an af hinu undursamlega lífi Liberace, en báð- ar eru eftir hann sjálfan. A hinni opinberu heimasíðu Liberace má lesa ofangreinda sögu eftir Liberace-stofnun- ina - en sú saga er mjög sviplaus og bragð- dauf miðað við veruleikann. Liberace við píanóið í „The Dean Martin Show“, skemmtiþætti sem mikið orð fór af. Pabbi Liberace var stoltur, ungur ítali, einn af innflytjendum í leit að betra lífi í Bandaríkjum Norður-Ameríku. Það sem átti að afla honum auðs og frægðar í nýja heimin- um var hljóðfæraleikur en hann spilaði á franskt hom. Franskt horn var ekki það sem landnemarnir vildu helst hlusta á. Salvatore Liberace gat helst gert sér vonir um vinnu í stórborgum þar sem sinfóníuhljómsveitir eða stærri lúðrasveitir störfuðu. Árið 1910 vann hann að tímabundnu spil- verki í Milwaukee og kynntist þar pólsku inn- flytjendastelpunni Francis Zuchowski. Þau giftu sig og George fæddist árið 1910. í Milwaukee var engin eftirspurn eftir frönsk- um hornum en Francis neitaði að búa í stór- borg og vildi búa nálægt fjölskyldu sinni. Næst fæddist Angeline eða Angie og árið 1919 fæddist Wladziu sem kallaður var Walt- er. Níu árum síðar fæddist Rory, yngsta barnið, undurfagurt en sannarlega ekki kær- komið því að hjónaband foreldranna var löngu komið í vaskinn. Francis púlaði og þrælaði og hið sama gerðu eldri börnin þrjú, en faðirinn harðneit- aði að leggja sig niður við annað en að leika á franskt horn. Það kom fyrir einstöku sinnum þegar verulega harðnaði á dalnum og skamm- ir hinnar pólsku eiginkonu ætluðu allt um koll að keyra að hann kom heim næsta dag með peninga og ráða mátti af líkum að hann hefði unnið sér þá inn í verkamannavinnu en hann hefði aldrei játað slíkt upp á sig. Salvatore lagði áherslu á að börnin lærðu hljóðfæraleik, George átti að spila á píanóið en byijaði á fiðlu áður en hljóðfærið kom. Það kom hins vegar og Angie átti að læra á það þó að áhuginn væri takmarkaður. Litli Wladziu byrjaði að spila eftir eyranu fjögurra ára. Francis sá að þetta uppáhaldsbarn hafði óvenjulega hæfileika og hélt honum við efnið. Það var ekki erfitt því að drengurinn var lagður í einelti í skólanum, þótti stelpulegur og einkennilegur. Píanóið varð hans skjól og vöm og til þess flýði hann. Ævintýri líkast... Allar snillingssögur eiga sína upprunagoð- sögn þar sem snillingurinn er útvalinn, tekinn út úr hópnum og kallaður til síns ætlunar- 1 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 18. NÓVEMBER 2000

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.