Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.2000, Page 19

Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.2000, Page 19
Þorsteinn Pálsson sendiherra opnaði sýninguna. Hann stendur hér á milli Leifs Breiðfjörðs og eiginkonu Leifs, Sigríðar Jóhannsdóttur. Nokkur verkanna á sýningu Leifs Breiðfjörðs í London. LEIFUR SÝNIR GLERVERK í LONDON SÝNING á verkum glerlistamannsins Leifs Breiðfjörð stendur nú yfir í Cochrane Gallery í London og í tengslum við sýninguna hélt hann fyr- irlestra fyrir nemendur listaskólans Central Saint Martins og starf- andi listamenn í boði skólans og gallerísins. „Það var gaman að fá tækifæri til að sýna þarna en ég hef aldrei sýnt í London áður,“ segir Leifur en honum var boðið að koma og sýna glerverk sín í Cochrane-galleríinu. í farteskinu hafði hann tíu steinda glugga. „Þetta eru allt ný verk, flest unnin á þessu ári. Eg vinn alltaf öðru hvoru sýningarverk meðfram pöntunum og fjögur þessara verka eru unnin sérstaklega fyrir gall- eríið,“ heldur hann áfram. Stór glerdeild er við Central Saint Martins-skólann og í galleríinu eru reglulega haldnar sýningar alþjóðlega þekktra glerlistamanna sem eru um leið fengnir til að miðla listnemum af reynslu sinni. „Eg var með þrjá fyrir- lestra í kringum opnunina. Ég hafði tekið með mér mikið af litskyggnum af verkum mínum, vinnuteikningar og annað slíkt og sýndi þeim. Fyrirlestrarn- ir voru vel sóttir og allt var þetta mjög spennandi," segir Leifur. Þorsteinn Pálsson, sendiherra Islands í London, opnaði sýninguna en hún stendur til 6. janúar nk. „Galleríið er á mjög góðum stað miðsvæðis og mikið af gluggum framan á því sem eru ákjósanlegir til þess að sýna í glerverk," segir Leifur og bætir við að verkin njóti sín líka vel þegar dimma tekur á kvöldin því að þá séu gluggarnir fallega lýstir og sýningin því ekki síðri en í dagsbirtu. BOKAUTGAFAN HOLAR /2 HALLDÓR KILJAN LAXNESS, maðurinn á bak við skáldið. Hver var Halldór Kiljan í raun og veru? María; elsta dóttir hans, segir frá stóru ástinni í lífi móður sinnar. Einar Laxness fjallar um foreldra sína og Sigríður, eldri dóttir Halldórs og Auðar, fer á kostum í bráð- skemmtilegri frásögn af föður sínum og heimilislífinu á Gljúfrasteini. Fjölmargir aðrir, vinir og sam- ferðamenn Halldórs, taka einnig til máls og varpa nýju ljósi og stundum óvæntu á manninn Halldór Kiljan Laxness. NÆRMYND AF NÓBELSSKÁLDI, leiftrandi skemmti- leg, áhrifamikil og persónuleg bók um einstæðan mann.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.