Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.2000, Page 20

Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.2000, Page 20
Kammerkór Kópavogs gengst fyrir tónleikauppfærslu ó óperunni Orfeusi og Evridísi eftir Gluck í Salnum annað kvöld kl. 20 og ó sama tíma ó þriðjudag. Stjórnandi erGunnsteinn Ólafsson. ORRI PÁLL ORAAARSSON fékk einsöngvarana þrjó7 Guðrúnu Eddu Gunnarsdóttur, Huldu Björk Garðarsdóttur og Agústu Sigrúnu Agústsdóttur, til fundar við sig. Égkallaávinumína snemma morguns, þegardagurrís. En til einskis! Ástin mín kæra svararmér ekki. RAKVERJINN Orfeus á um sárt að binda. Hann syrgir látna eiginkonu sína, Evridísi. Ákallar ástarguðinn Amor til að vekja hana til lífs. Amor svarar því til að Orfeusi sé heimilt að sækja hana til Hadesar í Hel en megi ekki líta til hennar á leiðinni til baka, þá muni hún á ný deyja. „Þetta er dramatísk saga, heitar tilfmning- ar,“ segir Guðrún Edda Gunnarsdóttir alt- söngkona sem fer með hlutverk Orfeusar í uppfærslu Kammerkórs Kópavogs. „Hann kvíðir ógurlega fyrir ferðinni til Helj- ar. Sér fyrir sér að þetta muni enda með ósköp- um. En ást hans er svo heit að hann hefur ekk- ert val, hann verður að reyna.“ Kýs frekar dauðann Orfeus heldur til Heljar og mætir ýmsum hindrunum, eins og Fúríu-nornunum, en allt víkur úr vegi fyrir honum, er hann syngur og leikur á hörpu. Síðan er honum vísað yfir Ódá- insvelli til Evridísar. Svo sem Amor hefur kveðið á um er Orfeusi W1 bannað að virða sína heittelskuðu viðlits. „Hún skilur ekkert í hegðun hans á þessari gleði- stund. Hann neitar að líta til hennar, þegar hún á þess von að kær elskhugi og ljúfur eigin- maður faðmi hana og kyssi. Segir henni að þegja. Þá kýs hún frekar dauðann en að lifa í návist hans,“ segir Hulda Björk Garðarsdóttir sópransöngkona sem syngur hlutverk Evridís- ar. „Þá getur Orfeus ekki meira. Gefst upp, tap- ar allri skynsemi, gleymir loforðinu og lítur á hana,“ segir Guðrún Edda. Evridís hnígur niður - og deyr. Orfeus er í öngum sínum. Hvað hefur hann gert, blindaður af ást? Hann beinir eggvopni að eigin hjarta. Öll nótt er þó ekki úti. Amor kemur aftur til skjalanna. „Hann sér að Orfeus er harmi sleg- inn, kennir í brjóst um hann og vekur Evridísi aftur til lífsins - á þeirri forsendu að þau eru svo gott par og auðsjáanlegt hversu einlæg ást þeirra er,“ segir Ágústa Sigrún Ágústsdóttir sópransöngkona sem fer með hlutverk Amors. Elskendurnir sameinast til eilífðar. Rík af blæbrigðum og grípandi í einfaldleika sínum Söngkonurnar þrjár eru á einu máli um tón- list Christophs Willibalds Glucks sé ekki að- eins falleg, heldur jafnframt aðgengileg. „Hún er rík af blæbrigðum og grípandi í einfaldleika sínum,“ segir Hulda Björk. Óperan var frumflutt í Vínarborg árið 1762 og kom áheyrendum svo mikið á óvart að þeir klöppuðu ekki á fyrstu sýningum. Hún var upphaflega samin fyrir geldingsrödd í hlut- verki Orfeusar, sem þá var siður, drengjasópr- an í hlutverki Amors og sópran í hlutverki Evridísar. Fáum árum síðar var aðalhlutverk- ið endurskrifað fyrir tenór. Er sú gerð verks- ins kennd við París og er mun lengri en Vínar- gerðin. „í óperum og óratóríum af þessu tagi eru oft einn eða tveir söngvar þekktir. Þama eru ein- tómir gullmolar," segir Ágústa Sigrún. Guðrún Edda bendir þó á að arían Che faro sé lang- frægust. Stöllurnar bera lof á framtak Kammerkórs Kópavogs, verkið njóti sín vel í konsertformi. Þannig mun það líka oft vera flutt enda hlut- verkin fá, aðeins þrjú talsins, ef kórinn er und- anskilinn. Að festa sig í sessi Ágústa Sigrún er einn af stofnendum kórs- ins snemma árs 1998 og söng með honum fyrsta árið. Ségir hún kórinn eiga framtíð fyi'ir sér. „Kórinn er að festa sig í sessi í bæjarfélag- inu og félagar koma nú víða að. Fyrst var eink- um leitað til fólks sem bjó í Kópavogi. Gunn- steinn Ólafsson er reyndur stjórnandi og mikill dugnaðarforkur. Veigrar sér ekki við að takast stór verkefni á hendur." Hulda Björk og Guðrún Edda bera kórnum einnig vel söguna. „Við höfum raunar ekki æft mikið með kórnum en það sem við höfum heyrt hljómar mjög vel,“ segir Hulda Björk. Guðrún Edda samsinnir. Tónleikarnir endurteknir ó þriðjudagskvöld Söngkonurnar eru ánægðar með að tónleik- arnir verði endurteknir. „Það er frábært að fá tækifæri til að leyfa verkefninu að þróast. Það er ekki á hverjum degi að hægt er að endurtaka tónleika. Við er- um mjög ánægðar með þetta,“ segir Hulda Björk. Barokksveit Kópavogs leikur með á tónleik- unum. Þeir eru liður í tónleikaröð Kópavogs- bæjar - Tíbrá. BYLTING GLUCKS GUNNSTEINN Ólafsson, sem stjórna mun flutningi á Orfeusi og Evridísi, lýsir höfundin- um, Christoph Willibald Gluck, sem byltingar- manni. Hann hafi gert miklar breytingar á óp- eruforminu og haft þannig afgerandi áhrif á önnur samtímatónskáld, þeirra á meðal Wolfgang Amadeus Mozart. Gluck fæddist í Þýska- landi árið 1714 og stundaði tónlistarnám á Italíu. Hann var við skriftir í Lundún- um, þar sem Handel bar ægishjálm yfir önnur tón- skáld, en hélt síðan til Vín- arborgar þar sem hann starfaði lengst af. Þar kynntist hann ítalska textahöfundinum Ran- iero de’ Calzabigi. „Þeim rann til rifja staðlað form ítölsku óp- erunnar, tilgerð hennar, fyrirsjáanlegur sög- uþráður og innantóm samtöl og hugðust gera uppreisn gegn henni,“ segir Gunnsteinn í grein í efnisskrá. „Hugmyndir þeirra og fagurfræði áttu rætur að rekja til upplýsingarstefnunnar í Frakklandi sem boðaði afturhvarf til náttúr- unnar, til einfaldleikans. Þeir sáu fyrir sér að óperan ætti að vera einföld í sniði, persónur skýrar, samtöl eðlileg, efniviðurinn mannlegur og sannur, tónlist og texti áttu að mynda eina heild, tilfinningarnar skyldu vera fölskvalaus- ar og geðshræringin sterk.“ Gluck og Calzabigi töldu, að sögn Gunn- steins, megingalla ítölsku óperunnar vera einkum tvenns konar: Tilgangslausar auka- persónur flæktu söguþráðinn með óþrjótandi hliðarfrásögnum sem komu grunnþræðinum ekkert við og aríur og söngles skiptust á með fyrirfram stöðluðum hætti. „Þeir einfölduðu söguþráðinn svo aðeins kjarni frásagnarinnar stóð eftir og settu hann fram í fáum, afmörkuðum atriðum. í ítölskum óperum var einnig gerður skýr greinarmunur á sönglesi (recitativo) og aríum; sönglesið var sungið við þurran semballeik og aríur við hljómsveitarundirleik. Bylting Glucks fólst í því að láta hljómsveitina leika bæði undir söng- lesi, aríum og kórum og myndaði þannig sam- ofna heild.“ Christoph W. Gluck ENDURSKRIFUÐ ENDALOK EKKI hafa þeir félagar Gluck og Calzab- igi fylgt grísku goðsögunni um Orfeus og Evridísi allt til enda. Samkvæmt henni sameinast elskendurnir nefnilega ekki. Þegar Orfeus lítur við hverfur Evridís aftur niður í djúpið, líkt og í óperunni, en er ekki vakin upp aftur. Orfeus reikar harmþrunginn um Þrakíu og leggur fæð á allar aðrar konur. Fyrir vikið rífur hóp- ur trylltra þrakverskra kvenna hann í sundur og kastar höfði hans og hörpu í sjóinn. Hvort tveggja rekur á land á eynni Lesbos þar sem véfrétt Orfeusar rís. 20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 18. NÓVEMBER 2000

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.