Tíminn - 01.12.1966, Page 5

Tíminn - 01.12.1966, Page 5
FIMMTUDAGUR 1. desember 1966 Útgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson Ritstjórar- Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson. Jón Helgason og indriði G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Aug lýsingastj.: Steingrímur Gíslason Ritstj.skrifstofur • Kddu- húsinu, simar 18300—18305 Skrifstofur- Bankastrætl i Af. greiðslusími 12323 Auglýsingasimi 19523 Aðrar skrifstofur, sími 18300 Askriftargjald kr 105.00 á mán innanlands — 1 lausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDD.A h. f. Sýndarmennska leysir ekki vandann í umræðum þeim, sem urSu í neðri deild í fyrradag um hið nýja verðlagshaftafrumvarp ríkisstjórnarinnar, benti Eysteinn Jónsson, formaður Framsóknarflokksins á, að frumvarpið fjallaði alls ekki um kjarna þeirra vanda mála, sem þjóðin stendur frammi fyrir. Segja má, að þessi vandamál séu tvíþætt. Annars vegar eru erfiðleik- ar atvinnuveganna, en t.d. útgerðin þarf nú á mikilli aðstoð að halda, ef stórir þættir hennar eiga ekki alveg að falla niður. Sama gildir um mikinn hluta iðnaðarins. Hins vegar eru svo ráðstafanir til að mæta því dýrtíðar flóði, sem framundan er, en nú er dýrtíðinni haldið i skefjum með auknum niðurgreiðslum úr ríkissjóði Að því hlýtur að koma, að þessum niðurgreiðslum verður að hætta eða að ríkið verður að leggja á nýjar stórfelldai álögur vegna þeirra, en þær verða ekki lagðar á öðruvísi en að stórauka dýrtíðina. Eysteinn benti á, að niðurgreiðslurnar næmu orðið 730 millj. kr. og alltaf væri þó verið að auka þær. Þá þyrfti útgerðin að fá hundruð milljóna króna, ef hún ættj ekki að dragast stórlega saman. Hvar ætlar ríkisstjórnin að fá þetta fé? Þá yrði óhjákvæmilegt að afla (stóraukins fjár til verklegra framkvæmda, t.d. vegamála, þar sem vegakerfið væri að hrynja niður. „Það, sem ríkisstjórnin er hér að gera.“ sagði Eysteinn Jónsson, ,,er að stöðva verðlagið á yfirborðinu með nið- urgreiðslum til bráðabirgða, en síðan mun koma heldur betur að skuldadögunum. Með þessu er verið að hlaða bráðabirgðastíflu gegn verðlagshækkunum, sem hlýtur að bresta, því miður, — og brestur óhjákvæmilega með miklu flóði og áföllum.“ Með sýndarfrumvarpi ríkisstjórnarinnar um ný verð lagshöft, er því síður en svo fundin lav ^ á vandamálun- um, sem við er glímt. Höfuðvandinn er eftir sem áður óleystur. Þetta á að reyna að dylja þjóðina fram yfir kosningar með bráðabirgðaúrræðum og sýndarmennsku. ,,Hér er aðeins tjaldað til nokkurra nátta’1, sagði Ey steinn Jónsson, „og minnir þetta á það hvernig farið var að 1959, er því var leynt með niðurgreiðslum o.fl., að verðbólgan magnaðist — og 1 svo eftir kosningar brast stíflan og verðbólguflóðið steyptist vfir þjóðina“. Tillögur U Thants Á þingi Sambands ungra Framsóknarmanna var lýst stuðningi við þær tillögur, sem U Thant, framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur borið fram til lausnar á styrjöldinni 1 Víetnam. Tillögur hans eru þessar: í fyrsta lagi er lagt til, að Bandaríkin hætti loftárás um á Norður-Vietnam. í öðru lagi er lagt til, að styrjaldaraðilar í Suður- Vietnam dragi úr hernaðaraðgerðum sínum. í þriðja lagi er lagt til, að Viet Cong verði viðurkennd- ur samningsaðili og að setzt verði að samningaborði. Styrjöldin í Vietnam er orðin vandamál, sem varð- ar allan heiminn. Um það má deila fram og aftur, hverj- ir bera þar þyngstu sökina. .Vegna hinna þjáðu íbúa Viet- nam og heimsfriðarins er það meginmálið, að sem fyrst verði samið um sanngjarnan frið Enginn einn mað- ur er vænlegri til að hafa þar forustu en U Thant. Þess vegpa er það mikilvægt, að friðarviðleitni hans fái stuðn- ing sem allra flestra. TÍMINN ERLENT YFIRLIT Strauss er óumdeilanlega hinn sterki maður Vestur-Þýzkalands Tryggir breytt kjördæmaskipan honum kanslarasætið? ÞAÐ ER nú óumdeilanlegt, að Josef Strauss, foringi kristi- lega demokrataflokksins, er hinn sterki maður Vestur-Þýzka lands. Hann hefur átt meiri þátt í því en nokkur maður ann ar að sú samvinna kæmist á milli sósíaldemókrata og kristi legra demokrata, sem nú er orðin að veruleika. Einhvern tíma hefði það þott ótrúlegt, að Strauss yrði maðurinn, sem kæmi á slíkri samvinnu, því að enginn maður hefur verið meira gagnrýndur af sosíaldemokröt um en hann. Hann var hins veg ar sá leiðtogi kristilegra demo krata, sem var nógu djarfur og einbeittur til að knýja kristi- lega demokrata til að fallast á þau sjónarmið. er gerðu sam- vinnu flokkanna mögulega. Strauss átti meginþátt í þvi að Erhard var steypt úr stóli Takmark Erhards Var að láta minnihlutastjórn kristilegra demokrata fara með völd eftir að samvinnan slitnaði við frjáLsa demokrata Þetta var hægt sam kvæmt stjórnarskránni, nem-í fyrir lægi, að hægt væri að mynda meirihlutastjórn. Strauss kom því til vegar, að kristileg ir demokratar samþykktu að reyna að mynda meirihluta- stjórn undir forustu annars manns en Erhards. Erhard féllst á þetta í trausti þess, að slík tilraun myndi misiheppn- ast. Strauss fékk það síðan sam- þykkt, að vinsæll maðuh, sem var honum handgenginn, Kies- inger, var kosinn kanslaraefni gegn vilja Erhards. Það var svo Strauss, sem skarst i leik- inn, þegar horfur ,'oru á að sósíaldemokratar og‘ Irjálsir demokratar mynduðu stjórn Hann fékk kristilega demokrata til, að fallast á skilyrði er gerði stjórnarsamvinnu þeirra og sósíaldemokrata mögulegi. Að launum fyrir þetta, fæi Strauss sæti fjármálaráðherra í ríkisstjórninni. En hann ætlar sér meira. í dag er ekkert sjá-. anlegt, sem getur aftrað því, að Strauss verði næsti kanslari kristilegra demokrata. ÞAÐ HEFUR styrkt Strauss mikið, að flokkur hans vann sigur í kosningunum í Bæjara- landi fyrra sunnudag, þrátt fyr ir fylgisaukningu nýnazista. Öllum kemur saman um, að sá sigur var fyrst og fremst persónulegúm vinsældum Strauss að þakka. Þegar Adenauer var mjög gegn vilja sínum að víkja Strauss úr stjórn sinni fyrir fjórum ámm, héldu margir að dagar hans væru taldir sem pólitísks áhrifamanns. Adenau- er neyddist til að láta Strauss víkja vegna Spiegelmálsins, en ljóst var, að Strauss hafði mis notað þar mjög aðstöðu sína Adenauer var þetta allt annað en ljúft, þvi að hann hafði ætl- að Strauss að taka við af sér. Strauss var þá búinn að gegna stöðu varnarmálaráðherra i nokkur ár og hafði ótvirætt sýnt. að hann var manna dug- Strauss legastur og stjórnsamastur, auk þess að vera mesti ræðu- skörungurinn í hópi vestur- þýzkra stjórnmálamanna. Þegar Strauss missti ráðherra stöðuna, hélt hann heim til Bœjaralands. Hann vann að því að skipuleggja flokk sinn og' notaði jafnframt tímann til að hugsa ráð sitt. Hann gaf sér sæmilegan tíma til hvildar, las mikið og stundaði ýmsar íþrótt- ir, aðallega þó skotæfingar og dýraveiðar. Á uppvaxtarárum sínum var Strauss mikill íþrótta maður og vann t- d. oftsinnis hjólreiðakeppni. Vinir h^ns segja, að hann hafi haft mjög gott af þessari dvöl sinni heima í Bæjaralandi Hann hafi gert sér þess ljósari grein en áður hvaða mistök honum hafi orðið á og hvað hann gæti lært af þeim. Það hafi verið honum styrkur í þeim efnum, að hann giftist einkaritara sínum um líkt leyti. dóttur auðugs bjór- framleiðanda í Bæjaralandi, og hafi hún orðið honum mjög til hjálpar í þessum efnum. Það verði því nýr Strauss, ráðsett- ari og aðgætnari en jafnframt klókari, sem birtist á sjónar- sviðinu í Bonn, þegar hann tek ur aftur sæti í ríkisstjórninni. STRAUSS er 51 árs gamall og getur því átt mikið eftir. Það er honum mikill styrkur, að hann gekk aldrei í nein sam- tök nazista á uppvaxtarárum sínum. Hann var Utið pólitísk- ur þá, en þó heldur andvígur nazistum. íþróttimar áttu hug hans. Á stríðsárunum gat hann sér góðan orðstýr í hemum. Fljótlega eftir stríðslokin, bar saman fundum þeirra Adenau ers og fól Adenauer honum að skipuleggja kristilega flokkinn i Bæjaralandi. Strauss sýndi þar fljótt óvenjulega hæfileika Jafnframt kom í ljós, að hann var frábær mælskumaður og mikill áróðursmaður í persónu legri kynningu Adenauei hafði því snemma augastað á honum sem eftirmanni sínum. í utanríkismálum hefur það frá upphafi verið stefna Strauss að Þjóðvcrjum bæri að hafa nána samvinnu við Frakka. Hann hefur einnig verið því fylgjandi, að Vestur-Evrópu- þjóðirnar kæmu sér upp svo sterku varnarkerfi, að þær væru ekki háðar Bandaríkjun um í þeim efnum. Sjónarmið Strauss og de Gaulle hafa því verið lík á ýmsan hátt. Strauss hefur hins vegar sýnt, að hann er enginn kreddumaður, þótt hann fylgi málstað sínum fast eftir. Hann getur skipt. um stefnu og starfsaðferðir, ef hann kemst að þeirri niður- stöðu að honum hafi skjátlazt ÞAÐ ÞYKfR líklegt, að eitt höfuðatriðið í samningum sosí- aldemókrata og kristilegra demókrata fjalli um þá breyt ingu á stjórnarskránni, að a > ir þingmenn verði kosnir í ein- menningskjördæmum. Nú er helmingur þeirra kosinn á þann hátt, en hinn helmingurinn eru uppbótarþingmenn. Sigur ný- nazista er talinn hafa gefið þeirri stefnu byr í seglin, að uppbótarsæti verði afnumin. Einmenningskjördæmin séu eina leiðin til að hamla gegn smáflokkum og nýjum flokk um, eins og nýnazistum., Víst er það líka, að verði þau tek in upp, munu bæði ffjálsir demókratar og nýnazistar þurrkast út ogV-Þýzkaland mun þá búa við tveggja flokka- kerfi. Ef horfið' verður að þessu ráði, er ekki ólíklegt, að kristi legir demókratar verði sósíal demókrötum sigursælli, a.m-k. í fyrstu kosningunum, sem færu fram samkvæmt þessu fyrirkomulagi, en það myndi ekki verða fyrr en eftir 1970. Næstu kosningar eiga að fara fram 1969 og verður þá kosið samkvæmt núgildandi fyrir- komulagi. Flest bendir nú til, að það dragist ekki svo lengi, að Strauss taki við forustu kristilegra demókrata. Verði kjördæmaskipun breytt, virðist því fátt Iíklegra, eins og málin horfa nú. en að ekki líði mörg ár þangað til Strauss skip ar kanzlaraembættið. Þ. Þ. J Á

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.