Tíminn - 03.12.1966, Side 5
LAUGAKDAGUR 3. desember 1966
Útgefandi: FRAMSÓKNARIFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði
G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Aug-
lýsingastj.: Steingrimur Gíslason. Ritstj.skrifstofur i Eddu-
húsinu, símar 18300—18305. Skrifstofur: Bankastrseti 7. Af.
greiSslusimi 12323. Auglýsingasími 19523. Aðrar skrifstofur,
sími 18300 Askriftargjald kr. 105.00 á mán. tnnanlands. — I
lausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h. f.
Verðbólguáætlun
borgarstjórans
Skýrustu einkennin á því frumvarpi til fjárhagsáætlun-
ar, sem borgarstjórinn í Reykjaví'k hefur lagt fram fyrir
næsta ár, eru þau, að beinlínis er gert ráð fyrir því, að
verðbólgan haldi áfram að vaxa og því þurfi að mæta með
aukinni tekjuöflun. Fjárhagsáætlunin á að hækka í heild
um nálega 17%, en það er svipuð hækkun og orðið hefur
að jafnaði á ári öll undanfarin verðbólguár síðan 1960 að
einu undanskildu, en þá tók áætlunin stökk upp á við um
47%, en það var líka árið eftir kosningarnar, 1963 þegar
„viðreisnarstjórnin'‘ kynti verðbólgubálið sem mest. Hins
vegar var það svo á stjórnarárum vinstri stjórnarinnar,
að áætlun Reykjavíkur þurfti sáralítið að hækka árlega,
og eitt árið alls ekkert, því að miklu meiri hemill var
hafður á verðbólgunni.
Af þessari miklu hækkun fjárhagsáætlunar Reykjavík
ur á næsta ári sést hreinlega, að stjórnendur borgarinn-
* ar gera hiklaust ráð fyrir áframhaldandi verðbólgu en
engri stöðvun hennar og gera beinlínis ráð fyrir því að
þurfa að mæta slikum hækkunum. Er þetta í fullu sam-
ræmi við fjárlagafrumvarpið, sem ríkisstjórnin lagði
fram, mestu verðbólgufjárlög, sem þjóðinni hafa verið
sýnd, samtímis og hún boðaði stöðvun verðbólgu.
í samræmi við þarfir þessarar verðbólguáætlunar eru
útsvör Reykvíkinga á árinu 1967 áætluð um 18% hærri
en á árinu 1966, og þótt gert sé ráð fyrir sama álagning-
arstiga, sem engan veginn er víst að dugi til þess að ná
fjárhæðinni, 637 milljónum, er augljóst að útsvörin
þyngj^st mjög, þar sem fleiri fara í hin hærri álagningar-
þrep en áður, og útsvar hvers og eins verður því fleiri
prósent af tekjum hans en áður. Ef koma á í veg fyrir,
að útsvörin hækki með sama stiga, yrði að breyta stigan-
um í samræmi við verðbólguaukninguna á árinu.
Loks vakti það ekki minnsta athygli við frumvarpið að
þessari áætlun, og var harðlega gagnrýnt af fulltrúum
Framsóknarflokksins í borgarstjórninni, að gert er ráð
fyrir, að arður borgarsjóðs af þjónustustofnunum borgar-
innar hækki hvorki meira né minna en 37,5% og tekju-
áætlun þessara stofnana er hækkuð að sama skapi, eða
tekjur vatnsveitu um 32%, hitaveitu um 48% og raf-
magnsveitu um 21%. Þetta sýnir, að íhaldið ætlar að taka
meiri skatt af fólki í borgarsjóð gegnum innheimtu fyrir
þessa þjónustu en nokkru sinni fyrr, og var þó ærinn
hluti tekinn áður. Það sýnir einnig, að íhaldið ætlar að
hækka verulega gjaldskrár þessara þjónustufyrirtækja
á næsta ári þrátt fyrir allt tal um stöðvun dýrtíðar.
Loks er það eitt skýrasta verðbólgueinkennið á þessari
áætlun, að sá hluti tekna borgarsjóðs, sem fer í varan-
legar framkvæmdir, minnkar enn stórlega. Rekstrar-
kostnaðurinn stórvex, eða um 18,6% og gleypir útsvars-
hækkunina alla og meira til, en framkvæmdir dragast
saman, þar sem á eignabreytingar færast, (þ. e. varanleg-
ar framkvæmdir borgarinnar) 10,5% hærri fjárhæð en
árið áður.
Fjárhagsáætlunin sýnir því að gert er ráð fyrir áfram-
haldandi bullandi verðbólgu í reynd, stórþyngdar álögur
á bæjarbúa og æ meiri hluta tekna í rekstur en samdrátt
framkvæmda. Þetta er myndin.
TÍMINN
ERLENT YFIRLIT
Athafnasöm kona verður fyrsti
fjölskyldumálaráöherra Dana
Dönsku blöðin telja hana líklega til að duga vel
ÞAÐ fór eins oj búizt hafði
verið við, að minnihlutastjórn
Sosialdemokrata í Danmörku
situr áfram við völd og nýtur
til þess stuðnings flokks Aks
els Larsens, sem varð aðalsigur
vegarinn í kosningunum. Nokk
ur breyting hefur hins vegar
verið gerð á stjórninni og er
sú sögulegust, að Per Hække
rup hefur hætt störfum sem
utanríkisráðherra, en Krag
gegnir nú bæði störfum for-
sætis- og utanríkisráðherra.
Hækkerup verður formaður og
talsmaður Sosialdemokrata í
þinginu og verður því annar
áhrifamesti maður flokksins,
næst á eftir Krag Hann myndi
því að líkindum verða forsæt-
isráðherra flokksins, ef eitt-
hvað kæmi fyrir Krag. Hække
rup mun gjarnan hafa viljað
breyta þannig til„ en því til
viðbótar hefur það sennilega
komið, að Krag er talinn standa
lengra til vinstri í utanrikismál
um en Hækkerup. og Aksel Lar
sen mun því telja það til bóta,
að utanríkismálin séu í hönd
um hans.
ÖNNUR breyting, sem Krqg
gerði á ríkisstjórninni og 'vakið
hefur talsverða athygli í Dan
mörku, er sú, að hann skipaði i
fyrsta sinn sérstakan fjölskyldu
málaráðherra. Slíkt ráðherra-
embætti hefur þegar veríð sett
á laggirnar í Noregi, Svíþjóð og
Vestur-Þýzkalandi, en hefur
ekki áður verið til í Danmörku.
í þetta embætti skipaði Krag
konu, sem er aðeins búin að
sitja á þingi í tvö ár, en þar
hefur hún látið málefni heim-
ilanna til sín taka á þann
hátt, að dönsku blöðin spá
yfirleitt góðu um ráðherraferil
hennar.
Hinn nýi fjölskyldumálaráð-
herra Danmerkur heitir Camma
Larsen-Ledet. Hún er fædd
1915 og réðist að verzlunarskóla
námi loknu til „Vestkysten“,
sem er stærsta blaðið í Esbjerg
og lengi hefir verig eitt helzta
málgagn Vinstri flokksins. Hún
byrjaði að vinna þar ýms skrif
stofustörf, en fluttist fljót-
lega til ritstjórnarinnar og var
orðinn ritstjórnarfulltrúi eftir
stuttan tíma. Árið 1939 giftist
hún Clement Larsen-Ledet, sem
nú er ritstjóri við blaðið „Sönd
erjyden" í Abenrá, en pað er
helzta málgagn Sosialdemo-
krata í SuðunJótlandi. Með því
skyldu leiðir hennar og Vinstri
flokksins, bví að Clement Lar
sen-Ledet var þá þegar farinn
að vinna fyrir Sosiaidemokrata.
Hjónabandið varð einnig til
þess, að Camma fluttist frá Es-
bjerg til Abenrá. Hún hafði
ekki verið búsett þar lengi, unz
hún hóf þátttöku í ýmissi fé-
lagsstarfsemi. Einkum lét hún
æskulýðs- og uppeldismál til
sín taka. Hún var kjörin í
barnaverndarráð og fleiri slík
ar nefndir og vann sér orð fyr
ir mikinn dugnað. Árið 1950
var hún kjörin í bæjarstjómina
H&ZÍtr.. .v.. '• . . Á
Camma Larsen-Ledet
í Abenrá og reyndist þar hinn
mesti skörungur. Árið 1960 var
hún fyrst í kjöri til þings, en
náði ekki kosningu í það skipt
ið. Árið 1964 náði hún kosn
ingu og var endurkjörin með
stórauknu atkvæðafylgi í kosn
ingunum, sem fóru fram á dög
unum.
Camma Larsen-Ledet hefur
reynzt mjög athafnasöm á þingi.
Hún fékk þar það hlutverk að
vera talsmaður flokks síns, þeg
ar fjölskyldumál og neytenda-
mál bar á góma. Þetta fór
henni svo vel úr hendi. að
það þótti sjálfsögð ráðstöfun,
Clement Larsen-Ledet
m
þegar hún var skipuð formað
ur Neytendaráðsins fyrir
hálfu • ári. Nú þykir það
einnig vel ráðið, að
hún er skipuð fyrsti fjölskyldu
málaráðherra í Danmörku.
ÞAÐ VERÐUR eitt fyrsta
verk hins nýja fjölskyldumála
ráðherra að koma upp sérstöku
ráðuneyti og semja um verka
skiptingu þess og annara ráðu
neyta, er áður hafa farið nieð
með mál, er hér eftir eiga að
heyra undir hið nýja ráðuneyti
Þar er margt enn óljóst. Full-
ráðið er þó, að undir þetta
ráðuneyti eiga að heyra öll
mál, sem snerla dag- og dvalar-
heimili fyrir börn. aðstoð við
ógiftar mæður, heimilisaðstoð,
og hverskonar tryggingastarf-
semi, sem snertir börn og
mæður. Heimilisaðstoðin nær
nú aðeins til kvenna. en hinn
nýi ráðherra vill e.'nmg láta
hana ná til karla. sem hafa fyr
ir heimili að sjá, en hafa
hvorki eiginkonu né ráðskonu
til að styðjast við. Takmarkið
eigi að vera það að tryggja
börnunum sem mest öryggi í
uppeldi þeirra, m. a. með þv)
að aðstoða þá forsjármenn
þeirra, sem þess hafa þörf.
Fyrst um sinn, mtin ekki unn
ið að nýrri lagasetningu um
þetta efni, heldur kappkostað
að fá því framgengt, að gild-
andi lagaákvæðum verði fram-
fylgt til hins ítrasta í þessurr
efnum.
Þá leggur hinn nýi ráðherra
Framhald á bls. 15.