Tíminn - 03.12.1966, Side 7

Tíminn - 03.12.1966, Side 7
LAUGAKDAGUR 3. desember 1966 ÞINGFRÉTTIR TÍiViNN ÞINGFRÉTTIR 7 Fjárlagafrumv. afhjúpar blekk- ingar um ,verðstö5vunarstefnuá Framhald af bls. 1. Halldórs E. Sigurðssonar, Halldórs Ásgrímssonar og Ágústs Þorvalds- sonar segir svo m. a.: Þar sem þetta fjárlagafrv. er iþað síðasta, sem afgreitt verður fyrir alm'ennar alþingiskosningar, þykir rétt að hefja þetta nefnd- aráliit með þvi að rifja upp fyrir- heit stjórnarliða fyrir valdatöku þeirra og í upiAiafi hennar. Núverandi stj órn,artflokkar hófu samistarff sitt um myndun rikis- stjórnar í desember árið 1958, og það hefur staðið síðan, með þeirri breytinigiu, að Aiþýðuftokkurinn ffór einn mieð ríkisstjóm þar til í nóvember 1959. Forsætisráð- herra Alþýðuflokksstj ómar in n - ar lýsti verkefnum þeim, er við þeirri rikisstjóm blöstn, með svo- félldum orðum í uppíhafi ræðu sinnar, er hann gerði grein fyrir frv. ríkisstjómarinnar um niður- færislu verðtogs og launa: „Undanfarnar vikur og mánuði hefr íslenzba þjóðin haft af því áhyggjur þungar, hve þróun verð- lags- og kanpgjaldlsmála árið 1958 hefur verið ískyggáteg og nggvæn leg. Verðbólgan 'hefur farið stöð- ugt vaxandi og með auknum hraða.“ í fnamlhaldi af þessari skýringu lýisti forsætisráðherra (Eimil Jóns- son) því yfir, að um tvær leiðir væri að ivelya tl. úrbóta vegna atvinntrveganna: meiri áEigur eða stöðvun verðbólgu. SSðari leiðina mundi ri'kisstjómin fara og fram- kvæma hana með auknum niður- greiðlslum og þeirri niðuriærslu verðlags og launa, er frv. það, er hann talaðí fyrir, boðaði. í kosningxjnum 1959 Riíkisistjórn þessi og stuðnings- lið hennar hélt því fram í kósn- ingaharáttunni 1959, að það hefði tekizt að stöðva dýrtíðina og þeirri stefnu yrði haldið áfram, ef þessir flokkar, Alþýðu- og Sjálff- stæðisflokkur, fengju aðstöðu til forustu um málefni þjóðarinnar með myndun rikisstjórnar. Þykir rétt til að staðfesta, að þessi fyr- irheit voru gefin af stjórnarlið- inu, að tilfæra hér atriði úr steffnu skrá, blaðaummælum og ræðum, er sanna þetta. Fyrista boðorðið í stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins við haustkosn ingar 1959 var: „Stöðvun verðbólgu." Enn fremur: „Náð verði samkómulagi milli framleiðslustéttanna um stöðvun víxlhækkana á milli kaup- gjalds og verðlags.“ „Leggja-. inn á nýjar brautir, er sneiði hjá verð bólgu og samdrætti." Alþýðuflokksmenn létu ekki á sér standa með fögur fyrirheit um stöðvun verðbólgu. Núverandi félagsmálaráðherra, Eggeri G. Þorsteinsson, sagði í Al- þýðublaðinu 16. okt. 1959 m.a. þetta: „Alþýðufíokkurinn heimtar óbreytt ástand. Við í launþegasam tökunum styðjum þá stefnu. Þjóð- in veit, að hverju hún gengur. Hennar er að velja á milli." Emil Jónsson, þáverandi forsæt- isráðherra, sagði í útvarpsræðu 20. okt. 1959 m.a. þetta: „Kosningar, sem nú fara í hönd. eru öriagarikar. Þær eru það vegna þess, að þær skera úr um það. hvort freistað verður að leysa vandamál framtíðarinnar með svip uðu hugarfari og á sama hátt og gert hefur verið á þessu ári.“ (þ e. 1959). Út á þessi fögru fyrirheit og önnur álíka fengu stjórnaitfilokk- arnir meiribluta í al'þingiskosn- ingunum 1959 og aftur 1963, þótt naumur væri. Þar sem fjáriagaffrv. það, sem bér liggur fyrir, sannar greinilega, hvernig til hefur tekizt með fram- kvasmd á stöðvun verðbólgunnar, skal að því vikið og þeim við- 'horffum, sem eru í efnahagslífi þjóðarinnar nú, eftir átta ára stjórn þessara flokka, Sjálfstæðis- og Alþýðuflokksinis, í mesta góð- æri af náttúrunnar hendi í sögu þessarar þjóðar. Á þessum átta ára stjórnartíma þeirra hefur gengi íslenzkrar krónu verið fellt tvisvar. Fjáriög hafa hækkað yfir 400%. Vísitala vöru o,g þjónustu heffur tvöfaldazt á tímabilinu. Til niðurgreiðslu á vömverði var varið 115 millj. kr. á árinu 1958. Á næsta ári mun þuiffa um 720—730 mfflj. kr. til niðurgreiðslna, auk þess sem þær breytingar, sem gerðar vom á greiðslu fjölskyldubóta árið 1960 og síðar, eru liður í niðurgreiðslu á vömverði, enda hafa þær áhrif á kaupgjaldsvísitölu. Mun því láta nærri, að um 900 milljónum kr. sé varið af fé ríkissjóðs til að halda niðri vöruverði á næsta ári, miðað við þá framkvæmd, sem giMir þar um í dag. Kostnaðaraukning og útþensla Rekstrarkostnaður ríkisins og ýmiissa þjónustustofnana ríOris- sjóðs hefur aukizt stóriega frá 1958, svo sem þe§sar tölur sýna: Kostnaður við stjórnarráð og utanrí'kLsþjónustu um 360%. Dóm- gæzlu- og lögreglumál um 440%. Alagning oig innheimta sbatta og toWa um 370%. Niðurgreiðslur um 535%. Tekjur pósts og síma haffa vaxið um 400%. Tekjur Rík- isútvarps um 300%. Daggjöld á Landsspita)anum um 300%. Raf- magnsverð rikisraffveitna hefur nærri þrefaldazt. Og farmgjöld hjá Ríikisskip hafa hækkað um 118%. Þessi þróun í fjármálum og þjónustu stoffnana rikisins sýnir greinilega, til hvers sú verðstöðv- un leiddi, er boðuð var 1959, og stjómarliðar töldu sig þá haía komið á og áfram yrði haldið, ef þeir mættu ráða. — Það, sem hef- ur orðið, er skeffjalausari dýrííð en áður hefur verið, sem leitt heffur til stórkostlega aukíns rekstrarkostnaðar rikisins og nið- urgreiðslna, sem aftur hefur leitt til allra þeirra hækkana, er að framan er lýst, og þess, að fram- lög til verbiegra framkvæmda og uppbyggingar í landinu haía lækk- að hilutfallslega. Hefur þessi þró- un orðið slík, að árið 1958 var varið til verMegra framkvæmda, uppbyggingar atvinnuvega og framkvæmda rikisins á 20. gr. fjár laga 26.2% af heiidarfjárhæð þeirra, en nú 13%. Þessi þróun er alvarleg í landi, þar sem uppbygging og almenn- ar umbætur eru skammt á veg komnar, svo sem í okkar landi er. Hver er ástæðan til þess, að svo hefur farið um stöðvun verðbólg- unnar sem raun ber vitni um? Ástæðumar eru margar, og við munum greina frá nokkrum þeirra. \ Engin verSstöðvun Stöðvun verðbólgunnar var ekki raunhæf árið 1959. Það var þekn ljóst, er fyrir þeirri framkvæmd stóðu. Þeir gerðu sér grein fyrir því, að breytingu á skráðu gengi krónunnar yrði að gera, enda var að þvi verki gengið, strax og haustkosningar voru um garð gengnar. Verðstöðvun var sýnd- armennska, sem sett var á svið vegna kosninga 1959 og til að tryggja núverandi valdhöfum leið- ina í valdastólana. Tekjur útflutningssjóðs tekn- ar í ríkissjóð. Með gengisbreytingunni 1960 var útfflutningssjóður lagður nið- ur. Eðlilegt hefði verið, að tekju- stofnar þeir, er útfflutningssjóður 'hafði, hefðu þá einnig verið lagð- ir niður. Svo var þó ekki gert, heldur tók ríkissjóður til sín tekjur aff þeim og lagði jafnframt á nýja skatta, svo sem almennan söluskatt. Skattaálagning ríM-s- stjórnarinnar varð þá þegar til þess, að vöxtur verðbólgunnar hélt áfram. Gengisbreytingin 1961 • Gengishreytingin 1961 var gerð algerlega að öþörfu, efftir að mjög 'hóffsamleg kauphækkun hafði ver- ið gerð og skynsamlegir kjara- samningar. Þessi stjórnarráðsstöf- un hefur haft mjög mikil ábrif til að auka verðbólguna, enda gerð í reffsihug. Skattaálagning ríkis- stjórnarinnar. Ríkisstjórnin hefur hækkað sölu- skattinn tvívegis á stjórnartíma- bilinu. Aukatekjur ríkissjóðs og stimpilgjöld hafa verið hækkuð verulega, eignarskatturinn hefur veriö hækkaður með sexfföldun á faisteignamati og leyfisgjald af bifreiðum yfirfærí á fleiri bifneiða tegundir, benzínskattur, þunga- skattur og gúmmígjald margfald- að. Auk þessa hefur svo verið lagt á mikið af sérsköttum, svo sem: Bændaskattur, iðnlánasjóðs gjald, gjaldeyrisskattar, veitinga- húsaskattur, ríkisábyrgðarsjóðs- gjald, umferðarskattar, rafmagns- sbattur, launasbattur, skattur á byggingarefni, þjónustugjöld rí'k- isstofnana, svo sem pósts og síma o.fl., hafa verið margfölduð. Álag vegna vísitölutryggingar húsnæðislána, vaxtahækkun og óhagstæðari fjárfestingalán hefur og haft mikil áhrif til að auka verðbólguna í landinu. Úffærsla ríkiskerfisins Ríkisstjórnin hefur þanið ríkis- kerfið út með nýjum embættum og stofnunum og útfærslu ann- arra, m.a. til að auka áhrif flokka sinna með því að koma liðsmönn um sínum þar að. Meðal stofnana og embætta, sem upp nafa verið sett á síðustu árum, eru: . J Efnahagsstofnun. Gjaldheimtan. Almannavarnir. Hagsýslugerð. Rík isskattstjóri og skattstofur. Ráðu- nautur í viðiskiptamálum. Fjölgun bankastjóra og bankaráðlsmanna. Fjölgun stjórnarnefndarmanna í: húsnæðismálastjóm, stjórn sem- entsverksm ið j u, úthlutunarnefnd listamannalauna og síldarútvegs- n-efnd. Sakadómurum hefur verið fjölg ■að, svo og borgarfógetum og borgardómurum. Fleiri launaðar nefndir eru nú starfandi á vegum ríkisins en áð- ur hefur verið. Meira eytt í ráð- stefnur, ferðalög og veizlur á veg- m ríkisins en hjá fyrri ríkis- stjórnum. Þannig mætti lengj telja þó að það verði ekM gert hér. AEt hefur þetta krafizt hærri tekna til ríikissjóðs, hærri fjár- laga. Sparnaður enginn í framkvæmd A£ fyrrverandi og núverandi fjármálaráðherra voru gefin 59 fyrirheit um sparnað hjá ríkis- sjóði og sérstakar yfiriýsingar gefnar um hagsýni og ráðdeild i ríkisrekstrinum og meðiferð rikis- fjár. Árangurinn af fyrirheitum um sparnað og hagsýni í meðferð rikisfjár er að finna í greinar- gerð fjárlagafrv. fyrir árið 1967. Þar segir svo m.a.: „Annað tæknilegt viðfangsefni, sem ekki kemur fram j þeim at- hugasemdum, sem hér að fram- an hafa verið gerðar, er skortur á upplýsingum fyrir miðstjórn ríkis r^kstrarjng fij, aö „tengja hvert viðfangsefni, scim unnið er að, við þær fjárhæðir, sem um er beðið eða veittar eru í fjárlögum. Eins og málum er nú háttað, er grundvöllur fjárveitinga að jafnaði rebstur tiltekinna stofn- ana, se.m hafa tilgreindan fjölda starffsmanna. Kostnaður við rekst- ur stofnunarinnar er síðan áætl- aður eftir tiikostnaðir eða fjár- veitingum síðustu ára með álagi fyrir tilkostnaðarhækkunum. Tilvera stofnunarinnar sem skipulagseiningar skyggir þannig á eða dregur athyglina frá þeim verkefnum, .sem þessi skipulags- eining á að afkasta. Með þessum hætti fæst oft ekk- erí mat á því, bversu vel eða iila stofnun hefur sinnt sínum við- fangsefnum, þar eð fjárveiting til stofnunarinnar miðaðist ekki við ákveðið viðfangsefni, heldur við rekstur stofnunar.“ Eftir 7 ára fjármálastjórn Sjálf stæðisflokksins kemur sjálfur fjár málaráðherra fram fyrir þjóðina og lýsir yfir því, að hann viti ekkert um riMsreksturinn, það skorti allar upplýsingar til að tengja hvert viðfangsefni,' sem unnið er að, þeirri fjárveitingn, sem veitt e.r Það er góður ár- angur af liagsýslu og bættum vinnubrögðum þetta. Og sparnaður er nú orðinn svo fjarri, að hætt er að gefa fyrir- heit þar urn eða ta-la um kjark til að koma sparnaði við. Það sitt má segja að standi þar m sparn að, að eitthvað mætti draga úr kostnaði við kirkjuþing. Sú fjdr- hæð er innan við 200 þús. kr. Það munar um minna á fimm milljarða fjárlögum. Fjárfestingin skipulagslaus Allt stjórnartímabilið hefur fjár festingin í landinu verið skipu- lagslaus. Það og hitt, hvað verð- bólgan gleypir mikið af tekjum ríkissjóðs,-tefur orðið til þess, að .flest .nauðsynleg verkefni hins opinbera hafa setið á hakanum. Þanniig eru ekki hafnar fram- kvæmdir við fjörutíu skólabygg- ingar, sem Alþingi hefur tekið á fjárlög. Af þeim eru þó tuttugu og fimm, sem Alþingi hefur sam- þykkt að hefja skuli fram'kvæmd- ir við. Hér er um að ræða bygg- ingar, sem ekki þola bið. Til við- bótar er nú sótt um fjárveiting- ar til 30—40 nýrra skólamann- vinkja. Sést af þessu, hve gejssi- leg þörf er á auknu fé til nýrra skóla. Ekki er þó ætlað meira fé til þeirra nú en á yfirstandandi fjárlögum, en þar er varið álíka fjárhæð til nýrra gagnfræðaskóla- bygginga _ í landinu og hús Guð- mundar I. koistaði ríkissjóð, er það var keypt af honum. Af- greiðsla skóilamálanna bíður 3. um ræðu, og skulu þau því ekki rædd frekar hér.. Vegirnir Samgöngumá'l eru eitt af stór- málum þessarar þjóðar. Á fjár- lögum íslenzka ríkisins var áður varið verulegri fjárhæð til þeirra T.d. lagði ríkissjóður alltaf nokkra fjárbæð umfram tekjur af um- fferð (þ.e. skatta og tolla af bif- reiðum og varahlutum til þeirra). en 1960 og síðan hefur ríkissióð- ur haft verulegar tekjur umfram gjöld af umferðinni, og nú er svo koimið, að með fjáriögum 1966 var allt framlag ríkissjóðs til vega mála fellt niður. Þó kemur rík- issjóður til með að hafa 160--180 millj. króna í tekjur af leyfisgjöht- um einum á þessu ári, og gert er ráð fyrir svipaðri fjárhæð á næsta ári. Allar tekjur ríkis-ijóðs af umferðinni, tolltekjur og sölu- skattar, nema hundruðum millj í landi, þar sem vegakerfið er jafnófullko'mið og það er i okk- ar landi, er það réttmæt kraía. að allar þær tekjur, sem ríkisssjóð- ur hefur af innflutningi bifroiða, vanalhluta og brenns-luefni til þeirra, gangi til vegamálanna. Lág markskrafa er, að sérskattarnir, svo sem leyfisgjöld, gangi til vega sjóðs. Þeirri kröfu verður að koma í fram'kvæmd, þótt nú sé ekki þingmeirihluti fyrir því. Hafnir - Ein undirstaða 'sjávarútvegs og samgangna er 'gáS höfn. Ótalinn er sá aukni útgerðarkostnaður. sem útvegsmenn -hafa af lélegum höfnum vegna aukins viðhalds. Fjárveiting til nýbygginga á höfn- um átti að vera óbreytt frá yfir- standandi ári. Nobkuð fékkst þok- að í rétta átt í fjárveitinganefnd, en þó minna en vonazt var til, þar sem fjárveiting til greiðslu á vangreiddum framlögum ríkis- sjóðs til hafnarframkvæmda fyrri ár-a var nærri því lækkuð að sama skapi frá frv. Er það gert í full- kominni andstöðu við okkur full- trúa Framsóknarflokksins í fjár- veitinganefnd. Með þeim fjárveit- ingum, sem nú er lagt til, og eðlilegum framkvæmdum i hafn- argerð á næsta ári má gera ráð fyrir, að ógreiddur ríkissjóðshluti til hafna verði lok næsta árs 70—80 mi'Uj. króna. Það er a.m.k tveggja ára rikisframiag miðað við sömu fjárveitingu og nú er Um aðra flokka verklegra fram kvæmda er sömu sögu að segja svo sem framkvæmdir i ragmagn? málum, sem brennur þó heif þeim, sem eftir því bíða. Nú virð ist eickj hægt úr 'naérr 5 miil’aróa fjárlögum að leggja fram fé ar rikissjóði, er svipað framkvæmd? gildi héfur og var fvrir valdatöku þessarar ríkisstjórnar, er fjáriö-- Framhald a bls. 2.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.