Tíminn - 10.12.1966, Side 1
Gerizt áskrifendur að
Tímanum.
Hringið í síma 12323
Málið gegn
Rankovic
fellt niður!
NTB—Belgrad, föstudag.
Ríkisstjórn Júgóslavíu hef-
ur ákveðið aS fella niður saka-
málið á hendur fyrrverandi
varaforseta Júgóslavíu, Aleks
ander Rankovic og hinum svo
kölluðu samsærismönnum
hans.
Á lokuðum fundi í þinginu
í dag samþykkti þingið skýrslu
stjórnarinnar um misferli, sem
orðið hefur í vissum greinum ör-
yggisþjónustunnar, en Rankovic
var yfirmaður hennar
í skýrslunni var tillaga um að
sakamálið á hendur Rankovic yrði
fellt niður. Rankovic varð að láta
af öilum opinberum störfum 1.
júlí s.l., sakaður um að hafa látið
hlera símtöl ráðherra, óhlýðni og
tilburði til að hrifsa völdin í sín-
ar hendur.
Eftir að skýrt hafði verið frá
niðurstöðu þingsins, var upplýst,
að Tító forseti hafði einnig fallizt
á tillögu stjómarinnar um sakar-
uppgjöf. f þinginu kom fram. að
þar sem Rankovic og félagar hans
hefðu lengi verið í þjónustu rikis
ins yrði að sýna þeim mildi, en
um leið fordæma misferli þeirra.
Bókmennta-
verðlaun
gagnrýnenda ;
;
IGÞ—Rvík, föstudag .
Dagblöðin í Reykjavík
hafa komiS , sér saman
um aS efna til bók-
menntaverðlauna eða
viðurkenningar ár hvert.
Verðlaun þessi verða |
veitt í janúar og þá i
verða fyrstu verðlaunin
væntanlega veitt í jan- 1
úar næstkomandi.
Verðlaun þessi, eða viður
kenning, verða veitt fyrir
bezta skáldverk eða annað
verk bókmenntalegs eðlis,
og munu bókagagnrýnendur
hvers blaðs ákvarða hverju
sinni, hvaða verk skal hljóta
þessa viðurkenningu. Einn
maður frá hverju blaði mun
greiða atkvæði í stigurn, og
ræður stigafjöldi saman-
lagður hvaða bók fær viður
kenningu hverju sinni.
Bókagagnrýnendur og rit
Framhald á bls. 15.
íshrafl 16
sjómílur
frá Kögri
Föstudaginn 9. desem-
ber 1966, var ísinn útaf Vest
fjörðum kannaður af TF-SIF.
Kl. 11.15 var lagt af stað
frá Reykjavikurflugvelli og
haldið fyrir Jökul og þaðan eft
ir 12 mílna fiskveiðimörkunum
til Vestfjarða. 16.0 sjóm. NV
af Kögri var komið að ís-
hrafli sem svaraði til 1/10 til
3/10 ag þéttleika. Þaðan var
haldið NA. að stað 67°25‘N 20°
30‘V, þar var snjúið og haldið
með ísröndinni SV.-um að stað
65°25‘N 27°40‘V. Á þessari leið
var ísinn nákvæmlega staðsett
ur og dreginn í meðfylgjandi
kort. Frá stag 65°25‘N 27°40
Framhald á bls. 7.
LÝSI VEGNA PER ÚVERKFALLSINS
SJ-Reykjavík, föstudag.
Að undanfömu hefur verð á
síldarlýsi farið hækkandi og er
nú komið upp í 65 pund per
tonn, en fyrir mánuði var verð-
ið ekki nema 50 pund per tonn.
Þegar reiknað var út verð fyr-
ir síldina í sumar var gert ráð
fyrir að takast mætti að selja
tonnið á 70 pund og 10 shill-
inga. Hækkunin stafar af
stöðvun veiðanna hjá Norð-
mönnum og vegna hins lang-
varandi verkfalls hjá sjómönn
um í Perú.
Ástæða er til að gtteðjast yf-
ir því að síldarlýsið skuli nú
hækka aftur en það var orðið
mjög óeðlilega lágt.
í viðtali við Tímann í dag
sagði Sveinn Benediktsson, for
maður stjórnar SR, að ekki
væri eiftir nema 15—20 þúsund
tonn af síldarlýsi óseld. Heittd-
ar framleiðslan fram til þessa
er um 110—115 þúsund tonn.
Verðið fór lækkandi í októ-
ber og voru seld um 28 þúsund
tonn á 50 pund í lok október
og í byrjun nóvember. Undir
lok nóvember fór verðið hratt
uppávið þegar sýnt þótti að
verfcfallið í Perú myndi verða
langvinnt Þess má geta að SR
hefur ekki selt lýsi undir 55
Framhald á bls 7.
OVÆNT VEROHÆKKUN A SILDAR-
Simon Kapwepwe ,
Tillögur Breta í Rhodesíumálinu ræddar í Öryggisráðinu
KRAFA ZAMBÍU ER AL-
G JÖRT VIÐSKIPT AB ANN
NTB-New York, Sailsbury og Jó-
hannesarborg, föstudag.
Zambía karfðist þess í Öryggis-
ráðinu í dag, að öll viðskipti við
brezku nýlenduna Rhodesíu, sem
hefði sagt sig úr lögum við Bret-
land, yrðu bönnuð.
Samtímis berast þær fréttir frá
Jóhannesarborg, að alttir þrír
stjórnmálaflokkar S-Afríku legg-
ist gegn tillögum Breta um refsi
aðgerðir á hendur stjórn Rhodesíu.
Sagt var j Sailsbury í dag, að
iðnframleiðendur og kaupsýs'.u
menn í Rhodesdu legðu stöðugt
fastara að ían Smith og stjórn
hans að gera enn eina og síðustu
tilraun titt að ná samkomulagi við
Breta um lausn stjálfstæðisdeil-
unnar. Kaupsýslumennirnir ótt-
ast áhrif þau. sem refsiaðgerðir
myndu hafa á efnahagslíf lands-
ins og hafa því farið þess ákveðið
á leit við Ian Smith, að hann
gerði enn eina tilraun til sam-
komulags, en slí'kt skref gæti e.t.v.
orðið til þess, að Wilson lrægi
til baka beiðni sína til Öryggis-
ráðs Sameinuðu þjóðanna um að
Rhodesía yrði beitt ströngum efna
hagslegum refsiaðgerðum.
Hins vegar eru viðskiptafröm-
uðir í Rhodesíu ekki á einu máli
um það tjón, sem efnahagslegar
refsiaðgerðir kynnu að hafa, en
á sama tíma, spyr hinn almenni
borgari, hvort Rhodesía verði nú
ekki endaplega sjálfstætt ríki.
Smith hafði hvað eftir annað lýst
því yfir, að ef Bretar legðu Hhpde-
síu-deiluna fyrir S.Þ. myndi það
Framhald á bls. 7.
Skýrsla togaranefndar lögð fram:
Eru sammála um nauisyn
aukinnar veiSiheimildar
SJ-Reykjavík, föstudag.
f skýrslu togaranefndarinn-
ar, sem blaðinu barst í dag,
er að finna ýmsar upplýsingar
um núverandi hag togaranna,
en nú er á döfjnni að leggja
fyrir Alþingi hvort opna eigi
vciðisvæði fyrir togarana inn-
an landhelgi.
Nefndin kemst að þeirri nið-
urstöðu, að miðað við olíu-
kyntan nýsköpunartogara, þá
verði i ár haili á rekstri sliks
skips milli 5 og 6 milljónir kr.
Ekki má gera ráð fyrir að út-
gjaldaliði megi lækka svo
nokkru nemi, að óbreyttum
ástæðum, en nefndin ræðir sér
staklega tvo kostnaðarliði,
brennsluoliukostnaðmn og
liaunakostnaðinn. Verðjöfnun-
argjaldið nemur nú kr. 130.00
á lest og ef það væri feilt nið-
ur, gætu sparazt um 200 þús.
kr. kostnaður á togara að með-
altald.
Framhald á bls. 14