Tíminn - 10.12.1966, Blaðsíða 7

Tíminn - 10.12.1966, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 10. dese«iber 1966 TÍMINN 7 MINNING Katrín Þórðardóttír frá Flatey á Breiðafirdi Fríð í sjón og Ihorsk í hjarta, hötfðingslund af enni skein, svipur, athöfn — al'lt nam skarta af Iþví sáiin var svo hnein. Matth. Joch. Þess heffur stundum gætt í tali breiðffirzkra eyjamanna, að ekki væri öðrum hent búseta í eyjum en þeirn sem þar væru fæddir og uppaldir — og helzt ættaðir það- an afftur í aldir. Þessi skoðun er fáránleg og fær engan veginn staðizt. Er sama hvort gengið er á EHiðaeyjar- bjarg, Hafnarbjarg eða Vaðsteins- berg og litast þaðan um í hópi karla og kvenna nœr og fjær í byggðarsögu eyjanna. Skoðunin, ef skoðun skyidi kalla, er röng. Katrín Þórðardóttir var fædd í Reykjavík 11. desember árið 1886. Voru foreldrar hennar _séra Þórð- ur Ólafsson og Manía ísaksdóttir, bæði ættuð af Suðunlandi. Ársgöm ul fluttist hún með foneldrum sín- um vestur til Dýrafjarðar, þar sem faðir hennar var pnestur um 40 ára skeið, og ólst þar upp á róm- uðu menningar og myndadheimili foreldra sinna í hópi mangra mannvæniegra systkinia. Arið 1913 yfingaff Katrín æsku- heimili sitt og ættingja í Dýraffirði og fluttist m Flateyjar á Bneiða- firði. 8. nóvember sama ár giftist hún Steini ÁgúSti Jónssyni, er þá var náðsmaður á búi Guðmundar kaupmanns B e rgsteinssonar. Seinna gerðist Steinn Ágúst verzl- unarmaður hjá Guðmundi og að lokum sparisjóðsstjóri og oddviti KRAFA - Framhald af bls. 1 þýða endanlega únsögn landsins úr brezka Samveldinu og stxjfn- un lýðveldis, hvað sem það kost- aði. Utanníkisnáðherra Zambíu, Simon Kapwepwe sagði í Gryggis- ráðinu í dag, að tillögur Breta, sem lagðar voru fyrir náðið í gær, gerðu aðeins ráð fyrir hálfri lausn mála og skoðun Zambíu væri sú, að hernaðaraðgerðir af hálfu Breta væri eina leiðin til að steypa stjórn Ian Smith. Svo lengi sem ekki kemur til neinnar valdbeitingar og hernað- arlegrar lausnar, verður að líta svo á, að stjórn Wilsons standi með Smith og að stefna Breta mótist af kynþáttasjónarmiðum gagnvart Afríkumönnum, sagði ut- anníkisnáðherrann. Zambía er ekki meðlimur Or- yggisráðsins, en hefur fengið að taka þátt í viðræðum um þetta mál, þar sem það snertir ríkið svo mjög. Sjálfstæðisyfirlýsing Bhodesíu hefur komið hart niður á nágrannarí'kinu Zambíu. Haft var, eftir áreiðanlegum: heimildum í aðalstöðvum S.Þ. í; dag, að utanríkisráðherra Breta,; George Brown færi þegar 1 kvöldi heimleiðis til að gefa Wilson, for- sætisráðherra skýrslu um viðbrögð in við tillögum Breta í Öryggis- ráðinu. Talið er líklegt, að Öryggisráð- ið geri hlé á viðræðum yfir helg- ina til að gefa aðildarríkjunum tækifæri til að kynna sér gaum- gæfilega tillögur Breta. í dag kallaði Vorster, forsætis- ráðherra S-Afríku leiðtoga stjórn- arandstöðunnar á sinn fund og á eftir var tilkynnt, að allir aðilar hefðu orðið sammála um að standa gegn tillögum Breta í Rihodesíumálinu. Flateyjarhrepps um fjölda ára. Steinn Ágúst er Vestfirðingur að ætt, en mun hafa flutzt til Flat- eyjar árið 1909. Þau hjón eignuð- ust eina dóttur bama, Gyðu að nafni. Hún er gifft og búsett hér í Reykjavík. Fóstursonur þeirra er Jóhann Kristjánsison skipstjóri nú búsettur á Akranesi. Og ekki man ég það sumar í Flatey, að ekki væru fleiri eða færri börn í sumardvöl á heimili þeirra. Þegar Steinn Ágúst var áttræð- ur, 22. ágúst 1959, minnist ég hans í stuttri blaðagrein og féllu þá orð, um Katrínu konu hans og heimili þeirra hjóna í Flatey, eitthvað á þessa leið: Svo lengi sem ég man eftir og haffði nokkur kynni af þeim hjón- um, stóð heimili þeirra við sporð Eyjólfsbryggjunnar — aðal verzl- unarbryggjunnar í Flatey — í húsi sem nefnt er Eyjólfshús. Hefur það verið hreppnum happ og komið sér vel fyrir marga. Heimili þeirra er eitt mesta mynd ar og risnuheimili í Breiðafjarðar- eyjum, og hefur svo verið síðan þau settust þar að fyrir nær fimm- tíu árum. Gestrisni þeirra er ein- stök. Skortir þó ekki góða gest- risni víða í eyjum. Heita má, að öllum sé heimil'l matur og kaffi í húsi þeirra á hvaða tíma sólar- hringsins sem er. Um það var mér vel kunnugt meðan ég átti heima í norðanverðum Breiðafirði. Svo offt lenti ég við Eyjólfsbryggjuna, stundum með þreytta og kalda ferðamenn sem ekki áttu ofmikið ÓVÆNT hækkað lítillega ur 16 sh 6d í 17 sh og jafnvel meir. Það er etfirtektarvert í sam- bandi við söluna á síldarlýs- inu að kaupendur fram til þessa haffa að mestu verið „spekúlantar,“ en lítið verið um sölu beint til neytenda. Síldarverðið stendur nú óbreytt til áramóta, og bót.t verðið á síldarlýsinu verði hag- stæðara, kemur á móti, að verð mæti sildarinnar fer minnkandi með hverri viku hvað fitumagn snertir. af lausum aurum. Þá var kreppa og lánsfjánskortur í landi. Þar var enginn munur gerður á háum og lágum. ÖHum var tekið af sannri gestrisni, hlýju og velvild. Katrín Þórðardóttir minnir mig oft á eina stallsystur sína í Breiða- firði, er svo segir um í gamalli sögu: „Geirríður sparaði ekki mat við menn, og lét gera skála sinn um þjóðbraut þvera.“ Eða er hún kannski arftaki Guðrúnar í Mið- bæ, s«m öllum gerði gott af litlum efnum, óþægustu strákarnir í Fl'at- ey virtu og elskuðu hana svo, að þeir urðu bljúgir og auðmjúkir ef þeir aðeins sáu hana, þótt öðrum væru þeir lítt viðráðanlegir, og Matthías minnist svo: Hjálpfýsi þín og hjartagæzka undrun og elsku allra vakti. Fyrir að hafa orð á þessu — sem þó allir kunnugir vita — fæ ég vísast litlar þakkir hjá minni ágætu vinkonu, því yfirlætislausari manneskja, hjartprúðari og hlé- drægari er ekki til. Þessi orð voru skrifuð meðan Kartín var enn á lífi, og eiga því ekkert skylt við eftirmælaskrum. Þau voru sönn þegar þau voru skri'fuð, eru sönn enn í dag og verða aldrei annað en sannmæli um Katrínu Þórðardóttur, þótt föl séu og fátældeg í minni framsetn- ingu. Um hana verður ekkert sagt nema gott. Það var mannbætandi að kynnast henni. Og nú hef ég litlu við að bæta, þótt Katrín sé öll. Fundum okkar hefur sjaldan borið saman síðustu árin. Ég er löngu fluttur af æsku- stöðvunum í Breiðarfirði, en Katrin átti aUtaf heima í Flatey, „þar sem öll mannverk höfðu yfir- bragð fortíðarinnar, en náttúran svip hinnar eilíffu fegurðar.“ Ég hélt, að hún mundi eiga legstað í kirkjugarðinum í Flatey, þar sem hún hafði kvatt svo marga samferðamennina með sínum þýða söng. En margt breytist óðar en varir. Hún varð fyrir því slysi snemma á þessu ári, að detta og brákast svo í mjöðm, að síðan gekk hún ekki heil til skógar. Það var henni mikið áfall. Eftir það gat hún ekki veitt nágrönnum og ættingjum slíkt liðsinni sem áður. Veikindin ollu því, að um nokk- urra mánaða skeið var hún suður á Akranesi til lækninga. En hún var aftur komin heim í Flatey, en aðeins til stuttrar dvalar. Á- kveðið mun hafa verið, að þau hjónin flyttust suður með haust- inu. En þá var komið að leiks- lokum. Hún dó í Flatey 27. októ- ber s.l. og var jarðsungin hér í [ Reykjavík 9. nóvember, af sóknar- presti siínum séra Þórami Þór á Reykhólum. Hún var orðin aldin að árum og haffði lifað gifturíka ævi. Fráleitt hefði það verið henni að skapi, að Iifa langa elli karar- manneskja og þurfa verulega á annara hjálp að halda. Henni var hllft við því. Katrín Þórðardóttir var kona fríð sýnum, nettvaxin og bein- rvaxin og hafði framúrskarandi þokkafulla yfiriætislausa fram- komu. Hún var söngvís og bók- hneigð og las mikið skáldskap og aðrar fagrar bókmenntir. — Hún var Flatey til sóma þótt ræturnar lægju annars staðar. Við fráfall hennar eru Breiðafjarðareyjar einni höfðingskonu fátækari. 28. 11. 1966. B. Sk. Framhald af bls. 1. pundu» per tonn, og af því magni, sem var óselt þegar hækkunin kom, átti SR um % hluta. Verð á síldarmjöli hefurj Tvær áskoranir Áskorun send Borgarstjórn Reykjavíkur: Fundur Kvenréttindafélags ís- lands, haldinn 15. nóv. 1966, bein- ir þeim tilmælum til Borgarstjóm ar Reykjavíkur, að hún hlutist til um það, að Barnavinafélagið Sum argjöf leiggi tafarlaust niður þá nýbreytni að loka barnaheimilun- urn kl. 17, en hafi þau a.m.k. op- in frá kl. 8—18. Fundurinn telur, að með þess- ari ráðstöfun félagsins sé þjón- usta þess við einstæðar mæður og aðra foreldra og forráðamenn barna skert að verulegu leyti. Fundurinn vill benda á, að það torveldi atvinnumöguleika kvenna ef þær þurfa að hverfa af vinnu- stað kl. 16.30. Fundurinn telur, að eðlilegra værí, að barnaiheimili borgarinn- ar færðu út starfsemi sína, svo að hún kæmi sem flestum að gagni. Áskorun send stjórn Bamavina- félagsins Sumargjafar: Fundur Kvenréttindafélags ís- lands, haldinn 15. nóv. 1966, átel- ur þá ráðstöfun Barnavinafélags- ins Sumargjafar að Ioka barna- heimilunum kl. 17 Fundurinn telur, að með þess- ari ráðstöfun félagsins sé þjón- usta þess við einstæðar mæður og aðra foreldra og forráðamenn barna skert að verulegu leyti. Fundurinn beinir þeirri ein- dregnu áskorun til stjórnar Sum- argjafar, að lokunartíma barna- heimilanna verði hið allra fyrsta breytt þannig, að opið verði framvegis frá fcl. 8—18. GULLNA HLIÐIÐ Sýningum á Gullna hliðinu lýkur fyrir jól hjá Þjóðleikhúsinu og verS ur síðasta sýning leiksins fimmtu- daginn 15. desember og er það 35 sýning leiksins aS þesu sinni á leik sviði ÞjóSleikhússins. ASsókn hef ur jafnan verið góS eins og ailtaf þegar þefta vinsæla leikrit er sýnt. Myndin er af Gunnari Eyjólfssyni í hlutverki Óvinarins. Útlendingar sækja um prófessors- embætti Umsóknarfrestur um þrjú prófessorsembætti í heimspeki- deild hásbólans rann út 1. desem- ber s.l. — Um prófessorsembættið í ensku sækja: 1) Heimir Áskels- son, docent, 2) dr. AUan E. Bouch- er, 3) Anthony Faulkes M. A. 4) Brian Johnston, M.A., 5) C.G. Harlow M..A, 6) I.J. Kirby, lektor, og 7) D. Maskells, BA. — Um prófessorsembættið í almennri sagnfræði sækja: 1) Ólafur Hans- son, menntaskólakennari, Odd Didriksen, lektor, og Ulf Sjödell, fil. lic. Um prófessorsembætti í Norð- urlandamálum bárust engar um- sóknir. Menntamálaráðuneytið, 2. des. 1966. ÍSHRAFL Framhald aí bls 1 ‘V var haldið á Garðskaga, en þaðan til Reykjavíkur og lent á Reykjavíkurflugvelli kl. 16.00. Flogið var í 1000 fetum. Veður á leiðinni var NA-7 til 8 vindstig. Éljagangur. Skipherra á TF-SIF í þessari ferð var Höskuldur Skarphéð insson flugstjóri Guðjón Jóns- son. HrSRV(;(I.IENDUR Smíðum svefnherbergis op eldhússinnréttingar SÍMI 32-2-52. NITTO JAPÖNSKU NITT0 HJÓLBARDARNIR í fiostum stærðum fyririiggjandi f Tolivðrugoymílu. FUÓT AFGREIÐSLA. DRANGAFELL H.F. Skipholti 35-Sfmi 30 360

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.