Tíminn - 10.12.1966, Qupperneq 9

Tíminn - 10.12.1966, Qupperneq 9
LAUGARDAGUR 10! d-esember 1966 TfMINN við Grástreng stríðsins Guðmundur Daníelsson: Turninn og teanngurinn. ísafoldarprentsmiðja. Ég opnaði þessa nýju skáldsögu Guðmundar Daníelssonar með nokkurri forvitni. Hvort tveggja var, að þess hafa sézt merki á síðustu bókum hans, að nokkur breyting væri að verða á stíl hans og efnistöikum, og í þessari bók bregður hann fyrir sig fremur fá- tiðu afbrigði skáldsöguforms. Líti'lil vafi er á því, að bókin Sonur minn Sinfjötli er bezta verk Guðmundar og líklega það, sem hann hefur lagt mesta alúð við, og þá lagt mest að sér við ögun máls og stíls og sýnt bezt, hvað hann getur, en það ber of sjaldan við. Honum virðist ekki lagið að liggja yfir frásögn sinni, eða hafa yndi af að meitla og skrifa aftur og aftur sömu bók, áð ur en hún er gefin út. Frásagnar- gleði hans er of mi'kil til þess, ákafi hamhleypunnar of einráður. í skáldsögunni Húsið, sem ég tel framarlega í flokki skáldsagna Guðmundar, leitast hann við að bregða upp mynd af liðnum um- brotatímum, ag í þessari nýju skáldísögu hans er tema hans að visí’í leyti líkt, en hann lítur sér nær. Efnisatvik Hússins eru honum nógu fjarri til þess, að hann hefur á þeim góð tök og er hlutlaus gagnvart þeim sjálfur. En sögusvið, pérsónur og atburðarás Túrnsins óg teningsins er honum völd og fer sínar götur, ekki í þjónustu við lögmál sögunnar. heldur stigu þess, sem raunveru- lega hefur gerzt. Og sú tilfinning sækir sífellt á mig við lestur sög- unnar, að höfundurinn sé alltaf í vandræðum að hemja fólk sitt og halda því innan vébanda sög- unnar. Persónurnar eiga sér ýms- ar of miklar fyrirmyndir í lífi og kynnum höfundar til þess, og Guðmundur Daníelsson lífshilaup þeirra er enn of á'hrifa- sterkt. Þær verða því oft og einatt eins og jarðbundnar sálir eru sagð ar í fynstu vist í himnaríki. Þegar sHkt gerist, þarf að skrifa söguna aftur og aga sögufólkið betur. Það er gott og gilt hverjum höf- undi að taka sér persónur úr lífinu, eða hafa hliðsjón af ákveðnu fóúki við persónugerð, en því meiri gætur verður að hafa á því, að þetta hirðfólk lúti heimil- isaga sögunnar og þjóni tilgangi hennar alveg, og höfundimnn hafi það á valdi sinu en sé ekki háður því og missi það ekki hvað eftir annað inn í smáleg atvik eign lífssögu þess. Þetta finnst mér stundum gerast í Turninum og teningnum, og vafalaust munu ýmsir telja sig kannast þar við umhverfi og ýmsar persónur. Mér virðist það megintilgangur höfundarins með þessari sögu að sýna hvernig íslenzku fólki hefur reitt af í hafróti stríðsins, skipt- um og návígi við erlendan her, og bregða jafnframt upp myndum Skagfirzkrar æviskrár II. bindi eru komnar út- Allir Skagfirðingar þurfa að kaupa og eiga þessa bók. — Skagfirzkar æviskrár er jóla- bók yðar í ár. Aðalumboðsmenn: Björn Daníelsson, Sauðárkróki, Þormóður Sveinsson, Rauðumýri 12, Akurevri og Sigurjón Björnsson, sími 18864, Rvík. Auk þess fæst bókin hjá flestum bókaverzlunum og víðar. SÖGUFÉLAG SKAGFIRÐINGA. Höfum opnaö nýja kjötbúð að Stigahlíð 45—47. Mikið og gott vöruval. — Næg bílastæði. Kjötbúð Suðurvers Stigahlíð 45—47. — Sími 35645. þess gróðurs í mannlífi og þjóð- lífi, sem upp af því hefur sprottið. En það er þó fólkið, áhrif um- brotanna á það, sem höfund skipt- ir öllu máli, og er svo jafnan í skáldskap Guðmundar. Gagnvart þessu verki er hann ætíð heiðar- legur og hlutlægur og lætur sjald- an andúð eða samúð skekkja myndina. Þetta verður enn mesti kostur sögu hans. Aðalpersónurn- ar, einkum Ármann Grimsen, full- trúi athafnamannsins á umbrota- tímum, og kona hans, eru harla Ólíkar persónur með gerólíkt mat á verðmætum Hfsins. Samleikur þeirra í sögunni er harla athygl- isverður, og einnig gegna þau vel sínu hlutverki Jón ísland og Lilja Pönn og verða mjög táknræn um vandræðasamskipti hersins og landsmanna. En flestar aðrar persónur lifa meira og minna i i einhverjum afkáraheimi og þjóna ýmissi ónóttúru, en vel má vera, að tiigangur höfundarim, sé ein- ímitt að láía þær lýsingar vera j eins konar undirspil eða undir- ! strikun rótleysisins, gerjunarmo- ! ar, sem birtist í ýmissi spillingu. |En þetta drepur allt saman sög- unni mjög á dreif, enda virðist óþarflega mörgu fólki fram teflt, og það leikur of lausum hala, stundum of háð lifandi fyrirmynd- um. Síðari hluti sögunnar er frá- sögn Gyðu Grímsen af sögufólk- inu. Það sj'álft verður fjarrænna lesandanum, og hann getur skoð- að það í nýju ljósi, fylgzt með afdrifum þessara kunningja og fengið af því fregnir, hvernig þeim reiðir af. og hvað upp af því sprettur, sem sáð var í megin- sögunni. Þetta form er á ýmsan hátt forvitnilegt en krefst meiri hnitmiðunar og stjórnar en fram kemur í þessari bók. Sagan Turninn og teningurinn er vel rituð bók og sögusvið henn ar og viðfang tímabært skáldsögu- efni en harla örðugt viðskiptis vegna nálægðarinnar. Form sög- unnar er nýstárlegt, en bygging hennar allt of lausleg. Sögufólk- ið margleitur og breyzkur söfn- uður, og óþarflega margt af kitl- andi en ósögulegum og fánýtum lífsatvikum til tínt. En safamikið er það líf, sem lifað er á bökk- um Grástrengs, þar sem athafna- maðurinn byggir Hlaðbæ og Ár- mannshöfn. Og svo geta menn skemmt sér við að endurþekkja persónur og atburði. En vafasanit er að bókin verði talin til beztu skáldverka Guðmundar Daníels- sonar. ísafoldarprensmiðja hefur sent frá sér í annarri útgáfu skáld söguna Eld eftir Guðmund Daní- elsson, og er hún fjórða bindi i samstæðu ritsafni Guðmundar. Eld ur kom út 1941 hjá Þorsteini M. Jónssyni á Akureyri. Hún gerist á afmörkuðu smásviði. í litlu sam félagi, einangruðu og sveltu, ag fjallar um átök og leik mannlegra ástríðna i þröngum hring fólks, sem er bundið og dæmt til að búa saman í litlum stað. Þessi saga er vafalaust meðal betri skáld- verka Guðmundar, heilsteyptari en margar aðrar og vel rituð, fág- uð og þróttmikil. Með henni telst Guðmundur orðinn þroskaður og mótaður s'káldsagnahöfundur, og þar sjásf greinilegast þeir höfunda kostir, sem Guðmundi hefur ver- ið mest hald að á síðari árum. Annars eru bækur Guðmundar nú orðnar hartnær þrjátíu. AK- OG „Akkorö" bænda Það er alkunna, að undan- farna áratugi hefur verið lagt mest kapp á það að auka land búnaðarframleiðsluna. Allar aðgerðir hins opinbera hafa stefnt að þessu, þótt mismiklar og mishagstæðar frá sjónar- miði bænda hafi þær oft á tíðum verið. Bændur hafa heldur ekki leg ið á liði sinu og framleiðslan hefur stöðugt vaxið, þrátt fyrú stöðugt færri hendur, sem að henni vinna. Á tímabiUnu frá 1930—1965 hefur framleiffslu verðmætið á milli fjór og fimm faldazt, eða vaxið úr 438 milljón um krónum í 2.039 milljónir, reiknað á verðlagi ársins 1965 Á sama tíma hefur fólkinu fækkað við landbúnaðarstörf meira en um þriðjung eða reikn að í vinnuárum úr 17300 árið 1930 í 10200 árið 1965. En vegna aukins verzlunar búskapar er talið, að búskapur inn sjálfur hafi ekki staðið undir allri þessari verðmætis aukningu ,og sé það dregið fra, sem stafar frá öðrum atvinnu vegum, svo sem við kaup á fóð urbæti, tilbúnum áburði, vélum og byggingarefni, og er það áætlað 40% áf framleiðsluverð mætinu 1965, er samt eftir aukning, sem svarar til 500% eða fimmföldun vegna aukinna afkasta vinnuaflsins. Ef litið er á yfirlit yfir fjár munamyndun í landbúnaðinum og fjáröflun til hennar á árun um 1958—64 sést, að bændur hafa alltaf aflað mesta hluta fjármunanna sem fóru til upp byggingarinnar sjálfir, það er annað hvort með eigin fjár framlögum og vinnu eða með skuldasöfnun við aðra aðila en lánasjóði landbúnaðarins- En minnihlutinn hefur komið sem beint framlag frá ríkinu og lán til lengri tíma úr sjóðum Bún aðarbankans og hefur sá hluti farig mninkandi á þessu tíma- bili. Fjáröflunarleiðir landbúnaðarins tii fjármyndunar í %. 1958 1959 1960 1961 1962 1963 1964 Ríkisframlag 19.4 18.4 16.0 15.0 11.8 14.0 18-2 Lán úr sjóðum Bún.b. 25.6 24.9 26.9 19.3 19.1 21.2 17-7 Samtals: 45.0 43.3 42.9 34.3 30.9 35.2 35.9 Aukn. skulda við aðra aðila 12.2 16.8 6.5 6.5 24.9 20.7 15.9 Eigin v. og fjárframl. 42.8 39.9 50-6 59.2 44.2 44.1 48.2 Samtals: 55.0 56.7 57.1 65.7 69.1 64.8 64.1 AIls: 100.0 100.0 100.0 100.0 100-0 100.0 100.0 Heildarfjármunamyndun reiknað á verðlagi hvers árs í millj. króna 171.8 182.3 200.4 230.0 289-0 346.0 439.5 Hér er um að ræða fjármuna myndun í þágu atvinnuvegarins það er ræktun og girðingar, útihús, vélar og önnur tæki en íbúðarhús ekki með talin. Þegar tekið er tillit til þess, að landbúnaður er atvinnuveg ur, þar sem fjárfesting tekur fremur langan tima og skilar seint arði, en er oft varanleg, þannig að á henni má byggja um alla framtíð. En á hinn bóg inn er oft á tíðum erfitt að breyta þeim verðmætum í hand bæra peninga sem í henni eru bundin, ef menn þurfa að hverfa frá búum sínum ein- hverra orsaka vegna, þá hlýtur það að vekja undrun hversu hlutur bænda sjálfra er stór, hvað þeir eru fúsir jafnvel fram á gamals aldur að binda allt sitt fé i bótum á jörðum sínum, þó að þeir viti fuli vel, að sjálfir munu þeir ekki njóta arðsins, og oft óvíst um hvort svo verður um eftirkom ' endur’ þeirra. Það er því ekki nokkur vafi á því að bændur eru sparsamasta stétt þjóðfélags ins í þeim skilningi, að þeir verja minnstu af aflafé sinu til eigin eyðslu, en mestu til að byggja upp fyrir framtíðina. Ástæðurnar fyrir þessu eru margar, og meðal annarra sú, að bændur reka sitt eigið fyrir tæki á eigín ábyrgð og að mestu með eigin vinnuafli Hag ur bóndans og búsins er einn og ainn sami Bændur le’ka ekki þann leik að setja fyrir- tækið á hausinn, en hverfa sjálfir frá allri ábyrgð og skjóta svo upp kollinum sem nýir endurfæddir (og flekklaus ir) í öðrum „bransa". Önnur er sú, að bændur hafa lengi verið í akkorði hjá þjóð félaginu, svo haganlega frá gengnu, ag þeim mun meira sem þeim hefur tekizt að auka afköstin, því meir er akkorðs greiðslan lækkuð. Þegar bænd um hefur tekizt að auka afurð irnar með því að stækka búin og ængja vinnudaginn, hefur það við næstu ákvörðun á verð lagsgrundvelli verið notað til að lækka afurðaverðið. Þetta er svipað og ef stöðugt "æri fyigzt meg þvi hjá hinum svokölluðu uppmæ'ingastéttum nvaða ?fköstum þeir raunveru lega gætu náð og ’reiðsla.i fyr ir hverja mælieiiiingu þá stöð ugt lækki b er i ijós kæmt að Framhald 4 bls. 15.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.