Tíminn - 22.12.1966, Page 1
ÍÉAÐUR MYRTUR
Alf—Reykjavík, miðvikudag.
Um sjö-leytið í kvöld varð
sá atburður, að maður var
skotinn til bana í húsi hér í
Reykjavík. Eftir því, sem blað
ið vissi bezt í kvöld var hér
um að ræða sjómann um þrí-
tugt. Banamaður hans var fær
eyskur og lét hann lífið fyrir
ergin hendi er hann hafði svipt
hinn Hfi.
Rannsókn málsins var á
frumstigi í kvöld, og erfitt
að afla sér upplýsinga um að-
draganda þessa voðaverks. Þó
veit blaðið ekki betur en báð-
ir mennirnir hafi verið undir
áhrifum áfengis. Morðið var
framið á heimili konu Færey-
ingsins en þau munu hafa ver-
ið að skilja, eða skilin.
Báðir mennirnir létust sam-
stundis og eina vitnið að þess-
um atburði mun hafa verið
kona Færeyingsins. Mun hún
hafa fengið taugaáfall við at-
burðinn, en ekki veit blaðið,
hvort hún var undir læknis-
hendi.
Rannsókn málsins hófst í
kvöld eftir því, sem föng voru
á, en mun vera komin það
stutt á veg ennþá, að ekki ligg
ur ljóst fyrir hvaða ástæður
voru valdar að þessum hryggi-
lega atburðL
10 milljónir falsaðra punda teknar:
Áttu að fara
til Rhodesíu
NTB—Frankfurt miðvikudag. verið gert að lýðveldi. Til-
Vestur-þýzka lögreglan gerði kynnti vestur-þýzka lögreglan,
í dag upptæk um 10 milljón að óeinkennisklæddir lögreglu-
sterlingspund í nýprentuðum menn hefðu gert fúlguna upp-.
seðlum, sem eftir öllu að tæka rétt í þann mund, er
dæma átti að n«ta í Rhodesíu flytja átti seðlana um borð í
eftir að ríkið hefði formlega Framhald á bls. 11.
Deilan um bókina „Dauði forseta":
ÍiiiM
Ritþjófar hyggjast
dreifa umdeildum
köflum í flugpósti
HOPE OG
SPELLMAN
Það er í mörg horn.að líta síð
ustu dagana fyrir jól. Mönnum
finnst margt fara úr skorðum
hér á landi aðfangadagana en
ekki eru allar þjóðir á sama
báti í þeiim efnum. Til
að mynda láta Bandaríkjamenn
ekki setja sig út af laginu í
þessum efnum fremur en öðr-
um. Þótt margir nýtir menn
séu uppteknir við að sprengja
bombur í Nevada og vega mann
og annan í Vietnam, eru nógir
til að senda út af örkinni og
boða mönnum jólin Og leikar
ar eru ekki síður brúklegir með
geistlegum en stjórnmálamönn
um þar vestra. Þótt margir
væru kjörnir voru að vísu fáir
útvaldir, en valið var að lokum
ekki af verri endanum. Spell-
man kardínáli erkibiskup í
New York og Bob Hope lögðu
land undir fót og fara nú víða.
Hans heilagleiki Francis Spell
man sést hér í hópi lúðrasveit
ar 8. fótgönguliðssveitar Banda
ríkjahers í herbúðunum í Mann
heim í V-Þýzkalandi, sem, var
fyrsti áfangastaður hans í skipu
iagðri hnattferð. Hope mun
vera í Vietnam þessa dagana
NTB—New York, miðvikudag
„Ritþjófar" hafa í hyggju
að birta þá umdeildu þætti
bókarinnar „Dauði forseta",
sem útgefendur bókarinnar í
Bandaríkjunum hafa ákveðið
að sleppa úr útgáfum sínum,
að því er bandaríska blaðið
The World Journal Tribune
skrifar í dag.
Blaðið fullyrðir, að a.m.k. eitt
eintak af upphaflegu handriti
Williams Manchesters um morðið
á Kennedy forseta hafi fallið i
hendur umræddra ritþjófa. og
hafi þeir sent það til Formósu til
prentunar þar.
Fyrr í dag tilkynnti lögfræðing-
ur Jacqueline Kennedy að ný til-
raun hafi verið gerð til þess að
ná samkomulagi í deilunni milli
frú Kennedy og tímaritsins Look,
sem ætlar að birta kafla úr bók-
inni.
Blaðið skrifaði, að þjófarnir
hefðu í hyggju að prenta hina um
deildu þætti bókarinnar á 15 þunn
ar arkir, sem hægt væri að senda
í pósti til Bandaríkjanna sem
Ivenjulegt bréf. Verðið eigi að vera
fimm dollarar, eða tæpar 220 krón
ur íslenzkar.
Hungurdauði vofir nú
yfir 2D000 hreindýrum
IMTB—Gællivare, miðvikudag.
Hungurdauði vofir nú yfir
öllum hreindýrasfofni Gælli-
varehéraðs í Svíþjóð, um 25
þúsund dýrum. Snjólagið á
þessum slóðum er um 1 mefril dýramosann. Ekki bætir úr
og 10 sentimetrar að dýpt og skák, að stöSugt snjóar.
yfir sverðinum klakaskán sem
kemur í veg fyrir, að dýrin 1 dag var haldin sannköllu neyð
9 | ' 1 . | arraðstefna yfirvaldanna til um-
geti kroppað niður á hrein-|rægu um hugsanlegar ráðstafanir
í þessu sambandi. Segir í fréttum
að alveg á næstunni muni dýrin
fara að falla í hrönnum.
Gamlir menn muna ekki annað
eins neyðarástand síðan veturinn
Framhald á bls. 11.
SVARTI
DAUÐIA
INDLANDI
NTB—Nýju Delhi, miðviku-
dag
Svarti dauði er kominn
upp í Indlandi. Þau válegu
tíðindi hafa leitt til gffur-
lega umfangsmikilla varúðar
ráðstafana indverskra yfir-
valda. Vi'tað er um 8 manns
sem látizt hafa af völdum
pestarinnar. Sérfræðingar i
meðferð sjúkdómsins voru
þegar sendir til Chijgan-hér
aðs nálægt Simla upp undir
Himalaja-fjöllum þar sem
staðaryfirvöld höfðu þegar
gert bráðabirgðaráðstafanir
til að einangra drepsóttina.
Fréttin um að átta manns
hafi þegar látizt er ekki stag
fest og sagði talsmaður heil
brigðisstjórnarinnar í Nýju
Delhi að þeim hefði ekki ver
ið tilkynnt um nema eitt
dauðsfall og þrjá sýkta
menn. Þetta er ekki í fyrsta
sinn, sem pestin herjar á
Indlandi. Á árUnum milli
1900 og 1920 er áætlað, að
um 10 milljónir Infverja
hafi látizt af völdum drep-
sóttarinnar. Síðan hvarf
sjúkdómurinn nær alveg.