Tíminn - 28.12.1966, Page 8

Tíminn - 28.12.1966, Page 8
3 TÍMIJNN MHJVIKUDAGUR 28. desember 1966 Sjötugur á r ■ V‘\ Hermann Jónasson fyrrverandi forsætisráðherra Ég bið Tímann fyrir þessa afmæliskveðju til Hermanns Jónassonar, sem átti sjötugsaf- mæli á jóladaginn. Þetta verða ekki síður þakk- ir en kveðja, því engum manni vandalausum á ég meira að þakka en Hermanni Jónassyni fyrir langt, mikið og óvenjulegt samstarf í pólitískri baráttu, sem svo hefur verið náið og á allan hátt þannig vaxið, að ég hefi kallað það pólitískt fóst- bræðralag í aldarþriðjung. Óneitanlega er mér minnis- stætt, að við vorum ungir sett- ir í mikinn vanda, og að Her- mann var mér sem eldri bróð- ir, sem aldrei brást. Ekki höf um við Hermann Jónasson þó alltaf verið sammála um allt! á okkar löngu samleið, sem að| líkum lætur. En við höfumi áreiðanlega báðir strengt þess! heit í hljóði hvor í sínu lagi; lemma í okkar samstarfi, að ss skyldum við vandlega gæta! j f jarlægjast aldrei hvor ann5 an þannig, að.til tjóns yrði sam eiginlegum átökum fyrír þann málstað, sem okkur var trúað fvrir, eða skaðaði þau málefni landsins, sem við höfum með höndum haft. Og það hefur ver ið auðvelt að standa við slík j heit í sam-starfi við Hermann Jónasson. Hermann Jónasson hefur ekki aðeins verið flokksleiðtogi áratugum saman — heldurj þjóða-rleiðtogi í orðsins fyllstul merkingu og markað djúp sporj í sögu landsins. Hann stjórnaðij átökum við kreppuna fyrirj stríðið og gerði það þannig aðl vörnin snerist í stórfellda framj f-arasókn. Hann stýrði þjóðarskútunni. í klakklaust hættulegustu ár j styrjaldarinnar og þeg-ar hætt- an v-ar mest á mistökum árin fyrir styrjöldina. Hann átti rík an þátt i stofnun lýðveldisins og stórfelldri framfarasókn þjóð arinnar eftir styrjöldina. Hermanni Jónassyni er það meira að þakka en nokkrum öðrum manni að unnt reyndist 1958 að ná samstöðu, þótt tæpt stæði, um útfærslu landhelg- innar í 12 mílur, og er það ein þýðingarmesta ákvörðun, serr) tekin hefur verið af 4lenzkum stjórnvöldum. Tæpast hygg ég vaskari mann haf-a háð stjómmálabaráttu á fslandi en Hermann Jónasson, enda fékk hann örðug viðfangs efni. Eins og vaskra manna er háttur óx Herm-ann við hverja raun, og bezt lcomu fram kostir hans þegar á reyndi að maiki, og ve-rulegur vandi steðjaði að. Þá var Hermann Jónasson ró- legur og æðrulaus eins og ekkert væri um að vera. Fór sér að engu óðslega, en íhugaði vel sitt ráð, unz hann hafði ákveð ið hvað gera skyldi, en fylgdi því þá fram með þeirri festu og krafti, sem ekkert virtist fá stáðist, sem í v-egi var. Þessir hæfil-eikar Hermanns Jónasson- ar hafa reynzt íslenzku þjóð- inni mikils virði síðustu ára- tugina Ég færi Hermanni Jónassyni hjartanlegar árnaðaróskir sjö- tugum og flyt honum innilegar þakkir fyrir forustu hans í mál efnum Framsóknarflokksins og málum þjóðarinnar allrar. Eysteinn Jónsson Hermann 'Jónasson alþingismað ur og fyrrverandi forsætisráðherra varð sjötugur síðastliðinn jóla- dag. Útvarpið þagði um afmælið að eindreginni ósk hans. En dag- blaðið Tíminn vill ekki taka til greina beiðni -hans um að láta að engu getið þessara timamóta í söguríkri ævi þessa mikilhæfa mann-s. Hermann Jónasson vill eiga kyrrláta afmælisdaga. Því fékk hann framgengt, þegar hann varð sextugur. Hins vegar hefur hann tekið svo veigamikinn þátt í sköp un sögu íslands á þessari öld, að hann verður að virða á betri veg, þótt við, samfylgdarmenn hans, telj-um sögunnar vegna, að óviðeigandi væri að láta sjötugs- afmæli hans fara hjá, án þess að draga, í sam-bamdi við það, út úr stjórnmálabaráttu mistrinu, sem enn þá er að sjálfsögðu ekki af rokið, nokkur dæmi um ver-k hans og bregða upp sönnum myndum af persónu mannsins sjálfs, en myndirnar hafa a-uðvitað í hita baráttunar verið ýmissum drátt- um dregnar af mótherjum, og þeir verið iðnastir við myndagerðina teins og gengur. Rétt mat á stórbrotnum stjórn- málamönnum kemur sjaldan frá -andstæðingum fyrr en þeir menn -eru falinir frá, — ef það þá kem- ur. II. Hermann Jónasson er fæddur 25. des. 1896 að Syðri-Brekkum 4 utanverðri Blönduhlíð í Skaga- firði. Hann er af góðu bergi brot- ; -inn, enda ber hann það með sér. Foreldrar hans voru hjónin Jón- as Jónsson bóndi og smiður og Pálína Björnsdóttir Péturssonar frá Hofsstöðum, — orðlögð ljós- móðir. Hermann stundaði venjuleg sveitastörf í æs-ku. Hann ólst upp við kröpp kjör, sem drégu þó ekki -úr þroska hans, en hertu hann og renndu honum forsjálni í merg og bein. Strax í uppvextinum -skaut -hann djúpt rótum andlega í jarðveg íslenzkrar bændamenn- ingar og tileinkaði sér þjóðrækni hennar og trú á landjð. Þær rætur hafa aldrei slitnað. Á þeim stend- ur hann enn, sá gildi meiður. Hermann var — að sögn — -bráðþroska og sparaði sig ekki til keppni. Tóks-t á við hvern, -sem til fékkst, enda voru aflraun- -ir, lausatök og glírnur meðal s-tráka á þeim tímum þjóðarsiður, sem hafði heilsusamleg áhrif á skapgerðina. H-ann kom til náms í gagn- fræðaskólann á Akureyri haustið -1914 og útskrifaðist þaðan eftir þriggja vetra n-ám vorið 1917 með -loflegum vitnisburði. f gagnfræðaskólanum kynntist ég honum fyrst: karlmenns-ku hans og metnaði, glímumennsku, skemmtilegri hæfni til fóstbræðra- lags og drengilegra viðskipta. Að loknu náminu á Akureyri fór hann í menntaskólann í Reykjavík, sat einn vetur í 4. bekk, en las námsefni 5. og 6. -bekkjar utan skóla og tók stú- dentspróf 1920. Því næs-t innrit- -aðist hann í Hás-kóla íslands og lauk embættisprófi í lögum 1924. ra. Árið 1924 gerðist Hermann Jónasson fulltrúi bæjarfógetans í Reykjavík. Fjórum árum síðar var ern-b- æt-ti bæjarfógetans skipt i lög- manns- og lögreglustjóraembætti. Tók Hermann við lögreglustjóra- embættinu 1. janúar 1929 eftir að hafa farið utan og kynnt sér lög- reglustjórn á Norðurlöndum og í Þýzkalandi. Gerði hann miklar um bætur á starfsreglum lögreglunn- ar. Gegndi lögreglustjóraembætt- inu til 1934, eða þar til sporin 'lág-u hærra. f ársbyrjun 1930 var Hermann kosinn í bæjarstjórn Reykjavíkur af framboðslista Framsóknar- manna. Áður hafði hann ekki tek ið þátt í flokkspólitik. fhaldsflokk urinn hafði leitað eftir því, að hann gerðist einn af forvígis- mönnum hans í bæjarmálunum, en hann hafði synjað. Ræturnar sögðu til sín. Um 'leið og Hermann varð bæj- arfulltrúi fyrir Framsóknarflokk- inn var hann orðinn einn af for- ingjum flokksins. Það gerðist af sjálfu sér vegna hæfileika manns-' ins. ( í bæjarstjórninni var -Hermann í 8 ár og lét þar mikið ti-1 sín taka. IV. Hermann Jónasson ba-uð sig í fyrsta sinn fram við alþingiskosn- ingar 1934. Fór hann í framboð í Strandasýslu á móti hinum glæsi lega og vinsæla höfðingsmanni Tryggva Þórhallssyni, sem hafði um skeið verið þingmaður Stranda manna, og við síðustu kosningar sjálfkjörinn. Vegna ágreinings hafði hann nú sagt sig úr Fram- sóknarflokknum, en bauð sig fram fyrir Bændaflokkinn, sem var ný- sbofnaður. Vann Hermann fræga-n sigur í þeim kosningum, — og hefur ætíð síðan átt miklu fylgi að fagna norður þar. Jafnframt því að keppa í Strandasýslu í kosningunum 1934, skoraði Hermann Jónasson á Magnús Guðmúndsson dómsmála- ráðherra að mæta sér á þrem kappræðufundum á tilteknum stöð um í Skagafjarðarsýslu, en þar yar dómsmálaráðherrann í kjöri. f bókinni Sókn og sigrar eftir Þórarin Þórarinssont segir orð- rétt: „Það var álit margra á eft- ir, að þessir fundir hafi orðið þess valdandi, að Framsóknarmenn unnu annað þingsætið í Skaga- firði, en á því valt þingmeirihlut- inn næsta kjörtímabil." Áður en Alþingi kom saman eftir þessar kosningar, varð Her- man-n Jónasson forsætisráðherra i samstjórn Framsóknarflokksins og Alþýðuflokksins. Hefur hvorki fyrr né síðar jafn ungur maður orðið forsætisráðherra á íslandi. Hann var ekki nema 37 ára og 'hafði það tekið hann aðeins fjög- ur ár, eftir að hann fór að starfa í stjórnmálum, að • klifa þennan tind. Meðráðherrar Hermanns Jónas- fconár í ríkisstjórninni voru: Ey- stelnn Jónsson, sem var fj'ár- ög viðskiptamálaráðherra, þá að- -eins 27 ára, og Haraldur Guð- m-undsson, er var sjávarú-tvegs- mála-, félagsmála- og kennslu- málaráðherra. Hermann fór með dómsmál, landbúnaðarmál og vega mál. Hlutskipti þessarar stjómar var erfi-tt. Heimskreppa, aflaleysi og markaðsihrun þjarmaði að þjóð- inni. Hinsvegar tókst þó stjórn- inni myndarlega að verja þjóðar- skútuna áföllum, og furðulegum álföngum var n-áð fram á leið. Stuðningsmenn ríkisstjórnar- innar nefndu hana: Stjóm hinna vinnandi stétta. Og hún bar það na-fn með rentu. Stjórnin beitti sér fyrir setn- ing-u margvíslegrar löggj-afar, sem mikil framsýni var í og reynst hefur upphaf stórkostlegra um- -bóta. Má sem dæmi nefna: Af- urðasöluiögin (sem ég kem nán- ar að síðar). Lög um nýbýli og_ samvinnubyggðir. Alþýðutrygg- J ingalögin. Lög um fiskimálanefnd útflutning á fiski, hagnýtingu markaða o.fl. Lög um síldarút- vegsnefnd o.s.frv. Fjármál ríkisins voru tekin mjög föstum tökum. — Þegar litið er til baka dylst ekki að gæfa fylgdi störfum þessarar stjómar, sem Hermann Jónasson myndaði 1934 undir þeim erfiðu -kringum- stæðum, er á voru. Hermann Jónasson var forsæt- isráðherra samfellt til 1942, en í þrem ríkisstjórnum. Fyrst í þeirri stjórn, sem að framan getur, fjögra ára skeið, siðan eitt ár með flokksbræðrum sínum ein- göngu, og loks þrjú ár í sam- steypustjóm Framsóknarflokks, Alþýðuflokks og Sjájfstæðisflokks. í ráðuneyti Steingríms Steiin- þórssonar 1950—1953 var hann landbúnaðarráðherra. Forsætisráðherra í hinni svo- nefndu Vin-stri stjórn 1956—1958. -Alls hefur hann gegnt ráðherra- störfum í 14 ár, — verið forsæt- isráðherra þar af 11 ár. I V. Það, sem ég tel að hafi mest einkennt Hermann Jónasson í ráð ’herra-störfum og yfirleitt í stjórn- málum, er kjarkur og djöitfung, samfara þeirri gætni í athöfnum á örlagastundum og hófsemi, er -aðeins sönn karlmennska getur haft ráð á. Samningalagni, jafn- vægisgóð dómgreind, réttskyn og hugboðsgáfa hafa einkennt hann, þegar mest hefur legið við, — og svo áhlaupadugnaður. Stjórnmálaferill hans rúmast ekki í einni blaðagrein, en væri 'bókarefni. Hér skulu nefnd fimm dæmi af mörgum, sem ég tel að sýni glögglega forustuhæfileika Her- manns, giftu í stjórnarstörfum og framsýni: 1. Afurðasölulögin 1934. Eitt af allra fyrstu verkum Her- manns sem forsætisráðherra var að gefa út báðabirgðalög um sölu á aðalbúvörum bænda og standa ■fyrir framkvæmd þeirra laga. Lög- gjöf þessi bjargaði bændastétt- iinni úr neyðarástandi og varð grundvöllur framtíðar fyrirkomu- lags í þessum mikilsverðu efna- hagsmálum. En löggjöfin mætti hatrammri andstöðu sterikra þjóðfélagsafla fyrstu árin. Hinum unga ráðherra tókst frækilega að mæta þeirri andstöðu og standa fyrir málefnum bændanna. Fáir munu nú vilja minnast fjandskap- ar síns við þessar þjóðþrifaaðgerð ir. 2. Þjóðverjum neitað um flugvellL Hinn ip. marz 1939 kom nefnd rnanna frá Þýzkalandi til þess að fá sakleysislegt leyfi handa þýzka flugfélaginu Lufthansa til flug- vallagerðar hérlendis og flugs að og frá landinu með farþega og póst. Hermann Jónasson beitti sér fyrir því, að synjað var um þetta lejri og hefur líklega sjaldan eða -aldrei verið tekin hér á landi ör- lagaríkari ákvörðun fyrir þjóðina og af slyngari fyrirhyggj-u og sj’álfstæði. Um þennan atburð seg- ir dr. Björn Þórðarson í bók sinni: Alþingi og frelsisbaráttan: „Þessi neitun íslenzku ríkis- stjórnarinnar um flugréttindi hér á landi Þjóðverjum til handa, þótti mikil tíðindi, hvar sem hún spurðist, og þó mest vestan hafs. Var frá þessu skýrt ræki'lega í útvarpi og blöðum. Svo vildi til, að í sömu vikunni og sendimenn- irnir þýzku voru gerðir út hingað til lands, höfðu Þjóðverjar inn- limað Tékkóslóvakíu að fullu, kúg að Lithauen til að láta af hendi Memelhérað og Rúmena til verzl- unarsamninga. Ósk Þjóðverja um flugstöðvar hér varð nú kunn öll- um heimi og talin vera liður í áformi þeirra um heimsyfirráð. Jafnframt skildist mönnum til hlítar, að flugstöðvar stórveldis hér á landi væru mikiisverðar fyr- ir eftirlit með skipaferðum um Norður-Atlantshaf og hentugur áfangastaður í flugferðum milli Evrópu og Norður-Ameríku." 3. Skilnaður við Dani. Eftir að Þjóðverjar hernámu Danmörku reis áhugaalda meðal íslendinga um að ^kilja við Dani að fullu þegar í stað. Sumir lands- menn voru aftur á móti þeirrar skoðunar, að ekki ætti að skilja við Dani fyrr en hægt væri að ræða við þá að lokinni styrjöld- inni. Ritaði þá Hermann Jónas- son (sem var forsætisráðherra) grein í dagblaðið Tímann og færði rök að því, að skilnaður þegar í stað væri ekki fær leið. Óhyggilegt væri einnig að bíða með skilnaðinn eftir styrjaldarlok um. Rétta aðferðin væri að haga skdlnaðinum svo sem hægt væri í samræmj við ákvæði Sambands- laganna. Ákveða strax að skilnað- urinn yrði 1944, en þó fyrr, ef styrjöldin endaði áður. Þetta var siðan í höfuðatriðum lagt til grundvallar með samkomu lagi milli allra flokka á Alþingi etftir að Hermann og Ólafur Thors höfðu gengið í að sætta flokkana um málið. ’Kemur þetta fram í ævisögu Stefáns Jóh. Stefánssonar og áðurnefndri bók dr. Björns Þórðarsonar.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.