Tíminn - 28.12.1966, Blaðsíða 16
296. tbl. Miðvikudagur 28. desember 1966 — 50. árg.
Svanur í Reykjavíkurhöfn ^
menn f órust með Svani
S.T-Reykjavík, þriðjudag.
Fullvíst er nú. taliS að vélbátur-
inn Svanur RE 88 hafi farizt með
S manna áhöfn, en síðast fréttist
af bátnum um kl. 15 á fimmtu-
dag. Þann dag skall á mjög skyndi
lega hið versta veður og var Svan-
ur á leið til lands er síðast frétt-
ist til hans.
Síðan á fimmtudag hefur verið
'haldið uppi víðtækri leit að bátn-
um. Á aðfangadag flaug Sif, flug-
vél Landhelgisgæzlunnar, og flug-
vél frá Varnarliðinu í ákjósan-
legasta veðri yfir leitarsvæðið og
fannst þá gúmbjörgunarbátur,
sem merktur var Svani, um 19
sjómílur norðvestur af Kópanesi.
Áður hafði fundizt brak úr bátn-
um, s.s. bjarghringur,, bauja, loft-
dæla úr gúmbát og skilrúmsborð.
Flugvélarnar hættu leitinni þegar
myrkur var skollið á, en þá voru
bátar enn á leitarsvæðinu og
Slys í Mánafossi
KJ-Reykjavík, þriðjudag.
Á aðfangadagsmorgun varð
vinnuslys við Mánafoss, er lá í
Reykjavíkurhö'fn. Verið var að
skipa i land glerkistum, er reist-
ar voru upp á rönd á bílpalli, og
féli ein kistan á verkamaniiinn
með þeim afleiðingum, að hann
fótbrotnaði.
komu ekki til heimaihafnar fyrr
en undir miðnætti á aðfangadags
kvöld. Vegna veðurs var ekki
fært að leita á jóiadag og á ann-
an dag jóla.
Skipverjar á Svani voru Ásgeir
Karlsson, skipstjóri, 25 ára kvænt-
ur og tweggja barna faðir, Friðrik
Maríusson, 1. vélstjóri, 47 ára,
kvæntur og fimm barna faðir, Jó-
hannes Lárupson, stýrimaður 24
ára, kvæntur og tveggja barna
faðir, Jón Helgason, 19 ára, ó-
kvæntur, Jóel Einarsson, mat-
sveinn, 49 ára, ókvæntur, Her-
mann Lúthersson, 24 ára, heit-
•bundinn systur Ásgeirs Karlsson-
ar. Ekki tókst að útvega mynd af
Jócl Einarssyni í dag.
Skipverjar voru allir frá Hnífs-
dal nema Hermann, sem var ætt-
aður frá Siglufirði.
800 kínverjar
gerðir upp-
tækir
KJ-Reykjavík, þriðjudag.
Núna um jólin gerði lijgreglan
í Vestmannaeyjum t upptæka um
átta hundruð kínverja, sem mumi
hafa verið ætlaðir til sölu. Kín-
verjar þessir voru í eigu fullorð-
ins manns.
í nótt var brotizt inn í bakarí
í Vestmannaeyjum og stolið það-
an sælgæti og sígarettum. Þjófn-
aðurinn upplýstist í dag.
DR. HERMANN
EINARSSON,
I '
Ásgeir Kartsson
Jón Helgason
Friðrik Maríusson
Jóhannes Lárusson
Hermann Lúthersson
Skafl teppti
alla umferð
Kj-Reykjavík, þrfðjndag.
Á jóladagskvöld tei>ptist
svo til öll umferð á milli
Hafnarfjarðar og Reykja-
víkur vegna stórhrfðar sem
geysaði á tiltölulega litlu
svæði eða frá Amamesinu
og suður fyriri Hafnarfjörð.
Skafl myndaðist á veginum í
Silfurtúnimi, rétt við Vífils
staðalækinn, og sneru tngir
bíla þar við, en aðrir skitdu
bíla sína eftir, og gengu yf
ir skaflinn. Lá svo til öll
umferð niðri um veginn frá
þvi um liálf níu og fram yfir
miðnætti, en þá var veðrið
farið að lægja og vegnrinn
ruddur.
Á nýja veginum fyrir
sunnan Hafnarfjörð fóru
margir bílar útaf í hríðinni
eða stoppuðu vegna þess að
rafkerfín blotenðu. Voru
sumir þeirra yfirgefnir og
þar á meðal bill af Keflavík
urflugvelli sem tvívegis var
ekið aftan á.
Stór skafl teppti alla um-
ferð af Vífilsstaðavegimnn
og inn á ,,Flatiniar“ í Garða
hreppi, og urðu víst margir
af jólaboðum í Garðabrepp
inum vegna ófærðar. Mikið
skóf að húsunum við Vífíls
staðaveginn, og voru viða
mannhæðarháir skaflar og
hærri þar um miðnættið,
sem er sjaldgæft hér á suð
vesturhorni landsins, en
Norðlendingum bregður víst
ekki í brún við slíka skafla.
18 gestir voru í Síðu-
múia á aöfangadagskvöld
KJ-Reyykjavík, þriðjudag.
reyndar búið að því núna, — enlir meinla ölvun við akstur. Enginn
FB-Reykjavik, þriðjudag.
Látinn er dr. Hermann Einars j Síðumúla
son fiskifræðingur. Hermann var
fæddur 9. desember 1913 sonur
hjónanna Einars Hermannssonar
vfirprentara og Helgú Guðrúnar
Framhald a bls. 15
vegna mikillar ölvunar í borginni jþeirra mun hafa brotið af sér í
Samkvæmt frásögn Jögreglunn- varð að opna fangageymsluna á I umferðinni. umfram það að vera
ar hefur um langt árabil ekki ver ný, og gistu 18 menn þar á að-
ið eins mikið um drykkjuskap á fangadagskvöld þar af munu hafa
j aðfangadag og núna. Venjulega er verið a.m.k. 5 eða 6 heimilisfeður.
hægt að loka fangageymslunni L Átta bifreiðastjórar voru núna
á aðfangadag. og varum jólin teknir af lögreglunni fyr
talinn ölvaður undir stýri, heldur
uppgötvaðist þetta við venjulegt
eftirlit hjá lögreglunni.
r-ABBAÐI SLÖKKVD IÐffi AI01ADAG
; SJ-Reykjavík, þriðjudag.
j Slökkviliðið^ var þrívegis kvatt
; út um jólin. Á laugardag kl. 18.16
I var það kvatt að Lindarbraut 25.
Seltjarnarnesi, en þar hafði orðið
röskun á olíukyndingu vegna raf-
magnstruflana. Á tíunda tímanum
á jóladagsmorgun hringdu börn
og sögðu að kviknað hefði í hús-
inu Brekka austan við Vatnsenda-
hæðina. Tveir bílar voru þegar
sendir á staðinn í vondu veðri,
og erfiðri færð, en komu þar að;
tómum kofunum. Við frekari eft-j
irgrennslan kom í ljós, að það var
8 ára drengur sem hafði gabbað
JÓLATRÉSFAGN AÐURINN
Laufásvegi 70, en þar hafði
kviknað í pottaleppum, sem höfðu
dottið upp fyrir eldavél og gaus
upp talsvert mikill reykur. í eld-
húsinu.
Að öðru leyti var heldur rólegt
hjá slökkviliðinu, þó var talsvert
mikið um sjúkraflutninga.
GERID SKIL
Dregið hefur verið í Happdrætti
Fra-msóknarflokksins, en ekki verð
ur hægt að birta vinningsnúmer
in fyrr er fuilnaðarskil hafa bor-
slökkviliðið í þessa ferð. Síða^- um izt, 0g er þess vænzt.. að menn
daginn var Slökkviliðið kvatt að geri skil, sem allra fyrst.
Jólatrésfagnaður Framsóknarfélaganna í Reykjavík, verður haldinn
að Hótel Sögu, föstudaginn 30. des. næst koonandi og hefst kl. 3 síð-
degis. Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar leikur og syngur og jólasveinn
inn Gáttaþefur kemur í heimsókn. Auk þess verða fram bornar ýmiss
konar veitingar. Aðgöngumiðasala er á skrifstofu Framsóknarflokksins,
Tjarnargötu 26, símar 15564 og 16066 og á afgreiðslu Tímans, Banka-
stræti 7, sími 12323. Tryggið ykkur miða í tíma vegna mikillar aðsóknar*
BIADBURÐARFÓLK ÓSKAST
á Skúlagötu og Borgartún. Upplýsingar á
greiðslu blaðsins Bankastrœti 7, sími 1 -23-23-
af-
I