Alþýðublaðið - 28.06.1983, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 28.06.1983, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 28. júní 1983 5 taldi sér óhætt að láta það í ljós: í ást á því lýrískasta í skáldskap og tónlist. í þeim ljóðum, sem hann sjálfur samdi. Þar var annar Vil- mundur á ferð en sá, sem hann vildi, að umheimurinn hefði hvunndagslega kynni af. Örsjald- an í umræðum var þó eins og ör- skotsbrestur kæmi í skelina. Eins og útihurðin hrykki upp og í gegn um gættina mætti greina þá Ijóð- rænu og viðkvæmu sál, sem bjó á bak við alla virkisveggina. En að- eins andartak. Svo var hurðinni snarlega skellt í lás og órofið stóð harðhnjóskulegt yfirborð virkis- múranna utan um innri mann Vil- mundar Gylfasonar. ___***__ Smekkur okkar Vilmundar Gylfasonar á skáldskap var ekki sá hinn sami. Á ég því erfitt með að kveðja hann með tilvitnun í verk þeirra þjóðskálda, sem hann mat öðrum fremur. Ein vísa i kvæði Fornólfs um Björn Guðna- son i Ögri og Stefán biskup er mér efst í huga þegar ég kveð Vilmund og kapítulann um hann í sögu lands og flökks. Hún er svona: „Frá eg hann tæpan meðal- rnann, nteiri að vexti fleiri en svo var eins og sýndist hann seggjum flestum meiri hjá annarri allri þjóð. Bæði af honum gustur geðs og gerðarþokki stóð“. Af Vilmundi Gylfsyni stóð bæði gerðarþokki og gustur geðs. Skarðið þar sem hann stóð stend- ur ófyllt. Ég votta eiginkonu hans og börnum, foreldrum, bræðrum og öðru skyldfólki samúð mína. Ég sakna Vilmundar Gylfasonar og þess tímabils, sem við hann verður kennt. Sighvatur Björgvinsson. Sjaldan hafa mér borist svo hörmuleg tíðindi og fregnin um andlát Vilmundar Gylfasonar. Eins og oft á þeim stundum þegar manni finnst lítið fara fyrir rétt- læti dauðans, vakna hinar eilífu spurningar um tilgang lífsins og hlutverk mannsins í undarlegum heimi. Starfsævi Vilmundar varð ekki löng en hann kom meiru í verk en margur á mun lengri ævi. Hann var eldhugi, sem ekkert fékk stöðvað þegar stefnan hafði verið tekin. Slíkir menn fara ekki ávallt alfaraleiðir og verða umdeildir. Vilmundur var stór í sniðum. Það átti ekki einungis við um pólitísk afskipti hans, heldur öll mannleg samskipti. Hann var hjartahlýr maður og lét sér annt um þá sem ekki gátu staðið upp- réttir einir og óstuddir. Hann unni góðri tónlist og góðum bók- menntum. Mörgum fannst hann harður og bardagaglaður. En undir þeim hjúpi sem hann sveipaði sig í hinni daglegu baráttu, sló gott hjarta, sem örlögin höfðu stundum kramið af ótrúlegu miskunnar- leysi. Áhrif þess örlagaleiks á líf ungs manns þekkti enginn. Ekki veit ég hvort þessi kveöju- orð hefðu fallið Vilmundir í geð. Það er líka hreint hismi að reyna að minnast hans í fáum línum í sólskini sænska skerjagarðsins. Til þess var hann of stórbrotinn persónuleiki, og margbrotinn ein- staklingur. Ég verð Vilmundi ávallt þakk- látur fyrir það góða og einlæga samstarf sem við áttum og þá vin- áttu sem hann sýndi mér. Hann hlýtur að verða öllum ógleyman- legur sem honum kynntust. í mín- um huga bærast eingöngu hlýjar tilfinningar, þegar ég hugsa til þessa fallna félaga míns. Og staðreyndin er sú að ég á erf- itt með að kveðja hann. Til þess er dauði hans of fjarstæðukenndur. Eitt kvöld þegar við sátum sam- an, las Vilmundur fyrir mig ljóð eftir Matthías Jochumsson, sem hann mat mikils. Einu þeirra lauk á þessa leið: Far vel heim, heim í drottins dýrðargeim! Náð og miskunn muntu finna, meðal dýpstu vina þinna: Friðarkveðju færðu þeim. Far vel heim. Það eru stundum hljómlítil orð þegar fluttar eru samúðarkveðj- ur, en ég bið góðan Guð að lina þjáningu þeirra sem eftir lifa. Ég harma að geta ekki verið við útför félaga míns. Þessi fáu kveðjuorð verða að nægja. Og hvað getur maður svo sem sagt. Árni Gunnarsson í dag verður kvaddur Vilmund- ur Gylfason alþingismaður. Vil- mundur var fæddur 7. ágúst 1948. Foreldrar hans eru Guðrún Vil- mundardóttir Jónssonar land- læknis og Gylfi Þ. Gíslason, fyrr- verandi alþingismaður og ráð- herra, sonur Þorsteins Gíslason- ar, ritstjóra og útgefanda. Önnur börn þeirra hjóna eru Þorsteinn og Þorvaldur. Vilmundur var kvæntur Valgerði Bjarnadóttur, deildarstjóra hagdeildar Flug- leiða. Foreldrar hennar voru Sig- ríður Björnsdóttir Jónssonar skipstjóra og Bjarni Benedikts- son, alþingismaður og forsætis- ráðherra, sonur Benedikts Sveins- sonar alþingismanns. Valgerður og Vilmundur áttu fimm börn, en af þeim eru eftirlifandi Guðrún og Baldur Hrafn. Að Vilmundi stóðu sterkir stofnar í menningar og stjórnmál- um, þannig að áhugi á þjóðmál- um var meðfæddur og fylgdi hon- um úr föðurhúsum. Kynni Vil- mundar og Valgerðar hófust á unglingsárum þeirra, en að Val- gerði standa samskonar stofnar rótgróins þjóðmálaáhuga, því var hún honum styrk stoð í starfi og baráttu. Vilmundur hóf nám við Menntaskólann í Reykjavík haustið 1964 og varð fljótlega at- kvæðamikill í skólalífinu. Hann var ritstjóri Skólablaðsins einn vetur og gegndi embætti inspector scholae veturinn 1967-1968. Stú- dentsprófi úr máladeild lauk Vil- mundur vorið 1968 og hélt um haustið til Englands, þar sem hann hóf nám í sagnfræði og bók- menntum við háskólann í Man- chester. B.A. prófi lauk Vilmund- ur þaðan árið 1971. Hann hugði á frekara nám í grein sinni, og byrj- aði haustið 1971 nám við háskól- ann í Exeter i Suður-Englandi. Þaðan lauk hann M.A. prófi árið 1973 og fjallaði ritgerð hans um þætti í breskri stjórnmálasögu. Á Englandsárum Vilmundar mótuðust mjög skoðanir hans á stjórnmálum, fréttamennsku og skyldum ritstörfum. Hann taldi fréttamennsku þarlendra um flest til fyrirmyndar í þessum efnum enda ríkti þar hefð gagnrýnna og upplýsandi fréttaskrifa. I sumar- leyfum frá sögunáminu, á þessum árum, vann Vilmundur á frétta- stofu hljóðvarpsins og átti hlut að ýmsum nýjungum í starfsemi hennar. Þegar Vilmundur kom heim frá námi árið 1973 gerðist hann kenn- ari í sagnfræði við Menntaskól- ann í Reykjavík. Samhliða kennsl- unni skrifaði hann mikið í dag- blöð og starfaði einnig við sjón- varp, að gerð fréttaskýringa- og samtalsþátta. Þá fór fljótlega að kveða við nýjan tón í íslenskri þjóðmálaumræðu. Þessum ske- legga talsmanni frjálsrar og djarfrar fjölmiðlunar líkaði illa lognmollan og hann hvatti þjóð sína óspart til dáða. í kennslustörfum sínum var Vilmundur einkar farsæll og vel liðinn bæði af nemendum og samkennurum sínum. í skólastof- unni var hann hinn áhugasami hrífandi mælskumaður og á kennarastofunni hinn skemmti- legi orðheppni félagi. Á þessum árum hóf Vilmundur að marki afskipti sín af stjórn- niálum. Hann var í framboði fyrir Alþýðuflokkinn á Vestfjörðum fyrir kosningarnar 1974, og tók mjög virkan þátt í starfsemi flokksins. Hann gegndi þar ýms- um trúnaðarstörfum og var sum- arritstjóri Alþýðublaðsins í mörg ár. Við kosningarnar 1978 var Vil- mundur í framboði í Reykjavík og átti stóran hlut í hinum eftir- minnilega sigri flokksins. Þá var Vilmundur kjörinn fyrst á þing. Hann náði aftur kjöri í desember 1979 og í apríl síðastliðnum var hann kjörinn þingmaður Banda- lags Jafnaðarmanna í Reykjavík. Frá október 1979 til febrúar 1980 .var hann dóms-, kirkju- og menntamálaráðherra í minni- hlutastjórn Alþýðuflokksins. Á þingi var Vilmundur ötull og fylginn sér. Hann var afkastamik- ill, undirbjó mál sín vel og flutti skörulega. Af þingmálum hans má glöggt sjá áhuga hans á efl- ingu lýðræðislegra stjórnarhátta, bæði innan þings og utan. Eins og komið hefur fram voru ritstörf Vilmundi mjög hugleikin. Auk skrifa sinna fyrir dagblöð og tímarit sá hann um gerð útvarps- þátta um listir og menningarmál. Hann var hvatamaður að útgáfu Helgarpóstsins og setti sjálfur á fót og ritstýrði vikublaðinu Nýju landi, sumarið 1981. Tvær ljóða- bækur komu út eftir hann, Mynd- ir og ljóðbrot árið 1970, og Ljóð árið 1980. Á síðasta haustþingi, í nóvemb- er, tilkynnti Vilmundur úrsögn sína úr þingflokki Alþýðuflokks- ins og væntanlega stofnun nýrrar stjórnmálahreyfingar, Bandalags Jafnaðarmanna. Bandalag Jafn- aðarmanna var formlega stofnað 15. janúar á þessu ári, og Vil- mundur kjörinn formaður mið- stjórnar. Bandalagið bauð fram í öllum kjördæmum við alþingis- kosningarnar 23. apríl og hlaut fjóra þingmenn kjörna. Margs er að minnast frá liðnum vetri, en uppúr stendur eldmóður manns, sem var engum líkur. Af- kastageta Vilmundar í starfi, yfir- sýn yfir íslensk stjórnmál fyrr og nú, hæfileiki hans til framsetning- ar, allt þetta hreif fólk til starfs og hugsunar. Árangurinn er þegar kominn í ljós í því að umræða um grundvallaratriði lýðræðisins er endurvakin, og hugtök eins og frelsi og valddreifing hafa öðlast merkingu á ný. Óeigingirni Vil- mundar og virðing fyrir leikregl- um lýðræðisins, áminningar hans um, að stjórnmálasigrar væru ekki tilefni til að hreykja sér hátt, né ósigrar tilefni til víls, eru hluti af áhrifum, sem aldrei gleymast. Félagar og vinir úr Bandalagi Jafnaðarmanna kveðja Vilmund með sárum söknuði og þakklæti. Við vottum Valgerði og börnun- um, foreldrum hans og bræðrum, samúð okkar og hluttekningu. Samstarfsmenn í Bandalagi Jafnaðarmanna Náinn samverkamaður og vin- ur er fallinn. Storminum lokið, lognið komið að nýju. í huga all- flestra íslendinga mun kyndill frelsis og jafnréttis og þó fyrst og fremst kyndill heiðarleikans, sem Vilmundur hélt á lofti, verða leið- arljós á komandi tímum, hvar svo sem menn eru í flokkum. Árin voru fá, en ævin var þó kannski ekki svo mjög stutt. Margir hafa orðið gamlir að árum, en þó ekki látið eftir sig brot af ævistarfi Vil- mundar. Hann kom eins og eld- hnöttur inn í íslensk stjórnmál, ungur maður fullur af áhuga um að gera mannlífið betra og feg- urra. Hann hreif með sér unga og aldna, sannfæringakrafturinn og áhuginn létu engan ósnortinn. Eftir kosningarnar 1978 stofn- uðum við félagsskap sem við köll- uðum Hádegisklúbbinn þar sem kom saman 30—50 manns einu sinni í mánuði í rúm 3 ár, og var Vilmundur ritari félagsskaparins alian tímann. Á þessum fundum var talað opinskátt um menn og málefni og ekki voru menn alltaf sammála. Eg held að þessir fundir hafi verið Vilmundi mikils virði, enda sagði hann stundum, „Hvernig fara þeir þingmenn að, sem hafa ekki svona bakhjarl, fólkið sem .segir sína meiningu úmbúðalaust? En við sem tókum þátt í þessum fundum höfðum ekki minna gagn af þeim en hann. En Vilmundur vildi ekki bara tala eða hlusta hann vildi koma hlutunum í framkvæmd en hann sagði réttilega: „Hvað get ég gert? Ég er ekki framkvæmdarvald, ég er hluti af löggjafarvaldinu, og þegar flokkar og einstaklingar gefa mikil fyrirheit og lítið verður úr efndum verða vonbrigðin mik- il. Ég vil reyna að uppfylla fyrir- heitin“. Hans líf fór í að reyna að uppfylla fyrirheitin. Fyrir hönd þessa fólks, sem tók þátt í þessum fundum, vil ég færa innilegar þakkir og kveðjur til Vilmundar og persónulega vil ég og fjölskylda mín þakka honum fyrir sérstaka vináttu a' hverju sem á hefur gengið. Valgerði og börnum þeirra svo og foreldrum og bræðrum send- um við okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Jóhannes Guðmundsson í dag, er við kveðjum hinsta sinni Vilmund Gylfason, alþingis- mann, minnast ungir jafnaðar- menn í Reykjavík með söknuði fyrrum félaga síns og samherja. Vilmundur var um mörg undan- farin ár einn ötulasti og virkasti félagi í FUJ. Þeir eru ekki margir fundirnir á vegum félagsins þar sem Vilmundur var ekki mættur. Ávallt gátum við sótt til hans góð ráð og aldrei færðist hann undan þeim verkefnum, sem honum voru falin. Vilmundur var okkur fyrir- mynd í mörgu. Ekki síst mátum við hann fyrir að heyja baráttu sína af drengskap og einbeitni og hversu reiðubúinn hann var að mæta andsvörum þeirra, sem ekki fóru sömu brautir. Vilmundur Gylfason og aðrir ungir jafnaðar- menn áttu því nær alltaf samleið í baráttunni fyrir betra og fegurra mannlifi þeim til handa, sem minna máttu sín í þjóðfélaginu. Það var engin lognmolla í kringum Vilmund, er hann fyrir áratug síðan hóf af krafti baráttu sína við staðnað kerfi stjórnmál- anna. Enda hreif hann hugi mörg þúsund manna með krafti sínum og sannfærandi framsetningu. Það er sannfæring okkar, að eigi síst vegna baráttu Vilmundar hefur álit almennings á stjórn- málamönnum og stjórnmálabar- áttu breyst verulega á síðustu ár- um. Vilmundur Gylfason verður ungum jafnaðarmönnum áfram fyrirmynd í heiðarlegri baráttu fyrir þeim málefnum, er við trú- um á. Við munum ætíð minnast hans með þakklæti fyrir að fá að njóta samfylgdar hans og sam- starfs. Ungir jafnaðarmenn í Reykja- vík harma góðan dreng og senda Valgerði og börnunum, foreldrum og öðrum skyldmennum dýpstu samúðarkveðjur. Kristinn H. Grétarsson, formaður FUJ í Reykjavík Framhald. á nœstu síðu

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.