Tíminn - 05.01.1967, Qupperneq 13

Tíminn - 05.01.1967, Qupperneq 13
FIMMTUDAGUR 5. janúar 1967 ÍÞRÓTTIR TÍMINN ÍÞRÓTTIR 13 KSI tekur ekki upp ein- ræðisherra-fyrirkomulag Þriggja manna landsliðsnefnd hefur verið skipuð, og 25 leikmenn verða brátt valdir til landsliðsæfinga Geir Hallsteinsson, einn sterkasti leikmaður F'H um þessar mundir. Alf—Reykjavík. — fslenzk knattspyrna fær ekki sinn „einræðisherra" um val lands liðsins á þessu ári, eins og svo margir héldu eftir síðasta árs þing Knattspyrnusambands ís lands, en á því þingi fékk stjórn KSÍ heimiid ti| að ráða fyrirkomulagi landsliðs- vals. Var það almenn skoðun, að stjórnin myndi grípa tæki færið og skipa „einræðis- herra", sem sæi einn um val landsliðsins. Slíkt fyrirkomu- lag er viðhaft í flestum ná grannalöndum okkar og þykir heppilegt. Enn hefur stjórn KSÍ skipað þriggja manna landsliðsnefnd og með því fækkað um tvo í nefndinni frá því, sem áður var. Eflaust verður stjórn RSÍ gagn rýnd fyrir að stíga ekki til fulls það skref að láta einn mann sjá um val landsliðs. Reynsluna af fimm manna og þriggja manna landsliðsnefnd höfum við öðlazt, Alf—Reykjavík. — Tvisvar sinnum hafa FH-ingar á s. I. hálfum mánuði sent skeyti til mótherja sinna í Evrópubikar keppninni í handknattleik, Honved I í Búdapest, en Ung- verjar eru þöglir eins og gröf in og hafa hvorugu svarað. Er þetta mjög bagalegt fyrir FH, þar sem ekki má dragast mikið lengur að semja um leikdaga í Reykiavík. „Við erum mjög undrandi yfir því að hafa ekkert heyrt frá Ung- verjunum", sagði Birgir Björns- son, fyrirliði og þjálfari FH, þeg-! ar við ræddum við hann i gær.! Og Birgir bætti við: „Við höfum j ekki séð okkur annað fært en kvarta yfir þessari framkomu Ung; verjanna við þýzka handknatt-| leikssambandið, sem sér um mót- j ið. Höfum við beðið þýzka sam-j bandið að hnippa í Ungv^rjana." j — Farið þið fram á það við j Ungverjana, að báðir leikirnirj verði leiknir hér heima? — í skeytunum, sem við send- um út, töluðum við aðeins um möguleika á aukaleik í Reykja- vík, en ekki, að báðir leikirnir í keppninni fari fram í Reykjavík. Það er lífsnauðsyn fyrir okkur að fá einn aukaleik, því innkoma á einn leik mun hvergi hrökkva til að greiða hinn mikla ferðakostn- að til Budapest. — Eruð þið ekki farnir að und- -irbúa ferðina til Budapest, þótt þið hafið ekki heyrt frá Ungverj- unum enn þá? — Jú. Um þessar mundir erum við að kanna ódýrustu ferðir til Ungverjalands, en jafnvel ódýr- ustu ferðir eru dýrar, þegar um svo langa leið er að ræða, sagði Birgir Björnsson að lokum. én ekki er enn.reynt, hvernig ein- ræðishefra-fyrirkomulagið muni takast, Segja má þó, að skárra sé að búa við þriggja manna lands- iiðsnefnd en fimm manna. 25 leikmenn valdir til lands- liðsæfinga. Fyrsta verkefni hinnar nýskip- úðu landsliðsnefndar er að velja 25 leifcmenn tií iandsliðsæfinga. Stjórn RSÍ hefur ákveðið í sam- ráði við hinn nýja landsliðsþjálf- ara, Reyni Karlsson, að eglulegar landsliðsæfingar verði haldnar í vetur. Eiga æfingarnar að hefj- ast innan tíðar, en ekki er ákveð- ið, hvort þær verða einu sinni eða tvisvar í viku. Verður . þetta í fyrsta skipti, sem landsliðsæfingar í knattspyrpu fara fram að vetri til, og fýrsta tifraunin til að und- irbúa ísl. landslið í knattspyrnu rækilega undir keppni. Hvað segja félögin? • Hætt er. við, að landsliðsæfing- ; ar einu sirinktij ' tvisvgr í yjku [ trufli æfingatímá félagahna. Þarf J því áð hafa, fullt sarhráðtvið félög*. in um landsliðsæfingarnar. Leikmennirnir 25, sem valdir verða á næstunni, verða eingöngu „ ,. , frá Reykjavíkurfélögunum, Kefla- Vonandi, heyra FH-ingar fljot- Ungverjar ef til vill að íhuga að vík og cf til vill frá Akranesi. I Trúlegt er, að þeir leikmenn á Ungverjar þöglir eins og gröfin Akureyri, sem koma til með að .vera í landsliði, fái sent sérstakt æfingaprógramm til að fara effir, því útilokað er, að .þeir ferðist vikulega til Reykjavíkur til að stunda landsliðsæfingar. og svara FH kvartar til þýzka handknattleikssambandsins lega frá Ungverjunum, eða eru gefa leikinn? St. Mirren 'í falihættu St. Mirren, hið gamla fé- lag Þórólfs Beck, er í fall- hættu í 1. deildinni skozku. Hefur St. Mirren aðeins hlotið 7 stig úr leikjum og er í næsfcneðsta sæti. Ayr er fyrir neðan með 5 stig. Eins og kunnugt er, falla tvö neðstu liðin. Keppnin á Skot landi er aðeins hálfnuð, en sýnt þykir, að þessi työ lið falli. Þriðja neðsta iiðið, Stirling A. er með 11 stig. Celtic hefur forustu í keppninni, hefur hlotið 29 stig, hefur aðeins tapað ein- um leik — fyrir Dundee Utd. — Aberdeen er í 2. sæti og Rangers í þriðja sæti. A8 hverju eru mennirnir að leita? Jú, linsum, sem einn leikmanna í bandaríska körfuknattleiksliðinu í háskólanum í Houston hefur misst á gólfið. ÞaS gerist nú sífellt algengara, aS íþróttamenn, sem sjá illa og þurfa a3 nota gleraugu, noti svokallaðar linsur, þegar þeir taka þátt í íþrótta- keppni. En stundum vilja óhöpp tll, og það getur tekið langan tíma að finna linsur, sem týnast á íþróttavelii.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.